Morgunblaðið - 10.07.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2018
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Hún var svört söngkona ídrifhvítum poppheimi 9.áratugarins þar semundantekningarnar voru
stórstjörnur á borð við Michael Jack-
son og Prince. En Whitney Houston
var ekki nógu svört fyrir þá sem réðu
lögum og lofum í svarta tónlistar-
heiminum á 9. áratugnum, útvarps-
stöðvar sem spiluðu tónlist svartra
tónlistarmanna neituðu að spila lög
hennar, hún var hrópuð niður á
tónlistarhátíð svartra og var upp-
nefnd „Whitey“ eða Hvíta.
Um þetta og margt annað er
fjallað í nýrri heimildamynd um söng-
konuna dáðu, sem lést á svo sviplegan
hátt langt fyrir aldur fram. Myndin
heitir einfaldlega Whitney, henni er
leikstýrt af skoska leikstjóranum
Kevin Macdonald og hún er nú komin
í sýningar víða um heim eftir að hafa
fengið afbragðsgóðar viðtökur á kvik-
myndahátíðinni í Cannes í maí.
Whitney Houston fæddist 9.
ágúst 1963, hún ólst upp í Newark í
New Jersey-ríki og var tónlist í há-
vegum höfð á heimili hennar. Móðir
hennar, Cissy Houston, var þekkt
söngkona sem m.a. stofnaði The
Sweet Inspirations, vinsæla kvenna-
sveit sem söng R&B tónlist á 7. ára-
tugnum. Söngstjarnan Dionne War-
wick var náfrænka hennar og
Whitney var farin að syngja opin-
berlega á barnsaldri. Hún vakti at-
hygli plötufyrirtækisins Arista, und-
irritaði samning við fyrirtækið árið
1983 og tveimur árum síðar kom
hennar fyrsta plata út. Hún hét ein-
faldlega Whitney Houston, á henni
voru lög á borð við Saving all my love
for your, How will I know og Greatest
love of all. Platan sat í efstu sætum
vinsældalista um allan heim og er
söluhæsta sólóplata nýliða fyrr og
síðar.
Fordæmalaus velgengni
Það sem á eftir fylgdi hefur verið
fært í sögubækur, en velgengni
Houston á sér fá fordæmi og hún er
sá kvenkyns tónlistarmaður sem hef-
ur fengið flest verðlaun. Það sem síð-
ar gerðist; hjónabandið við tónlistar-
manninn Bobby Brown sem beitti
hana margvíslegu ofbeldi, fíkniefna-
neyslan og sorgleg endalok þessarar
hæfileikaríku listakonu er flestum
kunnugt. Hún fannst látin í baðkeri á
herbergi sínu á Beverly Hilton-
hótelinu í Los Angeles árið 2012, en
hún hafði um árabil átt við ýmiss kon-
ar fíkniefna- og neysluvanda að
stríða.
Mynd Macdonalds er síður en
svo fyrsta heimildamyndin sem gerð
er um Whitney Houston. En þetta er
sú fyrsta sem gerð er í samráði við
aðstandendur hennar. Hún var um
tvö ár í vinnslu og þar er talað við um
70 ættingja hennar og aðstandendur.
Þá er í myndinni talsvert af áður
óbirtu efni úr einkalífi Houston.
Í myndinni segir Mary Jones,
sem var aðstoðarkona Houston um
margra ára skeið, að söngkonan hafi
trúað sér fyrir því að hún hafi verið
misnotuð kynferðislega af frænku
sinni, Dee Dee Warwick. Þetta stað-
festir bróðir hennar, Gary Garland-
Houston, sem segir að hann hafi einn-
ig verið fórnarlamb Dee Dee. Í mynd-
inni segist Jones vera þess fullviss að
þetta ofbeldi hafi haft varanleg áhrif
á líf Houston, það hafi m.a. leitt til
þess að hún efaðist sífellt um eigin
kynhneigð og varð háð fíkniefnum.
Það hafði líka veruleg áhrif á hina
ungu söngkonu að um leið og hún
skrifaði undir fyrsta plötusamninginn
flykktust að ættingjar úr ýmsum átt-
um sem vildu fá sneið af kökunni.
Nánast allan hennar feril voru all-
flestir ættingjar hennar á launaskrá
hennar, þeirra á meðal faðir hennar
sem hafði reyndar yfirgefið fjölskyld-
una nokkrum árum fyrr. Hann var
umboðsmaður hennar um skeið og
lauk viðskiptum þeirra þannig að
hann lögsótti hana og krafðist 100
milljóna bandaríkjadollara í skaða-
bætur vegna vangoldinna launa og
þóknana.
