Morgunblaðið - 07.07.2018, Page 26

Morgunblaðið - 07.07.2018, Page 26
Þegar ég kveð mág minn Lárus Helgason kemur mér fyrst í hug orð- ið þakklæti. Frá þeirri stundu að systir mín kynnti fjölskylduna fyrir Lárusi hefur aldrei fallið skuggi á samband okkar. Ófá eru þau atvik þegar hann vegna þekkingar sinnar veitti fjölskyldu minni aðstoð. Návistar þeirra hjóna var gott að njóta þegar til- efni gafst til að fagna merkum tímamótum í fjölskyldum okkar. Við hjónin dvöldum nokkrum sinnum í félagsskap Ragnhildar og Lárusar í sólarlöndum. Saman áttum við góða daga þar sem við nutum þess að vera samvistum fjarri daglegum áhyggjum og þrasi hversdagslífsins. Göngu- ferðir okkar eru mér minnisstæð- ar þegar við í gamni og alvöru lit- um yfir atburði líðandi stundar og vorum fundvísir á lausn vandamálanna. Lárusi varð tíð- rætt um æskuheimili sitt á Vífils- stöðum og umhverfið þar. Styrk stjórn föður hans, Helga Ingv- arssonar, á rekstri Vífilsstaða- spítala var þjóðkunn. Varla er hægt að hugsa sér betri stað til að móta ungan mann til að takast á við framtíðarstarf sem læknir. Ekki var hægt annað en að dást að atorku Lárusar. Þrátt fyrir að hann sinnti krefjandi starfi sem mikilsmetinn læknir hafði hann tíma til að sinna sínum áhugamálum. Þau voru ekki fá og kröfðust mikils tíma. Við Apa- vatn kom hann upp sælureit með óþreytandi vinnu. Byggður var sumarbústaður og gróðursettur skógarlundur sem hann gat svo sannarlega verið stoltur af. Þeg- ar gengið er um lundinn hvarflar ekki að ókunnugum að hann sé að mestu verk eins manns. Fjöl- skylda mín minnist oft á ættar- mótin sem haldin voru í þessum Edensgarði. En það var fleira Lárus Jakob Helgason ✝ Lárus JakobHelgason var fæddur 10. sept- ember 1930. Hann lést 23. júní 2018. Útför Lárusar fór fram 5. júlí 2018. sem þessi atorku- sami maður tók sér fyrir hendur. Hann batt inn bækur eins og fagmaður og þegar hægjast fór um var sest við mál- aratrönur og sköp- uð listaverk. Fyrir venjulegt fólk eins og mig var öll þessi eljusemi næsta ótrúleg. Síðasta skiptið sem ég hitti Lárus var í fermingarveislu son- arsonar hans. Þá var mjög af honum dregið. Krafturinn sem hafði einkennt hann var horfinn en glaðværðin í augnatillitinu var söm og áður. Þegar við kvödd- umst vorum við óvissir hvort við fengjum að sjást oftar. Við Regína og fjölskylda okkar sendum Ragnhildi og hennar fólki okkar innilegustu samúðar- kveðjur með þakklæti fyrir allan þann tíma sem við fengum að njóta með Lárusi. Þórður Haukur Jónsson. Á ævinni eru margir sem snerta líf manns og sumir þeirra gera það meira en aðrir. Einn þessara manna sem snert hefur líf mitt ríkulega er Lárus Helga- son föðurbróðir minn. Hann hef- ur verið einn af klettunum í mínu lífi. Núna er komið að kveðju- stund kæri frændi. Lárus hefur verið til staðar frá því ég man eft- ir mér. Þegar ég var að alast upp fannst mér hann vera svo sætur og fallegur eins og kvikmynda- stjarna. Með aldrinum leit ég á hann sem minn lærimeistara, kennara og vin. Einhverjum þótti ég vera lík Lárusi. Ég var mjög upp með mér að heyra það. Með aldrinum óx vinátta milli okkar og ég leitaði mikið til hans eftir þekkingu og visku og þá sérstak- lega eftir að faðir minn dó en það eru 20 ár síðan. Þegar ég saknaði pabba þá hringdi ég gjarnan í Lárus minn og hlustaði á röddina hans og fékk visku hans og þekk- ingu beint í æð. Lárus var gædd- ur þeim einstaka hæfileika að láta manni líða vel, að maður væri stór og hæfur til afreka. Hann fylgdist með stórfjölskyldunni og velferð okkar skipti hann máli. Þegar ég gekk í gegnum erfið tímabil í mínu lífi þá leitaði ég iðulega til hans. Eitt skipti spurði hann mig: „Magga mín, ætlar þú að vera lítil eða stór?