Morgunblaðið - 03.07.2018, Page 27
Á þessum tíma reri hann stíft frá
Eyjum og fjölskyldan stækkaði.
Synirnir urðu fjórir. Einnig tóku
þau hjón í fóstur dóttur hans Gylfa.
Árið 1975 setti Lýður tappann í
flöskuna, gerðist meðlimur í AA-
samtökunum þar sem hann á enn
góða vini. Hann starfaði með Leik-
félagi Vestmannaeyja og samdi þar
tónlist sem hann flutti m.a. á Þjóðhá-
tíð, lék hann iðulega á harmonikk-
una fyrir sjúklinga á Sjúkrahúsinu
og dvalarfólk á Hraunbúðum. Hann
var einn af stofnendum hins al-
ræmda Hrekkjalómafélags Vest-
mannaeyja og sat í Sjómannadags-
ráði Vestmannaeyja um skeið.
Á áttunda áratugnum samdi
Lýður vel á annað hundrað lög, m.a.
Þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja árið
1985 við texta Gauja Weihe. Lagið
fékk nafnið Í skjóli fjalla og kom út á
fyrstu plötu þeirra félagi sama ár.
Árið 1987 kom út platan Lómurinn
Lævís, 1989 var það Logadans, 1992
Lífið í lit og árið 2008 Í lífsins ólgu
sjó. Þá gáfu feðgarnir, Þorsteinn og
Lýður út plötu árið 2010 sem inni-
hélt lög eftir Þorstein við texta
Lýðs. Plöturnar seldust allar vel,
fóru allar í gull eða yfir 3.000 eintök,
og þrjár í platínu eða yfir 5.000 ein-
tök. Í lífsins ólgusjó er að nálgast
9.000 eintök.
Eftir Lýð liggja ein 300 lög og
textar sem án efa eiga eftir að koma
út einhvern daginn. Meðal þeirra
eru hátt í 20 lög sem fjalla eingöngu
um Eyjarnar og veru Lýðs í Eyjum.
Þó svo hann hafi fæðst og alist upp á
Siglufirði hefur Lýður alltaf kallað
sig Eyjamann.
Fjölskylda
Börn Lýðs og fyrri konu hans,
Hörpu Sigurjónsdóttur, f. 2.1. 1951,
húsfreyju, eru Þorsteinn, f. 13.3.
1969, umsjónarmaður íþróttamann-
virkja í Þorlákshöfn en kona hans er
Hrönn Harðardóttir og eiga þau
fjögur börn; Finnbogi, f. 20.4. 1974;
handverksmaður og verktaki í
Reykjavík og á hann þrjú börn; Sig-
urjón, f. 17.9. 1976; tölvunarfræð-
ingur í Hafnarfirði, en kona hans er
Þórey Ágústsdóttir og eiga þau þrjú
börn; Ófeigur, f. 22.3. 1983, þjón-
ustufulltrúi hjá Toyota, búsettur í
Reykjavík en kona hans er Krist-
jana Hlín Valgarðsdóttir og eiga þau
eina dóttur, og Selma Hrönn Maríu-
dóttur, f. 18.8. 1969 (fóstur- og bróð-
urdóttir), framkvæmdastjóri á
Siglufirði en maður hennar er Smári
Snæbjörnsson og eiga þau fjögur
börn.
Seinni eiginkona Lýðs var Rann-
veig Kristjánsdóttir, f. 26.6. 1962,
skrifstofutæknir en dóttir hennar er
Bylgja Ægisdóttir, f. 26.8. 1980,
búsett í Danmörku.
Albræður Lýðs eru Gylfi, f. 10.11.
1946, fyrrv. sjómaður og lagasmiður;
Jón, f. 19.5. 1953, d. 22.4. 2014, fyrrv.
sjómaður í Hveragerði; Sigurður, f.
21.9. 1958, sóknarprestur á Siglu-
firði, og Matthías, f. 1.6. 1960, skrif-
stofumaður í Reykjavík.
Foreldrar Lýðs voru Kristján
Ægir Jónsson, f. 4.5. 1921, d. 15.12.
1993, vélstjóri og verkamaður á
Siglufirði, og k.h., Þóra Frímanns-
dóttir, f. 19.12. 1921, d. 21.3. 2010,
verkakona á Siglufirði.
