Morgunblaðið - 09.07.2018, Síða 21

Morgunblaðið - 09.07.2018, Síða 21
gegnum frostharðan vetur og upp af henni sprettur nýtt gras, eins og hitt hafi aldrei sölnað. Við frændsystkin þín og krakkarnir okkar munum segja sögur af þér og þar muntu lifna á ný með hverri nýrri kynslóð. Þannig er nú lífið og dauðinn er verri þeim sem eftir situr en hinum sem kveður. Skilaðu kveðju. Jón Karl Einarsson. „Komið þið sæl og blessuð,“ hlýtt faðmlag, koss á vanga. Þannig heilsaði Bragi. Bernskuminningar mínar eru samofnar Braga. Á sumrin var farið að Þverá þar sem heljar- mennin Bragi og Lalli, föðurbróð- ir hans, bjuggu ásamt langafa og ömmu minni. Bragi kenndi mér að nálgast dýr og virða. Fór hann þó langt út fyrir þægindaramma borgarbarnsins þegar hann mjólkaði kúna í glas og rétti mér. Þarna lágu mörkin. Hló hann og teygaði úr glasinu. Bragi lét sig ekki muna um að létta undir með stuttum fótum þegar brekkan heim að bæ virtist löng og ströng. Snaraði mér á háhest eða setti mig fyrir framan sig á dráttarvél- inni. Líka var sport að sitja á sleð- anum sem heyið var dregið á heim. Einhvern veginn er það svo í minningunni að alltaf var sól og gott veður. Seinna meir þegar við fórum að koma til rjúpna, fæddist sú hug- mynd að byggja sumarbústað í landi Þverár. „Þið megið byggja hvar sem þið viljið,“ sagði Bragi og sveiflaði hendinni í hring. Nefndi ég þá stað. „Nei andskot- inn, þarna viljið þið ekki vera, þið viljið heldur vera hér.“ Hófum við frændsystki Braga húsbyggingu fyrir um 25 árum. Margar góðar minningar eru frá því við hófum bygginguna og ótal oft hlegið og haft gaman. Ekki síst þegar góð- ur matur var fram borinn á sama tíma. Bragi var einkar laginn í smíð- um og verkkvíði eitthvað sem gleymdist að setja í hann. Hann þekkti krafta náttúrunnar og vissi hvar mörkin lágu. Það sýndi sig þegar hann virkjaði lækina sunn- an við Norðurá. Allur frágangur og hvernig hann varði lagnirnar, gegn ágangi árinnar, bera vott um gott handverk. Oft gátum við spjallað um hvað væri að gerast á verkstæði Braga og aðstoðaði ég hann við verk- færa- og efniskaup, eftir föngum. Rétti líka hönd ef tækifæri gafst. Minnisstætt þegar við skiptum um legur í vatnstúrbínunni í nóv- ember í kappi við dagsljósið. Helgina eftir var allt komið á kaf í snjó og ekki hefði verið vegur að vinna þetta. Í vor bað Bragi mig að finna til efni og bor sem vantaði til að lag- færa skóflu á gröfunni. Ég leit á efnið, hann var búinn að sanka að sér, spurði um borvélina, hann benti út í horn. Ég leit á borvélina svo á Braga. „Þú verður fram á haust að bora með þessu, ég kem með eitthvað betra.“ Að sama skapi og ég hændust börnin mín að Braga og var Íris eitt vorið kaupakona í sauðburði, þá níu ára. Af barnabörnum mínum er það Arnór Bjarki, tæplega fjögurra ára sem mest kynntist Braga. Og Bragi bóndi var sko aðalkallinn. Eiga öll þessi tæki og tól. Ekki ónýtt að eiga John Deer-traktor eins og Bragi bóndi. Alltaf var plasttraktorinn tekinn með til að sýna Braga. Það verður tómlegt að koma norður og hafa ekki Braga. Við hjónin eigum ógrynni góðra minninga um góðan dreng sem munu lifa með okkur. Arnór Bjarki sagði við tíðindin: „Bragi bóndi meiddi sig og fór upp til himna til englanna og kem- ur ekki aftur.“ „Eruð þið að fara?“ hlýtt faðm- lag og koss á vanga, „hvenær á ég von á að sjá ykkur næst?