Morgunblaðið - 07.07.2018, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 07.07.2018, Qupperneq 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018 Tilskipun ESB um nr. 72/2009 um sam- eiginlegar reglur fyr- ir innri orkumarkað- inn er sett til að efla viðskipti milli aðild- arríkjanna og efla frjálsa samkeppni. Jafnframt mælir til- skipunin fyrir um stofnun ACER, sem skal tryggja að öll ríkin verði samstiga og reglugerðir þeirra um aðgang að markaði samræmdar. Tilskipun- in innifelur ákvæði eldri tilskip- unar, nr. 54/2003, sem við höfum innleitt hér. Ástæðurnar fyrir þessari tilskipun koma ef til vill einna best fram í eftirfarandi tölu- liðum forsendukafla hennar, en þar segir í lauslegri þýðingu:  (3) því frelsi sem samningurinn tryggir þegnum bandalagsins; meðal annars frjálsu flæði vöru, stofnanafrelsi og þjónustufrelsi; verður aðeins náð með fullopnum markaði, þar sem allir notendur eru frjálsir að velja söluaðila og allir söluaðilar frjálsir að afhenda til sinna viðskiptavina.  (4) Enn eru þó í samfélaginu hindranir í vegi fyrir sölu raf- magns á jafnstöðugrunni og án mismununar eða erfiðleika. Sér- staklega vantar jafnan aðgang að netinu og samstillt reglugefandi eftirlit í ríkjum sambandsins. Hinn frjálsi innri markaður með raforku er aðeins einn af mörgum mörkuðum sem saman vinna að því að útvega þegnum bandalagsins eins trygga og ódýra raforku og unnt er. Samt var það svo, sam- kvæmt skýrslu sem ESB lét gera 2007, að þá gat rammi þá gildandi regluverks ekki samkvæmt tölulið (7) tryggt myndun vel virkra raf- orkumarkaða. Þá er rétt að hafa í huga tölulið (60) þegar þessi mál eru skoðuð.  (60) ESB telur það skuli vera eitt meginmarkmið tilskipunar- innar að tryggja sömu reglur og öllum breiðan aðgang að rafmagni. Þá mundi verð á ótrufluðum mark- aði skapa hvata til tenginga yfir landamæri og til fjárfestinga í nýj- um aflstöðvum, en til lengri tíma leiða til jöfnunar orkuverðs. Í framkvæmd mun þessi jöfnun orkuverðs verða hækkun hér og ógn við samkeppn- isstöðu almenns ís- lensks iðnaðar. Orkuverð á hinum frjálsa markaði Evr- ópu myndast á upp- boðsmarkaði innan þess ramma sem ákveðst af jarð- efnaeldsneyti. Sérstakur markaður er fyrir sérstaka þjónustu eins og varaafl í gangi til að tryggja nægi- legt framboð afls umfram eftir- spurn svo samkeppni verði óheft og öryggi gott. Vatnsafl Evrópu, þar með talið Noregs, er hlutfallslega allt of lítið til að skapa þar nokkur vandamál sem heitið getur. Því er í lögum ESB ekki að finna neitt um það, hvernig best er að tryggja nægi- lega öruggt framboð vatns í orku- kerfum eins og því íslenska. Þá býr samkeppnin í Evrópu ekki við þau vandamál sem hér eru og stafa af verulega misjöfnum stofnkostn- aði aflstöðva af sömu stærð og sambærilegri tækni. Frjáls sam- keppni milli vatnsorku og jarð- varma án þess að hafa verðramma jarðefnaeldsneytisins er líka nokk- uð sem ekki þekkist í Evrópu. Þessi vandamál hafa því ekki verið leyst þar. Það eru því mörg atriði sem við þurfum að leysa sjálf áður en við getum komið hér upp vel virkum frjálsum markaði, atriði sem geta fallið utan ramma tilskip- unar 72/2009. Innleiðing hennar getur því aðeins hindrað í því verki. Gagnrýni Skúla Jóhannssonar Skúli Jóhannsson skrifar í Morgunblaðið hinn 30.6. 