Morgunblaðið - 03.07.2018, Síða 36

Morgunblaðið - 03.07.2018, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 184. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Myndband af árekstri á Hellisheiði 2. Ferðamaður féll af þaki og lést 3. Drengirnir fundnir á lífi 4. Ellefu úr fjölskyldunni fundust látin »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  ASA tríó kemur fram á djasskvöldi Kex hostels í kvöld kl. 20.30 ásamt saxófónleikurunum Jóel Pálssyni og Sigurði Flosasyni. ASA skipa Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar, Agnar Már Magnússon á Hammond-orgel og Scott McLemore á trommur. Tríóið hefur gefið út tvær hljómplötur auk þess að gefa út á netinu upptökur frá tvennum tónleikum. ASA, Jóel og Sig- urður á djasskvöldi  Norski söngv- arinn og laga- smiðurinn Thom- as Dybdahl heldur tónleika í Nor- ræna húsinu ann- að kvöld kl. 21 og eru þeir hluti af sumartónleikaröð hússins. Dybdahl semur rómantísk, innhverf og æv- intýraleg lög og mun vera einn vin- sælasti tónlistarmaður Noregs og rísandi stjarna á erlendri grundu. Rómantísk, innhverf og ævintýraleg lög  Fyrstu tónleikar Sumartónleika Listasafns Sigurjóns verða haldnir í kvöld kl. 20.30 og er það flamenco- gítarleikarinn og tónskáldið Reynir Hauksson sem ríður á vaðið. Á efnis- skránni verða verk eftir Roland Dyens, Paco de Lucía og Reyni sjálfan og einn- ig bulerias frá Jerez og tangóar frá Andalús- íu. Reynir ríður á vaðið Á miðvikudag Austlæg eða breytileg átt, 5-13 m/s, hvassast við suðausturströndina fyrripartinn. Víða dálítil rigning eða súld, en úrkomulítið norðvestantil. Hiti 8-15 stig, hlýjast á Norðausturlandi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 5-10 m/s, skýjað með köflum, víða úrkomulítið en stöku skúrir vestantil. Austlæg átt og fer að rigna í kvöld, fyrst syðst. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast norðaustantil. VEÐUR Hilmar Árni Halldórsson hélt áfram að bæta við mörkum á frábæru tímabili sínu með Stjörnunni í Pepsi-deildinni í knatt- spyrnu þegar liðið vann gríðarlega mikilvægan sigur á FH, 3:2, í Hafnarfirði í gær. Hilmar Árni skoraði sigur- markið beint úr auka- spyrnu, nokkrum mínútum fyrir leikslok, en það var annað mark hans í leikn- um. »2 Hilmar tryggði sigur í toppslag Íslenska landsliðið er úr leik og kemst ekki í undankeppni heims- meistaramótsins í körfuknattleik karla að þessu sinni. Þetta varð ljóst eftir tap fyrir Finnum, 91:77, í hörku- leik í Helsinki í gær. Tapleikirnir tveir á móti Búlgaríu fyrr í undan- keppninni reyndust dýr- keyptir þegar upp var staðið fyrir Martin Her- manns- son og félaga í lands- liðinu. »2 Ísland er úr leik í undan- keppni HM eftir tap Belgía hefur komist í 8-liða úrslit á síðustu tveimur stórmótum og náði þeim áfanga í þriðja skiptið í röð í gær með 3:2-sigri á Japan á HM karla í knattspyrnu í Rússlandi. Japan var 2:0 yfir þegar 25 mínútur lifðu leiks en þá gerðu Belgar svo sannarlega breytingar til batnaðar á sínu liði. Brasilía sló út Mexíkó sem enn á ný féll úr leik í 16-liða úrslitum. » 1 Belgía mætir Brasilíu eftir hádramatík ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Myndir öðlast oft markvert gildi með tímanum. Sumt sem virðist lít- ils virði í núinu verður merk heimild þegar fram líða stundir, til dæmis myndir af fólki við störf sín eða af skipum, bílum og húsum. Í safni mínu eru núna um 55 þúsund mynd- ir af öllu mögulegu. Þetta er orðin heilmikil saga,“ segir Svavar B. Magnússon í Ólafsfirði. Ljósmyndaáhuginn vaknaði snemma Næstkomandi laugardag verð- ur í svonefndu Pálshúsi þar í bæ opnuð sýning á ljósmyndum Svav- ars í tilefni þess að nú í ár eru liðin 90 ár frá því að Magnús Gamal- íelsson, faðir Svavars, hóf þar út- gerð og fiskvinnslu á eigin vegum. Sú starfsemi varði allt fram til árs- ins 1997 en var þá sameinuð öðru félagi og með enn frekari samein- ingum varð til sjávarútvegs- fyrirtækið Rammi. Eftir stendur þó sagan, meðal annars skráð með myndum Svavars og verða þær sýndar í Pálshúsi í sumar. „Áhuginn á því að taka myndir vaknaði innan við fermingu og þetta hefur alltaf fylgt mér. Ég tók myndir af öllu mögulegu sem fang- aði athygli mína,“ segir Svavar sem í áratugi var fréttaritari og ljós- myndari Morgunblaðsins í Ólafs- firði. Margar myndanna fóru þó aldrei lengra en í eigið albúm, svo sem myndir úr starfsemi útgerð- arfyrirtækis fjölskyldunnar, burðar- áss í atvinnulífi bæjarins áratugum saman. Mikil umsvif Magnúsar Á sýningunni í Pálshúsi bregð- ur fyrir fjölda fólks við leik eða störf í Ólafsfirði, Akureyri og víðar, minningum um báta, hús, mann- virki, umhverfi, atvinnuhætti og mannlíf í dæmigerðu íslensku sjáv- arþorpi á öldinni sem leið. Magnús Gamalíelsson fæddist 1899 og var lengi einn af umsvifa- mestu útgerðarmönnum landsins. Starfsemi fyrirtækis hans var að- allega í Ólafsfirði en einnig í Kefla- vík. Byrjaði með tvær hendur tóm- ar, eins og sagt er, en svo gerðust alls konar ævintýri. Magnús lét meðal annars smíða fyrir sig fjögur fiskiskip á Akureyri; þar af tvö stærstu stálskip sem þá höfðu verið smíðuð á Íslandi. Gegndi jafnframt fjölmörgum trúnaðarstörfum í þágu sinnar heimabyggðar og beitti sér fyrir framfaramálum hennar. Magnús og eiginkona hans, Guð- finna Pálsdóttir, eignuðust fimm börn. Hann lést árið 1985. Af daglegu lífi Frá því hefur verið gengið að Minjasafnið á Akureyri fái ljós- myndasafn Svavars B. Magnús- sonar til varðveislu. Haft er eftir Herði Geirssyni, safnverði þar, í sýningarskrá að myndirnar verði „vissulega góð búbót og heimildir um nærumhverfi ljósmyndarans“, eins og komist er að orði. „Myndir Svavars eru gjarnan af daglegu lífi fólks, sem gerir þær dýrmætar. Þarna sést fólk við dag- leg störf til sjós og lands, börn að leik, áhafnir skipa, hús sem eru horfin, götur sem hafa allt annan svip nú og svo framvegis,“ segir Atli Rúnar Halldórsson blaðamaður sem hefur unnið að undirbúningi þess- arar sýningar. Sjálfur á hann ættir að rekja í Ólafsfjörð, var þar í skóla á unglingsárum og segir því margt á myndunum vera sér kunnuglegt. „Satt að segja hefur talsverð áhrif á mann að sjá æskuárin birtast aftur ljóslifandi á myndum Svavars.“ Ljósmynd/Svavar Berg Magnússon Útgerðarmaðurinn Magnús Gamalíelsson sitjandi á bryggjupollanum þegar skuttogarinn Sigurbjörg ÓF kom til heimahafnar í Ólafsfirði vorið 1979. Myndasaga úr sjávarþorpinu Ljósmynd/Björn Valdimarsson Ljósmyndarinn Svavar Berg Magnússon grúskar í myndum í tölvunni.  Útgerð og mannlíf í Ólafsfirði birtist í myndum Svavars B. Magnússonar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.