Morgunblaðið - 07.07.2018, Qupperneq 2
Æskuvinir frá Akureyri, sem
mynda félagsskapinn Ginola, hafa
árum saman tekið þátt í Pollamóti
Þórs á Akureyri fyrir „gamla“ fót-
boltamenn. Fyrst og fremst hefur
hópurinn lagt áherslu á að
skemmta sér og öðrum á þeim vett-
vangi en ákvað nú að láta gott af
sér leiða og notaði tækifærið í gær,
á fyrri degi mótsins, og afhenti
MND-félaginu á Íslandi rúmlega
eina milljón króna að gjöf, í sólinni
við Hamar, félagsheimili Þórs.
Hugmyndin kviknaði þegar
Ágúst H. Guðmundsson, sem þjálf-
aði nokkra úr hópnum í körfubolta
hjá Þór á árum áður, greindist með
MND fyrir skömmu. Ginola-félagar
tóku sig til, lögðu sjálfir fé í púkk
en megnið af upphæðinni er þó
styrkur frá ýmsum fyrirtækjum
víða um land.
Það var Sigurður G. Sigurðsson
sem afhenti gjöfina en við tóku eig-
inkona Ágústs, Guðrún Gíslasdótt-
ir, og Berglind Eva, dóttir þeirra
hjóna. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vinahópurinn Ginola á Akureyri lætur gott af sér leiða
Pollar
gefa eina
milljón
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018
Leitar þú að traustu
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
ALHLIÐA BÍLAVIÐGERÐIR < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
Lífslíkur bílsins margfaldast
ef hugað er reglulega
að smurningu.ENGAR
tímapantanir
MÓTORSTILLING
fylgir fyrirmælum
bílaframleiðanda um
skipti á olíum og síum.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Komið fyrir í Ölfusá
Ný matsskýrsla haffræðings gæti útilokað sekt Thomasar
Mál Birnu Brjánsdóttur tekið fyrir í Landsrétti í haust
Líkami Birnu Brjánsdóttur var sett-
ur í Ölfusá, við Óseyrarbrú, þaðan
sem hann rak á einni viku upp í fjöru
skammt vestan við Selvogsvita, þar
sem hann fannst eftir mikla leit 20.
janúar 2017.
Þetta er niðurstaða dómkvadds
haffræðings sem skilað hefur mats-
skýrslu til Héraðsdóms Reykjavíkur,
eins og Fréttablaðið greindi frá í gær.
Málið verður tekið fyrir í Landsrétti í
haust og búist er við því að skýrslan
verði meðal helstu álitaefna við með-
ferð málsins fyrir dómstólnum.
Gæti útilokað sekt Thomasar
Fyrrverandi verjandi Thomasar
Møller Olsen fór fram á að dóm-
kvaddur matsmaður yrði fenginn til
að meta hvar líklegast væri að líkama
Birnu hefði verið komið fyrir í sjó að
teknu tilliti til hafstrauma, veðurfars,
landslags og fleira.
Í rökstuðningi með beiðninni segir
að af gögnum málsins megi ráða að
Thomas hafi ekki getað ekið nema um
130 kílómetra milli kl. 6 og 11 morg-
uninn 14. janúar 2017, en hafi líkama
Birnu verið komið fyrir í sjó utan
þeirrar vegalengdar megi útiloka
sekt Thomasar.
Við rannsókn málsins var aldrei
upplýst með öruggum hætti hvað
Thomas hafðist að frá kl. 7 til 11 um
morguninn 14. janúar. Samkvæmt
framburði stjórnenda rannsóknar-
innar hafi 130 til 150 óútskýrðir kíló-
metrar verið eknir á bílaleigubíl sem
Thomas hafði á leigu.
Málið sem kom við þjóðina
Thomas áfrýjaði málinu skömmu
eftir að 18 ára fangelsisdómur var
kveðinn upp yfir honum 29. septem-
ber á síðasta ári.