2018 nokkuð eindregna gagnrýni á skrif mín. Helstu rök hans eru að það sem virkar vel í Evrópu virki einn- ig vel hér en Skúli virðist ekki sjá þann afgerandi mun orkukerfanna sem og lýst er hér að framan og ber því fram rök hins blinda manns í þessu máli. Því miður virðist Skúli einnig hálfblindur á textann sem hann er að gagnrýna. Hann hefur hina eig- inlegu gagnrýni með orðunum „Í grein Elíasar B. Elíassonar (EBE) í Morgunblaðinu 26.6. 2018 virðist hann halda því fram að ekki sé hægt að hanna raforkumarkað nema þar starfi í bland virkjanir sem noti jarðefnaeldsneyti, kol eða náttúrulegt gas.“ Hér afbakar Skúli skoðanir mínar og sömuleiðis eru afbakanir eða rangfærslur í öllum síðari tilvitnunum máls- greinarinnar í mig. Skúli hefur heldur ekki lesið for- sendur tilskipunar nr. 72/2009 sér til gagns. Í sex töluliðum hefur hann eftir „staðhæfingar“ mínar og dæmir síðan: í nr. 1 er texta mínum breytt svo skoðun ruglast. Í nr. 2 til 4 eru dómar hans í mótsögn við tilvitnaðar forsendur tilskipunarinnar, töluliði (3) til (4) og (7) hér að framan. Í nr. 5 eru orð mín slitin úr sam- hengi. Í nr. 6 eru orð mín um að lands- reglarinn verði Trójuhestur svarað að hætti rökþrota manna með því að niðurlægja. Lokaorð Það er ljóst að Skúli telur að ACER muni stýra málum hér bet- ur en við sjálf og þá skoðun hefur hann stutt rökum hins blinda manns. Það er hins vegar óskiljan- legt hvers vegna Skúli, svo skýr maður sem hann er, velur þá leið sem hann velur til að gagnrýna skrif mín. Nú í annað sinn byggist gagnrýni hans á rangfærslum sem kalla á leiðréttingu fremur en mál- efnalegt svar. Þetta eru ekki fag- legar umræður. Þetta er að munn- höggvast. Markaður orkupakka 3 Eftir Elías Elíasson Elías Elíasson » Það eru því mörg at- riði sem við þurfum að leysa sjálf áður en við getum komið hér upp vel virkum frjálsum markaði. Höfundur er sérfræðingur í orkumálum eliasbe@simnet.is Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is Með free@home hefur aldrei verið auðveldara og hagstæðara að stjórna heimilinu, sumarbústaðnum eða fyrirtækinu. Ertu að byggja, breyta eða bæta? Endilega kynntu þér málið. Snjalllausnir – nútíma raflögn Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is Svampþvottastöð Afkastamikil sjálfvirk þvottastöð sem getur þvegið allt að 50 bíla á klukkustund. Opið virka daga kl. 8 -19 helgar kl. 10 – 18. Nú eru allar líkur á aðskipt verði um forsetaFIDE á þingi Alþjóða-skáksambandsins sem fram fer samhliða ólympíumótinu sem hefst 23. september í Batumi í Georgíu. Í framboði eru enski stórmeistarinn Nigel Short, Grikkinn Georgios Makropoulos, starfandi forseti FIDE, og Rúss- inn Arkady Dvorkovich, sem tal- inn er