Morgunblaðið - 09.07.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2018
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á fi
skinn
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hönnun og bygging virkj-unar er vissulega flókiðverkefni, en þó fyrst ogfremst samstarf fólks
sem kemur úr ólíkum áttum en still-
ir saman strengi sína og leysir mál-
in,“ segir Ásbjörg Kristinsdóttir
verkfræðingur. Hún var yfirverk-
efnisstjóri við byggingu Búrfells-
stöðvar II sem gangsett var við há-
tíðlega athöfn á dögunum. Við það
tilefni kynnti Ásbjörg gestum flókið
gangvirki aflstöðvarinnar sem fram-
leiðir alls 100 MW af rafmagni.
Bygging stöðvarinnar tók aðeins um
tvö ár. Helgast skammur fram-
kvæmdatími meðal annars af því að
vegna Búrfellsstöðvar I voru á
svæðinu ýmsir nauðsynlegir innviðir
sem nýttust, svo sem línur, lón, stífl-
ur og vegir. Umhverfisáhrif aflstöð-
arinnar nýju eru lítil.
Verkið talar sjálft
„Nýja stöðin í Búrfelli er gott
dæmi um hvernig við viljum og verð-
um að standa að virkjunarfram-
kvæmdum. Það var ljóst strax í upp-
hafi að inngripið í náttúruna þarna
yrði lítið, enda vorum við á svæði
sem þegar hafði verið raskað. Því til
viðbótar er sýnileiki mannvirkja í
lágmarki, svo sem stöðvarhúsið
sjálft sem er í hvelfingu inni í fjalli,“
segir Ásbjörg sem í hlutverki yfir-
verkefnisstjóra leiddi hóp verkefn-
isstjórnar Landsvirkjunar, þar sem
hver hafði umsjón með ákveðnum
þáttum. Sá einn verkefnisstjórinn
um sjálfar byggingarframkvæmd-
irnar, annar um vél- og rafbúnað og
sá þriðji um stálpípur, lokur og ann-
að slíkt.
„Það var svo mitt í samvinnu við
staðarverkfræðing að fylgast með
því að framvinda verksins væri sam-
kvæmt áætlun – og vera til svara
gagnvart yfirstjórn Landsvirkjunar.
Og vissulega þurfti að stilla saman
marga ólíka strengi því þegar mest
var á framkvæmdatímanum voru
starfsmenn á verkstað um 240 og
þjóðernin um 20. Samt skiptir þessi
ólíki bakgrunnur starfsmanna ekki
öllu, því allt er unnið eftir ákveðnum
ferlum og öguðum vinnubrögðum.
Verkið talar fyrir sig, en öryggi og
rétt vinnubrögð eru áherslumál.
Þegar nýr starfsmaður kom inn á
svæðið var fundað með hverjum og
einum um öryggismálin; hans eigin
og annarra. Þessi fræðsla skilaði sér
enda komumst við að mestu án al-
varlegra óhappa í gegnum þessa
framkvæmd.“
Gerist, breytist og stækkar
Á unglingsárum var Ásbjörg
sumarstarfsmaður hjá Landsvirkjun
og vann þá í Búrfelli við landbóta-
störf og sem handlangari rekstrar-
manna. Þar vaknaði áhugi hennar á
m.a. orkumálum og verklegum
framkvæmdum. Því var auðvelt að
velja verkfræði þegar kom að há-
skólanámi. Eftir að hafa lokið BSc-
gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði við
HÍ kom Ásbjörg til starfa hjá
Landsvirkjun og sinnti þá ýmsum
málum í verkefnisstjórn við bygg-
ingu Kárahnjúkavirkjunar. Fór síð-
an í framhaldsnám við hinn virta
tækniháskóla, MIT í Boston, þar
sem hún lauk MBA-námi, MSc-
gráðu í byggingaverkfræði og PhD-
gráðu í verkfræði, þar sem doktors-
verkefnið var um val á virkjunar-
kostum.
„Námið vestra var hagnýtt og
nýttist í Búrfellsverkefninu sem
kallaði á að ég væri oft á verkstað.
Það var auðvitað það skemmtileg-
asta í starfinu; að sjá hlutina gerast,
breytast og stækka,“ segir Ásbjörg
sem í hlutverki yfirverkefnisstjóra
var ein fárra kvenna í stórum hópi í
verkefninu og fyrsta konan til að
gegna því hlutverki.
