Morgunblaðið - 10.07.2018, Síða 16

Morgunblaðið - 10.07.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2018 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið STUTT BAKSVIÐ Steingrímur Eyjólfsson steingrimur@mbl.is Eign fjögurra stærstu hluthafa Icelandair, lífeyrissjóðanna Lífeyr- issjóðs verslunarmanna, Gildi, Birtu og LSR, lækkaði samtals um 5,8 milljarða króna að markaðsvirði í gær þegar bréf Icelandair í Kaup- höll Íslands féllu um 25% í sex hundruð milljóna króna viðskipt- um. Lækkunin kom í kjölfar þess að félagið gaf út afkomuviðvörun á sunnudagskvöldið. Þar kom m.a. fram að afkoma annars ársfjórð- ungs yrði lakari en áður var ætlað. Félagið lækkaði áætlanir sínar um afkomu ársins úr 170 til 190 millj- ónum bandaríkjadala í 120 til 140 milljónir bandaríkjadala, eða 13 til 15 milljarða íslenskra króna miðað við núverandi gengi. Umfangsmikil viðvörun „Það kemur á óvart hve mikið félagið færir niður afkomuhorfur sínar,“ segir Elvar Ingi Möller, sérfræðingur hjá greiningardeild Arion banka, í samtali við Morg- unblaðið. „Það að félagið hafi fært niður afkomuhorfur sínar fyrir yf- irstandandi ár kom okkur ekki endilega á óvart. Ytri áhrifaþættir hafa þróast til verri vegar, eins og verð á eldsneyti sem er um 50% hærra en á sama tíma í fyrra. Til að vega upp á móti hærri kostnaði var mikilvægt að fargjöld myndu hækka og félagið hafði væntingar um að það myndi raungerast á síð- ari hluta ársins. Það virðist hins vegar ekki vera að gerast, sem endurspeglast í lakari afkomuhorf- um fyrir árið.“ Aðspurður hvort markaðurinn sé að bregðast við af of mikilli hörku segir Elvar Ingi að viðbrögðin séu í takti við innihald afkomuviðvör- unar félagsins. „Það koma fram nýjar rekstrarupplýsingar sem markaðurinn tekur tillit til. Ef litið er til þess hvernig félagið var verð- lagt á föstudaginn, miðað við þær rekstraráætlanir sem félagið hafði uppi þá og tekið tillit til þessara nýju rekstrarforsenda, mátti gera ráð fyrir þessari hliðrun á gengi bréfa félagsins.“ Bréf Icelandair lækkað um 75% Hlutabréf Icelandair hafa lækk- að um rúmlega 75% frá því í apríl 2016, þegar markaðsvirði félagsins náði hámarki. Þá kostaði hluturinn í félaginu 38,9 krónur og markaðs- virði félagins þá rúmlega 187 millj- arðar króna samanborið við 9,57 krónur á hlut eða 46 milljarða króna markaðsvirði við lokun við- skipta í gær. Bréf Icelandair hafa ekki verið jafnlágt verðlögð síðan í janúar 2013, en lægst stóð verð bréfanna í 1,8 krónum á hlut í október 2009. Líkindi eru með lækkun bréfa félagsins á markaðnum í gær og því þegar bréf Icelandair féllu um tæplega 24% í febrúar á síðasta ári, og greint var frá í Morgun- blaðinu. Sú lækkun kom í kjölfar afkomuviðvörunar þar sem tilkynnt var að EBITDA fyrirtækisins, hagnaður fyrir fjármagnsliði, af- skriftir og skatta, myndi lækka töluvert. Tilkynnt var að bókanir væru hægari en gert hafi verið ráð fyrir og meðalfargjöld á mörkuðum höfðu lækkað umfram spár. Hækk- un olíuverðs og þróun gjaldmiðla hefði einnig slæm áhrif. Lífeyrissjóðir tapa milljörðum Eins og fyrr sagði eru stærstu eigendur Icelandair nokkrir af líf- eyrissjóðum landsins, Lífeyrissjóð- ur verslunarmanna er þar stærstur með 13,99% hlut. Miðað við breytingu á gengi bréfa Icelandair frá því á föstudag- inn hefur virði hlutar Lífeyrissjóðs verslunarmanna lækkað um meira en tvo milljarða króna úr 8,6 millj- örðum króna í 6,4 milljarða króna. Aðrir lífeyrissjóðir sem eru með- al fjögurra stærstu eigenda Ice- landair eru Gildi, Birta og Lífeyr- issjóður starfsmanna ríkisins. Saman eiga þeir 38,33% hlut í fé- laginu. Markaðsvirði þessara hluta lækkaði um rétt tæplega 5,8 millj- arða króna í viðskiptum gærdags- ins. Icelandair hyggst birta afkomu annars ársfjórðungs 31. júlí. 6 milljarða lækkun stærstu hluthafa  