Morgunblaðið - 07.07.2018, Qupperneq 10
Morgunblaðið/Einar Falur
Silfurbjört Þórður Ingi Júlíusson, með sprettharða 80 cm hrygnu sem hann
veiddi úr Pokafossi í Laxá í Kjós á dögunum. 49 veiddust þar í vikunni.
Aflahæstu árnar
Heimild: www.angling.is * Tölur liggja ekki fyrir
0 300 600 900
Staðan 4. júlí 2018
Veiðivatn
Stanga-
fjöldi Veiði
5. 7.
2017
6. 7.
2016
Þverá / Kjarrá 14 843 656 721
Urriðafoss í Þjórsá 4 577 435 *
Norðurá 15 557 575 634
Miðfjarðará 6 320 451 608
Haffjarðará 6 320 312 472
Blanda 14 299 371 1020
Elliðaárnar 6 228 238 227
Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki 18 208 365 916
Langá 12 196 331 374
Brennan í Hvítá 3 188 150 *
Grímsá og Tunguá 8 175 233 109
Laxa í Aðaldal 17 113 100 266
Laxá í Kjós 8 111 190 123
Hítará 6 97 52 173
Vatnsdalsá 6 95 108 220
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Laxveiðin er komin af stað um land
allt og virðist byrja ágætlega, þótt
laxinn virðist ganga hægt upp sum-
ar árnar á vesturhluta landsins og
safnast saman neðanlega í þeim; er
köldu vatni kennt um og kemur
ekki á óvart eftir svalar og sólar-
lausar vikur. Mjög hressilegar
göngur eru nú til að mynda í Norð-
urá í Borgarfirði, þar sem veiðar
hófst fyrir rúmum mánuði. Í síðustu
viku veiddust þar rúmlega tvö
hundruð laxar. „Og nú erum við að
nálgast 650,“ segir Einar Sigfússon
staðarhaldari. „Hollið sem kláraði
um miðja viku var með 120 laxa og
það er ekki verra hjá þeim sem eru
nú við veiðar. Mikið af fiski er að
ganga en hann gengur hægt fram
ána, vegna vatnskulda. Það er kom-
inn lax alveg milli fossa en hann tín-
ist rólega fram á dalinn.“ Fyrir vik-
ið segir Einar mikið líf vera á
svæðinu fyrir neðan Laxfoss og
fagnar því að nú sé Stekkurinn, gott
svæði sem áður var að mestu utan
svæðaskiptinga, með í myndinni og
þar veiðist vel.
Blaðamaður ræddi við flinkan
veiðimann sem var einmitt við veið-
ar í Norðurá í vikunni og fengu þeir
félagarnir 32 laxa á stöngina. „Það
var algjör veisla fyrir hitsið. Við
fengum sjö á hits á vaktinni fyrir
neðan Laxfoss, hann renndi sér
strax á það í fyrsta kasti í Konungs-
streng,“ sagði hann.
Sjötíu milljón „læk“
Talandi um Norðurá, þá vakti það
athygli heimspressunnar og sam-
félagsmiðla að knattspyrnukappinn
David Beckham var þar við veiðar.
Seljast leyfi í ánni ekki upp eftir
slíka umfjöllun?
Einar Sigfússon hlær að spurn-
ingunni en segist vissulega verða
var við mikinn áhuga í kjölfarið.
Hann viðurkennir að vissulega detti
veiðitölur nokkuð niður í slíkum
heimsóknum, því ástundunin er
minni en í öðrum hollum. „En þeir
félagar veiddu ágætlega og voru
fínir gestir. Og myndin þar sem
Beckham stendur á með laxinn og
Baula og Laxfoss sjást á bak við
hann, með textanum að hann sé að
veiða í Norðurá, er með sjötíu millj-
ón „læk“! Er hægt að biðja um betri
kynningu? Ég á von á því að það
skili sér í framtíðinni, og fyrir ís-
lenska laxveiði,“ segir Einar og
bætir við að hann sé mjög bjartsýnn
á veiðina í Norðurá í sumar og spáir
því að yfir tvöþúsund fiskar muni
veiðast. „Enda er miklu meira af
fiski í ánni en við höfum séð síðustu
vor.“
Einar er jafnframt annar eigandi
Haffjarðarár á Snæfellsnesi og
hann segir veiðina þar líka á fínum
skriði, byrja betur en síðustu ár og
lax vera kominn upp um alla á. „Nú
er þar frönsk fjölskylda að veiða og
fékk 17 á fimm stangir á þremur
tímum í gærmorgun. Það er dágóð
veiði.“
12 laxar, einn stór birtingur
Nokkuð minni veiði hefur verið í
Ytri-Rangá fyrstu vikur veiðitímans
nú en síðustu tvö ár. Blaðamaður
sem kom þar við í fyrradag sá hópa
laxa ganga hratt upp við neðsta
veiðistað, Djúpós, og fiskur hefur
dreifst vel um neðri hluta árinnar.
En láni veiðimanna er misskipt –
annar breskra félaga sem var við
veiðar var kominn með 12 laxa en
hinn hafði engum landað, hafði
misst nokkra, en það bætti út skák
að hafa fengið tíu punda sjóbirting.
Og veiðimenn sáu stóra göngu
koma að Ægissíðufossi á miðviku-
dagskvöld og náðu allnokkrum löx-
um úr henni en daginn eftir, þegar
næstu veiðimenn töldu sig lenda þar
í veislu, var ansi rólegt.
Morgunblaðið/Einar Falur
Átök Veiðimaður togast á við 84 cm hrygnu í Víghólskvörn í Kjarrá. Frábær veiði er í Þverá og Kjarrá þessa dag-
ana og var 391 lax færður til bókar á stangirnar 14 í liðinni viku, eða um fjórir laxar á stöng á dag.
Tínist ró-
lega fram
Laxveiði hafin um land allt Góðar
göngur í Borgarfirði Stjörnur kynna
veiðisvæði Róleg byrjun í Ytri-Rangá
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018
Frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur
á máli Fjöreggs og Landverndar
gegn íslenska ríkinu olli Auði Önnu
Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra
Landverndar, vonbrigðum að henn-
ar sögn. Dómarinn komst að þeirri
niðurstöðu að náttúruverndarsam-
tökin ættu ekki lögvarinna hags-
muna að gæta af því að fá dóm um
kröfur sínar.
„Við erum ekki sammála þessari
niðurstöðu,“ sagði Auður. Hún sagði
að þau hefðu viljað láta reyna á þetta
á grundvelli Árósasamningsins. Þau
skilji Árósasamninginn þannig að
þau eigi að hafa aðgang að dómstól-
um. „Þetta mál varðandi Árósa-
samninginn, lögvarða hagsmuni okk-
ar og aðgang að dómstólum er
eitthvað sem við erum að skoða í
stærra samhengi. Það munu koma
fleiri fréttir frá okkur um það,“ sagði
Auður.
Landvernd getur kært úrskurð
héraðsdóms um frávísun málsins til
Landsréttar, að sögn Auðar. Hún
segir að stjórn Landverndar hafi
ekki tekið ákvörðun um hvort þau
muni gera það. Það þurfi að ákveða
fljótlega því kærufresturinn sé ekki
langur. Auður kvaðst ætla að heyra í
stjórnarmönnum um hvað þeir vilja
gera varðandi framhaldið.
gudni@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Við Leirhnjúk Náttúruverndarsamtök stefndu ríkinu til að ljúka friðlýsingu
ellefu svæða við Mývatn. Héraðsdómur vísaði málinu frá.
Landvernd er
ósamþykk frávísun
Eftir að ákveða framhald málsins
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á allt