Morgunblaðið - 07.07.2018, Síða 32
Ómar Guðjónsson tónlistarmaður er fertugur í dag. Hann erþaulreyndur gítarleikari og líka tónskáld. Lærði í FÍH, hefurgert tónlist af öllum toga – t.d. djass, pönk, rokk – og spilað í
hljómsveitum af öllum stærðum og gerðum. „Þegar ég lít um öxl eru
tímarnir að baki skreyttir góðu fólki og góðum lærdómi. Um þessar
mundir er ég að föndra við hitt og þetta, ég er að pródúsera plötu með
Jónasi Sig. sem kemur út í haust, einnig er að koma út hljómplata með
þýskum listahópi sem ég hef starfað með. Síðan ætlar ADHD að gefa
út læf plötu með haustinu vonandi.“ Þá ætlar hann með Roforofo að
mjatla út einu lagi við og við á komandi misserum.
Ómar fagnar afmælinu með góðum vinum og fjölskyldu í garðinum
heima. Ef fer að rigna ætlar hann að hafa varann á. „Ef vætan truflar
mun ég reyna að skella saman spýtum og breiða yfir plast til að halda
mannskapnum þurrum.“ Það er meiri handlagnin. Ómar er að vonum
flinkur í höndunum, gítarsnillingurinn. „Mér finnst líka mjög gaman
að dytta að híbýlum okkar fjölskyldunnar, jafnvel smíða eitthvað. Það
geri ég alltaf með hjálp betri timburmanna, oftast nær er faðir minn
þar í aðalhlutverki.“
Það verður meiriháttar garðveisla hjá Ómari og eiginkonu hans í
kvöld, sem er kannski engin nýlunda. „Þó að við hjónin séum mjög
partíglatt fólk þá er þessi í dag með þeim fjölmennustu sem við höfum
tekist á við. Við eigum þrjár stelpur sem eru duglegar að hjálpa til við
veisluhöld og skemmtun.“ snorrim@mbl.is
Ljósmynd/Ólafur Kr. Ólafsson
Gítaristinn Ómar slær síður en svo á létta strengi á djasshátíð.
Partíglatt fólk
Ómar Guðjónsson er fertugur í dag
32 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018
VIÐAR
HÁGÆÐA VIÐARVÖRN
Fáanleg í PALLAOLÍU, TRÉVÖRN,
GRUNNMÁLNINGU, HÁLFÞEKJANDI
og ÞEKJANDI viðarvörn.
Litirnir eru fjölmargir og hægt að fá
sérblandaða hjá okkur.
Komdu til okkar og spurðu um VIÐAR!
Borgartúni 22 og Skútuvogi 2, Reykjavík • Dalshrauni 11, Hafnarfirði • Hafnargötu 54, Reykjanesbæ
Gleráreyrum 2, Akureyri • Sími 588 8000 • Opið 8.00–18.00 alla virka daga og 10.00–14.00 alla laugardaga
R
ögnvaldur Hannesson
fæddist 7. júlí 1943 í
Svínhólum í Lóni, sem
nú er eyðibýli. Hann
fluttist til Hafnar í
Hornafirði ásamt foreldrum sínum
rétt að verða sjö ára gamall. „Ég var
oftast nær í sveit á sumrin hjá ætt-
ingjum í Svínhólum. Var lengi mikill
sveitamaður og er kannski enn.“
Rögnvaldur fór í heimavistina í
Menntaskólanum á Akureyri 15 ára
gamall haustið 1958. „Fyrst til að
taka landspróf, sem þá var sían inn í
menntaskólana. Það gekk eftir, og
vistin í MA endaði með stúdentsprófi
1963.“ Hann fór til náms við Lund-
arháskóla í Svíþjóð 1965 og var þar
samtals í átta ár, seinni árin sem að-
stoðarkennari. Því lauk með doktors-
prófi 1974. Þegar langt var komið í
doktorsnáminu var Rögnvaldur eitt
ár við University of British Columbia
í Vancouver, Kanada. „Það var mjög
arðbært ár, ef svo mætti að orði
kveða. Þar hafa margir velþekktir
auðlindahagfræðingar verið, þar á
meðal Ragnar Árnason, prófessor við
HÍ, sem hefur sína doktorsgráðu
þaðan.“
Fyrsta háskólastaðan sem Rögn-
valdur gegndi var í Tromsø í Noregi
1975, en þar var hann aðeins eitt ár
og flutti síðan til Bergen, fyrst til Há-
skólans og seinna til Verslunar-
háskólans (Norges Handels-
høyskole), þar sem hann var
prófessor í fiskihagfræði 1983-2013
þegar hann fór á eftirlaun.
Rögnvaldur er einn þekktasti og
virtasti hagfræðingur Íslendinga.
Hann hefur kennt ýmis námskeið í
hagfræði, bæði um auðlindir, fisk og
olíu, og einnig þjóðhagfræði. Hann
Rögnvaldur Hannesson prófessor – 75 ára
Í Noregi Rögnvaldur á ferðalagi með Aslaugu, árið 2011. Rögnvaldur hefur verið búsettur í Noregi í meira en 40 ár.
Einn þekktasti hag-
fræðingur Íslendinga
Neminn Rögnvaldur staddur á
heimavist MA um 1960.
Borgarnes Camilla Kristín
Styrmisdóttir Bachmann fæddist
14. ágúst 2017 kl. 11.31. Hún vó
3.498 g og var 49 cm löng.
Foreldrar hennar eru Þórhildur
Kristín Bachmann og Styrmir Már
Ólafsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is