“ Auðvitað kom ekki annað til greina en að vera stór. Hann átti svörin og hafði endalausa trú á mér. Mér finnst mjög skrítin tilfinn- ing að Lárus minn sé farinn frá okkur en nú eru öll systkini pabba dáin og ég orðin hluti af elstu kynslóðinni í þeim legg. Nú er það enn frekar mitt hlutskipti að halda vegferð forfeðranna lif- andi og vera innblástur til þeirra sem yngri eru. Veganestið sem við höfum fengið frá þeim sem eru eldri er ríkulegt. Takk fyrir mig, kæri frændi og guð veri með þér. Ég vil ljúka máli mínu með því að senda mína dýpstu samúðar- kveðju til Ragnhildar, konu Lár- usar, barnanna þeirra, Mörtu, Helga, Guðrúnu og Rafnars, svo og tengdabarna og afkomenda allra. Kveðja, Margrét María Sigurðardóttir. Við minnumst Lárusar Helga- sonar með djúpri virðingu, þakk- læti og hlýju í hjarta. Lárus og Ragnhildur voru oft- ast nefnd í sömu andrá á okkar æskuheimili. Einlæg og falleg vinátta varð til hjá þeim hjónum og foreldrum okkar á þeirra fyrstu búskaparárum. Sú vinátta var ekki einungis í orði heldur líka á borði. Það má segja að þau kenndu okkur hvað sönn vinátta er í raun og veru. Traust, virðing, áhugi, hlustun, umhyggja, hjálp- semi, glaðværð og yfirvegun eru orð sem koma upp í hugann. Þeg- ar foreldrar okkar áttu við heilsu- brest að stríða voru þau alltaf til staðar, skilningsrík nærveran og vináttan fór inn á nýjar víddir. Lárus fylgdist vel með okkur systrum og fjölskyldum okkar og var áhugasamur um það sem við tókum okkur fyrir hendur. Hann vakti okkur til umhugsunar með spurningum sínum, sparaði ekki hvatningarorðin og alltaf skein í gegn að hann hefði trú á við- fangsefnunum. Við þökkum Lárusi fyrir sam- fylgdina og þann lærdóm sem við fengum af samvistum við hann. Ragnhildi og fjölskyldunni allri sendum við okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Margrét, Anna Guðrún, Þóra og Magnea Tómasdætur. Með nokkrum orðum langar mig að minnast kærs samstarfs- félaga og vinar til áratuga, Lár- usar Helgasonar geðlæknis. Leiðir okkar lágu fyrst saman á Kleppsspítalanum fyrir meira en 40 árum. Þá var Lárus þegar bú- inn að vinna sem geðlæknir á stofu árum saman og hafði getið sér mjög gott orð sem slíkur. Starfsferill hans var mjög glæsi- legur. Lárus gegndi stöðu yfir- læknis á geðdeildum ríkisspítal- anna í áratugi, fyrst á Kleppi, en síðar á geðdeild Landspítalans við Hringbraut. Við áttum saman gott samstarf á þeim vettvangi allan þann tíma, sem aldrei bar skugga á. Lárus var frábærlega hæfur stjórnandi, áræðinn, en þó varfærinn, og ætíð reiðubúinn að prófa nýjar aðferðir og leita nýrra leiða við að bæta hag sjúk- linganna. Hann bjó yfir þeim góða eiginleika að geta verið bæði yfirmaður og vinur í senn. Því var samfylgdin með honum alltaf mjög ánægjuleg og áttum við margar góðar stundir á vett- vangi vinnunnar sem og utan hennar. Lárus var mjög vel menntaður