Morgunblaðið - 03.07.2018, Síða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018
Síðan leikritið Harry Potter and
The Cursed Child, sem sýnt er í
tveimur hlutum og byggist á ævin-
týraheimi Harry Potter-bókanna,
var frumsýnt í London fyrir tveimur
árum, við glimrandi viðtökur og sóp-
aði að sér verðlaunum, halda fram-
leiðendur leiksýningarinnar áfram
að finna sýningunni fleiri heimili.
The New York Times greinir frá því
að San Francisco verði fjórða borgin
þar sem verkið verður sett upp en
sýningar munu hefjast þar í Curran-
leikhúsinu haustið 2019.
Rúmt verður um gesti því Curr-
an, sem var tekið í gegn og end-
urnýjað fyrir tveimur árum, tekur
1.600 gesti í sæti.
Áður munu sýningar á The Cur-
sed Child hefjast í Melbourne í
Ástralíu, snemma á næsta ári.
Verkið var tekið til sýninga í Ly-
ric Theater í New York í fyrra og
hefur verið afar vel tekið en það
hreppti sex Tony-verðlaun á dög-
unum, meðal annars sem besta leik-
sýningin. Fyrri hluti leikritsins er
sýndur síðdegis en sá seinni sama
kvöld – saman eru hlutarnir tveir
fimm tímar. Uppsetningin er sú
dýrasta á leikriti sem nokkru sinni
hefur verið sett upp á Broadway í
New York.
The Cursed Child er skrifað af
Jack Thorne og byggist á sögu eftir
J.K. Rowling – höfund sagnanna um
Potter, Thorne og John Tiffany.
Leikritið gerist 19 árum eftir að frá-
sögn Potter-bókanna lýkur og fylgst
er með Harry Potter og Albus syni
hans, sem stundar nám við Hog-
wart-skólann og þarf að takast þar á
við goðsögnina um hinn fræga föður
sinn og lendir í ýmsum ævintýrum.
Skrautlegt Leikritið er sýnt lát-
laust í Lyric-leikhúsinu í New York.
Leikritið um Potter
til San Francisco
Tríóið Tourlou er á tónleikaferð um
landið og treður upp í Edinborg-
arhúsinu á Ísafirði í kvöld, þriðjudag,
og hefjast tónleikarnir í Bryggjusaln-
um klukkan 20.
Tríóið skipa Anna Vala Ólafsdóttir
sem leikur á selló og syngur, David
Alameda Márquez sem leikur á fiðlu,
víólu d’amore, mandólín og syngur,
og Mayumi Malotaux sem syngur og
leikur á fiðlu og mandólín.
Í tilkynningu um tónleikana segir
að Tourlou bjóði tónleikagestum í
ferðalag til landa á borð við Búlgaríu,
Makedóníu, Armeníu, Grikkland,
Ítalíu og Spán. Tríóið flytur þjóðlaga-
tónlist í eigin útsetningum og á efnis-
skránni kennir ýmissa grasa, allt frá
melankólískum ballöðum til líflegrar
danstónlistar. Eins og efnisskráin
koma tónlistarmennirnir úr ólíkum
áttum, frá Íslandi, Spáni og Hollandi.
Á þeim tveimur árum sem liðin eru
frá stofnun Tourlou hafa þremenn-
ingarnir farið í tónleikaferðalög um
Spán og Japan, gefið út sinn fyrsta
geisladisk og komið fram á hinum
ýmsu tónleikum og tónlistarhátíðum í
Hollandi og Belgíu.
Tourlou tríó á Ísafirði
Tríóið Tourlou hefur komið fram
víða og ferðast nú um Ísland.
The Incredibles 2 1 2
TAG Ný Ný
Sicario: Day of the Soldado Ný Ný
Jurassic World: Fallen Kingdom 2 4
Ocean's 8 4 3
Adrift 3 3
Book Club 5 2
Kona fer í stríð 6 6
Love, Simon Ný Ný
Solo – A Star Wars Story 7 6
Bíólistinn 29. júní – 1. ágúst 2018
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Teiknuðu ofurhetjurnar í Incredi-
bles 2 stukku í síðustu viku beint á
topp aðsóknarlista kvikmyndahús-
anna, þegar byrjað var að sýna
myndina, og þessa helgina sátu þær
þar sem fastast – um 7.600 mann
sáu myndina. Kvikmyndin Tag var
tekin til sýninga fyrir helgina og
fékk næstmestu aðsóknina en í
þriðja sæti listans er framhald kvik-
myndarinar Sicario (sem Jóhann
Jóhannsson samdi á sínum tíma
tónlistina við), Sicario: Day of the
Soldado, en í henni er tónlistin eftir
Hildi Guðnadóttur. Júraheimurinn,
Fallen Kingdom, gefur því eftir.
Bíóaðsókn helgarinnar
Ofurhetjurnar
enn vinsælastar
Hetjur Hinar fjölhæfu hetjur í
Incredibles 2 draga gesti í bíó.
Undir trénu 12
Agnes grípur Atla við að
horfa á gamalt kynlífs-
myndband og hendir honum
út. Atli flytur þá inn á for-
eldra sína, sem eiga í deilu
við fólkið í næsta húsi.
IMDb 7,1/10
Bíó Paradís 22.00
Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,4/10
Bíó Paradís 20.00
In the Fade 12
Veröld Kötju hrynur þegar
eiginmaður hennar og sonur
láta lífið í sprengjuárás.
