Morgunblaðið - 07.07.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.07.2018, Blaðsíða 24
Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felli- gluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan GÆÐA BAKKAMATUR Sjá heimasíðu www.veislulist.is Veislulist afgreiðir hádegismat í bökkum alla daga ársins, bæði fyrir fyrirtæki og stofnanir. Í yfir 40 ár hefur Veislulist lagt áherslu á góða þjónustu og framúrskaran matreiðslu. Hádegismatur Verð kr. 1.370 Lágmark 3 bakkar + sendingargjald d MisMUnAndi RéTTiR AllA dAGA viKUnnAR EldUM EinniG fyRiR MöTUnEyTi Gummi Ben. minnti okkur á að Guð væri ís- lenskur þegar Hannes varði vítaspyrnu hins fræga gullknattarhafa, Líónels Andrésar Messí. Það mígrigndi á bláa hafið í Hljóm- skálagarðinum þennan dag. Þó ekki venjuleg- um sudda af útsuðri heldur gleðitárum Guðs af himnum ofan. Bláa hafið teygaði ölið frá Prikinu með titrandi tár á hvarmi, talandi tungum: Húh. Hafið virtist sem andsetin smáblóma- breiða reiðubúin að tilbiðja Guð sinn og deyja svo, jafnt guðhræddur al- múginn sem og djúpvitrustu trúleys- ingjar og Siðmenntarspekingar er höfðu, vel að merkja, vakið heims- athygli skömmu áður með könnun sinni á lífsskoðunum landans. Sam- kvæmt niðurstöðum þeirra kvaðst ekkert ungmenni hérlendis trúa að Guð hefði skapað heiminn og þriðj- ungur taldi sig fullkomlega trúlausan. Það kann því að hljóma þverstæðu- kennt að sama blómabreiðan skuli nú tilbiðja Guð sinn og kirja um allar jarðir 800 ára gamalt trúarljóð Kol- beins Tumasonar, Heyr himna smið- ur ég er þrællinn þinn, þú ert Drott- inn minn. Markmiðið er þó ekki að tala niður þverstæðukennda hegðun landans þegar kemur að því að hrífast af íþróttaafrekum eða fornum trúar- ljóðum úr kaþólskum sið. Því síður er það ætlunin að gera lítið úr afrekum landsliða okkar. Þau hafa vissulega verðskuldað heimsathygli og lof okk- ar. En við megum ekki láta blindast af óhóflegri sjálfhverfu haldandi að við séum miðja alheims. Í stað yfirlætis og mik- ilmennsku er vænlegra að tileinka sér boðskap þjóðsöngsins, lifa sem blaktandi strá, auðmjúk og hæglát. Ekki sakar heldur að ígrunda mynd annarra af okkur. Rússneski íþróttafréttamaðurinn Vasilij Utkin lýsti okkur sem aulum er kynnum ekki fótbolta og spurði hvers vegna við værum að trufla aðra sem vildu horfa á al- vörufótbolta. Hugsuðu kannski fleiri þannig án þess að tjá sig? Hvernig hafa annars hugmyndir heimsbyggð- arinnar verið um Ísland og Íslend- inga nú og í fortíð? Myndir á borð við þá sem Dithmar Blefken dró upp af Íslendingum liðinna alda vöktu víða athygli, myndir af lúsbitinni, siðlausri eyþjóð norður í íshafi sem hírðist í loftlausum moldarkofum með hráka- dalla og hlandkollur á baðstofugólfum og keytutunnur í bæjardyrum til að þvo sér upp úr. Nóbelsskáld vort gerði þessa mynd ódauðlega í sögu- legu skáldverki um Jón Hregg- viðsson. Og hvað svo? Það var engu líkara en þjóðin hefði hraðspólast upp úr hlandkötlum moldarkofanna yfir í nú- tímann og farið á mis við það langa ferli iðn- og siðvæðingar sem aðrar þjóðir gengu gegnum. Jón Kalman Stefánsson lýsti þessu svo að 19. öldin hefði skotist framhjá okkur, en nýi tíminn birst sem eimreið á fullri ferð og keyrt á okkur. Eftir hefðum við staðið eins og ofvirk börn, full kátínu með alla möguleika opna. Í einu vet- fangi hlaut bláa hafið allt sem hug- urinn girntist, naut þess til hins ýtr- asta og gerir enn, kannski illu heilli. Sigurður Eyberg Jóhannesson, umhverfis- og auðlindafræðingur, hefur nefnilega bent á að samkvæmt viðmiðum Global Footprint Network séu Íslendingar orðnir neyslufrek- astir allra jarðarbúa. Samkvæmt nið- urstöðum hans ríkir hér óhóflegt neysluæði; eyþjóðin sem forðum lét sér nægja að baðast úr keytu, gera þarfir sínar bak við hól og skola sig svo í bæjarlæknum, er nú orðin um- hverfissóði, fyrirmunað að skilja hug- tök eins og gróðurhúsaáhrif, sjálf- bærni og nægjusemi eða þýðingu þess að hafa gerst aðili að svonefndu Parísarsamkomulagi. Og ekkert lát virðist á neysluglýj- unni. Eftir gleðitár HM og Secret Solstice býðst bláa hafinu nú hrina útihátíða, bæjarhátíða, hinsegin daga og svonefndra menningarnátta að ógleymdri stórhátíð á Laugardals- velli 24. júlí þar sem stórsveitin Guns ŃRoses stígur á 65 metra breitt inn- flutt svið með risaskjáum og búnaði sem fluttur verður til landsins í 35 gámum – „Reykjavik loves visitors“. Á meðan stunda erlendir auðjöfrar óáreittir kaup á bújörðum víðs vegar um landið. Fyrir kaldhæðni örlag- anna fylgja jörðunum rústir