Morgunblaðið - 09.07.2018, Side 32

Morgunblaðið - 09.07.2018, Side 32
Bieber á skeljarnar á Bahamaeyjum  Leikritið Tvískinnungur, nýtt verk eftir Jón Magnús Arnarsson, verður frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhúss- ins 19. október. Jón Magnús er ungt leikskáld og er Tvískinnungur fyrsta leikritið eftir hann sem fer á fjalirnar í Borgarleikhúsinu. Í því segir af tveim- ur leikurum sem takast á við tvísaga fortíð og í hlutverkum þeirra eru Har- aldur Ari Stefánsson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir. Persónur verksins nota hálfrímaðan texta til að særa og tæla, heilla, meiða, strjúka, svíkja, rífa upp og rífa niður – í leit að raunverulegum leikslokum, eins og það er orðað í til- kynningu frá leikhúsinu. Leikstjóri verksins er Ólafur Egill Egilsson en af öðrum sem koma að sýningunni má nefna tónlistarmann- inn Hermigervil sem semur tónlistina í verkinu. Tvísaga fortíð í Tvískinnungi Jóns MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 190. DAGUR ÁRSINS 2018 ÍR-ingurinn Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir gerði það heldur betur gott á Evrópumeistara- móti U18 ára í frjálsum íþrótt- um sem lauk í Ungverjalandi um helgina. Guðbjörg varð Evrópumeistari í 100 metra hlaupi og hreppti brons- verðlaunin í 200 metra hlaup- inu. „Markmiðið númer eitt, tvö og þrjú var að gera sitt besta og það gerði sigurinn ennþá sætari fyrir vikið,“ sagði Guðbjörg. »1 Frábær árangur hjá Guðbjörgu Stjörnumenn tylltu sér á topp Pepsi- deildar karla í knattspyrnu með 2:0 útisigri gegn Keflavíkingum, sem enn hafa ekki náð að vinna leik í deildinni á tímabilinu. FH-ingar komust aftur á sigurbraut með 2:1 sigri á heimavelli gegn Grindvíkingum og í Eyjum gerðu ÍBV og Breiðablik markalaust jafn- tefli þar sem Halldór Páll Geirsson, markvörður ÍBV, varði vítaspyrnu frá Gísla Eyjólfssyni undir lok leiksins. »4-5 Stjörnumenn tylltu sér á toppinn Guðni Bergsson, formaður Knatt- spyrnusambands Íslands, segist von- góður um að Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, geri nýjan tveggja ára samning en vilji er af beggja hálfu til að halda samstarf- inu áfram. Samningur Heimis við KSÍ rann út eftir að þátttöku Íslands á heimsmeistaramótinu í Rússlandi lauk. »1 Bjartsýnn á að Heimir haldi áfram Þeir sem skrá sig til leiks geta búið sína eigin dagskrá. Til aðgreiningar er dagskránni skipt niður í fjóra flokka sem hver hefur sinn lit. Allar keppnisgreinar eru merktar gular. Viðburðir þar sem þátt- takendum gefst tækifæri til að prófa eru merktir rauðir. Viðburðir sem eru opnir öllum eru merktir grænir. Alls konar við- burðir og afþreying í Skagafirði, sem þátttakendur hljóta afslátt af, eru merktir bláir. Búa til sína eigin dagskrá NÝTT LANDSMÓT VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Fjórir drengir komnir út úr helli 2. Tveir kafarar fylgja hverjum 3. Nú eru eftir níu – tímalína 4. Kattarfoss fyrir og eftir hamfarir »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM Á þriðjudag Suðvestan 8-13 og dálítil væta, en þurrt og bjart norðaustan- og austanlands. Hiti 10 til 20 stig. Á miðvikudag Sunnan 5-10 og rigning með köflum, en þurrt á Austurlandi. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast austanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 13-23, áfram hvassast norð- vestan til með snörpum hviðum og einnig á miðhálendinu. VEÐURÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Landsmót UMFÍ fer fram á Sauðár- króki um næstu helgi og von er á þús- undum gesta í bæinn. Mótið verður með nýju sniði að þessu sinni, þar sem áhersla er lögð á að allir geti tek- ið þátt og skráð sig í þær greinar sem þeir hafa áhuga á. Einstaklingar 18 ára og eldri geta skráð sig til leiks, hvort sem þeir eru í íþrótta- og ung- mennafélagi eða ekki. Ekki er því lengur um stigakeppni ungmennafélaganna að ræða, þannig að gömlu góðu landsmótsmetin munu standa. Um 40 ólíkar íþróttagreinar verða í boði, auk tónleika og ýmiss konar skemmtunar og fróðleiks fyrir unga sem aldna. Þannig verður Palla- ball í Íþróttahúsinu á laugardags- kvöld, að lokinni matarveislu, skemmtidagskrá og balli með Hljóm- sveit Geirmundar. Samhliða landsmótinu fer fram Meistarakeppni Íslands í frjálsum íþróttum, þar sem allir helstu frjáls- íþróttamenn landsins etja kappi sam- an. Einnig verður Landsmót 50+ í gangi með þátttöku 50 ára og eldri. Þá eru golfmót á Hlíðarendavelli og keppni í réttstöðulyftu í reiðhöllinni Svaðastöðum haldin utan landsmóts. Um 400 sjálfboðaliðar „Þettta er allt í fullum gangi og komið í ákveðið ferli. Keppnisstjórar hafa tekið við sínum verkefnum og fjöldi fólks verður að störfum allt þar til mótið hefst,“ segir Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFÍ, en hann reiknar með að sjálfboðaliðar á mótinu verði um 400 talsins, þar af um 100 í kringum frjálsar íþróttir. Von er á fyrstu gestunum á mið- vikudagskvöld og á fimmtudegi hefst dagskráin með fjallgöngum á Mæli- fell, Tindastól og Molduxa. Síðan tek- ur við fjölbreytt dagskrá um allan bæ frá föstudegi til sunnudagsins 15. júlí. „Við hvetjum alla til að koma og taka þátt á sínum forsendum. Það er líka bara hægt að fylgjast með og njóta margs konar afþreyingar,“ segir Óm- ar Bragi en sem dæmi má nefna að götuveisla og tónleikar fara fram í Aðalgötunni á föstudagskvöld, sem verður formleg mótssetning. Auddi Blö og Steindi Jr. skemmta, auk Sverris Bergmann og hljómsveit- arinnar Albatross. Hefðbundnar keppnisgreinar verða á sínum stað, eins og frjálsar íþróttir, körfubolti, fótbolti, glíma, sund og skák, að ógleymdum pönnu- kökubakstri. Einnig verður fjöldi nýrra greina í boði, eins og jóga, skíðaskotfimi, línudans, strandfót- bolti, frisbígolf og petanque, sem er nokkurskonar úti-botsía. Ómar Bragi segir alla íþrótta- aðstöðu á Sauðárkróki vera til fyr- irmyndar. Stutt sé að fara á milli keppnisvalla og -svæða, allt frá Flæðunum og suður fyrir Árskóla. Nýverið var nýr gervigrasvöllur tek- inn í notkun og Ómar Bragi segir tilkomu hans skipta miklu máli fyrir viðburð eins og þennan. Allir geta verið með á landsmóti  Allt að verða klárt fyrir Landsmót UMFÍ á Sauðárkróki um næstu helgi Ljósmynd/Ómar Bragi Stefánsson Keppnissvæðið Íþróttaaðstaðan á Sauðárkróki er með því besta sem þekkist en á dögunum var nýr gervigrasvöllur, fjær á myndinni, tekinn í notkun. Ómar Bragi Stefánsson  Nú fellir kannski einhver meyjan tár en stórstjarnan og Íslandsvinur- inn Justin Bieber ku hafa beðið kær- ustu sinnar, Hailey Baldwin, sl. laug- ardagskvöld og sagði fljóðið já. Þetta kemur fram á TMZ-vefnum, en Hailey Baldwin er 22 ára og starfar sem fyrirsæta og leikkona. Hún hefur m.a. leikið í Ocean’s Eight. Bónorðið ku hafa verið borið upp á veitingastað á Bahama- eyjum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.