Morgunblaðið - 03.07.2018, Page 30

Morgunblaðið - 03.07.2018, Page 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Tvær ungar tónlistarkonur, Bára Gísladóttir og Bergrún Snæbjörns- dóttir, verða staðartónskáld á 43. Sumartónleikunum í Skálholti sem hefjast í dag, 3. júlí, og standa til 5. ágúst. Hlé verður gert á dagskránni meðan á Skálholtshátíð stendur frá 19. til 22 júlí. „Við eigum gríðarlega margar góðar tónlistarkonur og eru Bára og Bergrún í hópi þeirra. Við sækjumst eftir jafnrétti þegar kemur að kynjahlutfalli flytjenda og tónskálda en í ár hallar verulega á karlkynið. Ætli megi ekki segja að konur hafi átt eitthvað inni,“ segir Guðrún Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Sumartónleikanna í Skálholti. „Konur hafa fleiri tækifæri í dag, meira sjálfstraust og menntun en fyrir nokkrum áratugum,“ segir Guðrún sem fullyrðir að Sumar- tónleikar í Skálholti leiki stórt hlut- verk í menningarsögu litla Íslands sem stundum sé stórt og margt frá- bært að gerast á landinu. Kolbeinn Bjarnason, Margrét Bóasdóttir og Tryggvi Baldvinsson skipa stjórn Sumartónleika í Skál- holti og bera ábyrgð á listrænni stefnu tónleikanna. Stjórnin valdi Báru og Bergrúnu sem staðarskáld á Sumartónleikunum. Tvö verk eftir þær báðar verða flutt í sumar. Bræðingur er yfirskrift tónleika með nýjum verkum fyrir ástarvíólu og rafhljóð. Þar verða flutt verk eft- ir staðartónskáldin auk verka eftir Halldór Smárason og Þráin Hjálm- arsson. Seinni verk Bergrúnar og Báru verða flutt af Nordic Affect í lok Sumartónleikanna 5. ágúst en á þeim tónleikum verða einnig flutt verk eftir Veronique Vöku frá Kan- ada og Luong Hue Trinh frá Víet- nam. Að sögn Guðrúnar er dagskrá tónleikanna fjölbreytt og umfangs- mikil. Sem dæmi verði haldnir að nýju tónleikar með Bach-sveitinni í Skálholti sem gengið hefur í gegn- um endurnýjun og ungu fólki fjölgað í henni. Með Bach-sveitinni syngur Cantouqe Ensemble. „Dagskráin er mjög metnaðarfull og trú markmiðum Sumartón- leikanna frá fyrri tíð, en þau stuðla að nýsköpun og frumflutningi á sama tíma og hlúð er að flutningi barokktónlistar á upprunaleg hljóð- færi, sem eru hljóðfræði smíðuð sem eftirlíkingar af hljóðfærum frá 18. öld,“ segir Guðrún og bætir við að barokktónlist leikin á slík hljóðfæri hafi átt miklum vinsældum að fagna um nokkuð langt skeið. Nýtt verk fyrir ástarvíólu „Í fyrstu viku Sumartónleikanna verður mikið frumflutt af nýrri tón- list. Við fáum sérstakan gest frá Ítalíu, Marco Fusi, sem flytur ný- legt verk fyrir ástarvíólu eftir nor- ræn tónskáld. Fusi kemur einnig fram með Caput-hópnum sem er einn af okkar helstu forsvarshópum á sviði nútímatónlistar.“ Guðrún segir að önnur helgi Sum- artónleikanna verði eflaust mjög há- tíðleg þar sem tónlist Bach verður fyrirferðarmikil og tónleikar haldnir í minningu Þorkels Sigurbjörns- sonar. Á þriðju helginni verði barokk- bandið Brák í stóru hlutverki. Tón- list frá klassíska tímanum og selló- og sembaltónleikar með frönskum listamönnum. Guðrún segir að fjórða og síðasta helgin verði mikil kvennahelgi þar sem meðal annars verði lögð áhersla á frönsk kventónskáld. Þar verði einnig lútu- og hörputónleikar. „Það kostar ekkert inn á Sumar- tónleika í Skálholti og er það í anda stofnanda þeirra, Helgu Ingólfs- dóttur semballeikara. Hún var brautryðjandi og vildi að allir gætu notið klassískrar tónlistar í Skál- holti og að aðgagnseyrir yrði ekki hindrun fyrir þá sem vilja hlusta á klassíska tónlist. Við minnumst starfa Helgu og hugmynda hennar með virðingu á Sumartónleik- unum,“ segir Guðrún sem bætir við að tekið sé við frjálsum framlögum við dyrnar og þau framlög hafa skipt rekstur Sumartónleikanna verulegu máli undanfarin ár. „Það væri ekki hægt að bjóða upp á ókeypis tónleika ef ekki kæmi til velvilji bakhjarla, en Tónlistar- sjóður er aðalbakhjarl tónleika- haldsins. „Þeir eru margir velunnararnir sem styðja Sumartónleikana með beinum og óbeinum hætti og án þeirra væri ekki hægt að halda áfram,“ segir Guðrún og bætir við að Sumartónleikar í Skálholti séu elsta sumartónlistarhátíðin á Ís- landi og virt langt út fyrir landstein- ana. Skylda að skila arfleifðinni „Það er mikil ábyrgð að gæta þess að ganga ekki á það besta sem við eigum og það sama gildir um menningarverðmætin og náttúruna. Það er skylda okkar sem störfum í dag að skila arfleifðinni og auka frekar almannagæði en hitt,“ segir Guðrún sem segir að tónlistarmenn sækist eftir því að fá að dvelja í Skálholti, æfa og skapa þar lifandi list og flytja tónlist sína í hinni stór- kostlegu Skálholtskirkju. Dagskrá Sumartónleika í Skál- holti er að finna á sumartonleikar.is. Hallar verulega á karlkynið í ár  Metnaðarfull dagskrá á Sumartónleikum í Skálholti  Elsta sumartónlistarhátíðin á Íslandi  Bachsveitin og Cantouqe-hópurinn saman  Enginn aðgangseyrir  Frönsk kventónskáld Skálholt Cantouqe-hópurinn er þátttakandi á Sumartónleikunum. Tónlistarmenn Sólveig Thoroddsen á hörpu og Sergio Coto Blanco á lútu gleðja tónleikagesti í Skálholti á tónlistarviðburðinum Sungið á strengi. Morgunblaðið/Þórður Sumartónleikar Flestir aðdáendur klassískrar tónlistar ættu að finna eitt- hvað við sitt hæfi og njóta fallegrar tónlistar í Skálholtskirkju í sumar. Bergrún Snæbjörnsdóttir, sem hefur aðsetur í New York, lauk meistaraprófi í tónsmíðum frá Mills College í Kaliforníu. Í kynningu á Bergrúnu á vefsíðu Sumartónleika í Skálholti kemur fram að hún blandar saman ýms- um miðlum svo sem hljóðgjöfum, vídeólist og skúlptúrum. Bergrún er virk í flutningi á samtímatónlist og hefur verið flytjandi fyrir Sigur Rós og Björk. Flytur sam- tímatónlist STAÐARTÓNSKÁLD SUMARTÓNLEIKA Í SKÁLHOLTI 2018 Bergrún Snæbjörnsdóttir Bára Gísladóttir, tónskáld og kontrabassaleikari, stundar nám í tónsmíðum við Konunglegu dönsku tónlistarakademíuna í Kaupmannahöfn en hún lauk meistaraprófi við sömu stofnun. Bára hlaut í ár Léonie Sonning- hæfileikaverðlaun fyrir tónsmíðar. Hún vinnur nú að sinni fjórðu plötu. Áður útgefnar plötur hennar eru Different Rooftops, Brimslóð og Mass for someone. Fjórða platan á leiðinni Bára Gísladóttir Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.