Morgunblaðið - 10.07.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 10.07.2018, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2018 PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Umhverfisstofnun hefur veitt Ferðafélagi Íslands leyfi til þess að setja upp vegvísa á leiðinni um Fimmvörðuháls, frá Skógafossi í Strákagil. Fram kemur í bréfi Umhverfis- stofnunar til Ferðafélagsins að um sé að ræða tréstaura sem verða sett- ir niður og vegvísa úr ryðfríu stáli, sem settir verða efst á staurana. Samtals verða vegvísarnir þrír. Einn verður staðsettur um 200 metra ofan við göngubrú og vað á Skógá, annar verður í móum beint austur af Horn- felli og sá þriðji verður um 100 metra ofan við útsýnispall við Skógafoss. Fram kemur í bréfinu að gert sé ráð fyrir að 8-12.000 ferðamenn, sem fara Fimmvörðuháls ár hvert, muni nýta sér vegvísana. Umhverfisstofnun metur það svo að framkvæmdin muni ekki hafa teljandi neikvæð áhrif á verndargildi svæðisins. Páll Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Ferðafélags Íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að þeir hjá Ferðafélaginu væru ánægðir með hversu hratt og vel Umhverfisstofnun afgreiddi erindi félagsins. „Við hyggjumst setja upp þessa vegvísa á Fimmvörðuhálsi, fyrst og fremst af öryggisástæðum, að leið- beina fólki rétta leið, en einnig af umhverfisástæðum, því þarna er mjög viðkvæm náttúra og því mik- ilvægt að fólk haldi sig á réttri leið,“ sagði Páll. Hann segir að Ferðafélagið vilji sem fyrst ráðast í uppsetningu veg- vísanna, sem verði eins og veg- vísarnir sem Ferðafélagið setti upp á Laugaveginum í fyrrasumar. „Við erum reynslunni ríkari eftir það, þ.e. hvernig vegvísarnir komu undan vetri. Skiltin veðrast mjög vel og standast þau veður sem við búum við,“ sagði Páll. Hann reiknar með að kostnaður- inn við vegvísana verði á milli tvær og þrjár milljónir króna. Vegvísarnir á Laugaveginum hafi kostað um fjórar milljónir króna. Allur kostn- aður við framkvæmdina sé greiddur af Ferðafélagi Íslands. Fimmvörðuháls Öryggi ferðamanna á Fimmvörðuhálsi á að aukast með tilkomu þriggja nýrra vegvísa. Vegvísar verða settir upp á Fimmvörðuhálsi í sumar  Umhverfisstofnun heimilar uppsetningu þriggja vegvísa Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Nokkuð hefur verið um það að ferðamenn, einkum kínverskir, kaupi snyrtivörur á Íslandi í mikl- um mæli. Þetta stað- festir Brynjar Ingólfs- son, rekstrarstjóri innkaupa- og markaðs- sviðs Hagkaupa. „Það er ekkert óalgengt að einstaka asískar konur séu að versla snyrtivör- ur fyrir 150 til 300 þús- und krónur,“ segir Brynjar. Hann nefnir að Sóley og Taramar seljist ágætlega en segir flesta ferðamennina fylla körf- urnar af Bioeffect. Vör- urnar eru vinsælar í Asíu og töluvert dýrari þar en hér. Brynja Magnúsdóttir, sölustjóri Bioeffect, segir að snyrti- vörurnar séu vel markaðssettar í Kína. „Við erum komin á fjölda- markað út um allan heim. Við erum að sjá svipað gerast í Danmörku, Asíu og Kanada til dæmis.“ Hún segir ferðamennina versla mikið á Íslandi því varan er ódýrari hér. Bioeffect er íslenskur framleiðandi, varan framleidd á Íslandi og því er hún ódýrari hérlendis. Snyrtivaran hefur verið seld í Kína og Japan í nokkur ár, að sögn Brynju. „Svo er EGF, aðalinnihalds- efnið í vörunum, eitt- hvað sem Asíubúar þekkja mjög vel.“ Aðspurð hvaða þættir gætu leitt til þess að Kínverjar kaupi snyrti- vörurnar hér á landi í svo miklu magni segir Brynja að það gæti ver- ið vegna þess að eftir- líkingar eru algengar í þeirra heimalandi. „Þeir vita að þeir eru að fá upprunalegu vöruna á Íslandi.“ Brynja nefnir einnig aðra þætti sem gætu haft áhrif á kaup- hegðunina: „Þeir eru að versla svolítið öðruvísi en aðrir neytendur og kaupa svolít- ið mikið í einu. Kínverjar ferðast mikið í hópum líka og þess vegna eru þeir að kaupa mikið í einu. Þeir versla þannig almennt, kaupa í miklu magni og fyrir alla fjölskyld- una.