Morgunblaðið - 07.07.2018, Side 27

Morgunblaðið - 07.07.2018, Side 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018 Matthildur föðursystir mín er fallin frá, södd lífdaga. Hún Matta á Smáhömrum, eins og hún var ávallt kölluð heima í Tungusveitinni var fædd á Heydalsá í sömu sveit, sjöunda í ellefu systkina hóp. Mitt minni nær ekki lengra en svo að hún er á förum frá Heydalsá að næsta bæ, trúlofuð Birni Karlssyni bónda á Smá- hömrum, bænum þar sem faðir hennar sleit barnsskónum og amma hennar og nafna Matt- hildur Benediktsdóttir stóð fyr- ir miklu rausnarbúi ásamt manni sínum, bóndanum og út- gerðarmanninum Birni Hall- dórssyni. Þar bjó hún æ síðan, utan tveggja ára á sjúkrastofn- uninni á Hólmavík. Matta frænka var ákaflega vinnusöm og dugleg, féll nánast ekki verk úr hendi eins og það var orðað fyrir tölvuöldina, einn vetrar- tíma var ég, strákur, í svokall- aðri vinnumennsku hjá tengda- foreldrum hennar Karli Aðalsteinssyni og Þórdísi Bene- diktsdóttur sem bjuggu á efri hæð stóra íbúðarhússins á Smá- hömrum en Matta og Björn á Matthildur Ása Guðbrandsdóttir ✝ Matthildur ÁsaGuðbrands- dóttir fæddist 26. ágúst 1926. Hún lést 16. júní 2018. Útför Matthildar og sonar hennar, Guðbrands Björns- sonar, fer fram frá Hólmavíkurkirkju í dag, 7. júlí 2018, klukkan 13. neðri hæðinni. Ávallt var Matta farin í fjós til að mjólka kýrnar og gefa hænunum þegar við Kalli fór- um til fjárhúsa, var þó Karl á Smá- hömrum lítið fyrir „morgunhangs“. Ég held að Möttu frænku hafi ekki fallið verk úr sinni vinnusömu hendi alla sína löngu starfsævi enda í mörgu að snúast því gestkvæmt var ávallt á Smáhömrum og veitt af rausn en síðustu árin missti hún mátt í fótum og sitjandi í stól á hjólum, þó ekki venjuleg- um hjólastól, sinnti hún sínum húsverkum og eldamennsku því ekki gat hún bara setið og gert ekki neitt, nei, það hentaði ekki Möttu frænku á Smáhömrum! Fyrstu minningar mínar um Möttu frænku voru afar bragð- góðar fyrir lítinn pjakk með stóran munn, en fyrir hver jól kom stór kassi fullur af ilmandi smákökum í gamla torfbæinn á Klúku, settur á borðið fram í stofu og ekki opnaður fyrr en á aðfangadag en lyktin sagði til um innihaldið og þangað inn fór smáfólk ekki nema í fylgd „ábyrgðarmanns“ því freisting- arnar voru yfirþyrmandi. Matta var mikið fyrir söng eins og öll systkinin frá Heydalsá, söng mikið á yngri árum og raulaði lágt fyrir munni sér nánast til síðasta dags. Matta frænka verður borin til grafar ásamt eldri syni sínum Guðbrandi sem féll frá vegna hjartaáfalls á sex- tugasta og fimmta aldursári, daginn áður en útför móður hans átti að fara fram. Karli Þór, Helgu og dætrum þeirra, Þórdísi, Kolbrúnu Ír og Ingu Matthildi vottum við okkar dýpstu samúð. Guðbrandur og Lilja. Komið er að leiðarlokum hjá kærum vini Matthildi Guð- brandsdóttir, húsmóður á Smá- hömrum við Steingrímsfjörð, sem lést miðvikudaginn 16. júní síðastliðinn. Kynni okkar Matthildar eru orðin löng, en þau hófust þegar ég fór ungur drengur í sveit norður að Smáhömrum, fyrst sumarið 1974 og síðan hvert sumar næstu