Morgunblaðið - 10.07.2018, Síða 11
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Eignarhlutur erlendra aðila á jörðum
í Mýrdalshreppi eykst með sölu á
Hótel Kötlu til félags sem er í 75%
eigu erlendra fjárfestingafélaga.
Með kaupunum á Hótel Kötlu
fylgja 4.700 hektarar lands, veiðirétt-
indi og flugvöllur. Veiðiréttindin
tengjast veiðifélagi þar sem sviss-
neskur auðmaður er í meirihluta.
Þá hafa erlendir aðilar sýnt áhuga
á jörðinni Hjörleifshöfða.
Straumur ferðamanna um svæðið
hefur stóraukist síðustu ár. Fjaran
hefur mikið aðdráttarafl og Vík í
Mýrdal hentar sem áningarstaður á
leiðinni austur.
Hótel Katla er á jörðinni Höfða-
brekku sem er austur af Vík. Alls 103
herbergi eru á hótelinu. Heimamenn
lögðu hönd á plóg við byggingu hót-
elsins á sínum tíma.
Ræktað land yfir 80 hektarar
Fjórar fasteignir við Höfðabrekku
eru skráðar í fasteignaskrá.
Í fyrsta lagi jörðin Höfðabrekka
með gistihúsum, íbúðarhúsnæði,
véla- og verkfærageymslu, búnings-
aðstöðu, lax- og silungsveiði, mót-
töku- og veislusal og þvottahúsi.
Ræktað land er sagt 82,3 hektarar.
Í öðru lagi lóðirnar Höfðabrekku I,
II og III. Þar eru skráð 243 og 229
fermetra íbúðarhús. Þau voru í eigu
hjónanna Sólveigar Sigurðardóttur
og Jóhannesar Kristjánssonar og
fjölskyldu. Hjónin seldu Hótel Kötlu í
sumar. Þau áttu 90% en synir þeirra
10%. Jóhannes segir aðspurður að
jörðin Höfðabrekka sé um 4.700
hektarar. Ræktuð tún eru því aðeins
brot af landinu. Jörðin nær yfir hluta
Mýrdalssands og fjalllendi.
Flugvöllur er á jörðinni Höfða-
brekku sem Jóhannes segir tilheyra
Flugmálastjórn. „Við heyjuðum
svæðið þegar við vorum í landbúnaði.
Það er enginn landbúnaður lengur á
Höfðabrekku. Það eru bændur í
sveitinni sem heyja þetta,“ segir Jó-
hannes um svæðið.
Veiðiréttindi fylgja
Höfðabrekka er ásamt bænum
Reynisbrekku skráð fyrir 13,8% hlut
í félagi um veiði í Kerlingardalsá og
Vatnsá. Hlutur Reynisbrekku er þar
af rúmlega helmingur.
Jóhannes segir veiðina hafa gengið
upp og ofan. „Þetta var mjög dapurt í
fyrra. Við höfum leigt þetta Sviss-
lendingnum Rudolf Lamprecht.
Hann á helminginn af veiðiréttindum
í Kerlingardalsá á móti nokkrum
bændum,“ segir Jóhannes.
Hann segir þau Sólveigu hafa átt
annað einbýlishúsið á Höfðabrekku.
„Sonur okkar, Ingvar, átti annað.
Þetta var allt selt með hótelinu. Við
búum reyndar enn á Höfðabrekku en
erum á leiðinni í burtu. Við seldum
hótelið með öllu saman,“ segir Jó-
hannes en fjölskyldan seldi hótelið til
félagsins Eitt hótel, sem seldi það svo
til Keahótela. Samkvæmt Creditinfo
er félagið Eitt hótel ehf. í jafnri eigu
Andra Gunnarssonar og Fannars
Ólafssonar.
Erlend félög eiga meirihluta
Greint var frá því í sumar að Kea-
hótelin hefðu keypt Hótel Kötlu á
Höfðabrekku í Mýrdalshreppi.
Eigendaskipti urðu hjá Keahótel-
um í fyrrasumar. Fram kom í til-
kynningu frá Íslandsbanka í ágúst að
félagið K Acquisition ehf. hefði keypt
hótelið. Hluthafar í því væru JL Pro-
perties (25%), Pt Capital Advisors
(50%) og íslenska fjárfestingafélagið
Tröllahvönn (25%). Sagði í tilkynn-
ingu Keahótela að JL Properties
væri leiðandi fasteignafélag í Alaska.
Auk þess að fjárfesta í Alaska hefði
félagið fjárfest í Utah, Georgíu og
Flórída. Pt Capital Advisors væri
dótturfélag Pt Capital, fjárfestinga-
félags með höfuðstöðvar í Anchorage
í Alaska. Félagið hefði áður fjárfest á
Íslandi með því að kaupa meirihluta í
símafyrirtækinu Nova í mars 2017.
Samkvæmt þessu eiga erlendir að-
ilar nú 75% í Keahótelunum. Af því
leiðir að þeir eiga sama hlut í Hótel
Kötlu í gegnum K Acquisition.
Hjörleifshöfði til sölu
Austur af Höfðabrekku er jörðin
Hjörleifshöfði. Sú jörð er tæpir
12.000 hektarar. Jörðin er í eyði.
Sigurður Sigurðsson, sölumaður
og löggiltur fasteignasali hjá Lög-
mönnum Suðurlandi, segir jörðina
enn til sölu. Margir hafi sýnt áhuga.