“ Hvíl í friði, kæri frændi og vin- ur. Vésteinn og Margrét (Steini og Maggý).  Fleiri minningargreinar um Braga Húnfjörð Kárason bíða birtingar og munu birt- ast í blaðinu næstu daga. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2018 Smáauglýsingar 569 1100 Bækur BÓKBAND Tökum að okkur allar gerðir handbókbands. Upplýsingar veitir Eggert Ísólfsson bókbindari í s. 8992121 Bókbandsstofan Steinegg, Höfðabakka 3, 110 Reykjavík Heilsa Reiki námskeið í júli og ágúst Reiki er japönsk heilunar-aðferð sem stuðlar að andlegu og líkamlegu jafnvægi. Besta og ódýrasta ákvörðun sem ég hef tekið. Hólmfríður reiki@simnet.is 8673647 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Rotþrær, heitir pottar og jarðgerðarílát Rotþrær – heildarlausnir með leiðbeiningum um frágang. Ódýrir heitir pottar – leiðbein- ingar um frágang fylgjar. Mjög vönduð jarðgerðarílát til moltugerðar. Borgarplast.is, sími 5612211, Mosfellsbæ. Til sölu HITAVEITU- SKELJAR   HÖFÐABAKKA 1 SÍMI 777 2000 Heima er bezt tímarit 5. tbl. 2018 - Þjóðlegt og fróðlegt Tryggðu þér áskrift www.heimaerbezt.net Ýmislegt Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílar Toyota Corolla til sölu Árg. ‘98. Liftback. Skoðaður '18. Topp eintak. Verð tilboð. Upplýsingar í síma 863 7656. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Húsviðhald Raðauglýsingar Aðalfundur Ísfélags Vestmannaeyja hf. fyrir árið 2017 verður haldinn á skrifstofu félagsins, Tangagötu 1 í Vestmannaeyjum, mánudaginn 23. júlí 2018 kl. 14:00. Dagskrá: - Venjuleg aðalfundarstörf - Breytingar á samþykktum félagsins að teknu tilliti til rafrænnar eignarskráningar Stjórn Ísfélags Vestmannaeyja hf. AÐALFUNDUR Tangagata 1 | 900 Vestmannaeyjum | s. 488 1100 | www.isfelag.is Félagsstarf eldri borgara Árskógar Ganga um nágrennið kl. 11. Handavinna með leiðb. kl. 12:30-16. Félagsvist með vinningum kl. 13. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700. Boðinn Félagsvist kl. 13.00. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar. Hádegisverður frá 11:30-12:30 og kaffisala alla virka daga frá 14:30- 15:30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi í júlí og ágúst. Úti boccia völlur verður á torginu í sumar og við minnum á skemmtilega viðburði í hverfinu, Qigong á Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga kl. 11 og Sund dans í Sundhöllinni alla miðvikudaga í júlí kl. 13. Vita- torg sími: 411-9450 Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl.9.10 Boccia-æfing, kl. 13.00 Canasta. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, dagblöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, stólaleikfimi og slökun kl. 13, frjáls spilamennska kl. 13 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.8.50, listasmiðjan er opin fyrir alla frá kl.11-16, síðdegiskaffi kl.14.30 nánari upplýsingar í Hæðargarði eða í síma 411-2790 allir velkomnir með óháð aldri. