Morgunblaðið - 10.07.2018, Side 1
Samkeppnis-
eftirlitið hefur
gefið Símanum
hf., og öðrum
aðilum, sem
kvörtuðu vegna
háttsemi RÚV á
auglýsinga-
markaði í
tengslum við
HM í knattspyrnu, frest til 20. júlí
til að skila frekari athugasemdum
áður en formleg ákvörðun verður
tekin um rannsókn eður ei. Meðal
þeirra upplýsinga sem Samkeppn-
iseftirlitið óskaði eftir frá RÚV í
frummati sínu, og RÚV staðfesti,
var að „enginn áskilnaður hafi ver-
ið gerður um lágmarkskaup og að
ekki hafi verið á nokkurn hátt lagt
að auglýsendum að ráðstafa aug-
lýsingafé sínu að öllu eða einhverju
tilteknu leyti til RÚV.“
Í kostunar- og auglýsingasamn-
ingspakka sem RÚV sendi á fyrir-
tæki fyrir HM, og Morgunblaðið
hefur undir höndum, kemur hins
vegar orðrétt fram að svonefndir
Premium-aðilar kaupi „að lág-
marki“ birtingar fyrir 10 milljónir
króna í júní og júlí. Sett var hámark
60 sekúndur í auglýsingum kring-
um hvern leik Íslands á HM, en sek-
únduverðið var 20 þúsund kr. »2
Auglýsendum sett
10 milljóna lágmark
Þ R I Ð J U D A G U R 1 0. J Ú L Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 160. tölublað 106. árgangur
SYNGJA
OG LEIKA
UM ÁSTINA
MEÐ
MANNABEIN
Á PRJÓNUM
SJÁLFSEYÐINGAR-
HVÖT WHITNEY
OG HÆFILEIKAR
TORFI FANNAR 30 NÝ HEIMILDARMYND 12EVA ÞYRI OG LILJA 31
Fyrstu keppendur í skútukeppnum á norðurhöfum komu til
hafnar í Reykjavík í gærkvöldi. Shetland Race-keppnin hófst í
Björgvin í Noregi og héldu skúturnar þaðan af stað til Ís-
lands, með viðkomu á Hjaltlandseyjum og í Færeyjum. Ís-
lenska skútan Xena var meðal þátttakenda og sigldi frá Fær-
eyjum í keppninni Viking Offshore Race.
Fyrstu skúturnar sigldu í mark við Reykjavíkurhöfn
Morgunblaðið/Valli
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Með kaupum á Hótel Kötlu er um
4.700 hektara jörð komin í meiri-
hlutaeigu erlendra fjárfesta. Jörðin
nær yfir hluta Mýrdalssands.
Eignarhaldið er í gegnum 75%
eignarhlut bandarískra fjárfestinga-
félaga í Keahótelum.
Hótel Katla er á jörðinni Höfða-
brekku. Með henni fylgja veiðirétt-
indi og flugvöllur. Rúmlega 100 her-
bergi eru á hótelinu. Það verður eitt
af ellefu hótelum Keahótela. Á
Höfðabrekku er nú lítil þyrping
húsa. Búskap hafði verið hætt á
bænum.
Munu flytja af jörðinni
Jóhannes Kristjánsson átti Hótel
Kötlu ásamt eiginkonu og börnum.
Hann segir þau selja hótelið með öllu
sem fylgir jörðinni. Fjölskyldan
muni flytja af jörðinni eftir söluna.
Fyrir á Svisslendingurinn Rudolf
Walter Lamprecht jarðir, hús og
veiðiréttindi í Mýrdalshreppi. Með
kaupunum á Hótel Kötlu fá nýir eig-
endur aðgang að Kerlingardalsá og
Vatnsá í gegnum félag þar sem
Lamprecht er í meirihluta. Þá eiga
bændur hlut í veiðifélaginu.
Erlendir aðilar hafa jafnframt
sýnt jörðinni Hjörleifshöfða áhuga.
Sigurður Sigurðsson, löggiltur
fasteignasali hjá Lögmönnum Suð-
urlandi, segir verðhugmyndir um
Hjörleifshöfða hafa breyst. Rætt var
um 500-1.000 milljónir fyrir jörðina í
fyrrasumar. Sigurður segir þá fjár-
hæð hafa helmingast. Samkvæmt því
er nú rætt um 250-500 milljónir.
Mýrdalshreppur kynnti í júní
breytingu á aðalskipulagi. Þar var
áætlað að um 1,4 milljónir ferða-
manna hefðu ferðast um Mýrdals-
hrepp í fyrra. Þá áætli Vegagerðin
að 888 þús. bílar hafi farið um Vík í
fyrra, þrefalt fleiri en 2012.
4.700 hektara jörð
seld með hóteli
Erlendir fjárfestar stórauka umsvif sín í Mýrdalshreppi
Dyrhólaey Fjörurnar við Vík hafa
mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn.
MEignast hluta af … »11
Morgunblaðið/Eggert
Mikill viðbúnaður var á Melrakka-
sléttu í gærkvöldi vegna hvítabjarn-
ar sem talinn var hafa sést þar. Lög-
reglunni á Norðurlandi eystra
bárust síðdegis í gær upplýsingar
frá frönskum ferðamönnum um að
sést hefði til bjarnarins suður af
Hraunhafnarvatni. Ekki var búið að
staðfesta að um bjarndýr hefði verið
að ræða, þegar blaðið fór í prentun.
Þyrla frá Landhelgisgæslunni
með lögreglumenn innanborðs flaug
yfir svæðið í gær og leitaði bjarn-
arins, en lögregla var einnig með
viðbúnað á jörðu niðri. Til stóð að
leita fram eftir nóttu svo lengi sem
eldsneyti þyrlunnar dygði til. Fjölda
fólks dreif að á Melrakkasléttu til að
fylgjast með leitinni. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Leit Ólafur Hjörtur Ólafsson lög-
reglumaður á vettvangi í gær.
Leitað að
hvítabirni