„Það hafa verið fyrirspurnir um þá
jörð undanfarið. Þetta er frábær
staður og stórt svæði.“
Fram kom í Morgunblaðinu í
fyrrasumar að verðhugmynd væri á
bilinu hálfur til einn milljarður. Jörð-
in væri 11.500 hektarar. Var jafn-
framt haft eftir Ólafi Björnsyni,
hæstaréttarlögmanni og löggiltum
fasteignasala hjá Lögmönnum Suð-
urlandi, að þótt ekki hefði borist til-
boð í jörðina væri áhugi hjá inn-
lendum og erlendum fjárfestum.
Nýlega hefði komið hópur frá Banda-
ríkjunum sem var í leit að sérstæðum
stað fyrir lúxushótel.
Rætt um 250-500 milljónir
Sigurður segir verðmiðann hafa
lækkað. „Það hafa verið lægri hug-
myndir í gangi undanfarið. Mér sýn-
ist verðið hafa nærri því helmingast,“
segir Sigurður. Samkvæmt því er nú
rætt um 250-500 milljónir fyrir jörð-
ina Hjörleifshöfða.
Samkvæmt Fasteignaskrá eiga
þau Þórir Níels, Áslaug og Halla
Kjartansbörn Hjörleifshöfða í Mýr-
dalshreppi. Þau eru á áttræðisaldri.
Hvert þeirra á 33,33% hlut.
Fyrirhugað fasteignamat jarðar-
innar 2019 er 694 þúsund krónur. Þar
eru meðal annars nytjar af reka.
Engar fasteignir virðast skráðar á
jörðinni í fasteignaskrá.
Svisslendingur í veiðiskap
Athygli vakti þegar áðurnefndur
Rudolf Walter Lamprecht keypti
jarðirnar Engigarð og Litlu- og
Stóru-Heiði árið 2003 með til-
heyrandi veiðiréttindum við Heiðar-
vatn. Á hann meirihluta í félagi sem
fer með veiðiréttindi í Kerlingardalsá
og Vatnsá. Lax er í ánum og líka
bleikja og sjóbirtingur. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er Lamp-
recht áhugamaður um skógrækt.
Hann hafi látið planta mörgum birki-
trjám á svæðinu.
Heiðarlax er í fasteignaskrá skráð-
ur eigandi sumarbústaðalands á
Litlu-Heiði. Þá er veiðifélag Kerling-
ardals- og Vatnsár skráður eigandi
veiðihúss á Litlu-Heiði. Lamprecht
er skráður umráðandi hússins. Loks
er Heiðarlax skráður fyrir sumarhúsi
á Litlu-Heiði og er Lamprecht sem
eigandi Heiðarlax umráðandi þess.
Á Stóru-Heiði er bústaður og lóð
sem er annars vegar skráð á einka-
aðila og hins vegar á Mýrdalshrepp.
Eignast hluta af Mýrdalssandi
Með kaupunum á Hótel Kötlu eignast félag sem er í 75% eigu erlendra aðila um 4.700 hektara jörð
Þar er flugvöllur Svisslendingur á jarðir í nágrenninu Erlendir aðilar skoða Hjörleifshöfða
Veiðifélag Kerlingadalsár og Vatnsár Eignir Rudolf Walter
Lamprecht við Heiðarvatn
Jörðin Engigarður: 100%
Jörðin Stóraheiði: 100%
Jörðin Litlaheiði: 100%
Veiðifélag Kerlingadalsár
og Vatnsár: 54,2%
Höfðabrekka
Land: 4.700 hektarar.
Eigandi: K Acquisition.
Hlutur í veiðiréttindum: 13%
(ásamt Reynisbrekku)
Hjörleifshöfði
Land: 11,500 hektarar.
Mögulegt söluverð:
250-500 milljónir
Vík
Hótel Katla
Engigarður
Litla-Heiði
Stóra-Heiði
Höfðabrekka
Dyrhólaey
Heiðarvatn
Vatnsá
Kerlingadalsá
Hjörleifs-
höfði
Heimildir: Creditinfo og Fasteignaskrá
Hluthafi Eignarhlutur
Fagridalur 14,0%
Höfðabrekka/
Reynisbrekka 13,8%
Kerlingadalur 18,0%
Rudolf Walter
Lamprecht 54,2%
*Dótturfélag Pt
Capital sem er
með höfuðstöðvar
í Anchorage,
Alaska. Félagið
keypti meirihluta
í símafyrirtækinu
Nova árið 2017.
K Acquisition
100%
Kea Hotels
JL Properties
25%
Tröllahvönn
25%
Pt Capital Advisors*
50%
Kea Hotels
Eignarhald
Morgunblaðið/Ómar
Náttúrufegurð Fjöldi ferðamanna skoðar fjöruna við Vík í Mýrdal. Fjárfestar sýna svæðinu áhuga.
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2018
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR
www.skornirthinir.is
ÖRUGG SKREF
ÚT Í LÍFIÐ
í fyrstu skónum frá Biomecanics
Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka fyrstu skrefin.
Aukinn stuðningur frá hliðunum bætir jafnvægi og eykur
stöðugleika. Börnin komast auðveldar áfram og af meira
öryggi þökk sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá.
Stærðir: 18–24
Verð: 7.995
Margir litir
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
40-50%
ÚTSALA - ÚTSALA
afsláttur