Morgunblaðið - 07.07.2018, Side 20

Morgunblaðið - 07.07.2018, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eldgosið íVest-manna- eyjum er einn af þeim viðburðum sem mörkuðu tuttugustu öldina í Íslands- sögunni. Allri þjóðinni var brugðið þegar eldgosið hófst í Heimaey 23. janúar 1973. Að sama skapi varpaði þjóð- in öndinni léttar þegar tókst að bjarga um 5.300 íbúum stórslysalaust undan eld- inum og eimyrjunni. Áfallið var mikið. Flestir þeir, sem flýja þurftu gosið, máttu sjá á eftir eigum sín- um og margir misstu aleig- una. Það auðveldaði fólki ekki að þurfa að koma undir sig fótunum á nýjan leik. Gosinu lauk tæpu hálfu ári síðar og Vestmannaeyingar hófu að snúa til baka. Það var ekki auðvelt. Aðkoman var hrikaleg, hús ýmist skemmd eða ónýt og komin undir hraun, allt á kafi í ösku og vikri og landslagið svart og gróðurlaust. Margir von- uðust til að allt yrði eins og það var fyrir gos, en það var ekki svo einfalt og raunin er sú að enn er fólk að átta sig á áhrifum þess. Þeir sem sneru aftur upplifðu erfið- leika og á sínum tíma jafnvel reiði í garð þeirra sem ákváðu að gera það ekki. Í fréttaskýringu í Morgunblaðinu á fimmtudag fjallar Guðrún Erlingsdóttir blaðamaður um gosið, gos- lokin og þau áhrif sem ham- farirnar og eftirleikur þeirra hafði. Gosið bitnaði til dæmis á námsárangri barna eins og Þorgeir Magnússon sálfræð- ingur leiddi í ljós á sínum tíma. Niðurstaða rannsókna hans var sú að gosið hefði haft meiri áhrif á stúlkur en drengi í námi fyrstu árin eft- ir gosið. Stelpurnar hefðu hins vegar náð fyrri styrk þremur árum síðar, en strákarnir upplifað meiri einangrun og námsgetan orðið lakari síðar meir. Þor- geir veltir fyrir sér í frétta- skýringunni hvers vegna umræðan um þetta sé svo sterk um þessar mundir, 45 árum eftir goslok. Hugsan- lega stafi það af því að nú sé fólk tilbúið að tala og vinna úr erfiðum tilfinningum. Í fréttaskýringunni lýsir Svanhildur Gísladóttir því að margir hafi átt mjög erfitt eftir gos og sumir hafi misst allt sitt. Hún opnaði Gallerí Prýði, sem stóð beint á móti hraunjaðrinum. „[K]omu margir inn til okkar og sögðu frá því að þeir þyldu ekki hraunið og liði illa með að horfa á það. Það var eins og reiðin yfir náttúruhamförunum beind- ist að hrauninu,“ segir Svan- hildur og bætir við: „Það er erfitt að átta sig á því hvaða áhrif gosið hafði á mig, ég er enn að meta það. En ég met meira í dag það sem ég hef og það er óraunverulegt að hafa gengið í gegnum þessar náttúruhamfarir og það sem fylgdi í kjölfarið. Eyja- samfélagið var gott fyrir gos en það er enn sterkara og samrýndara eftir gos. Það kom upp þessi sterki Íslend- ingur sem gefst ekki upp.“ Það er ekki að undra að slík reynsla skilji eftir sig spor og verður afrek þeirra, sem byggðu upp samfélagið í Eyjum á nýjan leik, enn at- hyglisverðara fyrir vikið. Samfélagið sem nú er í Vestmannaeyjum er ólíkt því sem var. Þeir sem komn- ir voru til vits og ára þegar gaus segja jafnvel að þá hafi orðið „heimsendir“. Þá er átt við að sú veröld sem var kom ekki aftur. Samfélagið í Eyj- um fyrir gos var sérstakt og samhent. Íbúarnir voru heimakærir, fóru sjaldan upp á land og sumir jafnvel aldrei. Þá breyttist bærinn verulega. Stór hluti bæjar- ins hvarf þegar um 400 hús fóru undir hraun. Þar með er þó ekki sagt að samfélagið í Eyjum hefði engum breytingum tekið hefði gosið ekki átt sér stað. Þær breytingar hefðu hins vegar orðið hægt og bítandi, en ekki með jafn afgerandi hætti og raun bar vitni. Í Vestmannaeyjum er nú þróttmikil byggð og gróska í atvinnulífi. Sveitarfélagið er eitt það best rekna á land- inu. Í samanburði Samtaka atvinnulífsins á 12 stærstu sveitarfélögum