sigurstranglegastur þeirra þriggja. Stjórn SÍ hefur ekki ákveðið hvern sambandið styður í komandi kosningum. Kirsan Ilyumzhinov, sem var kjörinn árið 1995, hefur lýst því yfir að hann sækist ekki eftir end- urkjöri en hann átti vart annarra kosta völ eftir að hafa verið á bannlista hjá bandarískum yf- irvöldum árið 2015 vegna við- skipta við sýrlensk yfirvöld. Og sennilega spillir einnig fyrir frá- sögn hans af því þegar hann var numinn brott af geimverum eitt septemberkvöld í Moskvu árið 1997. Þá hefur hann nokkrum sinnum heimsótt illræmda einræðisherra og er skemmst að minnast þess frá sumrinu 2011 þegar hann gerði sér ferð til Líbýu til að hitta Muammar Gaddafi leiðtoga nokkr- um mánuðum áður en hann var ráðinn af dögum. Anatolí Karpov og Garrí Kasp- arov buðu sig fram í embætti for- seta FIDE árin 2010 og 2014. Þeir töpuðu með miklum mun. Sá síð- arnefndi er ekki hættur og er tal- inn einn helsti stuðningsmaður Ni- gels Shorts. Karpov hefur lítið haft sig í frammi og um daginn settist hann niður við skákborðið. Á fjögurra manna móti með „gömlum kunn- ingjum“, Lubomir Ljubojevic, Eugenio Torre og Anatolí Vaisser, sem fram fór í Platja d’Aro í Katalóníu á Spáni, voru tefldar sex at-skákir og 12 hraðskákir. Karpov sigraði, hlaut 12½ vinning (af 18), Vaisser kom næstur með 12 vinninga, Ljubojevic varð í 3. sæti með 7½ vinning og Torre rak lestina með fjóra vinninga. Síðan lá leið Karpovs til Kína þar sem hann vann Hou Yifan í sex skáka einvígi, 3½ : 2½. Tímamörk voru 15 10. Það er alveg ljóst eftir að hafa rennt yfir þessar skákir að Kar- pov heldur enn góðum styrk og stíllinn hefur lítið breyst. Hann kann að gera sér mat úr litlu, endataflstæknin er góð og að leika mönnunum uppi í borði er kúnst sem hann hefur tileinkað sér bet- ur en flestir: Platja d’Aro 2018; 3. umferð: Eugenio Torre – Anatolí Kar- pov Drottningarpeðs-leikur 1. d4 d5 2. Bf4 c6 3. e3 Bf5 4. Rf3 e6 5. Be2 Bd6 6. Bxd6 Dxd6 7. 0-0 Rd7 8. c4 Rgf6 9. Rc3 0-0 10. Rh4 Be4 11. f3 Bg6 12. c5 De7 13. Rxg6 hxg6 14. f4 b6 15. b4 a5 16. a3 Ha7 17. Dc2 Hc8 18. Hfb1 Dd8 19. Ha2 Re8 20. Hab2 axb4 21. axb4 bxc5 22. bxc5 g5 Hvítur hefur meira rými en svartur eygir möguleika með þess- um dæmigerða peðsleik. 23. g3 gxf4 24. exf4 Hca8 25. Hb7 g6 26. Kg2 Rg7! Riddarinn finnur f5-reitinn. Það myndast ýmsir veikleikar í kjöl- farið í herbúðum hvíts. 27. Bd3 Rf5 28. Bxf5 exf5 29. Hxa7 Hxa7 30. Db2 Kg7 31. Ha1 Hxa1 32. Dxa1 De8 33. Kf3 Rf6 34. h3 Dh8 Skyndilega er frumkvæðið í höndum svarts. Drottningin leitar eftir færum. 35. Kg2 Db8 36. 36. Db1 Da8 37. Da2 Db7 38. Da3 Re4 39. Rxe4 fxe4 40. g4 Db1 41. De3 Dc2+ 42. Kg3 f6 43. h4 Dd1 44. f5 gxf5 45. gxf5 Df1 46. Kg4 Dg2+ 47. Kf4 47. … Kh6! Þá skerst kóngurinn í leikinn. Hvítur er varnarlaus. 48. Db3 Kh5 49. Dd1+ Kxh4 50. De1+ Kh5 51. Dd1+ Kh6 52. Db3 – og Torre gafst upp rétt áður en Karpov gat leikið 52. … Dg5 mát. Síðustu dagar Kirs- ans Ilyumzhinovs sem forseti FIDE Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.