Morgunblaðið - 07.07.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018
K L A P P A R S T Í G 4 4
ÚTSALA
40%
afsláttur
Vattjakkar
Verð nú 13.286
Stærðir 36-52
Margir litir
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
ÚTSALA
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Opið kl. 11-15 í dag
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
40-50%
Útsalan í
fullum gangi
afsláttur
Skoðið LAXDAL.is/yfirhafnir
Skipholti 29b • S. 551 4422
SUMAR
ÚTSALA
30%
40%
50%
AFSLÁTTUR
JAKKAR – FRAKKAR – KÁPUR
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Skipulags- og samgönguráð Reykja-
víkur samþykkti í vikunni að minnka
hámarkshraða úr 50 km/klst í 30 km/
klst á nokkrum götum miðborgar-
innar. Samþykktin var gerð með fyr-
irvara um samþykki lögreglustjóra
höfuðborgarsvæðisins. Á fundinum
var lagt fram bréf umhverfis- og
skipulagssviðs þar sem lagt er til að
hámarkshraði verði lækkaður á
Kalkofnsvegi frá Geirsgötu að
Hverfisgötu, á Geirsgötu frá gang-
brautarljósum vestan Steinbryggju/
Austurbakka að Kalkofnsvegi. Í
Lækjargötu frá Hverfisgötu að
gangbraut við norðvesturhorn Mið-
bæjarskóla og á Hverfisgötu frá Ing-
ólfsstræti að Lækjargötu.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins;
Hildur Björnsdóttir, Eyþór Laxdal
Arnalds og Valgerður Sigurðardótt-
ir, létu bóka að „rétt hefði verið að
leggja Geirsgötu í stokk samhliða
jarðvegsvinnu vegna framkvæmda
milli Lækjartorgs og Hörpu. Þannig
hefði mátt tengja Hörpu betur við
miðbæinn í stað þess að kljúfa svæð-
ið sundur með umferðargötu. Skap-
ast hefði mannvænt umhverfi með
möguleikum á lifandi torgum og
bættum miðborgarbrag. Eins hefði
stokkurinn getað leyst framtíðar-
samgöngur fyrir byggð í Örfirisey og
önnur svæði Vesturbæjar.“
Minnkun hraða frekar en lokun
„Mér finnst þetta hið besta mál,“
sagði Heiða Lára Aðalsteinsdóttir,
formaður Miðbæjarfélagsins og
kaupmaður í Boutique Bellu við
Skólavörðustíg. „Við höfum talað
fyrir því að í staðinn fyrir að loka fyr-
ir umferð um miðbæinn að minnka
frekar hámarkshraðann þannig að
allir komist leiðar sinnar en ekki
bara sumir.“
Heiða kvaðst vilja sjá götur sem
nú eru lokaðar fyrir ökutækjum í
miðbænum opnaðar fyrir hægum
akstri. Hún sagði að nú vildu borg-
aryfirvöld loka svonefndum „sumar-
götum“ fyrir umferð allan ársins
hring. Það á við um Pósthússtræti
milli Kirkjustrætis og Hafnarstræt-
is, Austurstræti ásamt Veltusundi og
Vallarstræti, Laugaveg og Banka-
stræti frá Vatnsstíg að Þingholts-
stræti og Skólavörðustíg milli Berg-
staðastrætis og Laugavegar. Lokað
er fyrir akandi umferð þar sem
Heiða er með verslun sína á Skóla-
vörðustíg 8. Hún segist finna mikið
fyrir áhrifum lokunarinnar.
„Ég held að það sé samdóma álit
þeirra sem reka verslanir við lokaðar
götur að þetta hafi áhrif á verslun.
Íslendingar koma síður í bæinn ef
það eru ekki bílastæði. Ef lokað væri
fyrir umferð í kringum verslanamið-
stöðvarinnar hugsa ég að það kæmu
ekki margir í þær. Ef þetta er yf-
irlýst markmið hjá borginni, eins og
þeir hafa gefið í skyn með því að
stinga upp á þessum lokunum, þá er
ágætt að þeir segi hreint út að þeir
vilji ekki verslun í miðbænum nema
einhverja ákveðna tegund af verslun
sem höfðar ekki til Íslendinga,“
sagði Heiða.
