Morgunblaðið - 09.07.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 09.07.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2018 Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga www.alno.is BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Samkeppniseftirlitið hefur óskað eftir sjónarmiðum HB Granda vegna skoðunar á því að myndast hafi yfirráð í skilningi 10. og 17. gr. samkeppnislaga þegar Brim hf. keypti 34,1% hlut í HB Granda fyrr á árinu. Var tilkynning þessa efnis birt á laugardag. Eins og Morgunblaðið greindi frá á sínum tíma greiddi Brim 21,7 milljarða króna fyrir rösklega þriðj- ungshlut í HB Granda, eða 35 krón- ur á hlut. Með kaupunum skapaðist yfirtökuskylda sem aðeins lítill hóp- ur hluthafa nýtti. „Ekkert að fela“ Ef kaupin á HB Granda falla und- ir 10. og 17. gr. samkeppnislaga gæti það þýtt að viðskiptin væru háð leyfi Samkeppniseftirlitsins. Í við- tali við Morgunblaðið 20. apríl sagði Guðmundur Kristjánsson hjá Brimi, nú forstjóri HB Granda, að hann teldi ekki von á að samkeppnisyf- irvöld gerðu athugasemd við kaupin enda selji fyrirtækin tvö nær allar afurðir sínar á erlendum mörkuðum og að lítil sem engin samkeppni sé á milli þeirra á innanlandsmarkaði. „Ég held að það sé ekkert óeðli- legt við að eftirlitsstofnanir fylgist með viðskiptalífinu. HB Grandi hef- ur ekkert að fela og við munum svara [erindinu] eins vel og við get- um,“ sagði Guðmundur þegar Morg- unblaðið náði af honum tali á sunnu- dag. Hafa sterka stöðu við kaup á aðföngum Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, vildi ekki taka afstöðu til þeirra sjónarmiða sem Guðmundur viðraði í viðtalinu í apríl. „Við erum einfaldlega að óska eftir upplýsingum frá viðkomandi fyrirtæki sem þá nýtast okkur meðal Samkeppniseftirlitið skoðar kaup Brims á HB Granda Morgunblaðið/Eggert Spurningar Frá athafnasvæði HB Granda í Reykjavík. Brim eignaðist þriðjung í félaginu í apríl fyrir 21,7 milljarða.  Samkeppnislög gætu átt við þó fyrirtækin selji nær alla sína framleiðslu erlendis Guðmundur Kristjánsson Páll Gunnar Pálsson annars við mat á því hvort um til- kynningaskyldan samruna er að ræða,“ sagði Páll á sunnudag. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eru fá ef nokkur dæmi um að það hafi komið til kasta sam- keppnislaga vegna sambærilegra viðskipta í sjávarútvegi. Samkeppn- isákvæði kunna að eiga við, þó svo að HB Grandi og Brim flytji nær alla framleiðslu sína úr landi, því félögin gætu þótt hafa mjög sterka stöðu innanlands við kaup á hvers kyns að- föngum. Ársreikningur Brauðs og co ehf. sýnir að umsvif félagsins jukust töluvert á síðasta ári. Heildarvelta bakarísins nam 409,8 milljónum króna árið 2017 sem er 98% meira en árið á undan. Hagnaður lækk- aði lítillega á milli ára; var 24,6 milljónir árið 2017 en 27 milljónir árið 2016. Rekstargjöld ríflega tvöfölduð- ust úr 173 milljónum upp í 379 milljónir árið 2017. Þar af voru laun og launatengd gjöld 159,6 milljónir en voru um 70,5 milljónir árið áður. Félagið Brauð og co ehf. var stofnað árið 2015 og opnaði í árs- byrjun 2016 bakarí að Frakkastíg í Reykjavík. Í framhaldinu opnaði fyrirtækið bakarí á Hlemmi og því næst í Fákafeni. Fyrr á þessu ári bættist við bakarí á Melhaga í Vesturbænum og við Akrabraut í Garðabæ. Fleiri ekki opnuð Ágúst Einþórsson bakari og einn eigenda bakarísins segir ánægjulegt hvað reksturinn hefur blómstrað. „Það er alltaf gaman að hafa vind í seglin,“ segir hann en bætir við að ekki standi til að opna fleiri bakarí í bráð. „Það er ekkert mál að opna bakarí, en aðeins flóknara að reka þau. Starfsmannahald er dýrt, og við bökum úr ákaflega dýru lífrænu hráefni sem kostar allt að tífalt meira en það sem samkeppnisaðilar okkar nota.“ Eigendur Brauðs og co ehf. eru Eyja fjárfestingafélag ehf. með 51% hlut, Lúkas ehf. með 31% og Nói Nóra ehf. með 18%. ai@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Biti Súrdeigsbrauðið hefur gert mikla lukku. Mynd úr safni. Velta Brauðs & co. nálgast hálfan milljarð  Aukning um 98% frá árinu 2016 og minnkaði um 1,3% á milli ára. Það sem af er árinu er sætanýtingin 78,9% eða um 2,3% verri en hún var um svipað leyti árs í fyrra. Fjöldi farþega á heimamarkaðinum frá Íslandi jókst töluvert á milli ára, en dróst saman á N- Atlantshafsmarkaðinum og ferðamannamarkaðin- um til Íslands. Í tilkynningu frá Icelandair segir jafnframt að framboðnar gistinætur í júní hafi verið 41.210 sem er aukning um 2% frá sama mánuði í fyrra. Seldar gistinætur voru 32.814 sem er líka 2% meira en í fyrra. Herbergjanýting í mánuðinum dróst hins vegar lítillega saman, fór úr 80% niður í 79,6%. Mælt frá ársbyrjun er nýting herbergja 76,1% en var 78,5% þegar síðasta ár var hálfnað. ai@mbl.is Í júnímánuði voru farþegar Icelandair rúmlega 480.000 og fækkaði um 2% frá því sem var í sama mánuði í fyrra. Það sem af er þessu ári hefur flug- félagið þó flutt um 23.500 fleiri farþega en á sama tíma í fyrra, eða samtals nærri 1.776.000 manns og nemur aukningin 1% á milli ára. Þá drógust fragt- flutningar í mánuðinum saman um 5% á milli ára, mælt í seldum tonnkílómetrum og en það skýrist einkum af einskiptisáhrifum flutninga í tengslum við opnun Costco árið 2017. Framboðnir sætiskílómetrar jukust um 2% en framboðnum sætum fækkaði um 4% á milli ára og skýrist það af auknu framboði á flugi til N-Am- eríku og þar sem meðalfluglengd er meiri en á leiðunum til Evrópu. Sætanýting í júní var 84,4% Lakari sætanýting hjá Icelandair í júní  Seldum gistinóttum fjölgaði um 2% á milli ára í júní og voru tæplega 33 þúsund Morgunblaðið/Árni Sæberg Sæti Íslenskum farþegum fer fjölgandi. 9. júlí 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 106.38 106.88 106.63 Sterlingspund 140.72 141.4 141.06 Kanadadalur 80.89 81.37 81.13 Dönsk króna 16.698 16.796 16.747 Norsk króna 13.183 13.261 13.222 Sænsk króna 12.095 12.165 12.13 Svissn. franki 107.08 107.68 107.38 Japanskt jen 0.9606 0.9662 0.9634 SDR 149.83 150.73 150.28 Evra 124.45 125.15 124.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.4081 Hrávöruverð Gull 1254.2 ($/únsa) Ál 2126.0 ($/tonn) LME Hráolía 77.57 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.