tíu árin eða þar til ég fór í nám. Matthildur sá um öll heim- ilisstörf og mjaltir, man ég eftir smjör og skyrgerð hennar sem var einstaklega gott og fékk ég að snúa vindunni sem skildi frá rjómann. Var ég reglulega með henni í fjósinu á mínum yngri árum, kenndi hún mér um- gengni við kýrnar sem voru tvær og eitt naut. Þegar ég var kominn á vorin var það í mínum verkahring að gefa hænunum og sækja eggin og held ég að það sé eina verkið sem ég gat létt undir með Matthildi minni fyrir utan hvað henni fannst gaman að ræða saman og segja mér sögur þegar við vorum tvö í fjósinu. Matthildur var róleg og söng hún við sín daglegu störf, gest- kvæmt var á Smáhömrum og gat venjulegur dagur hjá Matt- hildi verið að leggja fram veisluborð. Alltaf átti hún tertur með kaffinu og pönnu- kökur komnar áður en nokkur vissi af, lambakjötsveislurnar sem hún átti svo auðvelt með að leggja á borð eru í mínu minni flottustu veislurnar. Oft kom einhver og vildi kaupa hesta, hrúta eða girðingastaura sem gerðir voru úr rekaviðnum sem var heilmikill á Smáhömr- um. Það var erfitt fyrir Matthildi, þegar Dísa amma tengdamóðir hennar flutti til okkar í Stykk- ishólm, sá ég í fyrsta skiptið Matthildi niðurbrotna og ég veit hversu vænt henni þótti um okkur. Matthildur var dugnaðarforkur og lét ekkert stoppa sig, var hún orðin léleg í mjöðmum en það stoppaði hana ekki, hún renndi sér á kollinum sínum og sá um sín störf þann tíma sem hún bjó á Smáhömr- um. Þegar ég hitti Matthildi í síð- asta skiptið – í ágúst 2017, hún dvaldi á Hólmavík – var minnið aðeins farið að svíkja hana og fannst henni það ekki geta ver- ið að hann litli Kalli minn, eins og hún sagði um mig, gæti átt börn þegar ég var að segja henni frá börnum mínum. Það er margt sem ég lærði af elsku Matthildi minni og hugsa ég oft til hennar í mínum dag- legu störfum og á ég henni mikið að þakka. Mikið ofboðslega leið mér vel þau árin sem ég fékk að vera á Smáhömrum, fyrst hjá Dísu ömmu og Kalla afa, síðan seinna hjá Bjössa, Möttu og sonum þeirra Guðbrandi og Kalla Þór. Ég og fjölskylda mín biðjum þess að Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Við sendum elsku Kalla Þór, Helgu, Þórdísi, Kolbrúnu, Ingu Matthildi og fjölskyldunni allri okkar einlægustu samúðar- kveðjur frá Saltnesi í Noregi. Karl Matthías Helgason. ✝ Hjördís Guð-munda Guðmundsdóttir fæddist í Reykjavík 14. október 1944. Hún varð bráð- kvödd á heimili sínu í Hilleröd í Dan- mörku 25. júní 2018. Hjördís var þriðja barn foreldra sinna, þeirra Guð- mundar Kristins Falk Guð- mundssonar, f. 19.9. 1913 í Hnífs- dal, d. 25.8. 1965, og Helgu Hjördísar Hjartardóttur, f. 29.6. 1915 í Rauðsdal, Barðaströnd, d. 24.8. 1986. Systkini Hjördísar eru: Jónas, f. 10.2. 1940, d. 16.8. 2013, Rúnar Jóhannes, f. 12.2. 1941, d. 12.3. 2012, Hjörtur Valdimar, f. 14.8. 1950, d. 25.8. 1965, og Kristín Hrönn, f. 22.3. 1955. Kristín Hrönn er búsett í Kanada. Hjördís giftist 18.4. 1965 Hilmari Guðbjörnssyni, f. 13.5. ásamt eiginmanni sínum Sigurði Þórarinssyni og eiga þau þrjú börn, Unnar Elí (Jóhanns Inga Ármannssonar), Söru Sjöfn og Inga Hilmar og þrjú barnabörn. 