Lýður Ægisson
Guðný Guðmundsdóttir
húsfreyja í Grímsey og í Rvík
Matthías Eggertsson
pr. í Grímsey, bróðursonur Matthíasar Jochumssonar
þjóðskálds, afa Þorvaldar Steingrímssonar fiðluleikara
Emelía Guðrún Matthíasdóttir
húsfr. í Grímsey og Hrísey
Frímann Sigmundur Frímannsson
útvegsbóndi í Grímsey
óra Frímannsdóttir
erkakona á Siglufirði
Sigríður Sigurmundsdóttir
húsfreyja í Grímsey
Frímann Benediktsson
hreppstjóri í Grímsey
Jón Ómar
Erlingsson bassa-
leikari í Sóldögg
Sigurður Ægisson
sóknarprestur á Siglufirði
gnes Matthíasdóttir
húsfr. í Rvík
Kristín Matthíasdóttir
húsfr. á Akureyri og í Rvík
Eggert B. Sigurmundsson skipstj., síðast í Hveragerði
Erling Þór
Jónsson
vélsmiður á
Siglufirði
Gylfi Ægisson fv. sjóm.,
lagasmiður og tónlistarmaður
Magnús Þór
Sigmundsson
tónlistarmaður
Matthías Matthíasson
tónlistarm. og söngvari
Kristjana Anna Eggerts-
dóttir húsfr. í Laufási í
Biskupstungum og í Rvík
Ruth
(Reginalds)
Moore
söngkona
í Banda-
ríkjunum
Sigmundur
Baldvins-
son sjóm. í
Njarðvík
AMatthías Ásgeirs-
son íþróttakennari
Guðný Guðmundsdóttir fv. konsert-
meistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Þ
v
Ríkey Ingi-
mundar-
dóttir
listmálari
og mynd-
höggvari í
Rvík
Bentsína
Bryngerður
Frímanns-
dóttir húsfr.
í Færeyjum
Guðmundur Matthíasson organ-
isti og tónlistarkennari við KHÍ
Katrín Matthías-
dóttir listakona
Atli Eyjólfsson hjartaskurð-
læknir í Riad í Sádi-Arabíu
Matthías Frímannsson guð-
fræðingur, löggiltur skjalaþýð-
andi, framhaldsskólakennari
og leiðsögum. í Kópavogi
Guðbjörg Ásgeirs-
dóttir húsfr. í Rvík
Sigurður Sigurmundsson b. og fræðim.
í Hvítárholti í Hrunamannahreppi
Guðrún Halldórsdóttir
húsfreyja á Siglufirði
Stefán Magnússon
verkamaður á Siglufirði
Stefanía Guðrún Stefánsdóttir
húsfreyja á Siglufirði
Jón Kristjánsson
vélstj.og rafstöðvarstj. á Siglufirði
Sigurlaug Sæmundsdóttir
húsfr. á Syðstamóa
Kristján Jónsson
b. á Syðstamóa í Fljótum, ættfaðir Lambanesættar
Úr frændgarði Lýðs Ægissonar
Kristján Ægir Jónsson
vélstjóri og verkamaður á Siglufirði
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018
Sigurjón Sveinsson fæddist áSteinaflötum á Siglufirði 3.7.1918. Hann var sonur Sig-
valda Þorsteins Sveins Jónssonar,
byggingameistara á Siglufirði, og
Geirlaugar Sigfúsdóttur húsfreyju.
Sveinn var sonur Jóns Jónssonar,
smiðs og bónda í Mósgerði og síðar á
Siglufirði, og Sigurlaugar Sigvalds-
dóttur, en Geirlaug var dóttir Sig-
fúsar Jóhannssonar, bónda og sjó-
manns í Saurbæ, á Siglufirði og
víðar, og Sigurlaugu Þóru Guð-
brandsdóttur húsfreyju.
Eiginkona Sigurjóns var Ólöf
Steingrímsdóttir skrifstofumaður,
frá Eyvindartungu í Laugardal.
Synir þeirra: Steingrímur, bygg-
ingaverkfræðingur og húsasmíða-
meistari; Sveinn Geir vélfræðingur,
og Kristinn, rafmagnsverkfræð-
ingur og efnaverkfræðingur.
Meðal systkina Sigurjóns má
nefna Óskar, trésmíðameistara og
byggingafræðing, og Helga íþrótta-
kennara.
Sigurjón lauk stúdentsprófi frá
MA 1941, prófi í byggingariðnfræði
frá Tekniska Institut í Gautaborg
1947, prófi í húsasmíði hér á landi
1948, stundaði síðan nám í arkitekt-
úr við Norges Tekniska Högskole í
Þrándheimi frá 1954 og lauk þaðan
lokaprófi 1957.
Sigurjón var eftirlitsmaður hjá
Húsameistara ríkisins og bæjarsjóði
Reykjavíkur 1948-54, starfaði hjá
Húsameistara ríkisins frá 1957, var
deildararkitekt þar 1959-64 og bygg-
ingafulltrúi í Reykjavík frá 1964 og
til dánardags.
Sigurjón var fulltrúi Reykjavikur-
borgar í stjórn Nordisk Byggedag,
sat í stjórn Iðnfræðingafélags Ís-
lands og var formaður þess 1953-54
og kenndi við Meistaraskólann.