Fjöldi kaupmanna við lokuðu göt-
urnar skrifaði undir að þeir vildu
hafa göturnar opnar, að sögn Heiðu.
Undirskriftalistunum var skilað til
borgaryfirvalda. Hún sagði að borg-
in hefði framvísað skoðanakönnun-
um þar sem rekstraraðilar vildu hafa
lokað fyrir umferð. Heiða sagði að
það væri kannski ekki sanngjarnt að
láta afstöðu rekstraraðila annars
staðar í borginni ráða því hvort göt-
ur væru lokaðar í miðbænum. Lok-
anirnar snertu þeirra rekstur ekki
beint, nema þá helst þannig að beina
akandi viðskiptavinum til þeirra.
„Við finnum stóran mun á að hafa
götuna lokaða fyrir umferð eða opna.
Það eru ekki allir dagar sumardagar
eins og sumarið er búið að vera núna.
Er ekki í lagi að fólk keyri í róleg-
heitum niður göturnar og taki rúnt-
inn? Það eru allir löngu hættir að
keyra niður í bæ og koma að lok-
uðum götum,“ sagði Heiða.
Minnka ökuhraðann í miðborginni
Formaður Miðbæjarfélagsins vill heldur fá hæga umferð í miðborginni en lokaðar sumargötur
Samgönguráð borgarinnar hefur ákveðið að lækka ökuhraða í 30 km/klst í nokkrum götum
Fyrirhuguð lækkun hámarkshraða í 30 km/klst.
Kalkofnsvegur
frá Geirsgötu
að Hverfisgötu
Hverfisgata frá
Ingólfsstræti að
Lækjargötu
Lækjargata frá
Hverfisgötu að
gangbraut við norð-
vesturhorn Miðbæjarskóla
Geirsgata frá
gangbrautar-
ljósum vestan
Steinbryggju/Austur-
bakka að Kalkofnsvegi
Kort: openstreetmap.org
Morgunblaðið/Eggert
Laugavegur Ferðamenn í göngugötu á blautum sumardegi. Kaupmenn
vilja fá hæga umferð fremur en lokun. Nú á að hægja á umferð í miðbænum.
Frá árinu 2012 hefur kennurum
sem eru án kennsluréttinda í
grunnskólum landsins fjölgað ár
frá ári. Voru þeir 8,6% af 5.140
starfsmönnum við kennslu haustið
2017. 443 starfsmenn voru þá við
kennslu án kennsluréttinda og
hafði fjölgað úr 272 frá hausti 2016.
Þetta kemur fram í frétt á vef Hag-
stofu Íslands.
Hlutfall kennara án kennslurétt-
inda var lægst í Reykjavík, 5,8%, og
á Norðurlandi eystra, 6,2%. Hæst
var hlutfallið á Vestfjörðum, eða
27%. Á árunum 1998-2008 var hlut-
fall starfsfólks án kennsluréttinda
við kennslu í grunnskólum landsins
á bilinu 13-20%. Réttindalausum
kennurum fækkaði á árunum eftir
efnahagshrunið og fór hlutfall
þeirra lægst í 4,1% haustið 2012,
segir í frétt Hagstofunnar. Í frétt-
inni kemur einnig fram að meðal-
aldur réttindakennara fer hækk-
andi, og hefur gert það jafnt og þétt
frá árinu 2000, eða um rúm fjögur
ár, í 47,7 ár. Sama þróun á við með-
alaldur starfsfólks við kennslu í
grunnskólum, frá 42,2 ár haustið
2000 upp í 46,7 ár haustið 2017.
Meðalaldur réttindalausra kennara
var öllu lægri, 35,9 ár, haustið 2017.
Morgunblaðið/Eggert
Grunnskóli Meðalaldur réttindakennara
hefur hækkað um fjögur ár frá árinu 2000.
Réttindalausum
kennurum fjölgar
Allt um
sjávarútveg
Atvinna