Morgunblaðið - 09.07.2018, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2018
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
Stýrðu birtunni heima hjá þér
MYRKVA GLUGGATJÖLD
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
alnabaer.is
Eftir blíðskaparveður á Austur-
landi að undanförnu snjóaði í fjöll
við Vopnafjörð sl. fimmtudag og
allt niður í byggð.
Hitinn í Vopnafirði og víðar á
Austurlandi hefur farið allt upp í 20
gráður. Hins vegar eru fjöll við
Vopnafjörð snævi þakin efst. Sólin
skein þegar snjórinn féll og við það
myndaðist regnbogi sem mætti öllu
heldur kalla „snjóboga“, að sögn
Jóns Sigurðarsonar, tíðindamanns
Morgunblaðsins í Vopnafirði.
„Myndin er tekin fyrir þremur dög-
um en núna er 20 gráða hiti á
Vopnafirði. Það er ekki oft sem
snjóar í júlí en það snjóaði núna al-
veg niður undir byggð, á flatlend-
ið,“ sagði Jón við Morgunblaðið í
gær.
Snjókoman kom íbúum verulega
á óvart þar sem veðrið hefur verið
eins og best verður á kosið í maí og
júní á Vopnafirði. Þrátt fyrir snjó-
komuna er áfram sól og sumar á
Vopnafirði og fór hitinn þar upp í
20 gráður í gær, sem áður segir.
veronika@mbl.is
Snjókoma varð í sum-
arveðri í Vopnafirði
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
Regnbogi Á fimmdudag snjóaði í sólskinveðri á Vopnafirði, þrátt fyrir að þar hafi verið gott veður undanfarið.
Goslokahátíð Vestmannaeyja var
haldin um helgina. Veðrið lék ekki
við Eyjamenn og færa þurfti
nokkra dagskrárliði og halda þá
innanhúss. Íris Róbertsdóttir,
bæjarstjóri Vestmannaeyja, segir
þó hátíðina hafa gengið vel.
„Hátíðin er yfirleitt viðamikil og
mikið um að vera. Þetta fór mjög
vel fram og það var talsvert af fólki
í bænum,“ sagði Íris.
Margt var um manninn á hátíð-
inni og boðið upp á fjölbreytta dag-
skrá í bænum. Goslokahátíðin er
haldin í Vestmannaeyjum á hverju
ári, fyrstu helgina í júlí. Með hátíð-
inni er minnst eldgossins á Heima-
ey en formleg lok þess voru 3. júlí
1973. 45 ár eru liðin frá gosinu og
setti það svip sinn á hátíðina.
„Öll hátíðin var stærri og dag-
skráin veigameiri. Það eru líka 50
ár síðan vatn kom gegnum leiðslur
til Vestmannaeyja og voru haldnir
viðburðir í tilefni af því,“ segir Íris
ennfremur við Morgunblaðið.
Væta í Vestmannaeyj-
um á goslokahátíðinni
Gripur Fornbílaklúbburinn sýndi nokkra vörubíla í Ráðhúströð.
Ljósmyndir/Óskar Pétur Friðriksson
Söngur Aron Hannes var með tónlistaratriði á barnaskemmtuninni.
Stuð Pálmi Gunnarsson og Bjartmar Guðlaugsson héldu tónleika í Höllinni.