Morgunblaðið - 09.07.2018, Síða 15

Morgunblaðið - 09.07.2018, Síða 15
Dawn Sturgess, bresk kona sem veiktist af völd- um novichok- taugaeiturs 30. júní, lést á spít- ala í gærkvöldi. Frá þessu er sagt á fréttavef The Guardian. Sturgess og kærasti hennar, Charlie Rowley, fundust illa hald- in af taugaeitruninni á heimili sínu um mánaðamótin. Þetta var í annað sinn á skömm- um tíma sem fólk veiktist vegna eitursins í Bretlandi. Fyrra skiptið var í mars þegar rússneski fyrr- verandi njósnarinn Sergei Skripal og dóttir hans, Júlía, fundust illa haldin á bekk í Salisbury í mars eftir að hafa komist í snertingu við eitrið. Skripal-feðginin lifðu eitrunina af og eru nú úr hættu. Hugsanlegt þykir að Sturgess og Rowley hafi komist í snertingu við sama skammt og var notaður á feðginin en ekkert er vitað með vissu. Novichok-eitrið er sjaldgæft og var þróað í Sovétríkjunum og Rússlandi. Rowley er enn á spít- ala. BRETLAND Látin af völdum taugaeitursins Eitur Dawn Stur- gess er látin. Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Hlé var gert í gær á aðgerðum til að koma taílensku fótboltadrengjunum, sem sitja fastir í Tham Luang-hellum í norðurhluta Taílands, til bjargar þar sem fylla þurfti á súrefnistanka í a.m.k. 10 klukkustundir. Frá þessu greindu fréttavefir BBC, The Guardi- an og AFP. Í gær tókst að bjarga fjór- um drengjanna, sem mest voru veik- burða, en eftir sitja átta auk þjálfarans síns. Halda átti aðgerðum áfram í dag. Fótboltaliðið Villisvínin fór inn í hellana í skoðunarferð eftir fótbolta- æfingu 23. júní sl. en lenti þar í sjálf- heldu þegar ofsaregn hófst og fyllti hluta ganganna af vatni. Breskir köf- unarsérfræðingar fundu drengina níu dögum eftir að þeir hurfu inn í hellana en lengri tíma tók að skipuleggja björgunaráætlun til að koma drengj- unum út. Hingað til hafa björgunar- aðgerðirnar ekki gengið klakklaust og einn kafari, köfunarliði úr taí- lenska sjóhernum, hefur drukknað í göngunum. Verða að taka af sér súrefniskútana Björgunaraðgerðirnar hófust fyrr en gert var ráð fyrir þar sem rigningu á svæðinu, sem hafði aftrað þeim, slotaði óvænt. Fyrsti hluti aðgerð- anna gekk einnig fljótar fyrir sig en gert hafði verið ráð fyrir. Mikil fagnaðarlæti brutust út á taí- lenskum samfélagsmiðlum þegar fyrstu fjórir drengirnir komu heilir á húfi upp á yfirborðið. Til þess að sleppa með þá úr göngunum þurftu sundkappar björgunarsveitarinnar að kafa með drengina um fjóra kíló- metra í gegnum níðþrönga ranghala hellanna. Erfiðasti hluti ganganna er á svokölluðum „T-skilum“ þar sem göngin eru svo þröng að kafararnir verða að losa af sér súrefniskútana til þess að komast í gegn. Narongsak Osottanakorn, leiðtogi björgunarað- gerðarinnar, segir drengina fjóra sem bjargað hefur verið vera við góða heilsu en farið var með þá í skyndingu á sjúkrahús eftir að þeir komu upp á yfirborðið. Fyrsti drengurinn kom upp úr hellunum klukkan 5.40 að staðartíma á sunnudag, annar tólf mínútum síðar og sá þriðji og fjórði kl. 7.40 og 7.50. Jafnvel bjartsýnustu spár höfðu ekki gert ráð fyrir að þeim yrði bjargað svo snemma. Flogið var með einn þeirra á sjúkrahús í borg- inni Chiang Rai en ekið með hina. „Strákarnir eru tilbúnir að takast á við hvað sem er,“ sagði Narongsak fréttamönnum um kafarana við hell- inn í gærmorgun. Sagði hann jafn- framt að björgun fyrstu fjögurra drengjanna hefði gengið vel en að ekki væri hægt að bjarga hinum strax með þeim súrefnisbirgðum sem eftir væru. Ekki sopið í kálið … Þótt bjartsýni ríki eftir björgun fyrstu drengjanna eru þeir sem eftir eru í hellunum alls ekki úr hættu. „Verki okkar er ekki lokið,“ sagði Narongsak á blaðamannafundi í gær. „Við verðum að framkvæma næstu björgunaraðgerð eins vel og þá í dag. Hinir krakkarnir eru allir á sama stað.