Héraðsdómur úrskurðaði í lok nóv-
ember að nýr matsmaður skyldi feng-
inn til að leggja mat á hvar líkama
Birnu hefði verið komið fyrir í sjó.
Hæstiréttur vísaði kæru ríkissak-
sóknara vegna ákvörðuninnar frá og
því var nýr matsmaður fenginn.
Mál Birnu Brjánsdóttur skók ís-
lensku þjóðina í upphafi síðasta árs
og tók almenningur virkan þátt í leit-
inni. Rannsókn málsins og leit að
Birnu er meðal umfangsmestu að-
gerða lögreglu og björgunarsveita frá
upphafi.
Morgunblaðið/Eggert
Leit Umfangsmikil leit var gerð að
Birnu Brjánsdóttur í janúar 2017.
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Umferð frá höfuðborgarsvæðinu tók
að þyngjast síðdegis í gær enda
margir sem hafa ákveðið að leggja
land undir fót á þessari fyrstu stóru
ferðahelgi sumarsins, sem jafnan er
fyrstu helgina í júlí.
„Umferðin hefur gengið vel og
áfallalaust hér á höfuðborgarsvæð-
inu,“ sagði Kristófer Sæmundsson,
varðstjóri á umferðardeild hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu, í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. Mest var umferðin milli
klukkan 15 og 18 í gær og segir
Kristófer aðspurður að umferðar-
þunginn hafi dalað þegar líða tók á
kvöldið. Höfðu ökumenn virt há-
markshraða á leið sinni úr bænum
„en það er nú yfirleitt þannig þegar
umferðin er mikil að þá er ekki svig-
rúm til þess að keyra mjög hratt,“
sagði Kristófer. Gefur gærdagurinn
því góð fyrirheit fyrir helgina.
Bíll við bíl á leið úr bænum
Þung umferð
sem gekk þó greið-
lega og áfallalaust
Morgunblaðið/Hari
Ferðalag Umferðin var þung á Vesturlandsvegi, skammt frá Bauhaus, í gær.
Ákæra gegn
Sindra Þór Stef-
ánssyni og sam-
verkamönnum
hans var afhent
Héraðsdómi
Reykjavíkur í
gær.
Þetta staðfesti
Ólafur Helgi
Kjartansson, lög-
reglustjóri á
Suðurnesjum, í samtali við mbl.is í
gær, en ákært er fyrir stórfellt þjófn-
aðarbrot auk þess sem sumir eru
ákærðir fyrir að halda eftir upplýs-
ingum.
Stærsti þjófnaður sögunnar
Ólafur Helgi vildi ekki gefa upp hve
margir samverkamenn Sindra voru
ákærðir, en alls voru 23 handteknir og
yfirheyrðir vegna málsins og fimm
sættu gæsluvarðhaldi.
Málið varðar stuld á 600 tölvum að
andvirði 200 milljóna króna sem stolið
var úr gagnaverum í Reykjanesbæ í
janúar og desember sl. Er þjófnaður-
inn talinn stærsta mál Íslandssögunn-
ar af þessum toga.
Tölvubúnaðurinn er enn ófundinn,
en eigandi hans bauð sex milljónir
króna í fundarlaun. Lögreglan á Suð-
urnesjum hefur rannsakað málið með
hjálp Europol og hefur rannsóknin
m.a. teygt anga sína til Kína. Þangað
var send fyrirspurn vegna tölvubún-
aðarins í maí, en engin svör bárust.
Sætir farbanni út mánuðinn
Málið tók óvænta stefnu þegar
Sindri Þór yfirgaf fangelsið á Sogni í
apríl sl., þar sem hann hafði sætt
gæsluvarðhaldi frá 2. febrúar. Tókst
honum að komast úr landi áður en
lögregla hafði hendur í hári hans í
miðborg Amsterdam í Hollandi 22.
apríl. Sindri hefur sætt farbanni frá
því hann kom aftur hingað til lands og
gildir það fram í lok júlí.
Sindri Þór og sam-
verkamenn ákærðir
Sindri Þór
Stefánsson
Tölvubúnaðurinn er enn ófundinn