Morgunblaðið - 09.07.2018, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 9. J Ú L Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 159. tölublað 106. árgangur
LISTSKÖPUN VEITIR
TILFINNINGALEGT
FRELSI STELPURNAR ALSÆLAR
AÐ SJÁ HLUTINA
GERAST, BREYT-
AST OG STÆKKA
HRAFNHILDUR ÞJÁLFARI ÍÞRÓTTIR ÁSBJÖRG VERKFRÆÐINGUR 12RÓSA SIGRÚN 26
„Hellar eru alltaf erfiðir. Sérstaklega þegar mað-
ur syndir svona langar leiðir. Þessir hellakafarar
eru menn sem gera þetta af lífi og sál. Þeir eru al-
veg sérþjóðflokkur,“ segir Árni Kópsson atvinnu-
kafari við Morgunblaðið um björgunaraðgerðirn-
ar í Taílandi.
Fjórum af taílensku fótboltadrengjunum sem
festust inni í Tham Luang-hellunum í norðurhluta
Taílands hefur verið bjargað. Hlé var síðan gert á
björgunaraðgerðunum í um tíu klukkustundir svo
hægt væri að fylla á súrefnisbirgðir. Í gærkvöldi
voru níu drengir auk þjálfara síns enn í hellunum.
Drengirnir héldu inn í Tham Luang-hellana 8.
júlí sl. eftir æfingu með þjálfara sínum. Þetta átti
aðeins að vera skoðunarferð. Gífurleg rigning
skall á eftir að þeir fóru inn í hellinn og færði
hellisgöngin á bólakaf svo drengirnir, sem eru
ungir og margir ósyndir, áttu ekki afturkvæmt.
Alþjóðlegt teymi fann drengina í hellinum síð-
astliðinn mánudag og síðan þá hafa björgunar-
sveitir unnið að áætlun til að koma þeim út heilu
og höldnu.
Björgun fyrstu fjögurra drengjanna í gær gekk
framar vonum en aðgerðirnar hafa þó ekki gengið
áfallalaust og einn kafari úr taílenska sjóhernum
hefur drukknað í göngunum síðan þær hófust.
Halda átti aðgerðunum áfram í nótt. »15
Fyrstu drengjum bjargað
AFP
Björgunarliðar Unnið að því að koma súrefniskútum fyrir í Tham Luang-hellunum í Taílandi. Fyrstu fjórum drengjunum var bjargað úr hellinum í gær.
Fyrstu fjórum drengjunum bjargað úr hellinum í Taílandi í gær Halda átti
björgunaraðgerðum áfram í nótt „Gera þetta af lífi og sál,“ segir atvinnukafari
Veðurstofunni. Orsakir að baki
skriðunni eru enn óþekktar, en ekki
þykir ósennilegt að mikil úrkoma
undanfarna mánuði hafi haft áhrif.
Þó er skriðan ekki talin fyrirboði
um fleiri berghlaup af þessari stærð.
Samfellt hrun hefur verið í skriðu-
sárinu og sterklega er mælt gegn
mannaferðum á skriðusvæðinu.
Skriðan sem féll í Hítardal á laugar-
dag er hátt í jafn stór og skriða sem
féll í Öskju árið 2014. Fyrstu mæl-
ingar benda til þess að skriðan í
Hítardal hafi verið um 10-20 millj-
ónir rúmmetra, en skriðan í Öskju
var 20 milljónir rúmmetra.
„Þetta er með stærstu skriðum
sem fallið hafa á landinu á sögu-
legum tíma,“ segir Magni Hreinn
Jónsson, sérfræðingur á sviði ofan-
flóðarannsókna- og hættumats hjá
Ljósmynd/Sumarliði Ásgeirsson
Risaskriða Skriðan er samkvæmt fyrstu mælingum 10 til 20 milljónir rúmmetra að stærð og 1,8 ferkílómetrar.
Ein stærsta skriða á
sögulegum tíma
10 til 20 milljónir rúmmetra úr stað
MHamfarir í Hítardal »2
Lokadagur Landsmóts hestamanna
í Víðidal var viðburðaríkur. Keppt
var í öllum flokkum og verðlaun veitt
fyrir afburðareiðmennsku. Keppni
var afar jöfn og sterk og aðstand-
endur og mótsgestir telja hestakost-
inn í ár sérstaklega glæsilegan. Í A-
flokki sigraði Hafsteinn frá Vakur-
stöðum, knapi var Teitur Árnason. Í
B-flokki sigraði Elin Holst á Frama
frá Ketilsstöðum og skákaði þar með
sigurvegurum landsmóts 2016,
Nökkva frá Syðra-Skörðugili og
Jakobi Svavari Sigurðssyni.
Þórdís Anna Gylfadóttir móts-
stjóri segir að napurt veður hafi ekki
haft teljandi áhrif á mótið og skapað
góðar aðstæður fyrir hestana.
„Eftir rigninguna varð svo góð
fjöðrun og spyrna í brautinni. Þar
sköpuðust fínar aðstæður fyrir hest-
ana,“ segir Þórdís Anna. »10
Morgunblaðið/Eggert
Verðlaunaknapi Elin Holst tekur
við Gregesen-verðlaununum.
Flugelda-
sýning í
Víðidal
Landsmóti lokið
Icelandair hefur samkvæmt til-
kynningu til Kauphallarinnar lækk-
að afkomuspá fyrir þetta ár. Núna
áætlar félagið að EBITDA-
hagnaður þessa árs verði 120-140
milljónir dollara, um 14 milljarðar
króna. Í fyrri afkomuspá var reikn-
að með 170-190 milljónum dollara.
„Sú staða sem við erum að horfa
upp á núna er okkur talsverð von-
brigði,“ segir Björgólfur Jóhanns-
son forstjóri í tilkynningu. »4
Spá verri afkomu
Icelandair í ár