3) Kristín Guðmunda, f. 3.10. 1966. Kristín býr í Danmörku ásamt eiginmanni sínum, Axel Sigurði Helgasyni. Þau eiga þrjú börn, Hilmar Helga, Fannar Frey og Söndru Hjördísi og fjög- ur barnabörn. 4) Þorbjörg, f. 1.1. 1968, d. 6.9. 1971. 5) Berglind Hrönn, f. 8.6. 1972. Berglind býr í Danmörku og á fjögur börn, Arn- ór Orra (Tryggva Björnssonar), Tobias Emil, Celina Björg og Thomas Alex Falk (barnsfaðir Michael Jensen). 6) Ingvar, f. 28.1. 1975, d. 29.8. 2015. Ingvar bjó og lést í Svíþjóð og lét eftir sig dótturina Ebbu Hjördísi (barnsmóðir Anna-Karin Hedén). Hjördís fluttist til Danmerkur árið 1996 ásamt þáverandi sam- býlismanni sínum, Aðalsteini Guðjónssyni, f. 28.11. 1942, og þau komu sér upp heimili í Hels- inge á Norður-Sjálandi. Þau slitu samvistum en héldu vináttu alla tíð. Bálför Hjördísar fer fram frá Skansekirkegårdens Kapel í Hilleröd í dag, 7. júlí 2018, kl. 10. 1943, d. 18.7. 1991. Foreldrar Hilmars voru Guðbjörn Eð- varð Ingvarsson, f. 23.8. 1908, d. 3.10. 1999, og Elín Torfa- dóttir, f. 1.3. 1918, d. 11.11. 1971. Hilm- ar átti fjögur systk- ini: Reyni Jónson (sammæðra), f. 7.7. 1937, d. 1.11. 2006, Þorstein, f. 5.7. 1941, d. 5.7. 1982, Lilju, f. 17.12. 1944, og Vilhjálm, f. 4.10. 1947, d. 13.2. 2018. Hjördís og Hilmar eignuðust sex börn, þau eru: 1) Helga, f. 19.12. 1963. Helga býr í Svíþjóð og sambýlismaður hennar er Jan-Eve Nord. Helga og fyrrver- andi eiginmaður hennar (Krist- ján Kristjánsson) eignuðust tvö börn, Viktor Daníel og Birtu Dröfn, þrjú barnabörn og það fjórða á leiðinni. 2) Elín María, f. 22.1. 1965. Hún býr í Svíþjóð „Hæ, mamma mín, þetta er Ella.“ Þannig hófst samtal okk- ar mömmu þegar ég hringdi til hennar. Eiginlega hefði ég ekki þurft að kynna mig en ég tók upp á því á tímabilinu þegar mamma ruglaði okkur dætrum sínum sífellt saman þegar við hringdum. Við hljómum víst all- ar eins svo henni var viss vor- kunn. „Ella mín, ert þetta þú?“ svaraði mamma oftast og ég finn ennþá fyrir ljósinu sem bærðist í brjóstinu þegar hún sagði þessi orð. Þessi fáu orð svo einföld og hversdagsleg að það mætti segja að þau væru ómerkileg. Þessi litla setning var eitthvað svo miklu meira en þessi fáu orð. „Ella“ er litla sál- in sem foreldrar mínir gáfu líf, sem fæddist inn í fjölskyldu og fékk nafn ömmu sinnar. „Mín“ er annað orð yfir kærleikann og í þessu litla orði felst setningin „ég elska þig“. „Ert þetta þú?“ eru þrjú orð sem mamma hefði ekki þurft að segja því ég var búin að kynna mig en hún sagði þau samt. Þegar hún sagði þau þá lýsti litla ljósið í brjóstinu örlítið bjartar því þessi þrjú orð sögðu mér hvað mömmu fannst vænt um að heyra í mér og að ég hljómaði frísk og kát. Mamma sagði oft í samtölum okkar að hún hefði áhyggjur af einu og öðru: „Þú veist hvernig ég er, ég hef áhyggjur af öllu.