Meðal þekktra húsa sem Sigurjón
teiknaði eru Slökkvistöðin í Reykja-
vík, Ráðhús og bókasafn á Siglufirði,
Sjúkrahús Siglufjarðar og Árbæjar-
skóli sem hann teiknaði með Þor-
valdi Kristmundssyni.
Sigurjón lést fyrir aldur fram hinn
1.11. 1972.
Merkir Íslendingar
Sigurjón
Sveinsson
95 ára
Sigríður Skarphéðinsdóttir
85 ára
Bryndís S. Guðmundsdóttir
Erlingur Pálsson
Gústaf Óskarsson
80 ára
Erna Sörladóttir
Guðbjörn Charlesson
Jórunn Magnúsdóttir
Kristrún Ólafsdóttir
75 ára
Ragnheiður S. Karlsdóttir
70 ára
Ástríður Þorsteinsdóttir
Bjarni Björnsson
Dagný Guðnadóttir
Gróa V. Eyjólfsdóttir
Ingunn Sigurðardóttir
Lýður Ægisson
Sigmar Eiríksson
Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sigríður Skúladóttir
Sigurgeir Bóasson
60 ára
Aðalbjörn Jón Sverrisson
Eggert H. Margeirsson
Eiríkur V. Friðriksson
Guðlaugur Ö. Þorsteinsson
Hugrún Ó. Guðmundsdóttir
Ingibjörg Barðadóttir
Irena Czajkowska
Kolbrún Þórisdóttir
Leo Trinidad Advincula
Marek Jacek Bajkowski
Málfríður F. Arnórsdóttir
Ragnheiður Á. Pálsdóttir
Sigríður B. Guðjónsdóttir
Steingrímur P. Baldvinsson
Sveinbjörn Björnsson
50 ára
Ásgeir H. Aðalsteinsson
Ásthildur Halldórsdóttir
Gunnlaugur Þorgeirsson
Nanna Maja Norðdahl
Sigurður G. Markússon
Teresa Helena Stencel
Védís Birgisdóttir
Vigdís Beck
40 ára
Ásta S. Sigurbjörnsdóttir
Bjarki Logason
Björn Þorleifur Þorleifsson
Dariusz Denis
Donata H. Bukowska
Eva Soffía Halldórsdóttir
Hákon Hákonarson
Heiða Steinunn Ólafsdóttir
Inga Rún Birgisdóttir
Janis Ziedins
Katrín Lilja Ólafsdóttir
Michail Liokalos
Pablo E. Santos Melendez
Sigríður Gunnarsdóttir
Sigrún Lína Helgadóttir
Sören Petersen
30 ára
Davíð Bragason
Elvar Þór Eðvaldsson
Erna Björk Kristinsdóttir
Halldór Már Kristmundsson
Hamidah Momand
Hildur Margrét Hjaltested
Jesalyn Sanchez Italia
Jón Geir Ásgeirsson
Lovísa Ýr Guðmundsdóttir
Ragnheiður Leifsdóttir
Róbert Ægir Hrafnsson
Sigurður Rúnar Sigurðsson
Steven Patrick Gromatka
Sunna Árnadóttir
Svanhildur Lilja Svansdóttir
Zakarías H. Gunnarsson
Zaneta Frydrychová
Þórður Sölvason
Til hamingju með daginn
30 ára Róbert ólst upp í
Reykjavík og Reykjanes-
bæ, lauk sveinsprófi í
húsasmíði frá FB og er
slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamaður hjá
Slökkviliði höfuðborgar-
svæðisins.
Maki: Selma Markús-
dóttir, f. 1991, nemi í við-
skiptafræði.
Dóttir: Emilía, f. 2017.
Foreldrar: Hrafn Jóns-
son, f. 1956, og Auður
Matthíasdóttir, f. 1956.
Róbert Ægir
Hrafnsson
30 ára Lovísa ólst upp á
Selfossi, býr í Kópavogi,
var að ljúka sveinsprófi í
prentsmíð og starfar hjá
Pixel.
Unnusti: Hrannar Freyr
Hallgrímsson, f. 1986,
gullsmiður.
Sonur: Mikael Tómas, f.
2015. Stjúpdóttir: Aldís
Inga, f. 2006.
Foreldrar: Jóna Krist-
björg Hafsteinsdóttir, f.
1956, og Guðmundur
Hansson, f. 1961.
Lovísa Ýr
Guðmundsdóttir
30 ára Elvar ólst upp í
Eyjum, býr þar, er hljóð-
maður og trommuleikari
með ýmsum hljóm-
sveitum, hefur starfað
mikið í hjálparsveitinni
þar og er varaformaður
Leikfélags Vestmanna-
eyja.
Foreldrar: Eðvald Eyjólfs-
son, f. 1964, fyrrv. tónlist-
armaður, og Sigríður
Kristinsdóttir, f. 1967,
húsfreyja, nú búsett í
Noregi.
Elvar Þór
Eðvaldsson
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum
g auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
g fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
R
o
o