landsins eru Vestmannaeyjar í fjórða sæti þegar fjárhagsstaða þeirra er borin saman á ár- unum 2002 til 2018. Þessi staða ber vitni þrautseigju og dug þeirra, sem voru staðráðnir í að byggðin í Eyjum risi úr öskunni á ný og því geta Eyjamenn fagn- að þegar þeir halda árlega goslokahátíð sína nú um helgina. „Það kom upp þessi sterki Íslendingur sem gefst ekki upp“} 45 ár frá goslokum H vort sem okkur líkar betur eða verr er lífið sjálft í raun ein stór pólitísk ákvörðun. Með fram- komu okkar, viðhorfi, viðskipta- háttum, tökum við ákvörðun sem hefur áhrif á samfélagið. Líka þegar við ómeð- vitað látum dagana líða án afstöðu því meint af- stöðuleysi hefur líka áhrif. Í því felast heilmikil pólitísk skilaboð um að viðkomandi ætli sér ekki að taka þátt eða hafi mögulega enga skoðun á viðfangsefninu. Það er nefnilega afstaða í sjálfu sér, heilmikil meira að segja. Einmitt vegna þess að allar okkar gjörðir eru í raun skilaboð ættum við að gefa okkur smá tíma til að hugleiða þær og þátttöku okkar í samfélag- inu. Hvaða skilaboð við erum að senda með at- höfnum okkar eða athafnaleysi? Hvert einasta mannsbarn skiptir máli. Það heyrist svo oft í um- ræðunni hér heima að það skipti engu máli hvað við segjum á alþjóðavettvangi því við erum svo fá og smá. Engu að síður hefur afstaða okkar til dæmis til jafnréttis kynjanna spurst rækilega út um allan heim jafnvel þó að við séum bara 350 þúsund manna þjóð. Víða erum við hyllt fyrir það að hafa verið fyrst ríkja til að kjósa okkur kvenkyns forseta í lýð- ræðislegum kosningum. Þannig getum við líka tekið okkur afgerandi stöðu með friði og með verndun mannréttinda. Ég var svo heppin að fá að hlusta á aktívistann og upp- ljóstrarann Chelsea Manning í vikunni. Hún var að lýsa lífi sínu undanfarinn áratug, sem hefur verið með hreinum ólík- indum frá því að hún var handtekin fyrir að ljóstra upp hernaðarlegum aðgerðum Bandaríkjahers í Afganistan og Írak. Manning sagði ákvörðun sína um að láta vita af aðgerðum Bandaríkja- hers hafa helgast af ást sinni á landi sínu og ábyrgð gagnvart öðru fólki. Hún hafi tekið þessa ákvörðun jafnvel þó að hana grunaði að það kynni að kosta hana starfið. En hana grun- aði ekki að hún yrði handtekin og haldið fjarri öllum samskiptum mánuðum saman. Hana grunaði ekki að bandarískt réttarríki gæti kom- ið svona fram, þannig að hún fengi ekki lengi framan af að ræða við lögmann, vita um rétt sinn eða möguleika á lausn eða hvað yrði um hana. En það var það sem gerðist. Síðar var hún dæmd í 35 ára fangelsi fyrir uppljóstranir sínar, uppljóstranir sem án nokkurs vafa gerðu gagn. Hún sat inni í átta ár, en var loks náðuð af Bar- ack Obama, þáverandi forseta, og starfar nú sem fyrirlesari og forritari. Manning hvatti okkur, aðspurð hvað við gætum gert í þágu samfélagsins, til að vera meðvituð um athafnir okkar í okkar daglega lífi því hver einasta rödd skiptir máli. Það skiptir máli að taka afstöðu, ýmist með daglegum verkum eða þátttöku í hreyfingum og félögum. Undirskriftir, greinaskrif, stöðufærslur á samfélagsmiðlum, hvar við verslum. Saman gerum við heiminn betri fyrir fleiri, út á það gengur þetta. Helga Vala Helgadóttir Pistill Við skiptum öll máli Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. Helgavala@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Orðið Novichok merkir ný-liði á rússnesku en tauga-eitrið sem ber þetta nafnog er orðið alræmt vegna árása sem gerðar hafa verið undan- farna mánuði í London með því, á sér þó margra áratuga sögu. Saga eitursins er sögð á fréttavefjum The Guardian og BBC. Efnið var þróað í rannsóknarstofum Sovét- ríkjanna og síðan rússneska sam- bandslýðveldisins