Morgunblaðið - 10.07.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.07.2018, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Recep TayyipErdogan,forseti Tyrklands, sór í gær, mánudag, embættiseið að nýju eftir að hafa unnið sannfærandi sigur í forsetakosningunum sem haldnar voru í lok síðasta mán- aðar. Kosningarnar voru haldnar samhliða nýjum þingkosningum, enda hefur stjórnarskrá Tyrk- lands nú verið breytt á þann veg að embætti forsætisráðherra hefur verið afnumið og forsetinn sjálfur sér um að útnefna ráð- herra og skipa dómara. Í aðdraganda kosninganna bar nokkuð á því, sem lýsa mætti sem „bjartsýni“ af hálfu vestrænna miðla. Töldu þeir að svo gæti far- ið að Erdogan næði ekki hreinum meirihluta atkvæða í fyrri um- ferð kosninganna og yrði það þá til marks um að hugsanlega væri hann að missa þau heljartök sem hann hefur eytt megninu af síð- ustu fimm árum í að byggja upp. Sú varð ekki raunin og bendir raunar fátt til þess að snúa megi þróun síðustu ára við, svo vel sé, þar sem öll andstaða við forset- ann er kæfð í fæðingu, sérstak- lega eftir hina misheppnuðu valdaránstilraun hersins fyrir tveimur árum. Þar með er þó engri blessun lýst yfir þá atlögu, enda með öllu óvíst að Tyrkland væri lýðræðisríki hefði Erdogan orðið undir í byltingartilraun- inni. Til marks um það hvernig Edogan hefur verið að herða tök- in er að hann ákvað um helgina að reka ætti 18.000 ríkisstarfsmenn, þar á meðal her- menn, lögreglu- menn og háskóla- prófessora. Um leið var einni sjónvarpsstöð og þrem- ur dagblöðum lokað. Þessar uppsagnir eru einungis þær síðustu í röð slíkra aðgerða. Erdogan hefur nú rekið um 125.000 manns í kjölfar valda- ránstilraunarinnar. Þá hafa um 160.000 manns verið sendir í fangelsi í Tyrklandi á síðustu tveimur árum fyrir ýmsar sakir, en það sem þetta fólk á helst sameiginlegt er að hafa ein- hverju sinni verið ósammála Erdogan. Að nafninu til á Tyrkland að heita lýðræðisríki og tekur meðal annars þátt í varnarsamstarfi slíkra ríkja. En þróunin á síðustu árum hefur ekki beinlínis verið upplífgandi. Andstaða við ríkj- andi öfl er ekki liðin, hreinsanir fara fram í embættismanna- kerfinu og fjölmiðlamenn og stjórnarandstæðingar eiga á hættu að enda í fangelsi fyrir litl- ar sakir. Og nú, þegar einn og sami maðurinn hefur nánast alla þræði ríkisvaldsins á einni hendi er full ástæða til að spyrja hvert stefni. Nýafstaðnar kosningar eru til marks um að lýðræði sé enn við lýði, en margt veldur áhyggjum um að því kunni að verða vikið alfarið til hliðar verði til dæmis svigrúm annarra til að keppa um hylli kjósenda tak- markað enn frekar en orðið er. Hreinsað til í aðdraganda embættistöku} Erdogan herðir tökin Í ritstjórnargreinblaðsins í gær var nefndur til sög- unnar orðrómur um vaxandi þreytu í sambandi Trump forseta og May, for- sætisráðherra Breta. Ekki þurfti lengi að bíða ótvíræðra merkja um þessar sögusagnir. Pólitísk sprengja varð í Lund- únum í kjölfar lykilfundar um samninga um Brexit á sveitasetri forsætisráðherrans. Sólarhring síðar höfðu tveir þungavigtar- menn sagt af sér ráðherradómi. Þeir David Davis sem hafði samningaviðræðurnar á sinni könnu og Boris Johnson utanrík- isráðherra og ein helsta kanóna Íhaldsflokksins. Boris Johnson var áður borgarstjóri í Lund- únum