Tæplega fjórðungur markaðsvirðis Icelandair þurrkaðist út í viðskiptum gærdagsins  Afkomu- viðvörunin töluvert umfangsmeiri en gert var ráð fyrir  75% lækkun á rúmlega tveimur árum Þróun hlutabréfaverðs Icelandair frá ársbyrjun 2012 40 35 30 25 20 15 10 5 0 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 9,57 5,12 Apríl 2016 38,9 10. júlí 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 106.16 106.66 106.41 Sterlingspund 141.51 142.19 141.85 Kanadadalur 81.15 81.63 81.39 Dönsk króna 16.748 16.846 16.797 Norsk króna 13.272 13.35 13.311 Sænsk króna 12.186 12.258 12.222 Svissn. franki 107.4 108.0 107.7 Japanskt jen 0.9606 0.9662 0.9634 SDR 149.97 150.87 150.42 Evra 124.85 125.55 125.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 152.3192 Hrávöruverð Gull 1254.2 ($/únsa) Ál 2098.0 ($/tonn) LME Hráolía 77.57 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Bandaríski vogunarsjóðurinn Burlington Loan Management gæti rúmlega tvöfaldað fjárfestingu sína í eignarhaldsfélaginu Klakka, gangi kaup Tryggingamiðstöðvar- innar á fjármögnunarfyrirtækinu Lykli eft- ir. Tryggingamiðstöðin gerði á dögunum skuldbindandi kauptilboð í Lykil upp á 10,6 milljarða króna. Lykill er helsta eign Klakka. Í október 2016 áttu BLM fjárfestingar, dótturfélag Burlington Loan Management, hæsta tilboð í 17% hlut Lindarhvols, félags sem stofnað var til að annast umsýslu, fulln- ustu og sölu á þeim eignum sem ríkið fékk í hendurnar sem stöðugleikaframlög slitabúa bankanna, í Klakka, og hljóðaði það upp á 505 milljónir króna, en ítarlega var fjallað um þau viðskipti í Morgunblaðinu á sínum tíma. Endanlegt verð sem BLM greiddi fyrir hlutinn var hins vegar lægra samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, eða um 420 milljónir króna, þar sem Klakki greiddi Lindarhvoli 85 milljónir króna áður en eign- arhald kröfunnar fluttist yfir til BLM, að fengnu samþykki Fjármálaeftirlitsins. Miðað við upplýsingar Morgunblaðsins gæti hagnaður BLM af viðskiptunum við Lindarhvol, við söluna til Tryggingamið- stöðvarinnar, numið um 500 milljónum króna. Samkvæmt upplýsingum í ársskýrslu Klakka er félagið BLM fjárfestingar lang- stærsti eigandi Klakka með 60,9% hlut. Næststærsti eigandinn er Burlington Loan Management, eigandi BLM fjárfestinga, með 17,7% hlut. Aðrir eigendur Klakka eru síðan íslenskir lífeyrissjóðir og aðrir fjár- festar tobj@mbl.is Vogunarsjóður tvöfaldar fjárfestinguna í Klakka  BLM fjárfestingar og móðurfélagið Burlington Loan Management stærstu eigendur Viðræður TM ræðir við Klakka um kaup á fjármögnunarfélaginu Lykli. ● Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda, hefur sagt sig úr stjórn fyr- irtækisins. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu frá félaginu. Í samtali við mbl.is í gær sagði Guðmundur að hann væri einnig farinn úr stjórn Brims. Þá segir hann í samtali við mbl.is að hann hafi tilkynnt úrsögn sína úr stjórn HB Granda á fimmtudaginn síðasta, og í kjölfarið hafi verið boðað til hluthafa- fundar sem fram fer 27. júlí nk., en á dagskrá hans er kjör tveggja stjórnar- manna. Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu var fyrrverandi for- stjóra, Vilhjálmi Vilhjálmssyni, vikið frá störfum í kjölfar þess að félag Guð- mundar, Brim hf., keypti rúmlega þriðj- ung í félaginu í apríl sl. Varaformaður stjórnar, Rannveig Rist, sagði sig síðar úr stjórninni vegna ósættis um hvernig staðið var að uppsögn Vilhjálms. Formennskan í stjórninni er nú í höndum Magnúsar Gústafssonar, fyrr- verandi forstjóra Coldwater í Bandaríkj- unum, en hann tók við formennsku af Guðmundi, sem nú er farinn úr stjórn eins og fyrr sagði. tobj@mbl.is Guðmundur úr stjórnum Sviptingar Stjórn HB Granda hefur tekið nokkrum breytingum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.