Morgunblaðið - 07.07.2018, Side 35
DÆGRADVÖL 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú stefnir á að komast í fremstu
röð og til þess verður þú að hafa stjórn á
þínu lífi. Nú sér loksins fyrir endann á þeim
erfiðleikum sem þú hefur átt við að stríða.
20. apríl - 20. maí
Naut Reyndu að sýna fólki þolinmæði á
næstu vikum. Best er að hafa allan fyrirvara
á hlutunum og leyfa þeim að sanna sig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Snúðu ekki upp á þig þótt aðrir
hlaupi ekki upp til handa og fóta til þess að
uppfylla óskir þínar. Farðu þér hægt því
tækifærin hlaupa ekkert frá þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Farðu ekki of geyst í hlutina þótt
þér finnist þú fær í flestan sjó. Gakktu
hægt um gleðinnar dyr og gættu heilsu
þinnar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þegar þú trúir á einhvern, gerðu það
þá alla leið. Vertu því hreinskilin/n því það
reynist alltaf best. Að hlusta á gáfuleg heil-
ræði leiðir þig á beinu brautina.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert full/ur af orku og þarft að
beina henni í rétta átt því aðeins þannig
mun þér takast að koma ótrúlega miklu í
verk.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hæfileiki þinn til að koma auga á nýja
möguleika í stöðunni vekur aðdáun einhvers
í vinnunni. Leitaðu hjálpar tafarlaust ef þú
telur það nauðsynlegt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Reyndu að temja þér ný vinnu-
brögð sem leiða til ferskra lausna. Mundu
að dæma ekki aðra að óreyndu svo þú
verðir ekki sjálf/ur dæmd/ur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þó svo að nauðsynlegt sé að
beita vitsmununum fyrir sig þá munu
ímyndunarafl þitt og innsæi geyma lykilinn
að velgengni þinni í dag.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er sérkennileg staða, þegar
ókunnugir vilja taka meira mark á þér en
þínir nánustu. Dagurinn í dag er tilvalinn til
sköpunar og afþreyingar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur eignast mikið af nýjum
vinum undanfarið, og ert að velta fyrir þér
hvernig þú getir sinnt þeim. Vertu bara þú
sjálf/ur og sinntu þínum störfum sem best
þú getur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú átt að skoða allar hliðar mála
vandlega áður en þú stekkur á réttu lausn-
ina. Láttu ekki smáatriðin villa þér sýn varð-
andi heildarlausn mála.
Maður má til með að líta svo á aðsumar sé fremur spurning um
sviptingar í hugarfari en fjölda rign-
ingardaga. Þannig nær maður alla-
vega betri sáttum við guð og menn í
þessu tíðarfari. Víkverji er líka sann-
færður um að sumrin skuli nýtt til að
prófa nýja hluti.
x x x
Andrúmsloftið kallar á það. Þann-ig bryddaði Víkverji um síðustu
helgi upp á tveimur nýjungum: ann-
ars vegar villtist hann út í sveit, alla
leið í Þjórsárdal, og hins vegar hélt
hann hátíðlegan húslesturinn á
sunnudag, ásamt góðum vinum. Það
gerði hann einmitt í sveitinni.
x x x
Víkverji lét tilleiðast að keyra út áland eftir fortölur vina. Áð var á
Selfossi og í leiðinni sótt heim menn-
ingarsetur mikið, Bókakaffið fræga.
Þar var beinlínis öngþveiti en í því
miðju tókst Víkverja ætlunarverk
sitt, sem var að verða sér úti um ein-
tak af Vídalínspostillu. Hana hreppti
hann og það viðhafnarútgáfu. Hún
er hilluprýði.
x x x
Eftir stopp á áfangastað var haldiðáfram austur á ákvörðunarstað.