Sorgarferlið tekur við. Eftir
nokkurn tíma fer hún að
hyggja á hefndir
Metacritic 64/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 22.15
Call Me By Your
Name 12
Metacritic 93/100
IMDb 8,0/10
Bíó Paradís 22.00
Jumanji: Welcome
to the Jungle 12
Metacritic 58/100
IMDb 7,0/10
Bíó Paradís 20.00
Sicario: Day of the
Soldado 16
Barátta Bandaríkjamanna
við eiturlyfjabaróna í Mexíkó
tekur á sig jafnvel alvarlegri
mynd þegar hryðjuverka-
mönnum er smyglað yfir
landamærin.
Laugarásbíó 17.20, 19.50,
22.25
Sambíóin Keflavík 22.15
Smárabíó 19.10, 20.10,
21.50, 22.40
Háskólabíó 21.00
Borgarbíó Akureyri 19.30,
21.50
Love, Simon Myndin fjallar um samkyn-
hneigðan strák sem heitir
Simon. Hann veit ekki hver
hinn nafnlausi bekkjarbróðir
er, sem hann er orðin skot-
inn í á netinu.
Metacritic 72/100
IMDb 7,8/10
Smárabíó 14.50, 16.30,
17.10, 19.30, 22.10
Háskólabíó 20.50
Borgarbíó Akureyri 19.30
Tag 12
Metacritic 56/100
IMDb 7,1/10
Lítill hópur fyrrum bekkjar-
félaga skipuleggur flókinn,
árlegan „klukk“ leik, sem
krefst þess að þátttakendur
þurfa sumir að ferðast um
landið þvert og endilangt.
Sambíóin Álfabakka 15.00,
17.20, 17.30, 20.00, 22.15
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00, 22.40
Sambíóin Kringlunni 17.10,
19.40, 22.00
Sambíóin Akureyri 20.00,
22.15
Sambíóin Keflavík 20.00
Book Club Metacritic 53/100
IMDb 6,3/10
Líf fjögurra góðra vinkvenna
breytist til frambúðar, eftir
að þær lesa söguna 50 Sha-
des of Grey í bókaklúbbnum
sínum.
Smárabíó 17.00
Háskólabíó 18.20, 21.10
Borgarbíó Akureyri 17.30
Ocean’s 8
Morgunblaðið bbbnn
Debbie Ocean safnar saman
liði til að fremja rán á Met
Gala-samkomunni í New
York.
Metacritic 61/100
IMDb 6,3/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 20.00
Sambíóin Kringlunni 21.00
Sambíóin Akureyri 22.30
Sambíóin Keflavík 22.20
Solo: A Star Wars
Story 12
Ævintýri Han Solo og Chew-
bacca áður en þeir gengu til
liðs við uppreisnina.
Sambíóin Álfabakka 19.40,
22.30
Deadpool 2 16
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 66/100
IMDb 8,1/10
Smárabíó 22.00
Hin Ótrúlegu 2 Bob Parr, Hr. Ótrúlegur, þarf
að annast Jack-Jack á með-
an Helen, Teygjustelpa, fer
og bjargar heiminum.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 80/100
IMDb 8,9/10
Laugarásbíó 14.50, 15.00,
17.20
Sambíóin Álfabakka 15.00,
16.00, 17.00, 17.30, 20.00,
22.30
Sambíóin Egilshöll 17.20,
20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 16.00,
17.00, 18.30, 19.30, 22.00
Sambíóin Akureyri 17.30,
20.00
Sambíóin Keflavík 17.20,
17.30, 19.50
Háskólabíó 18.00
Draumur Myndin skoðar ósagða sögu
Mjallhvítar, Öskubusku og
Þyrnirósar, sem komast að
því að þær eru allar trúlof-
aðar sama draumaprins-
inum. Prinsinn upplifir þær
breytingar að verða talinn
ómótstæðilegur af flestum
eftir að álfadís hellir á hann
töfradufti í miklu magni.
Laugarásbíó 15.20
Smárabíó 15.00, 17.20
Pétur Kanína Myndin fjallar um kanínuna
Pétur sem reynir að lauma
sér inn í grænmetisgarð nýja
bóndans. Þeir há mikla bar-
áttu þar sem bóndinn vill
halda dýrunum út fyrir garð-
inn en Pétur svífst einskis til
að fá það sem hann vill.
Smárabíó 14.50
Þegar eldfjallið á eyjunni vaknar til lífsins þurfa
Owen og Claire að bjarga risaeðlunum frá út-
rýmingu.
Morgunblaðið bbmnn
Metacritic 52/100
IMDb 6,8/10
Laugarásbíó 22.00
Sambíóin Álfabakka 19.30, 22.15
Sambíóin Egilshöll 17.20, 22.20
Borgarbíó Akureyri 21.40
Jurassic World:
Fallen Kingdom 12
Kona fer í stríð
Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir
yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdar-
verkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir móður jörð og há-
lendi Íslands þar til mun-
aðarlaus stúlka frá
Úkraínu stígur inn í líf
hennar.
Morgunblaðið
bbbbb
Laugarásbíó 19.50
Háskólabíó 18.30, 21.00
Bíó Paradís 18.00
Adrift 12
Myndin fjallar um unga konu, Tami sem þarf að takast á við
mótlæti eftir að skúta sem hún og unnusti hennar sigldu gjör-
eyðilagðist. í 4. stigs fellibyl.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 56/100
IMDb 6,7/10
Laugarásbíó 17.40, 19.50,
22.00
Smárabíó 17.20, 19.50, 22.40
Háskólabíó 18.10
Borgarbíó Akureyri 17.30
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio