Morgunblaðið - 07.07.2018, Side 4

Morgunblaðið - 07.07.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 ., '*-�-��,�rKu�, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI æli- & frystiklefar í öllum stærðum K Guðni Einarsson gudni@mbl.is Íslensk handrit eru varðveitt nokkuð víða að sögn dr. Guðrúnar Nordal, forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Elstu skinnhandritin eru aðallega hér, í Danmörku og Svíþjóð. Nýlega lánuðu Danir hingað Ormsbók Snorra Eddu og Reykjabók Njálu, sem kunnugt er. Um það bil 20.000 íslensk handrit eru varðveitt. Þar af eru til um 1.000 skinnhandrit, heil eða í brotum, skrifuð frá upphafi og fram á 16. öld. Árnastofnun í Reykjavík geymir skinnhandrit sem komu úr safni Árna Magnússonar í Kaupmanna- höfn og dönsku Konungsbókhlöð- unni. Landsbókasafn Íslands - Há- skólabókasafn varðveitir um 15.000 pappírshandrit sem eru yngri en skinnhandritin. Handritasafn Árna Magnússonar í Kaupmannahöfn geymir mesta safn íslenskra handrita á erlendri grund og Konunglega bókasafnið í Kaup- mannahöfn varðveitir einnig merk ís- lensk handrit. Þá eru mörg íslensk handrit varðveitt í Konungsbókhlöð- unni í Stokkhólmi og færri í sænska Ríkisskjalasafninu og tveimur sænskum háskólabókasöfnum. Þjóðbókasafnið í Ósló og tvö norsk háskólabókasöfn geyma einnig ís- lensk handrit auk þriggja safna á Englandi, safns á Írlandi og annars í Skotlandi. Eins er íslensk handrit að finna á söfnum í Þýskalandi, Austur- ríki og á fjórum söfnum í Bandaríkj- unum. Ekki hefur verið unnið formlega að því að fá fleiri íslensk handrit af- hent hingað frá útlöndum frá því að handritamálið við Dani var leitt far- sællega til lykta á síðustu öld. Guð- rún sagði að vissulega hefðu Íslend- ingar viljað fá öll íslensk handrit í Danmörku heim á sínum tíma en þau sem komu hafi verið afhent á grund- velli samnings milli ríkjanna sem gerður var á sjöunda áratugnum. Hún benti á að handritin geymdu sameiginlegan menningararf og sögu Norðurlanda. Það væri af hinu góða að handritin fornu væru rannsökuð sem víðast og af sem flestum. Mikil- vægt væri að handritunum væri sýndur fullur sómi og áhugi hvar sem þau væru. Unnið er stöðugt að því að mynda handritin og miðla þeim staf- rænt á vefsíðunni handrit.is fyrir fræðimenn og aðra. Árnagarður var byggður vegna af- hendingar handritanna á sínum tíma. Nú hillir undir að Hús íslenskra fræða rísi og þar verður öll starfsemi Árnastofnunar sameinuð, sú sem er í Árnagarði og á Laugavegi og í Þing- holtsstræti, en stofnunin vinnur enn- fremur að orðfræði og málrækt, mál- tækni, örnefna- og þjóðfræði, styður við íslenskukennslu við erlenda há- skóla og sér um alþjóðleg samskipti á fræðasviðinu. Íslensk handrit geymd víða  Um 20.000 íslensk handrit eru varðveitt  Ekki er nú unnið formlega að því að fá fleiri íslensk handrit heim Morgunblaðið/Valli Gleði Guðrún Nordal forstöðumaður tók á móti Guðvarði M. Gunnlaugssyni og Þórunni Sigurðardóttur sem fluttu dýrmæt handrit til landsins. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Það er ekki eins og ég geti frestað fæðingunni og þess vegna þarf að finna lausn sem fyrst,“ segir Birta Jónsdóttir um ástandið í kjaradeilu ljósmæðra og íslenska ríkisins en hún er gengin rúmlega 38 vikur með sitt fyrsta barn. Hún segir deiluna valda sér mikl- um áhyggjum enda geti hún átt von á barninu á allra næstu dögum. „Þetta getur farið af stað hvenær sem er. Þetta gerir mig stressaða enda óþægilegt að þurfa að treysta á þjón- ustu sem maður er ekki alveg örugg- ur með,“ segir Birta sem telur að koma þurfi betur til móts við kröfur ljósmæðra í deilunni. Þá geti afleið- ingarnar verið alvarlegar náist ekki niðurstaða sem fyrst. Ríkið þarf að gyrða sig í brók „Þegar maður vinnur mikið og er undir álagi þá sinnir maður starfi sínu ekki eins vel og maður á að gera. Það á við um alla og ekki síst ljós- mæður þannig að það er gríðarlegt atriði að það verði búið að leysa þetta áður en álagið á þeim verður orðið of mikið,“ segir Birta og bætir við að hún telji að ríkið þurfi að nálgast við- ræður við ljósmæður á annan hátt. Þá hafi síðasta útspil fjármála- ráðuneytisins í deilunni verið vill- andi, en þar kom fram að kjaraþróun ljósmæðra hefði verið í samræmi við aðra BHM-hópa. „Mér fannst þetta fáránleg framsetning og í raun gert til að gera lítið úr ljósmæðrum. Mitt mat er bara það að ríkið þarf að gyrða sig í brók og klára þetta mál. Það er óskiljanlegt að þetta taki svona langan tíma,“ segir Birta. Ný útfærsla kynnt á miðvikudag Í Morgunblaðinu í gær kom fram að fundi samninganefndar