Morgunblaðið - 10.07.2018, Page 2

Morgunblaðið - 10.07.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Komið og skoðið úrvalið Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Klassísk gæða húsgögn á góðu verði Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Ísjakarnir í Húnaflóa eru nú báðir á leið út flóann. Annar þeirra er nú mun stærri en hinn og stefnir hrað- byri út á rúmsjó og varð hans vart við bæinn Björg í fyrradag. Sá minni fór mun hægar yfir og var sama dag við Örlygsstaði, nær Skagaströnd þar sem hann virtist hafa strandað. Stóran borgarísjaka, um 120 til 130 metra á lengd og breidd, rak inn Húnafjörð í síðustu viku. Síðar velti hann sér og brotnaði í jakana tvo. Sjaldgæft er að mikill hafís sé á svæðinu á þessum árstíma. Nokkur fjöldi ferðamanna virti jakana fyrir sér og tók af þeim myndir frá landi. Varað er við sigl- ingum upp við stóra ísjaka þar sem þeir geta velt sér snögglega og kom- ið af stað stórum bylgjum. Á leið út Húnaflóann  Ísjakarnir hafa breytt um stefnu og stefna í norður Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Jaki Stærri jakinn var í fyrradag við bæinn Björg, á hraðferð út flóann. Yfirskattanefnd hefur hafnað kröfu manns, sem taldi, að bíll hans hefði komið á götuna árið 1993, væri því orðinn 25 ára og því ætti ekki að greiða af honum bifreiðagjald á þessu ári. Bæði ríkisskattstjóri og yfir- skattanefnd vísuðu til þess að sam- kvæmt ökutækjaskrá Samgöngu- stofu væri bíllinn, sem er af gerðinni Land Cruiser 80, skráður árgerð 1994, þótt þar komi einnig fram, að fyrsti skráningardagur bílsins væri 1. janúar 1993. Bíllinn var fluttur hingað til lands notaður árið 1997 frá Þýskalandi. „Eins og framangreindum reglum um álagningu bifreiðagjalds er háttað þykja ekki forsendur til annars en að byggja á skráðum upplýsingum Samgöngustofu um árgerð bifreiðarinnar við álagningu bifreiðagjalds,“ segir m.a. í úr- skurði yfirskattanefndar. Tekið er fram að hægt sé að kæra þennan úrskurð til fjármálaráðherra. Deilt við skattinn um aldur bíls  Var fyrst skráður 1993 en er árgerð 1994 Bíll Hvaða árgerð skyldi þessi vera? Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Samkeppniseftirlitið telur ekki tilefni til að taka háttsemi RÚV á auglýs- ingamarkaði í tengslum við heims- meistaramótið í knattspyrnu (HM) til rannsóknar. Þetta er niðurstaða frummats sem Samkeppniseftirlitið sendi frá sér í gær. Kvartandi, Síminn hf, sem og aðrir aðilar á auglýsingamarkaði hafa til 20. júlí til að senda frá sér frekari athuga- semdir áður en endanleg niðurstaða fæst í málið. „Þegar okkur berast kvartanir er það hlutverk Samkeppn- iseftirlitsins að meta hvort það sé ástæða til þess að taka málið til form- legrar athuganar og það er það sem við höfum verið að gera. Það er frum- mat okkar miðað við það sem fram hefur komið að það sé ekki ástæða til þess. Hins vegar kemur skýrt fram að við erum að kynna þetta frummat bæði fyrir kvartanda og síðan öðrum þeim aðilum sem starfa á markaðnum og gefa þeim síðan færi á að koma sjónarmiðum á framfæri fyrir 20. júlí. Að fengnum þeim sjónarmiðum munum við taka endanlega afstöðu til þess hvort þörf sé á að rannsaka mál- ið frekar,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Orri Hauksson, forstjóri Símans, segir í samtali