Morgunblaðið - 07.07.2018, Side 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018
--- ALLT A EINUM STAD �
HÓT E L R E K S T U R
Komdu og skoðaðu úrvalið í
glæsilegri verslun að Hátúni 6a
Hágæða rúmföt,
handklæði
og fallegar
hönnunarvörur
fyrir heimilið
Eigum úrval
af
sængurvera
settum
Percale ofin –
Micro bómul
l,
egypskri og
indverskri bó
mull
Hátúni 6a, 105 Reykjavík | Sími 822 1574 | hotelrekstur.is
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Kína búa sig
undir þann möguleika að tollastríð, sem Don-
ald Trump Bandaríkjaforseti hefur hafið, geti
staðið í marga mánuði, ef ekki árum saman.
Hagfræðingar hafa varað við því að tollastríðið
við Kína og viðskiptadeilur Bandaríkjanna við
önnur lönd geti magnast og fari svo geti það
dregið verulega úr hagvexti í Bandaríkjunum
og um alla heimsbyggðina.
Donald Trump hóf tollastríðið við Kína með
því að leggja á nýjan 25% toll sem tók gildi á
miðnætti í fyrrinótt að bandarískum tíma.
Tollurinn er á kínverskan varning að andvirði
alls 34 milljarða dollara til Bandaríkjanna,
meðal annars bíla, harðdiskadrif, vélar og raf-
tæki.
Stjórnvöld í Kína svöruðu þessu með því að
leggja þegar í stað 25% toll á 545 bandarískar
vörur sem seldar hafa verið fyrir alls 34 millj-
arða dollara, meðal annars landbúnaðarvörur
og farartæki, að sögn kínversku fréttastofunn-
ar Xinhua.
Embættismenn Trumps segja að nýju toll-
arnir séu nauðsynlegir til að vernda bandarísk
störf vegna ósanngjarnra viðskiptahátta Kín-
verja síðustu áratugi. Þeir skírskota meðal
annars til þess að hallinn í vöruskiptum
Bandaríkjanna við Kína jókst í rúma 375 millj-
arða dollara á síðasta ári.
„Mesta viðskiptastríð hagsögunnar“
Kínverjar hafa lýst tollum Trumps á kín-
verskan varning sem „mesta viðskiptastríði
hagsögunnar“ og spá því að það komi Banda-
ríkjunum sjálfum í koll. Þeir segja að nær tveir
þriðju af kínverska varningnum, sem tollar
Trumps eru lagðir á, komi frá fyrirtækjum í
eigu erlendra fjárfesta, meðal annars banda-
rískra.
Stjórn Trumps býr sig nú undir að leggja
nýjan toll á kínverskar vörur að andvirði 16
milljarða dollara til viðbótar og stefnt er að því
að hann taki gildi síðar í mánuðinum. Gert er
ráð fyrir að Kínverjar svari í sömu mynt.
Nýju tollarnir höfðu lítil áhrif á gengi hluta-
bréfa í fyrirtækjum í Bandaríkjunum og Asíu í
gær þar sem fjármálamarkaðir hafa lengi ver-
ið viðbúnir þeim. Talið er að nýju bandarísku
tollarnir nái til um 0,6% af heimsviðskiptunum
og 0,1% af heildarframleiðslunni í heiminum,
að því er fréttavefur breska ríkisútvarpsins
hefur eftir markaðssérfræðingum fjárfesting-
arbankans Morgan Stanley. Seðlabanki Kína
telur að nýju tollarnir hafi tiltölulega lítil áhrif
og minnki hagvöxtinn í landinu aðeins um
0,2%, að sögn fréttaveitunnar AFP.
Hagfræðingar óttast hins vegar að tolla-
stríðið og viðskiptadeilurnar vindi upp á sig,
með alvarlegum afleiðingum fyrir efnahag
Bandaríkjanna og allrar heimsbyggðarinnar.