ríkisins og ljósmæðra hjá ríkissáttasemjara hefði lokið í fyrradag án niðurstöðu. Þá hefur næsti fundur í deilunni ekki verið boðaður fyrr en á miðvikudag í næstu viku. Spurður hvers vegna fundur hafi ekki verið boðaður fyrr, segir Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins, það vera vegna fjölda sumarleyfa. „Það er verið að fá fólk úr fríi til að hjálpa okkur með ákveðnar upplýs- ingar. Það getur verið erfitt að kalla fólk inn þegar það er í fríi og við reynum að taka tillit til þess. Þess ut- an tekur tíma að ná í þessar upplýs- ingar,“ segir Gunnar og bætir við að verið sé að kanna aðrar útfærslur á samningi við ljósmæður. Af þeim sökum verði bið á viðræðum þar til nauðsynlegar upplýsingar hafa feng- ist. „Við erum að óska eftir upplýs- ingum frá ýmsum heilbrigðisstofn- unum vegna þess að við erum að skoða annarskonar útfærslu á samn- ingi. Við erum að skoða útfærslur sem hafa til dæmis með vinnuálag að gera. Sá samningur verður tekinn fyrir á fundi með ljósmæðrum á mið- vikudag,“ segir Gunnar. Áhyggjufull yfir stöðu ljósmæðra  Vill að ríkið komi betur til móts við kröfur ljósmæðra  Ekki fundað í deilunni fyrr en í næstu viku vegna fjölda sumarleyfa  Samningur með nýjum útfærslum kynntur á næsta fundi með ljósmæðrum Morgunblaðið/Hari Birta Hún er gengin rúmlega 38 vikur með sitt fyrsta barn. Hún kveðst áhyggjufull yfir stöðunni í deilu ljósmæðra og vonar að hún leysist sem fyrst. Þá kallar hún eftir því að ríkið komið betur til móts við ljósmæður. Hátíðarstemning ríkti á Íslandi 22. apríl 1971 þegar danska eftirlits- skipið Vædderen lagðist að bryggju í Reykjavík og helstu dýrgripir ís- lenskra handrita voru bornir í land. Handritin voru komin heim. Mannfjöldi var á hafnarbakk- anum og þar stóðu fremst í flokki ríkisstjórnin, forsetar sameinaðs Al- þingis og Hæstaréttar, sendiherra Dana, þáverandi og fyrrverandi sendiherrar Íslands í Danmörku og borgarstjórn Reykjavíkur. Lúðrasveit Reykjavíkur lék og skátar og lögreglumenn stóðu heið- ursvörð. Fjölmenn sendinefnd ríkis- stjórnar Danmerkur og þjóðþings- ins kom hingað af þessu sögulega tilefni. Auk þess bauð ríkisstjórn Ís- lands hópi fyrrverandi danskra ráð- herra og annarra sem unnið höfðu að lausn handritamálsins. Gestunum var svo ekið í gegnum miðbæinn að Hótel Sögu og stóðu skólabörn með danska og íslenska fána við göt- urnar. Síðdegis var hátíðleg athöfn í Há- skólabíói og þar voru m.a. viðstödd forsetahjónin Kristján Eldjárn og Halldóra, borgarstjóri, danskir og íslenskir embættismenn auk ann- arra gesta. Að loknum leik Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands og ræðuhöldum af- henti Helge Larsen, menntamála- ráðherra Dana, Gylfa Þ. Gíslasyni menntamálaráðherra bæði bindi Flateyjarbókar með orðunum: „Vær så god, Flatøbogen“ (Gjörðu svo vel, Flateyjarbókin). Konungsbók Eddu- kvæða fylgdi svo á eftir. Sam- komugestir risu á fætur og klöpp- uðu lengi og innilega. Að lokinni athöfninni voru handritin flutt til varðveislu í Árnastofnun. Ríkis- stjórnin bauð til veislu um kvöldið og sátu hana um 300 gestir, að sögn Morgunblaðsins. Mikil hátíð þegar handritin komu heim í apríl 1971 „Við teljum þetta vera of langan tíma í eins mikilvægri deilu og þessari,“ segir Katrín Sif Sigur- geirsdóttir, formaður samninga- nefndar ljósmæðra, um lengd á milli funda í kjaradeilu ljós- mæðra og íslenska ríkisins, en fjórir dagar eru í næsta fund. Hún segir að tími í deilu sem þessari sé afar dýrmætur og mikilvægt að hann sé nýttur vel, enda verði niðurstaða að fást sem fyrst. Þá vonast hún til að hægt verði að samþykkja samn- inginn sem lagður verður fyrir á miðvikudag í næstu viku. „Við gáfum þeim upp okkar lágmarkspunkt á síðasta fundi. Við munum ekkert fara lægra en það og eina leiðin til að samn- ingar náist er að þeir samþykki það,“ segir Katrín sem kveðst ekki vilja gefa upp hversu mikla hækkun ljósmæður hafa farið fram á. Það verði þó gefið upp náist samningar ekki á miðviku- dag. „Við munum gefa það út þá, ef ekki verður gengið að okkar kröfum. Ríkissáttasemjari bað okkur um að halda innihaldi við- ræðna á milli aðila leyndu og við munum virða það í lengstu lög,“ segir Katrín Sif. Ríkið þekkir kröfurnar OF LANGT Á MILLI FUNDA 12 ljósmæður á Landspítalanum sögðu upp störfum og gengu út 1. júlí sl. 570.000 krónur eru meðaltal grunnlauna ljós- mæðra, samkvæmt yfirlýsingu þeirra. 14% ljósmæðra eru í fullu starfi að þeirra sögn og tölur um heildarlaun gefa því skakka heildarmynd að þeirra mati. LJÓSMÆÐRADEILAN »

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.