Morgunblaðið - 07.07.2018, Qupperneq 14
14 Landsmót hestamanna 2018
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Rósa Birna Þorvaldsdóttir, tamn-
ingakona og reiðkennari, býr að
mikilli reynslu af þjálfun bæði
hesta og knapa. Hún hefur verið í
hestamennsku frá barnæsku og
hefur að eigin sögn alltaf stefnt að
því að vera atvinnumanneskja. Sem
stendur rekur hún tamningastöð
með kærasta sínum á Brjáns-
stöðum í Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi. Þar hefur hún tekið að sér
hross í þjálfun auk þess að kenna
fólki á öllum aldri.
„Ég hef kennt börnum alveg nið-
ur í 5 ára og upp úr, nánast á öllum
aldursstigum.“ Að hennar mati hef-
ur ástundun í hestaíþróttinni breyst
þónokkuð frá því þegar hún var
ung. „Stóri munurinn er sá að það
er mikið um það að börn séu í mun
fleiri frístundum en áður samhliða
hestaíþróttinni. Þegar ég var yngri
vorum við bara í hestunum. Hest-
arnir eru mjög tímafrekir svo að
hestaíþróttin verður ekki alltaf fyr-
ir valinu.“
Þrátt fyrir þetta telur Rósa að
nýliðun í íþróttinni gangi vel.
„Þetta hefur verið stöðug og já-
kvæð þróun, sumir höfðu áhyggjur
af nýliðun í hestaíþróttinni á tíma-
bili og var þá farið í ýmis markaðs-
átök sem ég tel vera að skila sér.
Þau eru í fremstu röð hér í hesta-
mannafélaginu Fáki en þau hafa
t.d. boðið nýliðum upp á það að
taka hesta í fóstur sem er algjör-
lega til fyrirmyndar.“ Þá segist hún
einnig sjá mikla breidd í hópi
keppnisknapanna. „Það er ekki
langt síðan þetta var allt sama fólk-
ið en nú hafa aldrei verið fleiri ein-
staklingar t.d. að sýna kynbóta-
hross yfir árið, og líka í keppnun-
um. Í raun stöðug nýliðun á öllum
sviðum.“
Ungar stúlkur í meirihluta
Þegar litið er yfir ráslista í
keppnisflokkum á landsmótinu
verður manni ljóst að karlar eru í
miklum meirihluta í fullorðins-
flokkum en stúlkur eru í miklum
meirihluta í keppni í yngri flokkum.
Aðspurð hverju það sæti segir Rósa
Birna að í gegnum tíðina hafi stelp-
ur verið meira áberandi í íþróttinni.
„Þetta hefur oft haft tilhneigingu
til að vera meiri stúlknaíþrótt í
yngri flokkum, það er þó eitthvað
misjafnt eftir árum.“ Hún segir
einnig mega skýra það út frá því að
sumar stúlkurnar sem keppa á
yngri árum detta úr keppnum við
barneignaraldur.
„Eftir ungmennaflokk (18-21 árs)
þá breytist keppnin mikið og
áherslur eigenda líka, þá dugar
kannski hesturinn sem þú áttir ekki
lengur og það þarf að taka þetta
næsta skref. Svo kemur þetta tíma-
bil þar sem við konurnar eignumst
börn og er það mjög misjafnt hvort
þær snúa aftur eður ei. Þar spilar
kannski inn í að forsendur þeirra
breytast í millitíðinni.“
Mikið um pör í hestunum
Daníel Larsen, kærasti Rósu
Birnu, er með henni í hestamennsk-
unni. Hún ímyndar sér að það sé
mjög flókið að hafa hestana að at-
vinnu án þess að hafa makann með
sér í því. „Þetta er svo mikil sam-
vinna. Það er mikilvægt að huga að
því að flestir af þessum mönnum
sem standa hér í fremstu röð eru
að reka sínar stöðvar og sinn rekst-
ur með konunni sinni, þetta er það
mikil samvinna að þær eiga stóran
þátt í árangrinum, þó að þær komi
ekki fram á mótunum,“ segir Rósa
Birna og bætir við að á tamninga-
stöðvum sé mjög algengt að par
reki stöðina saman, líkt og hún ger-
ir með kærasta sínum.
Rósa Birna er ánægð með fram-
þróun innan íþróttarinnar og telur
að framtíðin sé björt.
„Reiðmennskan í keppnunum er
mjög fagmannleg í langflestum til-
vikum, alveg óháð kyni. Hagsmunir
hestsins eru og ættu alltaf að vera í
fyrirrúmi og það er mín tilfinning á
þessu landsmóti.“
Stöðug nýliðun
í hestaíþróttinni
Stúlkur í meirihluta í yngri flokkum á landsmótinu
Morgunblaðið/Nína Guðrún
Klár Rósa Birna keppti sjálf á landsmóti í ár með hestinn Viðar frá Skör.
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
Frábær smurefni sem einangra og verja
koma í veg fyrir tæringu eins og verkfæra og rafmagnsvara.
Fyrir bílinn – verkfæri – skotvopn – reiðhjól
Þá er komið að lokaspretti Lands-
móts hestamanna sem farið hefur
fram í Víðidal undanfarna viku. Á
föstudag hefst dagskrá með verð-
launaafhendingu stóðhesta fyrir
hádegi og einnig verða heiðurs-
verðlaunahestar sýndir síðdegis
eða laust eftir kl. 14. Þar á eftir fer
fram úrvalssýning kynbótahrossa.
16:45 er svo komið að B-úrslitum í
A-flokki og ungmennaflokki. 19:15
verða ræktunarbú og strax þar á
eftir 100 m skeið. Sleipnisbikarinn
frægi er veittur heiðursverðlauna-
hestum fyrir afkvæmi, fer sú af-
hending fram kl. 20:30. Deginum
lýkur með A-úrslitum í tölti kl. 21. Í
Horses of Iceland-tjaldinu verður
næringarfræðingur með fyrirlestur
á ensku um hvernig á að næra
keppnishesta. Í reiðhöllinni verður
stórdansleikur með Albatross
ásamt Sverri Bergmann, Sölku Sól
og Röggu Gísla sem hefst kl. 22:30.
Á sunnudag hefst keppni með A-
úrslitum í unglingaflokki kl. 10 og
þar næst A-úrslitum í B-flokki. Eft-
ir hlé og hádegi taka við A-úrslit í
barnaflokki og ungmennaflokki.
14:15 verða viðurkenningar
veittar og lýkur mótinu með A-
úrslitum í A-flokki sem margir bíða
spenntir eftir. Eiginleg mótslok
verða kl. 16 á sunnudag.
Lokasprettur Landsmóts hestamanna