Poppprinsessan prúða
Þegar hin 19 ára gamla Houston
skrifaði undir sinn fyrsta samning við
Arista var hún markaðssett sem prúð
poppprinsessa sem átti að höfða jafnt
til hvítra sem svartra ungmenna.
Henni var stillt upp sem andstæðu
við Madonnu sem mörgum þótti
býsna klúr á þessum tíma og sjálf
sagði Houston í viðtali á þessum tíma
að hún myndi aldrei leyfa eigin börn-
um að hlusta á Madonnu. Lögð var
áhersla á að tónlistin sem hún flutti
hefði ekki „svartan“ hljóm og þess
gætt að hlutfall hvítra dansara í
myndböndum hennar væri jafnhátt
og hjá svörtum. Þessi „aflitun“ söng-
konunnar féll lítt í kramið hjá svört-
um kollegum hennar og þegar Soul
Train-tónlistarverðlaunin, sem eru
veitt svörtum tónlistarmönnum, voru
afhent árið 1989 mætti hún mikilli
andúð og var púuð niður af sviðinu.
Fljótandi kynhneigð og fíkn
Þegar árin liðu fór Houston að
flytja tónlist sem var meira í ætt við
þá tónlist sem svartir tónlistarmenn
fluttu á þeim tíma. En hún lá alla tíð
undir þessu ámæli og vinkona henn-
ar, söngkonan BeBe Winans, sagði í
viðtali við bandarísku sjónvarpsstöð-
ina ABC fyrir nokkrum árum að
Houston hefði sárnað þetta mikið og
þótt gagnrýnin óréttmæt.
Fíkniefnaneyslu Houston eru
gerð nokkur skil í myndinni. Bræður
hennar segjast hafa gefið henni bæði
kannabis og kókaín á fyrstu tónleika-
ferðalögum hennar en fyrrverandi
eiginmaðurinn, Bobby Brown, sem af
mörgum er talinn hafa átt mikinn
þátt í að hún varð jafn háð fíkniefnum
og raun ber vitni, vill sem minnst um
það tala í myndinni. Einn viðmæland-
inn í myndinni segir, spurður um
fíkniefnaneyslu Houston, að hún hafi
neytt fíkniefna af þeirri einföldu
ástæðu að henni þótti það gott.
Kynhneigð söngkonunnar, sem
vinir hennar og samstarfsfólk lýsa
sem „fljótandi“, er einnig til umfjöll-
unar í myndinni og þar eru vanga-
veltur um að Robyn Crawford, besta
vinkona hennar og aðstoðarkona, hafi
einnig verið ástkona hennar.
Bobbi Kristina fórnarlambið
Í viðtali við tímaritið Billboard
segir leikstjórinn, Kevin Macdonald,
að vissulega hafi Houston verið fórn-
arlamb eigin velgengni og aðstæðna.
En mesta fórnarlambið í allri sögunni
hafi verið Bobbi Kristina, dóttir
hennar og Bobby Brown, sem ólst
upp við neyslu og ofbeldi. Hún lést ár-
ið 2015 og hafði þá verið í dái í hálft ár
eftir að hafa fundist meðvitundarlaus
í baðkari.
Að mati Macdonalds býr saga
Whitney Houston yfir sterkri dul-
mögnun. „Hvernig stóð á því að hún,
sem bjó yfir svona miklum hæfi-
leikum og svona mikilli fegurð, var á
sama tíma haldin gríðarmikilli sjálfs-
eyðingarhvöt sem hún reyndi aldrei
að fela? Þetta er spurningin sem ég
reyni að svara í myndinni.“
Stjarnan skæra með
sjálfseyðingarhvötina
Í nýrri heimildamynd er ljósi varpað á ævi söngkonunnar Whitney Houston,
sem lést eftir áralanga fíkniefnaneyslu árið 2012. Hún lá alla tíð undir ámæli
fyrir að vera ekki nægilega „svört“ og var misnotuð kynferðislega af frænku sinni.
AP
Whitney Leikstjórinn segir sögu
hennar búa yfir dulmögnun.
Reuters
Stjarna Whitney Houston er sú tónlistarkona sem hefur fengið flest
verðlaun, þar á meðal sex Grammy-verðlaun og 16 Billboard-verðlaun.
AFP
Í Cannes Frá vinstri: Nicole David og Lisa Erspamer en þær eru báðar
framleiðendur myndarinnar, leikstjórinn Kevin MacDonald, Pat Houston
yfirframleiðandi og mágkona Whitney og Rayah Houston, dóttir Pat.
Reuters
Hjón Houston og eiginmaður
hennar Bobby Brown árið 1999.
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Margar gerðir
af innihurðum
Hjá Parka færðu gullfallegar
innihurðir frá Grauthoff.
Mikið úrval, sjón er sögu ríkari!
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Margar gerðir
af innihurðum