við Morgunblaðið að Síminn muni senda frá sér frekari gögn til Samkeppniseftirlitsins. Skekkja áfram til staðar Páll segir stofnunina hafa áður tek- ið fyrir þá skekkju sem er á auglýs- ingamarkaði vegna RÚV en bendir á að það sé löggjafans að leysa það. „Við vísum í frummatinu í álit frá 2008 sem síðan hefur verið fylgt eftir og leiddi til breytinga á lögum sem gilda um RÚV. Við erum að mælast til þess aftur við stjórnvöld á þessu sviði að það sé hugað að þessu að nýju. Það er áfram til staðar sú skekkja á auglýs- ingamarkaði að einn af keppninaut- unum þ.e. RÚV er í annarri stöðu en hinir því samhliða því að hafa tekjur af auglýsingum hefur hann tekjur af skattfé. Það er skekkja sem við höfum bent á fyrir löngu síðan en er ekki eitthvað sem er hægt að laga í rann- sókn sem færi af stað í tilefni þessarar kvörtunar. Það er löggjafinn sem þarf að huga að því,“ segir Páll. Fjölmiðlanefnd rannsakar enn Fjölmiðlanefnd hefur einnig borist kvörtun vegna háttsemi RÚV á aug- lysingamarkaði í tengslum við HM í knattspyrnu. Í frummati Samkeppniseftirlitsins kemur fram að fjölmiðlanefnd hefur málið enn til rannsóknar og að niðurstaða liggi ekki fyrir. Meðal þeirra upplýsinga sem Samkeppniseftirlitið óskaði eftir frá RÚV, og RÚV staðfesti, var að „enginn áskilnaður hafi verið gerður um lágmarkskaup og að ekki hafi ver- ið á nokkurn hátt lagt að auglýsend- um að ráðstafa auglýsingafé sínu að öllu eða einhverju tilteknu leyti til RÚV,“ segir m.a. í frummatinu. Í kostunar- og auglýsingasamn- ingspakka sem RÚV sendi á fyrirtæki fyrir HM, og Morgunblaðið hefur undir höndum, kemur hins vegar orð- rétt fram að svonefndir Premium-að- ilar kaupi „að lágmarki“ birtingar fyr- ir 10 milljónir króna í júní og júlí. Sett var hámark 60 sekúndur í auglýsing- um kringum hvern leik Íslands á HM, en sekúnduverðið var 20 þús. kr. Óskað eftir frekari gögnum um RÚV  Samkeppniseftirlitið rannsakar ekki háttsemi RÚV á auglýsingamarkaði í tengslum við HM  Óskar eftir frekari gögnum frá aðilum máls  Auglýsingapakki á RÚV fyrir HM kostaði lágmark 10 milljónir Morgunblaðið/Eggert Áhorf Fjöldi fólks fylgdist með HM. Vætutíðin hefur verið slík í höfuðborginni það sem af er júlímánuði að unga kynslóðin mætir í pollagöllum til að leika sér í Nauthólsvíkinni. Sólin hefur verið víðsfjarri og ef marka má spár Veð- urstofunnar má reikna með áframhaldandi vætu næstu daga, með einstaka uppstyttu þess á milli. Engin sól. Morgunblaðið/Eggert Í pollagöllum í Nauthólsvík Allt tiltækt slökkvilið Norðurþings var kallað út á áttunda tímanum í gærkvöldi vegna elds í kísilveri PCC á Bakka við Húsavík. Eldurinn blossaði upp milli hæða í ofnhúsi og greiðlega gekk að slökkva hann. „Við erum alveg að klára vinn- una hér,“ sagði Grímur Kárason, slökkviliðsstjóri á Húsavík, í samtali við mbl.is um klukkan tíu í gær- kvöldi, en þá vann slökkviliðið að reykræstingu og leitaði að glæðum. Engan sakaði í eldinum. Kísilverið hóf framleiðslu í byrjun maí. Slökkt var á ofni kísilversins síðar í maí vegna bilunar í stjórn- kerfi brúkrana í steypuskála. Einnig hömluðu ýmis önnur vandkvæði gangsetningu. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Bakki Slökkviliðið að störfum í gær. Eldsvoði í kísilverinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.