“ Hún sagði þetta samt ekki með neinum áhyggjutóni heldur hló hún og gerði gys að sjálfri sér. Ég skil að hún hafi haft áhyggj- ur þó ég hafi alltaf hvatt hana til að vera ekki að því heldur einbeita sér að því jákvæða í líf- inu. Áhyggjurnar voru líklega fylgifiskar áfalla og mamma fékk sinn skerf af þeim. Eftir að Ingvar sonur hennar dó átti hún erfitt með að ná sér af því áfalli. Hún varð aldrei söm aft- ur þó hún væri að mörgu leyti sjálfri sér lík. Líkamlegri heilsu hennar fór samtímis hrakandi og hún gerði minna en áður. Samt gerði hún það sem hún gat og varð alltaf svo glöð þeg- ar við komum í heimsókn, bak- aði þá gjarnan vöfflur og gerði túnfisksalat. Faðmlögin hennar þegar hún heilsaði og kvaddi okkur voru svo þétt og hlý að það var erfitt að skilja hvar hún fékk allan þann kraft. Þegar samtölum okkar mömmu lauk og við kvöddumst þá sagði ég oftast „hafðu það gott, mamma mín, og farðu vel með þig. Við heyrumst fljótlega. Bless mamma mín. Bless, bless“. Þar með var samtali okkar ekki lok- ið, ekki enn, því mamma átti eftir að segja bless við mig líka, ekki einu sinni heldur oft: „Bless Ella, mín, bless elskan, ég bið að heilsa öllum“ og ég sagði aftur „bless mamma mín“ og hún kvaddi mig aftur og ég kvaddi hana og á endanum þurfti önnur okkar að enda samtalið. Núna þegar ég tek upp símann og hringi í númerið hennar mömmu þá svarar rödd sem ég þekki ekki og segir á dönsku að búið sé að loka núm- erinu. Mamma mun ekki lengur taka upp símtólið og segja: „Ella mín, ert þetta þú?“ og ég mun þurfa að finna aðra leið til að láta litla ljósið í brjóstinu halda áfram að ljóma. Ég kveiki því á kerti og segi um leið: „Hæ mamma mín, þetta er Ella“ svo bæti ég við: „Bless mamma mín. Bless, bless. Ég bið að heilsa öllum.“ Elín María Hilmarsdóttir. Hjördís Guðmunda Guðmundsdóttir HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRÐAR BJARNASONAR, Borgarholtsbraut 43, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við yndislegu konunum í heimahlynningu Landspítalans fyrir ómetanlegt starf og hlýhug. Guð blessi ykkur öll. Arndís Ágústsdóttir börn og fjölskyldur Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, SOFFÍA GUÐLAUGSDÓTTIR, Njarðarvöllum 6, Njarðvík, lést á Hrafnistu Nesvöllum sunnudaginn 1. júlí. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Gunnar Indriðason Guðrún Guðjónsdóttir Ásgeir H. Jóhannsson K. Birna Sævarsdóttir Svanhvít Gunnarsdóttir Högni Sturluson Berglind B. Gunnarsdóttir Þorsteinn Jóhannsson og barnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA ÍSLEIFSDÓTTIR frá Hvolsvelli, Gullsmára 9, Kópavogi, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut fimmtudaginn 28. júní. Útför hennar fer fram frá Seljakirkju í Breiðholti miðvikudaginn 11. júlí klukkan 13. Erlingur Ólafsson Brynja Erlingsdóttir Ísleifur Þór Erlingsson Þórunn Jónasdóttir Bára Erlingsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG SIGRÚN BJÖRNSDÓTTIR frá Kleppustöðum í Staðardal í Strandasýslu, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þriðjudaginn 3. júlí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 12. júlí klukkan 13. Árni Ólafur Þórhallsson Anna Marta Valtýsdóttir Halla Þórhallsdóttir Magnús Helgi Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.