frá 1971 til 1993. Rússnesku vísindamennirnir sem þróuðu það stærðu sig af því að þeir hefðu búið til banvænasta tauga- eitur í heimi. Til samanburðar má nefna að sum afbrigði af Novi- chok-taugaeitri eru um fimm til átta sinnum banvænni en VX-tauga- eitrið sem var notað til þess að ráða af dögum Kim Jong-nam, bróður Kims Jong-un, einræðisherra Norð- ur-Kóreu, í fyrra. Bretland gert að ruslahaugi Novichok-traugaeitrið er organófosfatefni og er bæði til í föstu og fljótandi formi en úr hinu fyrrnefnda er hægt að gera fíngert púður til að eitra fyrir ugglaus fórnarlömb. Samkvæmt fréttaskýr- ingu BBC var taugaeitrið upp- haflega þróað samkvæmt lyfja- þróunaráætlun sem gekk undir dulnefninu Foliant. Tilvist eitursins var gerð opinber á tíunda áratugn- um í rússneskum ríkismiðlum að undirlagi efnafræðingsins dr. Vil Mirsajanov. Mirsajanov flutti síðar til Bandaríkjanna og birti efnaform- úluna að eitrinu í bók sem hét þeim hispurslausa titli Ríkisleyndarmál. Að sögn dr. Mirsajanov var ætlunin með þróun Novichok- eitursins að auðvelt ætti vera að flytja það með sér milli ríkja án þess að það fyndist í tollheimtu eða öryggisgæslu. Novichok er hægt að skipta upp í tvö hráefni sem auðvelt er að ferðast með og eru ekki bönn- uð samkvæmt alþjóðalögum. Sajid Javid, innanríkisráðherra Bretlands, sakaði Rússa í gær um að nota Bretland sem „ruslahaug“ fyrir eiturefni. Þar vísar hann til þess að fyrr í vikunni veiktist kær- ustuparið Charlie Rowley og Dawn Sturgess í Amesbury eftir að hafa komist í snertingu við Novichok- taugaeitur. Þetta er í annað skipti á fáeinum mánuðum sem fólk í Bret- landi hefur orðið fyrir barðinu á þessu sjaldséða eitri: Ráðist var á rússneska fyrrverandi njósnarann Sergei Skripal og dóttur hans, Júl- íu, með eitrinu í mars og liggja rússnesk stjórnvöld undir grun um árásina. Skripal-feðginin lifðu eitr- unina af með naumindum og eru nú úr hættu. Ólíklegt þykir þó að neinn hafi ætlað sér að koma Rowley og Sturgess fyrir kattarnef og líklegra að þau hafi fyrir slysni komist í snertingu við efnið; hugsanlega leif- ar af sama eitri og var notað gegn Skripal-feðgininum. Rannsókn stendur yfir á árásinni á parið. Sami skammturinn? Áðurnefndur dr. Mirsajanov telur ekki að um sama eitur- skammtinn sé að ræða í seinni árás- inni því efnið sé of óstöðugt til að varðveitast utandyra í um fjóra mánuði. Ekki er þó nein eining um þetta álit Mirsajanovs því Vladímír Uglev, vísindamaður sem segist hafa fundið upp Novichok-efnið sem notað var í árásinni á Skripal- feðginin, sagði í samtali við The Independent að efnið væri mjög stöðugt. „Ég hef aldrei látið reyna á það hvort efnið er banvænt í tíu eða hundrað ár. En það er það mjög lengi.“ Sovéskt eitur veldur usla í Bretlandi Ekki ríkir einhugur meðal fræði- manna um það hvort eitrið sem olli veikindum Sturgess og Row- ley sé úr sama skammti og var notaður í árásinni á Skripal- feðginin í mars. Ólíkt Sergei Skripal tengjast Sturgess og Rowley ekki njósnum á nokkurn hátt og því er talið að um slys fremur en morðtilraun sé að ræða. Læknafulltrúinn Sally Davies sagði um málið í samtali við The Guardian að almenningur væri ekki talinn í mikilli hættu og að ekkert benti til þess að parið hefði lagt leið- ir sínar á svæði sem voru hreinsuð af eitr- inu í kjölfar Skripal- árásarinnar. Hryðju- verkalögreglan mun leita að vísbend- ingum um málið í og kringum Wiltshire á næstu dögum. Almenningur ekki í hættu BRETLAND Sally Davies AFP Eitur Gasgrímur fyrir utan heimili Charlie Rowley og Dawn Sturgess í Amesbury í suðurhluta Bretlands. Parið komst í snertingu við eitrið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.