Trump hafði áður lagt verndartolla á inn-
fluttar þvottavélar og sólarrafhlöður og síðan á
innflutt stál og ál. Þeir tollar bitna einkum á
samstarfslöndum Bandaríkjanna, meðal ann-
ars löndum Evrópusambandsins, Japan, Kan-
ada og Mexíkó.
Efnahagsbata Obama stefnt í hættu
Forsetinn hótaði í síðasta mánuði að leggja
nýjan 10% toll á kínverskan varning að and-
virði 200 milljarða dollara til viðbótar ef Kín-
verjar héldu áfram „að neita að breyta við-
skiptaháttum sínum“. Hann gekk enn lengra í
fyrradag og hótaði þá viðbótartollum á 300
milljarða dollara varning frá Kína. Standi
hann við hótanirnar ná verndartollarnir til
nær alls kínversks varnings sem fluttur er til
Bandaríkjanna. Grípi Kínverjar til sambæri-
legra aðgerða gætu þær dregið dilk á eftir sér í
Bandaríkjunum og grafið undan tíu ára efna-
hagsbata sem hófst í forsetatíð Baracks
Obama.
Fréttaskýrendur The Wall Street Journal
segja að Trump hafi í fyrstu lotu tollastríðsins
forðast að mestu að leggja verndartolla á neyt-
endavörur. Talið er því að fyrstu tollar
Trumps hafi lítil áhrif á neytendur næstu mán-
uðina, eða fram yfir þingkosningarnar í
Bandaríkjunum í nóvember, á miðju kjörtíma-
bili forsetans. Tollarnir auka hins vegar kostn-
að bandarískra bíla- og vélaframleiðenda og
líklegt er að það bitni á neytendum á endanum,
eins og þingmenn repúblikana hafa bent á.
Bitna á bændum Trumps
Viðbrögð Kínverja við verndartollunum
gætu þó skaðað Trump meira þar sem kín-
versku tollarnir bitna aðallega á bandarískum
bændum, eins og tollarnir sem Evrópusam-
bandslöndin og Kanada gripu til vegna
verndartolla Trumps á stál og ál. Trump hefur
notið mikils stuðnings í landbúnaðarhéruðum
Bandaríkjanna en það gæti breyst ef tolla-
stríðið verður til þess að útflutningur á banda-
rískum landbúnaðarvörum minnkar og verð
lækkar. Að sögn fréttaskýrenda The Wall
Street Journal bitna verndartollar Trumps og
viðbrögð Kínverja einkum á sýslum þar sem
forsetinn fékk meirihluta atkvæða í síðustu
kosningum. Kínversku tollarnir komi verst
niður á 20% sýslnanna sem kusu Trump en að-
eins 3% sýslna þar sem forsetaefni deómkrata,
Hillary Clinton, fékk meirihluta.
Verndartollar Trumps gætu einnig mætt
andstöðu meðal þingmanna repúblikana sem
hafa aðhyllst frjálshyggju í heimsviðskiptum
og sagt að verndartollastefnan verði til þess að
bandarískar fjölskyldur þurfi að greiða hærra
verð fyrir vörurnar.
Búa sig undir langt tollastríð
Kínverjar segja Trump hefja viðskiptastríð sem komi Bandaríkjunum í koll Svara verndartollum
Trumps með tollum sem bitna á bandarískum bændahéruðum þar sem forsetinn hefur haft mikið fylgi
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lagt nýja tolla á kínverskan varning sem hann segir tengjast
ósanngjörnum viðskiptaháttum Kínverja. Tollarnir ná til 818 undirflokka í tollskrá Bandaríkjanna.