og lauk doktorsgráðu á sínum tíma. Um árabil gegndi hann dósentsstöðu við lækna- deild Háskóla Íslands. Hann var einstaklega fær læknir, fljótur að átta sig á aðalatriðum hvers máls, greina hismið frá kjarnanum. Lárus var ljúfur maður í skapi, en jafnan með ákveðnar skoðanir sem hann var ófeiminn við að tjá. Ætíð var hann þó reiðubúinn að hlusta á rök annarra. Hann var mikill bjartsýnismaður í eðli sínu og vílaði fátt fyrir sér, og var óhræddur að yfirstíga hvers kyns hindranir. Lárus stóð jafnan þétt við bakið á samstarfsmönnum sínum og var ætíð reiðubúinn til aðstoðar, ráðgjafar og leiðbein- ingar. Því er hann kvaddur með djúpri virðingu og einlægri þökk. Það eru ætíð mikil þáttaskil þeg- ar sterkir stofnar falla. Að leiðarlokum langar okkur Lilju að þakka vináttu og sam- starf af alhug. Við vottum Ragn- hildi og fjölskyldunni okkar inni- legustu samúð. Guð blessi minningu Lárusar Helgasonar. Gísli Á. Þorsteinsson. Við stöndum á vegamótum. Lárus Helgason, læknir, góður vinur, samstarfsmaður og sam- ferðamaður á lífsbrautinni, hefur kvatt í bili og lagt af stað á undan okkur hinum í ferðina, sem við öll hljótum að fara um síðir. Hann skildi okkur samt eftir með ríku- legan sjóð góðra minninga til að hugga okkur við og orna, uns leiðir liggja saman á ný. Ég kynntist Lárusi árið 1964 er ég starfaði nokkra mánuði á Kleppsspítala áður en ég hélt ut- an til framhaldsnáms í geðlækn- ingum. Tveim árum fyrr hafði ég kynnst föður hans, Helga Ingv- arssyni, yfirlækni á Vífilsstöðum. Hann var valmenni, öðlingur á sviði læknislistarinnar og hafði óbeint mikil áhrif á hvert hugur minn beindist varðandi sérnám. Ég gerði mér því far um að kynn- ast betur þessum syni hans, er leiðir okkar lágu saman, en af því óx vinátta, sem aldrei bar á skugga meðan báðir lifðum. Lárus var, eins og faðir hans, traustur maður, góður læknir, sem bar mikla umhyggju fyrir sjúklingum sínum og naut trausts þeirra og virðingar. Hann var ákveðinn í skoðunum, fylginn sér og stjórnsamur. Hann var líka reglusamur, vinnusamur og vel skipulagður. Átti góðan bóka- kost, batt t.d. sjálfur inn blöð, bækur og tímarit. Las mikið. Fróðleiksfús og fylgdist vel með nýjungum á sviði geðlæknisfræð- innar. Lárus hafði líka áhuga á vísindalegri rannsóknarvinnu, skrifaði t.d. og varði doktorsrit- gerð um rannsóknir sínar á hópi sjúklinga, er hann hafði sinnt og fylgt eftir á lækningastofu sinni í Domus medica. Áhugi hans var ekki einskorðaður við fræðin og mannrækt. Hann beindist líka að náttúrunni. Lárus og Ragnhildur byggðu sér snotran sumarbústað við Apavatn. Þangað sótti Lárus sér hvíld og endurnæringu, slak- aði á og undi sér vel við trjárækt, sem var honum mikið áhugamál. Lárus hafði mikla ánægju af ferðalögum, bæði utan lands og innan. Vildi þá kynna sér allt markvert, er fyrir augun bar. Ég minnist með ánægju margra ferða, er við hjónin fórum með Lárusi og Ragnhildi t.d. ferð til Grikklands, Krítar og Egypta- lands. Þær voru ógleymanlegar, en erfiðar, því margt þurfti að skoða og mikið að ganga. Þar hafði ég ekki roð við Lárusi. Lárus var höfðingi heim að sækja, veitull, en sjálfur hófs- maður. Heimili hans og Ragn- hildar hafði og hefur á sér menn- ingarbrag, er ber ljóst vitni smekkvísi þeirra hjóna. Skarð er fyrir skildi og munu margir hinna fjölmörgu vina, samstarfsmanna og samferða- fólks Lárusar sakna hans nú þeg- ar hann er allur. Sárastur verður þó söknuðurinn hjá Ragnhildi, börnum þeirra Lárusar, tengda- börnum og barnabörnum. Þeim vil ég að lokum senda innilegar samúðarkveðjur með þessum fáu og fátæklegu orðum. Um leið bið ég Guð að blessa þau og styðja nú og um alla framtíð. Jóhannes Bergsveinsson. 