Þar kvaddi Víkverji sér hljóðs og
þrumaði yfir lömbum sínum. Las
þeim pistilinn, bókstaflega, og með
þvílíkum tilþrifum að hann kófsvitn-
aði. Þetta er nýlunda í dægrastytt-
ingum hans og andlegri iðju. Hún
gaf góða raun og Víkverji sjálfur
sem og áhlýðendur þessa orðs sátu
skikkaðir eftir og fullir af andagift.
x x x
En um nóttina bar vágest að garði.Víkverji vaknaði alsettur kýlum
eftir bit. Líkaminn sumarhlaðborð
skorkvikinda. Í vinnunni á mánudegi
bar kollegi Víkverja kennsl á bitin
og kvaðst sjálfur hafa orðið fyrir
barðinu á lúsmýi í Flóanum. Og fleiri
fórnarlömb gáfu sig fram. Reynsla
Víkverja af flækingi um óbyggðir er
því bitur. Húslesturinn ætlar hann
að tileinka sér um ókomna tíð, and-
leg mál skulu hans akkerisfesti í líf-
inu um sinn. En hitt er víst, að nú
um helgina verður hann lesinn
heima. vikverji@mbl.is
Víkverji
Jesús segir við hann: Ég er vegurinn,
sannleikurinn og lífið. Enginn kemur
til föðurins, nema fyrir mig
(Jóh: 14.6)
Vísnagátan er sem endranær eft-ir Guðmund Arnfinnsson:
Í vindinn sóar sínu fé.
Sjómaður mjög fiskinn er.
Hygg að keðjukrókur sé,
kannski’ á þeirri slaki hér.
Harpa á Hjarðarfelli er með
svarið:
Sínu eyðslu- sóar -kló.
Á sjónum aflakló.
Er á keðju enda kló.
Einn vill slaka’á kló.
Guðrún Bjarnadóttir á þessa
lausn:
Eyðsluklóin ekkert kemst
ef aflaklóin stynur,
– í keðju sambands klóin lemst.
„Á klónni slaka, vinur.“
Helgi R. Einarsson sendir
lausnina:
Eftir ýmsu hér ég hjó
sem hentar bæði á landi og sjó
hugmynd þá í hausinn fló
að hérna’ á ferðinni sé kló.
Helgi Seljan leysir gátuna:
Afleit reynist eyðsluklóin hér,
aflaklóin feng að landi ber.
Klóin oft mun notast keðjum á,
á klónni ekki heldur slaka má.
Þessi er skýring Guðmundar:
Eyðslukló er ör á fé.
Aflakló vel fiskar sú.
Hygg ég kló á keðju sé.
Á klónni máski slaka hér.
Þá er limra:
Valdi er einstök aflakló,
óttaleg veimiltíta þó,
á ýmsan hátt
hann iðkar drátt,
en aldrei meig í saltan sjó.
Og að síðustu ný gáta eftir Guð-
mund:
Gyllir sunna lönd og lá
laugardagsins morgni á,
dimmleit gríma fellur frá,
fram er boðin gáta smá.
Þjóðlegur er þessi bragur.
Þokkafullan megum sjá.
Limaburður löngum fagur.
Línu stundum framinn á.
Ármann Þorgrímsson minnir á
„dýralæknisráð“:
Vegakerfið varla í bráð
verður betra, því er miður.
Löngum dýralæknisráð:
„Látum bændur skera niður“.
Pétur Stefánsson yrkir:
Oft er í fólki iðragas.
Ær í haga bíta gras.
Brúka menn á þingi þras.
Þjóðin forðum rímur las.
Í austanroki ýfist sær.
Ofan á bolta skrúfast rær.
Oft er hveljan alveg glær.
Ort hef ég vísur fleiri en tvær.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kló er af ýmsum toga
Í klípu
„ÉG GET EKKI DEILT ÞEIM UPPLÝSINGUM
FYRR EN ÉG HEF KLÁRAÐ DRYKKINN MINN.
GLASIÐ ER NEFNILEGA TRÚNAÐARMÁL.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„SÚPA DAGSINS ER BÚIN. HVAÐ SEGIÐI UM
SÚPU MORGUNDAGSINS?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... verkur, beint í
hjartastað!
TÍMARNIR
BREYTAST
SATT
ÉG VAR EINU SINNI
ÆÐISLEGUR…
NÚ ER ÉG
VIRKILEGA
ÆÐISLEGUR!
VESGÚ!
GIPSIÐ ÞITT ER
TILBÚIÐ!
TAKK! MÁ ÉG FÁ RESTINA
MEÐ MÉR HEIM?
ÉG Á ENN EFTIR AÐ GERA VIÐ GATIÐ
SEM ÉG KÝLDI Í VEGGINN!
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds