Morgunblaðið - 10.07.2018, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2018
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
HLÍFÐARHÚÐ Á RÚÐUR
u Kemur í veg fyrir að óhreinindi safnist
á rúðuna / sólaselluna
u Eykur öryggi og útsýni allt að
tvöfalt í bleytu og rigningu
u Kemur í veg fyrir að flugur, drulla,
snjór og ísing safnist á rúðuna
u Heldur regnvatni frá rúðunni
u Býr til brynju á rúðunni fyrir
leysiefnum og vökvum
u Þolir háþrýstiþvott
u Virkar við -30°C til + 30°C
u Endingartími er 6 – 12 mánuðir
Frábært á bílrúður – gluggarúður – sólasellur
Sterkir í stálinu
Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn
Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar
Svört- og ryðfrí rör og fittings
Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur
POM öxlar • PE plötur
Lokar af ýmsum gerðum
Opið virka daga kl. 8-17
Skútuvogi 4, Rvk
Rauðhellu 2, Hafnarfirði
Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is
VÖNDUÐ JEPPADEKK
Á FRÁBÆRU VERÐI
STÆRÐ 315/70R17
49.600,- kr.
STÆRÐ 285/70R17
46.900,- kr.
ARCTIC TRUCKS | KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | 540 4900
WWW.ARCTICTRUCKS.IS
ÞÚ FÆRÐ JEPPADEKKIN HJÁ OKKUR!
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Þrátt fyrir mikla vætutíð virðast
flestar plöntur blómgast vel og get-
ur verið að sumar plöntur njóti góðs
af rigningunni. Rigningasumarið
2013 er enn í fersku minni hjá garð-
yrkjufólki og er tilefni til að hafa
áhyggjur af uppskeru á rótar-
ávöxtum. Áhrif rigningarinnar í
sumar gætu þó komið í ljós næsta
sumar. Þetta segir Guðríður Helga-
dóttir, garðyrkjufræðingur við
Landbúnaðarháskóla Íslands, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Verst fyrir mannfólkið
„Þetta veðurfar virðist hafa
miklu minni áhrif á tré, runna og ber
heldur en maður myndi ætla. Þetta
er miklu verra fyrir okkur mann-
fólkið heldur en nokkurn tímann fyr-
ir gróðurinn.“ Þetta segir Guðríður
spurð út í áhrif þráláts vætuveðurs á
gróðurfar á Suður- og Vesturlandi.
Guðríður segir gróðurfar ekki
hafa borið mikinn skaða af enn þá og
nefnir að blómgun í ár geti að miklu
leyti ráðist af veðurfari síðasta sum-
ars.
„Gróður lítur alveg þokkalega
út. Blómgun virðist alveg vera að
gera sig hjá plöntum en það er
reyndar þannig hjá mörgum teg-
undum að þær undirbúa blómgun
árið áður.“
Blómalaust næsta sumar?
Aðspurð hvort einhverjar
plöntur njóti góðs af mikilli rigningu
segir Guðríður: „Allar ávaxtateg-
undir, hvort sem það eru ber eða
ávaxtatré, þurfa töluvert mikla
vökvun til þess að þau þroskist og
verði djúsí og fín. Á sama tíma hafa
þessar tegundir ekkert endilega
gaman af því að vera alltaf með lauf-
blöðin rennandi blaut.“
Guðríður segir einnig að mikið
hvassviðri geti haft mjög neikvæð
áhrif á margt plöntulíf. „Svona veður
tætir gróðurinn svo illa. Fjölærar
plöntur leggjast á hliðina þannig að
það er kannski ekki bara rigningin
heldur líka rokið sem er að stríða
okkur.“
Guðríður nefnir að sumarið
2013 hafi bæði verið kalt og rignt
mikið og segir:„Það sem fór illa þá
var uppskera á rótarávöxtum. Ég
myndi alveg hafa áhyggjur af því
núna.“
Eins og áður segir telur Guð-
ríður vætutíðina ekki hafa haft mikil
áhrif á gróðurfar enn sem komið er
en segir þó: „Ef það heldur áfram að
vera kalt og hráslagalegt þá getur
vel verið að blómbrumin sem mynd-
ast í sumar verði ekkert merkileg.“
Hún segir of snemmt að spá
fyrir um hvort rigningin muni hafa
áhrif á berjatíð í haust en segist
halda fast í vonina um að veðurfar
fari að batna fljótlega.
„Áhrifin gætu komið
fram næsta sumar“
Morgunblaðið/Eggert
Garðyrkjufræðingur Guðríður Helgadóttir telur að næsta sumar muni áhrif rigningarinnar koma í ljós.
Ber og ávextir þurfa vökvun en ekki endilega rigningu
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Bandaríkjamenn voru 40% erlendra
ferðamanna sem fóru frá Íslandi um
Keflavíkurflugvöll í júní. Á heildina
litið var 5,4% fjölgun erlendra far-
þega, en brottfarir þeirra um Kefla-
víkurflugvöll í júní voru 234 þúsund
talsins að því er fram kom í taln-
ingum Ferðamálstofu og Isavia í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Fjölgunin er umtalsvert minni en
síðustu ár, en fjölgun í júní hefur
verið um 21,1% milli ára síðustu ár,
mest milli áranna 2015 og 2016,
35,8%.
Veruleg fækkun Þjóðverja
Bandaríkjamönnum fjölgaði um
29,1% milli ára og voru alls 92.879,
eða um tveir af hverjum fimm ferða-
mönnum. Samsetning farþega hefur
breyst mikið síðustu ár, einkum
vegna fjölgunar Bandaríkjamanna,
en frá árinu 2014 hefur fjöldi þeirra
þrefaldast, farið úr um 21 þúsund ár-
ið 2014 í tæplega 93 þúsund nú í júní.
Hlutdeild farþega frá Norður-Amer-
íku í heildarfjölda brottfara um
Keflavíkurflugvöll er nú 31,9%.
Veruleg fækkun var hjá farþegum
frá Þýskalandi og Norðurlöndunum
milli ára. Farþegar frá Þýskalandi
voru alls 16.363 í júní, 24,3% færri en
á síðasta ári. Bretar voru 12.846 og
fækkaði um 7,4% milli ára. Farþegar
frá Hollandi voru 4.084 og fækkaði
um 10,5%, farþegar frá Frakklandi
voru 9.907 og fækkaði um 10,6%.
Farþegum frá Skandínavíu fækkaði
um 24,3%, eða um rúmlega fimm
þúsund farþega.
Um 71 þúsund Íslendingar fóru
utan í júní, um 14,4% fleiri en í júní á
síðasta ári. Samtals eru brottfarir Ís-
lendinga 333 þúsund frá ársbyrjun,
11,7% fleiri en á sama tímabili árið
2017.
Hægir verulega á
fjölgun ferðamanna
Bandaríkjamenn 40% ferðamanna
Morgunblaðið/Ómar
Ferðamenn Brottförum Banda-
ríkjamanna stórfjölgaði milli ára.
Allt um sjávarútveg