26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA GUÐRÚN HELGADÓTTIR, píanókennari, Árskógum 8, áður Háaleitisbraut 28, Reykjavík, lést á Landsspítalanum í Fossvogi sunnudaginn 24. júní. Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 9. júlí kl. 15. Lára Rafnsdóttir Jóhannes Atlason Theódóra G. Rafnsdóttir Hlöðver Örn Rafnsson Sigríður Sverrisdóttir Högni Rafnsson Antonia Gutes Turu barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURVEIG G. MÝRDAL, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju mánudaginn 9. júlí klukkan 13. Sigurjón Mýrdal María Sophusdótt Garðar Mýrdal Ingibjörg Ósk Kjartansdóttir Jón Agnar Mýrdal Vivian Hansen barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTINE JENNY TVEITEN, lést 30. júní í faðmi fjölskyldunnar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir sendir fjölskylda Kristine til starfsfólks Heimahlynningar á Akureyri og til starfsfólks Sjúkrahússins á Akureyri. Hörður Gunnarsson Anton Þór Harðarson Vigdís Sigurðardóttir Áslaug H. Harðard. Tveiten Hrafn Hrafnsson D. Brynja Harðard. Tveiten Valur Kristinsson Ragnhildur Alís Antonsdóttir Þórdís Jenny Antonsdóttir Elísabet Þöll Hrafnsdóttir Tveiten Hörður Breki Valsson Dagrún Kristín Valsdóttir Tveiten og fjölskyldur Ástkær eiginkona mín og móðursystir okkar, EDDA BÁRA GUÐBJARTSDÓTTIR, lést á Landspítalanum mánudaginn 2. júlí. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 13. júlí klukkan 13. Ingólfur Jóhannesson Grímur Atlason Bergljót Nikulásdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÖRN SIGURÐSSON, Lækjamóti, Kinn, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík mánudaginn 2. júlí. Útförin fer fram frá Þorgeirskirkju miðvikudaginn 11. júlí klukkan 14. Sigurður Arnarson Gerða Arnardóttir Kristinn M. Bárðarson Þóra Elín Arnardóttir Sigurveig Arnardóttir Aðalsteinn Haraldsson Sigrún Erna Kristinsdóttir Sara Sif Kristinsdóttir Guðmundur Helgi Aðalsteinsson Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og langamma, PETRÍNA SALÓME GÍSLADÓTTIR, Boðaþingi 24, lést 29. júní. Útförin fer fram frá Lindakirkju föstudaginn 13. júlí klukkan 13. Aðstandendur Ástkær móðir okkar, amma og langamma, HALLDÓRA HAFDÍS HALLGRÍMSDÓTTIR, (Dísa Dóra) lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn 1. júlí. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 13. júlí klukkan 11. Vigdís Blöndal og Hallgrímur Blöndal Gunnarsbörn Elsa Blöndal Gunnar Blöndal Ægir Blöndal Arna Blöndal Alda Blöndal Adrían Blöndal fjölskyldur og langömmubörn Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI BRAGI JÓNSSON hagfræðingur, sem lést sunnudaginn 1. júlí, verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 13. júlí klukkan 13. Rósa Guðmundsdóttir Ólöf Erla Bjarnadóttir Sigurður Axel Benediktsson Guðmundur Jens Bjarnason Ásta Hrönn Stefánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.