1.546,0
892,4
649,0
635,3
592,4
497,2
459,8
416,2
414,4
353,4
milljónir $Helstu framleiðslugreinar
Bifreiðar
Útvarpssendar
Hlutar í vökvadælur
Flugvélahlutar
Geymslueiningar
Lyftarar og brettahlutar
Harðdiskadrif
Gúmmí-/plastmót til inndælingar
Ljósadíóður
Einangraðir vírar í skip/flugvélar
9.558,9
4.528,8
1.924,4
517,1
157,8
3,7
1,1
0,3
0,05
Eftir framleiðslugeirum Andvirði varningsins
í dollurum árið 2017
Tollar Trumps á kínverskan varning
Heimild: Viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna
15.467,8 milljónir $
Kínverskur útflutningur til Bandaríkjanna
2007 2008 2009 2010 2011 2012
63 70 70
92 104 111
321 338
296
365
399
426
2013 2014
468
124
440
122
Bandarískur útflutningur til Kína 483
116 116
2015 2016
463
130
506
2017
Vöruskipti
í milljörðum dollara
Helstu viðskipti 2017
Boeing-þotur og búnað í
flugvélar fyrir 16,3
milljarða dollara
Bandaríkin keyptu af Kína:
Vélar og tæki
Raftæki,
hljóð- og sjónvarpstæki
Sjóntæki og ljósmyndabúnaður,
skurðlækningatæki
Farartæki önnur en járnbrautar-
lestir og sporvagnar
Flugvélar, geimför og
flugvéla- og geimfarahlutar
Eimreiðar, lestavagnar, sporvagnar
og lestarhlutar
Ólífræn efni; eðalmálmar;
lantaníðmálmar
Lífræn efni
Skip og bátar
Gúmmívarningur
Kína keypti af Bandaríkjunum:
Sojabaunir (12,4 ma. $)
Nýja og notaða bíla
(10,5 milljarðar $)
Leikföng og leiki (26,8 ma.)
Farsíma
(70,4 milljarðar $)
Fatnað (24,1 milljarður)
Adul Sam-on er ríkisfangslaus piltur
frá Búrma, hefur verið í fóstri hjá
kristnum kennnurum en er nú fast-
ur í helli í Taílandi ásamt ellefu öðr-
um piltum og fótboltaþjálfara
þeirra. Hann er sá eini á meðal
þeirra sem talar ensku og hefur
unnið hug og hjarta þeirra sem
fylgjast með hremmingum piltanna
sem urðu innlyksa í hellinum fyrir
tveimur vikum.
Adul Sam-on er fjórtán ára og
hefur hrifið björgunarmenn með
kurteisi sinni og góðri enskukunn-
áttu. Tæpur þriðjungur Taílendinga
talar ensku og Adul var sá eini á
meðal piltanna tólf sem gat talað við
breska kafara sem fundu þá í hell-
inum. Auk ensku talar hann taí-
lensku, búrmísku og kínversku, að
sögn fréttaveitunnar AFP.
Hann fæddist í sjálfstjórnarhéraði
í Búrma, Wa-ríki, sem nýtur ekki al-
þjóðlegrar viðurkenningar og fær
ekki að gefa út vegabréf. Hann fór
frá fjölskyldu sinni til að ganga í
skóla í norðurhluta Taílands þegar
hann var sjö ára og var tekinn í fóst-
ur hjá kristnum kennurum.
Adul er á meðal að minnsta kosti
400.000 manna sem eru skráðir án
ríkisfangs í Taílandi, samkvæmt
upplýsingum frá Flóttamannastofn-
un Sameinuðu þjóðanna. Eins og
þeir allir er hann án fæðingarvott-
orðs, persónuskilríkis og vegabréfs
og getur því ekki gengið í hjóna-
band, fengið atvinnu, stofnað banka-
reikning, ferðast, keypt fasteign eða
kosið.
Hann ætlar þó ekki að láta þetta
stöðva sig. Auk þess að æfa fótbolta
af miklu kappi hefur hann unun af
því að leika á píanó og gítar. Svo er
hann mikill námsmaður.
„Hann er gimsteinn,“ hefur AFP
eftir skólastjóra piltsins.
Gimsteinn án ríkis-
fangs í hellinum
Hæfileikaríkur piltur frá Búrma
vann hug og hjarta björgunarmanna
AFP
Hæfileikaríkur Adul Sam-on (t.h.).