og einn helsti foringi bar- áttumanna fyrir Brexit í Íhalds- flokknum. Forysta Theresu May þykir mjög veik í erfiðum við- ræðum við Brusselvaldið, sem sýnt hefur mikla óbilgirni. Hún stafar þó ekki af andúð við Breta en er talin nauðsynleg til að sýna smáþjóðum ESB fordæmi sem þær muni ekki gleyma. Um leið og samn- ingsgrundvöllur May lá fyrir til- kynnti sendiherra Bandaríkjanna óvænt að öll loforð um skjótan fríversl- unarsamning við Breta væru nú í uppnámi. Vafalaust er að svo stórpólitíska yfirlýsingu gæfi sendiherra aldrei, og hvað þá opinberlega, nema með sam- þykki eða, sem sennilegra er, eftir beinum fyrirmælum frá Hvíta húsinu. Muna verður að forsetinn sjálfur er væntanlegur í heimsókn til Bretlands. Frí- verslunarsamningur við Banda- ríkin var eitt helsta tromp Breta, þar sem Obama forseti blandaði sér í kosningabaráttu um Brexit með hótunum um að Bretland myndi þurfa að bíða lengi eftir slíkum samningi. Nýlega var staðfest af þáverandi aðstoðar- mönnum forsetans að hinar óvenjulegu hótanir voru settar fram að ósk Camerons, þáver- andi forsætisráðherra. Lítill vafi er á að þær drógu úr stuðningi við Brexit, en sá málstaður vann þó afgerandi sigur. Yfirlýsingar sendi- herra Bandaríkjanna í Lundúnum veikja enn laskaða stöðu forsætisráðherrans} Öflugasti bandamaðurinn varar við Þ egar Berlínarmúrinn féll árið 1989 héldu sumir að hinni sögulegu bar- áttu milli einræðis og lýðræðis, milli stjórnlyndis og frelsis, hefði lokið. Bandaríski stjórnmálaheimspek- ingurinn Francis Fukuyama lýsti yfir „endalok- um sögunnar“, í þeim skilningi að „vestræn gildi“ hefðu unnið fullnaðarsigur. Auðvitað var barnalegt að halda að baráttunni fyrir frelsi og mannréttindum ljúki nokkurn tíma, þótt virða megi þeim það til vorkunnar sem barist höfðu fyrir einstaklingsfrelsinu að þeir fylltust sigur- vímu. Við Íslendingar þurfum ekki að leita til út- landa til þess að sjá sjálfsblekkinguna í aðdrag- anda hrunsins. Stór hluti þjóðarinnar gleymdi því að það sem virðist of gott til þess að vera satt er það sjaldnast. Fyrstu viðbrögð margra við hruninu voru reiði, en fljótlega hófst uppbygging sem víða hefur gengið afar vel. Því er ótrúlegt hve hratt aðstæður hafa breyst á verri veg. Hver hefði trúað því fyrir þremur til fjórum árum að forseti Bandaríkjanna leiddi baráttuna gegn ferðafrelsi og frjálsum viðskiptum þjóða á milli? Víða um Evrópu hafa öfgaflokkar og lýðskrumarar náð sterkri stöðu. Jafnvel í Þýskalandi hriktir í stoðum Kristilegra demókrata, sem hafa verið burðarásar stöðugleikans í landinu, stöðugleika sem er undirstaða friðar í Evrópu. Carl Bildt, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, var- ar við þessari þróun í grein í Morgunblaðinu fyrir viku: „Þýskaland sem varpar af sér arfleifð Kohls myndi allt í einu verða uppspretta mikillar óvissu, frekar en brjóstvörn stöðugleikans í hjarta Evr- ópu.“ Winston Churchill var forsætisráðherra Breta í seinni heimsstyrjöldinni. Hann áttaði sig vel á því að lykillinn að friði í Evrópu og heiminum öllum er náin samvinna þjóða, samvinna sem allir græða á og enginn hefur hag af því að ráðast á annan. Árið 1942 sagði Churchill í bréfi til Anthonys Edens, utanríkisráðherra síns: „Eins fjarlægt og það virðist núna sé ég fyrir mér Bandaríki Evr- ópu, þar sem skil milli þjóða verða sem allra minnst og hægt verður að ferðast að vild.