Morgunblaðið - 09.07.2018, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Sigurður Bogi Sævarsson
Erla María Markúsdóttir
Eggert Skúlason
„Umhverfið hér við fjallið hefur
fengið alveg nýjan svip og Hítará
hefur fundið sér nýjan farveg á nokk-
urra kílómetra svæði. Ég lét mér
aldrei detta í hug að svona nokkuð
gæti gerst,“ segir Finnbogi Leifsson,
bóndi í Hítardal á Mýrum. Í gær
könnuðu vísindamenn frá Veðurstof-
unni og Háskóla Íslands aðstæður
við Fagraskógarfjall þar sem aðfara-
nótt laugardags féll fram mikil
skriða og stíflaði farveg Hítárár. Al-
mannavarnanefnd í héraði ætlaði að
funda um stöðu mála nú í morguns-
árið og almennur íbúafundur er
áformaður í kvöld.
Milljónir rúmmetra
Talið er að skriðan sé um 1,8 fer-
kílómetrar að flatarmáli og að hún
hafi fallið sakir þess að fjallshlíðin
hafi verið vatnsósa, en samanlögð úr-
koma í Hítardal frá í byrjun maí sl.
er 260 millimetrar. Er talið að vatnið
hafi farið niður í bergsprungur í
fjallshlíðinni og hún þá þannig farið
bókstaflega á flot. Sést nú nakið sár í
fjallinu sem jafnframt vitnar um hve
mikill kraftur hefur verið í skriðunni.
Er þetta talin ein mesta skriða sem
fallið hefur á Íslandi síðustu aldir.
Magni Hreinn Jónsson, sérfræð-
ingur hjá Veðurstofunni, sagði að
það mundi taka nokkra daga að
vinna úr gögnunum sem safnað hefur
verið á vettvangi. Skriðan hafi verið
milljónir rúmmetra, en nákvæm
stærð verði tekin með leysigeisla-
mælingum. Margt þurfi nú að at-
huga, vega og meta. Meðal annars
muni starfsmenn ofanflóðadeildar nú
skoða jarðsprungur á þessu svæði.
Vatnamælingamenn könnuðu í gær
rennsli Hítarár og Tálma, sem er
þveráin sem Hítará rennur nú í. Er
áin nú komin í gamlan farveg sem
þarna er. „Ég treysti mér ekki til
þess að segja hvort farvegurinn
hreinlega tekur við því vatnsmagni
sem þarna fellur fram. Bakkar árinn-
ar gætu hugsanlega brotnað niður
eða önnur landspjöll orðið. Við
ákveðnar aðstæður getur Hítará orð-
ið talsvert mikið vatnsfall,“ sagði
Finnbogi Leifsson. Bætir við að fyrir
margt löngu hafi skriður fallið fram
við Hítardal. Þær hafi þó verið litlar í
samanburði við fylluna sem féll fram
um helgina. „Hér hefur rignt mikið
að undanförnu og ekki komið þurr
dagur síðan í byrjun maí, þó að
vatnsmagnið kunni einhvern tíma að
hafa verið meira,“ segir bóndinn í
Hítardal.
Óvissa um veiðina
Mikil óvissa er um veiði í Hítará
eftir hamfarirnar, en kunnugir
benda á að farvegur Tálma ráði ekki
við svo mikið vatn sem nú fer þar um.
Á því svæði sem fór undir skriðuna,
svo sem í námunda við svonefnt
Grettisbæli, hafi verið gjöfult veiði-
svæði og góð uppvaxtarsvæði fyrir
seiði, en nú séu þau fyrir bí.
„Ég átta mig engan veginn á
hvernig þetta mun þróast en vonandi
verður hægt að veiða í neðri hluta ár-
innar í sumar,“ sagði Ólafur Sig-
valdason, formaður veiðifélags
Hítarár, við mbl.is. Raunar hafa enn
sem komið er lítil áhrif af skriðunni
komið fram í neðri hluta Hítarár, það
er nærri veiðihúsinu Lundi við Snæ-
fellsnesveg, en þar eru bestu svæðin
í þessari vinsælu laxveiðiá.
Tölvuteikning/Eldfjallafræði- og jarðfræðivárhópur Háskóla Íslands
Svæðið Umfang skriðunnar er mikið og Hítará komin í nýjan farveg.
Milljónir rúmmetra
féllu fram úr fjallinu
Hítará leitaði í gamlan farveg Umhverfi fær nýjan svip
Sögufrægar rústir Hítardals-
valla eru að öllum líkindum und-
ir vatni vegna skriðunnar úr
Fagraskógarfjalli.
Byggð lagðist af á Hítardals-
völlum árið 1906, en þar átti
Björn Hítdælakappi tvær jarðir
og reisti þar kirkju. Sjálfur bjó
Björn á Hólmi, í námunda við
Hítarvatn. Í Bjarnar sögu Hít-
dælakappa segir að á Völlum
hafi Þórður Kolbeinsson fært
móður Bjarnar, Þórdísi, höfuð
hans eftir að hafa vegið hann.
Sunnan í vestanverðu Fagra-
skógarfjalli er Grettisbæli þar
sem Grettir Ásmundsson hélt
sig í tvo vetur undir hlífiskildi
Bjarnar Hítdælakappa.
Skriða á
söguslóðum
HÍTARDALSVELLIR
Ljósmynd/Mihails Ignats
Skriða Svipur lands í Hítardal er breyttur en fyllan sem fór fram er að minnsta kosti 1,8 ferkílómetrar að flatarmáli og hefur lokað Hítará, sem fljótt fann sér þó nýja leið til sjávar.
Hamfarir í Hítardal