„Það var kannski fyrst í byrjun
sem fólki fannst eitthvert tiltökumál
að kona væri yfirverkefnisstjórinn,
en þær raddir hljóðnuðu fljótt. Sem
stjórnandi og leiðtogi er ég einfald-
lega ég sjálf; geng hreint til verks
enda tel ég mig hafa bæði reynslu og
þekkingu í verkfræði og verkefna-
stjórnun til að leysa málin. Það er
ekki minn stíll að berja í borðið og
láta illum látum. Í Búrfellsverkefn-
inu unnum við stjórnendur verkefn-
isins vel saman; þekkjum vel styrk
hver annars og í samvinnunni gerast
oft töfrar. Okkur hefur gengið mjög
vel í því að halda mörgum boltum á
lofti í einu og missa þá aldrei í jörð-
ina.“
Þótt Búrfellsstöð II sé nú kom-
in í gang og rafmagn frá henni kom-
ið inn á landsins línur er sitthvað eft-
ir enn, svo sem frágangur á verkstað
og uppgræðsla á röskuðu landi.
Upprennandi verkfræðingar
„Mínu hlutverki sem yfirverk-
efnisstjóri við þessa virkjun er ekki
lokið; ég mun fylgja verkefninu
áfram að minnsta kosti út líðandi ár
og svo tekur eitthvað nýtt og spenn-
andi við. En þetta hefur verið heilt
ævintýri og var einstaklega ánægju-
legt fá tækifæri til þess að taka á
móti fjölda gesta á opnu húsi sem við
héldum eftir að stöðin hafði verið
gangsett. Í þeim hópi voru krakk-
arnir áberandi, forvitin og áhugasöm
um undur og tækni rétt eins og ég
var á sínum tíma. Sjálfsagt voru
margir upprennandi verkfræðingar í
þeim hópi,“ segir Ásbjörg að síðustu.
Margir boltar
á lofti í einu
Ásbjörg Kristinsdóttir var yfirverkefnisstjóri við bygg-
ingu nýrrar virkjunar í Búrfelli. Í samvinnu fólksins
gerast töfrar, segir hún, og framkvæmdin öll var
óhappalaus. Orkan fyllir nú landsins línur.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Verkfræðingur „Ég geng hreint til verks enda tel ég mig hafa bæði reynslu og þekkingu í verkfræði og verk-
efnastjórnun til að leysa málin,“ segir Ásbjörg um störf sín og áherslur sem yfirverkefnisstjóri í Búrfelli II.
Kynning Ásbjörg á opnu húsi í Búrfelli með frænda sínum, Frey Leó Kjart-
anssyni. Lengst til hægri er Daníel Njarðarson, starfsmaður Kjöríss.
Bækurnar um Ísfólkið eftir Margit
Sandemo eru nú fáanlegar í fyrsta
sinn í hljóðútgáfu á íslensku. Það
er Storytel á Íslandi sem framleiðir
þennan vinsæla sagnabálk þar sem
aðdáendur bókanna fá nú tækifæri
á að endurnýja kynnin við Silju,
Þengil og alla hina í ætt Ísfólksins
á nýstárlegan
hátt. Bækurnar
eru alls 47 og
munu allar koma
út á Storytel.
Fyrsta bókin,
Álagafjötrar er
þegar komin út
og nýjar bækur
munu bætast við
reglulega. Það er
leikkonan, rapp-
arinn og Reykjavíkurdóttirin Þur-
íður Blær Jóhannsdóttir sem les en
hún las einmitt bækurnar 15 ára og
hefur að undanförnu endurnýjað
kynnin.
Margit Sandemo er norsk, en
skrifar á sænsku og bókaflokkurinn
hefur verið afar vinsæll hjá áskrif-
endum Storytel í Svíþjóð og víðar.
Bækurnar hafa í gegnum árin notið
mikilla vinsælda á Íslandi og hafa
alls selst í 39 milljónum eintaka
víða um heim. Bækurnar segja sög-
una um ætt Ísfólksins. Það hvílir
bölvun á ættinni vegna þess að
ættfaðirinn, Þengill hinn illi, seldi
Satani sál sína fyrir langa löngu. Í
hverri kynslóð fæðist einn ein-
staklingur sem skal vera í þjónustu
Satans. Sagan um Ísfólkið hefst
svo á 16. öld þegar maður fæðist í
ættinni sem reynir að snúa hinu illa
til góðs. Hann er kallaður Þengill
hinn góði.
Áskrifendum fjölgar
Storytel var opnað á Íslandi 20.
febrúar síðastliðinn og býður
áskrifendum að streyma öllu efni
þjónustunnar, sem telur yfir
30.000 hljóð- og rafbækur á ís-
lensku og ensku, ótakmarkað gegn-
um app. Áskrifendur eru komnir á
sjöunda þúsund og tugir ánægðra
viðskiptavina bætast við daglega.
Storytel á Íslandi með skemmtilega viðbót í bókaflórunni
Hlustað á Ísfólkið og kynni við
Silju og Þengil endurnýjuð
Þuríður Blær
Jóhannsdóttir
Ísfólkið Vinsæll, sígildur bókaflokkur.