Morgunblaðið - 09.07.2018, Page 10

Morgunblaðið - 09.07.2018, Page 10
Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Lokadagur Landsmóts hestamanna 2018 í gær endaði með spennandi keppni í öllum flokkum. Þrátt fyrir kulda og þungbúið veður var fjöldi manns á svæðinu að fylgjast með lokakeppnum mótsins og áhorf- endabrekkan þétt setin. Bæði A- og B-flokkarnir í ár þykja gríðarlega sterkir og segja elstu menn að varla hafi sést svo sterkir flokkar áður. Sigurvegari í B-flokki gæðinga var Frami frá Ketilsstöðum og knapi hans og eigandi, Elin Holst, með glæsieinkunnina 9,14. Elin hefur átt velgengni að fagna undanfarin ár á Frama og hafa þau hlotið ýmsa titla og verðlaun. Annar varð sig- urvegarinn á landsmóti 2016, Nökkvi frá Syðra-Skörðugili og knapi hans Jakob Svavar Sigurðs- son, með einkunnina 9,09. Lokaatriðis mótsins var beðið með eftirvæntingu en það voru A- úrslit A-flokks. Sigurvegari varð Hafsteinn frá Vakurstöðum og knapi hans, Teitur Árnason. Annar varð Atlas frá Lýsuhóli og knapi hans Jóhann Kristinn Ragnarsson með 8,84. Í ungmennaflokki sigruðu þau Bríet Guðmundsdóttir og Kolfinnur frá Efri-Gegnishólum með eink- unnina 8,83. Í unglingaflokki var einnig hörð og jöfn barátta um efstu sætin en aukastafir skildu efstu knapana að. Benedikt Ólafs- son hafði aðeins betur með ein- kunnina 8,700 á Biskupi frá Ólafs- haga. Í barnaflokki sigraði Guðný Dís Jónsdóttir úr Spretti á Roða frá Margrétarhofi og hlutu þau ein- kunnina 8,88. Sjaldan jafn viðamikið Að sögn Þórdísar Önnu Gylfa- dóttur, mótsstjóra Landsmóts 2018, eru mótshaldarar í skýjunum með hvernig til tókst. Mótið í ár var stærra en oft áður og ljóst að öllu var til tjaldað. „Það má eiginlega segja að þetta sé eitt viðamesta landsmótið sem hefur verið haldið. Það var aukin umgjörð á öllum svið- um.“ Hún segir jafnframt að veðrið hafi ekki haft teljandi áhrif á fram- gang mótsins og hvatt hestana áfram ef eitthvað var. „Veðrið virðist ekki hafa haft nein áhrif á hrossin, jafnvel hvatt þau áfram,“ segir Þórdís og vísar m.a. í að heimsmetið hafi ítrekað verið slegið í 250 m skeiði á laug- ardag. „Hitastigið, þó lágt hafi ver- ið, var ákjósanlegt fyrir hrossin. Svo rigndi inni á milli og eftir rign- inguna varð svo góð fjöðrun og spyrna í brautinni. Þarna sköpuð- ust fínar aðstæður fyrir hestana,“ segir Þórdís kát. Sigurvegari Hafsteinn frá Vakurstöðum og knapinn Teitur Árnason taka við verðlaunum fyrir sigur í A-flokki. Haustveður Mótsgestir komu sér fyrir í regnstökkum og dúnúlpum. Morgunblaðið/Eggert Hestakonur Knaparnir Elin Holst og Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir en þær hlutu báðar verðlaun á mótinu í gær. Landsmóti lauk með glæsibrag  Hafsteinn frá Vakurstöðum og Frami frá Ketilsstöðum urðu sigurvegarar í A- og B-flokki  Hestakostur með ólíkindum í ár að mati mótsstjóra  Veðrið hafði jákvæð áhrif á hestana Landsmót hestamanna 201810 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2018 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Verðlaunaafhending fór fram í gær á lokadegi landsmótsins. Hefur Fé- lag tamningamanna, FT, veitt knöpum verðlaun á stórmótum fyr- ir frábæra reiðmennsku og einstakt samspil milli manns og hests. Í ár hlaut Aðalheiður Anna Guðjóns- dóttir reiðmennskuverðlaunin, FT- fjöðrina. Verðlaunin eru veitt þeim knapa sem sýnir einstaka reið- mennsku og fáguð samskipti við hestinn. Aðalheiður Anna Guðjóns- dóttir hefur einnig vakið athygli á mótinu fyrir sýningu á Kveik, sem m.a. hlaut tíur í kynbótadómum í vikunni og er ein helsta stjarna kynbótadóma þessa árs. Gregesen-styttan er annar verð- launagripur, veittur þeim knapa sem skarar fram úr og sýnir prúð- mannlega reiðmennsku á afburða vel hirtum hesti. Hana hlaut í ár sigurvegari B-flokks, Elin Holst. Styttan er veitt til að minnast Ragnars Gregesen en hann var ein helsta fyrirmynd hestamanna hvað varðar umhirðu hrossa sinna og snyrtilegan klæðaburð. Hestakonurnar tóku verðlaunin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.