gömlu moldarkofanna með hljóðlausum minningum um keytuþvott við kolu- ljós á jólaföstu og ferðir barna á grasafjall undir kvaki mófugla. Kenn oss að telja daga vora Guð vors lands. „Guð er íslenskur“ Eftir Meyvant Þórólfsson Meyvant Þórólfsson » Það var engu líkara en þjóðin hefði hraðspólast upp úr hlandkötlum moldarkof- anna yfir í nútímann. Höfundur er dósent við Háskóla Íslands. Metfjöldi Reykvík- inga heimsótti Hvala- sýninguna laugardag- inn 30. júní og fjöldi fólks nýtti sér tilboð, fræðslu og fríar sigl- ingar um sundin blá og lét hvorki grámyglulegt veðrið né stórleik á HM stöðva sig. Þann dag var í fyrsta sinn haldið upp á dag hvala í Reykjavík. Hvaladag- urinn var samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Hvalaskoð- unarsamtaka Íslands, Alþjóðadýra- velferðarsjóðsins – IFAW og Wha- les of Iceland – Hvalasýningarinnar. Yfir 20 sam- starfsaðilar tóku höndum saman um að gera daginn vel heppnaðan. Um morguninn var vígt nýtt upp- lýsingaskilti um þær níu tegundir hvala sem algengastar eru í Faxa- flóa. Auk fyrrgreindra samstarfs- aðila kemur Háskóli Íslands að því verkefni. Skiltið stendur við Eiðs- granda á móts við Grandaveg og þegar skiltið er skoðað er viðkom- andi í beinni sjónlínu út yfir eitt vinsælasta hvalaskoðunarsvæði landsins. Reykjavíkurborg hefur komið fyrir sjónaukum fyrir há- vaxna sem og lágvaxna þannig að auðvelt er að fylgjast með hvala- skoðunarbátum sigla inn og út og jafnvel má af og til sjá hvali synda nærri landi. Þegar skiltið var vígt voru höfrungar að leik aðeins tvær mílur undan ströndinni við Eiðs- granda. Um 1.000 manns komu á Hvala- sýninguna á hvaladaginn, að lang- mestu leyti íslenskar fjölskyldur, og komust færri að en vildu. Þá heimsóttu hundruð gesta gömlu höfnina þar sem hvalaskoðunarfyr- irtækin Elding, Specialtours og Whale Safari stóðu að fræðslu og skemmtun fyrir börn á öllum aldri. Boðið var upp á ókeypis siglingar, hjólreiðar og ýmiss konar leiki og veitingastaðir kynntu rausnarleg tilboð í tilefni dagsins. Hvaladagurinn er vonandi kom- inn til að vera. Nú þegar hafa nokkrir aðilar lýst áhuga á að kanna möguleikann á því að hvala- dagurinn að ári verði einnig haldinn hátíðlegur á öðrum þeim stöðum á landinu sem bjóða upp á hvalaskoð- unarferðir. Markmiðið með deg- inum er að auka áhuga og vitund al- mennings um þessi mögnuðu sjávarspendýr, eiginleika þeirra og atferli en einnig að kynna fólki þau jákvæðu áhrif sem hvalir í sínu náttúrulega um- hverfi hafa á efnahag og tilveru á Íslandi. Hundruð hafa beina atvinnu af hvala- skoðun en margfalt fleiri óbeinan hag af árlegri viðkomu risa hafsins við Íslands- strendur. Það er óhætt að fullyrða að Gamla höfnin í Reykjavik liti öðruvísi út ef hvalaskoðunarinnar nyti ekki við. Sú mikla gróska í veit- ingastarfsemi og annarri þjónustu við ferðamenn og Íslendinga sem þar hefur orðið hefur breytt ásýnd hafnarinnar, gert hana mun líflegri en áður var og tengt höfnina mið- borginni með skemmtilegum hætti. Hvalaskoðunin í Reykjavík hefur virkað sem segull á fólk og fyrir- tæki að koma í höfnina og njóta þess sem hún hefur upp á að bjóða. Hvalaskoðunin í Reykjavík er því ekki einatt ein stærsta afþreying- argrein ferðaþjónustunnar sem fyrirfinnst í höfuðborginni, með hátt í 200.000 gesti árlega, heldur og stoð undir aðra þjónustu og frekari þróun hafnarsvæðisins til framtíðar. Þannig haldast hagsmunir hvala og mannfólks vel í hendur. Sífellt eru að koma fram nýjar rannsóknir sem benda til þess að hvalir séu af- ar mikilvægir lífríki hafsins á margan hátt. Fáir vísindamenn tala lengur um hvali sem afætur eða af- ræningja. Það er áhyggjuefni hve vöxtur og viðgangur ýmissa hvala- tegunda er hægur en talið er að fjöldi þeirra í dag nemi aðeins á milli 10-30% af því sem var fyrir 90 árum og voru þá þegar margar teg- undir í útrýmingarhættu. Eitt af því sem fram er komið er að engin dýr á jörðinni binda jafn mikinn koltvísýring og hvalir gera og til- vera þeirra styrkir fiskistofna alls staðar þar sem hvalastofnar eru til- tölulega sterkir eins og við Ísland. Vernd hvala er því á margan hátt mikilvægt hagsmunamál fyrir Ís- lendinga jafnt sem alla aðra jarðar- búa. Eftir Sigurstein Róbert Másson Skilti Hvalaskiltið við Eiðsgranda. »Hvalaskoðunin í Reykjavík hefur virkað sem segull á fólk og fyrirtæki. Höfundur er fulltrúi Alþjóðadýravelferðarsjóðsins sigursteinnmasson@gmail.com Vel heppnaður hvaladagur í Reykjavík Sigursteinn Róbert Másson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.