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl.9-16, ganga kl.10, handavinnu- hornið kl.13, félagsvist kl.13.15, síðdegiskaffi kl. 14:30 allir velkomnir óháð aldri nánari upplýsingar í síma 411-2790 Seltjarnarnes Snjallsíma og spjaldtölvu námskeið klukkan 10:00. Kaffispjall í króknum klukkan 10:30. Leikfimi í salnum Skólabraut kluk- kan 13:30. Ganga frá Skólabraut klukkan 14:30. Vatnsleikfimi í Sund- laug Seltj. klukkan 18:30. Fundir/MannfagnaðirFundir/Mannfag aðirFundir/MannfagnaðirFundir/MannfagnaðirFundir/MannfagnaðirFundir/Ma nfagnaðirFundir/Mannfag aðir ið. Hafandi ömmu sem píanó- kennara lá beinast við að ég lærði á píanó, enda göfugra hljóðfæri vart til. Þó að aðrir góðir aðilar hafi verið píanókennarar mínir fylgdist amma alltaf vel með. Hlýddi yfir æfingar og lög, spil- aði með mér, gaf ráð og nótna- bækur. Mér þykir ávallt vænt um „Lagið okkar“ sem hún spilaði oft fyrir mig. Mér fannst ég loks- ins vera stór píanóleikari þegar mér tókst að komast klakklaust í gegnum það og markaði stefnu í spilamennskunni. Amma hafði undravert minni. Sem dæmi mundi hún alla af- mælisdaga fólksins í kringum sig. Ekki bara fjölskyldunnar og allra afkomenda heldur einnig annarra ættingja, vina og vanda- manna og jafnvel sjúkraþjálfar- ans síns ásamt öðrum merkis- dögum hjá umönnunarfólki sínu. Einu gleymdi hún þó og varð það henni dýrkeypt. Hún gleymdi að endurnýja ökuskírteinið sitt á áttræðisaldri. Hún vílaði hins vegar ekki fyrir sér að setjast aftur á skólabekk í ökuskólanum og rúllaði upp bæði bóklega og verklega hlutanum með stakri prýði. Amma var framsækin og tæknivædd. Hún prjónaði peysur á afkomendur sína og notaði til þess prjónavél. Vel á níræðisaldri keypti hún sér spjaldtölvu til að geta fylgst betur með tæknivæð- ingunni í kringum sig, átti staf- ræna myndavél til margra ára og notaði farsíma fram á síðasta dag. Ef hana langaði til að taka sér eitthvað fyrir hendur lét hún aðra ekki stöðva sig. Hún fylgdist vel með því sem fram fór hjá okkur Heiðrúnu. Jafnt í tónlist, íþróttum og skóla. Fyrir próf, íþróttakeppnir og aðra mikilvæga atburði fór hún alltaf fram á einungis eitt, að við gerðum okkar besta. Ekki hægt að ætlast til meira. Ég hef haft þetta í hávegum og tek gott vega- nestið með mér út í lífið. Amma var vel inni í fréttum og málefnum líðandi stundar. Hún hafði gaman af því þegar mikið gekk á, sérstaklega þegar þing- menn og stjórnmálaflokkar tók- ust á og voru búnir að mála sig og málstaðinn út í horn. Hún var óvenjuvel að sér í tónlistarheim- inum og popp- og dægurlaga- menningunni hverju sinni. Hún spurði mig oft að fyrra bragði út í hljómsveitir sem mínir jafnaldr- ar töluðu um. Þekkti gjarnan meðlimi eða hafði tengingar til þeirra og hafði sterkar skoðanir á tónlistinni. Skemmtilegir og fallegir siðir rifjast upp. Öll barnabörn ömmu kannast við „ömmuísinn“ og sér- staka bragðið ásamt formunum sem hún geymdi. Eftir heim- sóknir til ömmu og afa fór amma iðulega út í glugga, fylgdist með okkur á bílaplaninu og veifaði bless. Hún beið í glugganum þar til bíllinn hvarf úr augsýn. Þessu hélt hún uppteknu allt til loka. Þegar amma kvaddi okkur systk- inin fyrir utanfarir gerði hún allt- af krossmark „í bak, og fyrir“ og bað okkur um að fara varlega. Amma var rauð í huga og á hár. Ég hafði gaman af því að atast í henni með kommúnis- mann og sólina sem rís í austri. Ætli ég spili ekki Nallann í henn- ar nafni hér eftir á 1. maí, vit- anlega eftir nótunum sem hún gaf mér sem ungum dreng. Ég eftirlæt þó öðrum að flagga rauðu fánunum. Sólin er sest, í vestri. Sverrir Örn Hlöðversson.  Fleiri minningargreinar um Helga Guðrún Helgadótt- ir bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.