“ Íslenskar snyrti- vörur eftirsóttar  Ferðamenn eyða háum fjárhæðum Héraðssaksóknari hefur ákært Val Lýðsson fyrir manndráp á bænum Gýgjarhóli II í Bláskógabyggð að- faranótt laugardagsins 31. mars 2018, en í ákæru segir að hann hafi veist með ofbeldi að bróður sínum, Ragnari Lýðssyni, með þeim afleið- ingum að hann lést. Valur var búsettur á Gýgjarhóli, en bróðir hans Ragnar var þar í heimsókn. Samkvæmt ákæru héraðs- saksóknara sló Valur bróður sinn ítrekuðum hnefahöggum í höfuð og líkama, auk þess að sparka og/eða trampa ítrekað á höfði hans og lík- ama. Af þessu hlaut Ragnar marg- víslega áverka á líkama og höfði. Ragnar hlaut alvarlegan högg- áverka ofarlega vinstra megin á enni, sem olli sári bæði á hörundi, blæðingu innan í höfuðkúpu og snöggri breytingu á meðvitundar- stigi. Af höggáverkanum hlutust einnig ógleði, svimi og uppköst. Leiddi þetta til þess að Ragnar lést af banvænni innöndun magainni- halds. Í málinu gera fjórir einstaklingar einkaréttarkröfur og krefjast tíu milljóna króna í miskabætur, hver fyrir sig. Málið verður höfðað fyrir Héraðsdómi Suðurlands. Ákærður fyrir að bana bróður sínum að Gýgjarhóli II Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Forstjóri Símans telur að ef úr- skurður Póst- og fjarskiptastofnun- ar, er varðar brot Símans á fjöl- miðlalögum, standi muni það koma einna mest niður á neytend- um. Þá muni það leiða til aukins umhverfisrasks og minni fram- leiðslu á íslensku efni. „Afstaða Póst- og fjarskipta- stofnunar í mál- um gagnvart Símanum gæti þýtt að það þyrfti að tvífjárfesta í innviðum á ákveðnum stöðum í stað þess að við fengjum aðgang að kerfum Gagnaveitu Reykjavíkur gegn gjaldi. Það eru auðvitað óþarfa um- hverfisspjöll. Þá verður þetta til þess að við framleiðum minna af ís- lensku efni ef samkeppnisaðilinn getur sýnt það á sama tíma og við,“ segir Orri Hauksson, forstjóri Sím- ans, um úrskurð Póst- og fjarskipta- stofnunar. Á ekki við rök að styðjast Brot Símans fólst í því að neyt- endur sem hafa viljað kaupa áskrift að ólínulegu sjónvarpsefni Símans, hafa þurft að vera með myndlykil frá Símanum. Ólínulegu myndefni Símans var frá og með 1. október 2015 einungis dreift í myndlykla Símans en fyrir þann dag var hægt að sjá efnið í gegnum kerfi Voda- fone. Í úrskurði Póst- og fjarskipta- stofnunar kemur fram að það sé mat stofnunarinnar að Síminn hafi ekki sýnt „raunverulegan vilja“ til að ná samkomulagi við Vodefone um lausn á sjónvarpsdreifingu. Þá hefði einn- ig verið hægt að koma í veg fyrir þau skaðlegu áhrif sem ráðstafan- irnar höfðu á Gagnaveitu Reykjavík- ur með því að ná samkomulagi við hana um aðgang að ljósleiðaraneti hennar. Spurður um hvort fyrrgreind nið- urstaða Póst- og fjarskiptastofnunar eigi við rök að styðjast kveður Orri nei við. Þá muni úrskurður stofn- unarinnar verða lagður fyrir héraðs- dóm. „Þeir (Gagnaveita Reykjavíkur) hafa reynt að halda sínu kerfi lok- uðu og ekki viljað hleypa okkur inn í það. Það væri best ef við fengjum að tengja okkur við þá í stað þess að þurfa að fara í óþarfa framkvæmdir næstu ár og áratugi. Við höfum við boðið þeim háar fjárhæðir fyrir að komast inn í kerfið en því hafa þeir alltaf hafnað,“ segir Orri. Ný lausn kynnt til sögunnar Í næsta mánuði mun Síminn kynna til leiks nýja sjónvarpsþjón- ustu, svokallaða OTT (e. over the top), en með henni verður deila varðandi sjónvarpsdreifingu úr sög- unni. „Það í rauninni skiptir ekki máli hvar þú ert, OTT virkar á öllum netum og óháð dreifikerfi eða int- ernetþjónustuaðila. Þetta er bara lítið box sem aðlagar sig þeirri net- tengingu sem er í boði og gæðin verða í samræmi við það. Þetta er svipuð tækni og Netflix notar og mun koma til með að leysa vanda- mál í tengslum við sjónvarpsdreif- inguna,“ segir Orri en bætir þó við að hann vonist til að hægt verði að ná samkomulagi við Gagnaveitu Reykjavíkur um sölu á internetþjón- ustu. „Við viljum enn ná samkomulagi við Gagnaveitu Reykjavíkur um sölu á internetþjónustu í gegnum þeirra innviði. Það er vonandi að það náist sátt í því sem fyrst svo að við getum keppt á þeim markaði í gegnum kerfi Gagnaveitu Reykjavíkur,“ seg- ir Orri. Úrskurður sem ekki stenst skoðun  Forstjóri Símans segir að úrskurður Póst- og fjarskiptastofnunar bitni helst á neytendum  Stofn- unin segir „raunverulegan vilja“ hafa vantað  Síminn kynnir nýja lausn til sögunnar í næsta mánuði Orri Hauksson Dreifing sjónvarpsefnis » Ný sjónvarpsþjónusta kynnt til sögunnar í næsta mánuði. » Forstjóri Símans segir úrskurð Póst- og fjarskipta- stofnunar ekki eiga við rök að styðjast. » Síminn hefur boðið Gagna- veitu Reykjavíkur háar fjár- hæðir gegn því að fá að nota kerfið þeirra en því hefur alltaf verið hafnað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.