“ Hann sagðist ekki geta tíma- sett næstu björgunaraðgerðir en væntanlega yrðu þær á mánudags- morgun. Björgunarliðið hefur unnið hörðum höndum við að veita vatninu út úr hellinum og vatnsborðið er nú lægra en það hefur verið frá því að dreng- irnir festust inni í hellinum. Vatns- borðið hafði lækkað um 30 cm á laug- ardaginn og drengirnir gátu því gengið hluta leiðarinnar til þess að mæta köfurunum. Að sögn Narong- saks verða aðstæðurnar til að bjarga drengjunum aldrei betri en þær voru í gær. Veðurskilyrði, dýpt vatnsins og hreysti strákanna sé eins góð og von- ast má til. Fjórir hólpnir, níu eftir  Fjórum taílenskum fótboltadrengjum bjargað úr Tham Luang-hellum í gær  Hlé gert á björgunaraðgerðum yfir nótt  Björgun heldur áfram í dag 32,5 m25 m 1m 2m 1,3 m 2,9 m 0,4 m Taíland: björgunaraðgerðin Heimildir: Association pyrénéenne de spéléologie, Expédition Thaï 87-88, bureaux Norðu Inngangur 200 m Norður Inngangur Áætluð hæð ganganna Hæsti punktur 10 m Tham Luang he l l i r i n n Tham Luang hellirinn Hafa verið innilokaðir frá 23. júní Tólf drengir á aldrinum 11 til 16 ára og 25 ára knattspyrnuþjálfari Taílands- flói BANGKOK 200 km M ÍA N M A R LAOS Þeir nota stöng til að rata «Gatnamót» (1,7 km frá börnunum) 3ja hvelfingin Mjög þröngur gangur sem skríða þarf í gegnum Grunnbúðir björg- unaraðgerðanna 11 klukkustundir tekur reyndan kafara að fara inn í hellinn og út Börnin fara eitt og eitt Tveir kafarar fylgja hverju barni Þar sem þröngt er þurfa kafarar og börnin að taka af sér súrefnisgeymana + 4 kílómetrar er vegalengdin sem fara þarf 100 m + 90 kafarar taka þátt, þar á meða 50 erlendir Hópurinn fannst hér Alþjóðlegt lið þaulreyndra sund- kappa fer fyrir björgunaraðgerð- unum í Taílandi. Alls hafa um 90 kafarar frá ýmsum löndum tekið þátt í þeim, þar af 40 taílenskir kafarar. Atburðarásin hefur þó sýnt að jafnvel mikil reynsla gerir verkið ekki auðvelt enda er um að ræða ellefu klukkustunda sund. Einn björgunarmannanna hefur drukknað í hellisgöngunum. Hét sá maður Saman Kunont og var köfunarliði úr taílenska sjóhern- um. Hann missti meðvitund á leið til baka eftir að hafa komið súr- efniskútum fyrir í göngunum. Dauði hans vakti björgunarsveit- ina til umhugsunar um það hvern- ig væri hægt að koma drengj- unum, sem eru 10-16 ára að aldri og margir ósyndir, út í dagsljósið. Kafararnir sem fundu drengina síðasta mánudag eru breskir og heita Richard Stanton og John Volanthen. Stanton hefur reynslu af svipuðum björgunaraðferðum en hann bjargaði manni sem hafði verið lokaður inni í mexíkóskum helli í tíu daga árið 2004. Samkvæmt grein New York Times segja kafararnir björgunina vera eina erfiðustu áskorun sem nokkur kafari gæti staðið frammi fyrir. Reynslan væri á við að klífa Everestfjall en án nokkurra leið- beininga eða fordæma. Belgíski kafarinn Ben Reymenants, sem var með í björgunarsveitinni sem fann drengina, segir að í köfun- inni þurfi maður að fikra sig áfram í myrkrinu þrep fyrir þrep án þess að skynja hvað tímanum líði eða hve djúpt maður sé kom- inn. Eins og að klífa Everestfjall BJÖRGUNARAÐGERÐIRNAR Í TAÍLANDI Björgun Kafarar í Tham Luang-hellum. FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2018 Ólíkar fregnir fara af samn- ingaviðræðum Bandaríkja- manna og Norð- ur-Kóreumanna, um að uppræta kjarnavopn Kór- euskagans sem fara fram um þessar mundir, eftir því hvorum megin við samningsborðið er spurt. Frá þessu er sagt á vef AFP. Tónninn í Norður-Kóreumönnum um viðræðurnar hefur verið mjög neikvæður og hafa þeir sakað Bandaríkjamenn um að ganga fram eins og „bófar“ í málinu. „Banda- ríkin virðast hafa misskilið velvild okkar og þolinmæði,“ stóð í til- kynningu frá norðurkóreska utan- ríkisráðuneytinu. Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lét sér fátt um finn- ast og lýsti því yfir að árangur hefði náðst í viðræðunum í ræðu sem haldin var í Tókýó. Þó lagði hann áherslu á að viðskiptaþving- unum gegn Norður-Kóreu yrði ekki hætt fyrr en landið hefði alfarið los- að sig við kjarnavopn sín. BANDARÍKIN, NORÐUR-KÓREA Misbjartsýnir við samningsborðið „Bófar“? Mike Pompeo. Franska þjóð- fylkingin (Ras- semblement nat- ional eða RN, áður Front nat- ional) hefur ver- ið sektuð um tvær milljónir evra og verður að greiða þær í dag. Frá þessu er sagt á frétta- vef Huffington Post. Ástæðan er dómur rannsóknardómara sem felldur hefur verið gegn fulltrúum flokksins á Evrópuþinginu. Flokks- menn eru sakaðir um að þiggja tvær milljónir evra frá ESB til að greiða aðstoðarmönnum sem ekki eru til. Marine Le Pen, formaður Þjóðfylkingarinnar, segir að vegna sektarinnar sé flokkurinn nú í reynd dauður þar til í ágúst. „Vilj- inn til að myrða stærsta stjórnar- andstöðuflokkinn er hrein aðför að lýðræðinu!“ FRAKKLAND Milljónasekt á Þjóðfylkinguna Sekt Marine Le Pen, leiðtogi RN.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.