“ Árið 1946 gekk hann lengra í frægri ræðu í Zü- rich: „Við verðum að byggja upp eins konar Bandaríki Evrópu sem verða þannig, ef vel tekst til, að styrkur hvers ríkis um sig skiptir ekki mestu máli. Ef öll ríki Evrópu vilja ekki taka þátt í bandalag- inu í upphafi verðum við samt að ná saman þeim sem vilja og geta ruglað saman reytum.“ Þeir sem ekki skilja söguna gleðjast yfir ólgunni í Evrópu. Við Íslendingar eigum að styðja við frelsi og lýðréttindi hvar sem við komum því við. Á sínum tíma átti þjóðin leiðtoga sem leiddu hana inn í alþjóðlega samvinnu, gegn hatrammri and- spyrnu einangrunarsinna. Nú telja jafnvel menn sem einu sinni voru teknir alvarlega að ólgan í Evrópu og heiminum öll- um sé fagnaðarefni. Benedikt Jóhannesson Pistill Vanþekking er velsæld Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Drög að frumvarpi til lagaum myndavélaeftirlit ísjávarútvegi eru nú tilumsagnar á Samráðs- gáttinni (samradsgatt.island.is). Frumvarpið var samið í atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytinu og óskar ráðuneytið nú eftir um- sögnum um frumvarpsdrögin. Tek- ið er við þeim til 10. ágúst næst- komandi. Í kynningu á Samráðsgáttinni segir að meginmarkmið frumvarps- ins sé „að skapa traust til sjávar- útvegsins með notkun á nýjustu tækni við eftirlit með vigtun, brott- kasti og framhjáafla“ með nýjustu tækni. Sjávarútvegur er enda einn veigamesti og arðbærasti atvinnu- vegur landsins. Hann nýtir auðlind- ir sjávar og standa ríkir almanna- hagsmunir til að hægt sé að tryggja sjálfbæra og ábyrga nýt- ingu þeirra, að því er segir í at- hugasemdum við frumvarpið. Frumvarpið nær til allra fiski- hafna, vigtunarleyfishafa og allra skipa sem stunda veiðar í atvinnu- skyni. Sagt er að góð reynsla hafi fengist af myndavélaeftirliti erlend- is. Verði frumvarpið að lögum muni Ísland verða í fremstu röð á þessu sviði vegna þess hve gildissvið frumvarpsins er víðtækt. Fram kemur að nokkur kostn- aður muni fylgja samþykkt frum- varpsins vegna tæknibúnaðar sem þarf. „Það er þó þannig að margir aðilar í útgerð og vinnslu búa nú þegar yfir eigin myndavélakerfum sem hægt er að nýta. Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar eru eingöngu 15 hafnir ekki með myndavélakerfi svo það sama ætti að gilda þar. Mögulegt er þó að auka þurfi við tækjabúnað eða end- urnýja ef hann er ekki af þeim gæðum sem krafist er. Mikilvægt er að benda á að frumvarpið tekur tillit til ákvæða laga um persónu- vernd,“ segir m.a. á Samráðsgátt- inni. Persónuvernd verði tryggð Í frumvarpinu kemur fram að mælt skuli í reglugerð, sem ráð- herra setur, fyrir um þær kröfur sem gerðar verða til virks rafræns vöktunarkerfis og notkunar þess, svo sem um varðveislu, vinnslu, ör- yggi og eyðingu persónuupplýsinga að fenginni umsögn Persónuvernd- ar. Samkvæmt 1. grein frum- varpsins mun Fiskistofa geta bann- að löndun í höfnum sem fullnægja ekki kröfum laga og stjórnvalds- fyrirmæla. Fiskistofu mun þó verða heimilt í undantekningartilvikum að veita undanþágu frá kröfum um virkt rafrænt vöktunarkerfi ef nauðsynlegt er til að ljúka fram- kvæmd löndunar eða vigtunar. Þá verður gert að skilyrði fyrir leyfum til endurvigtunar að innra eftirlit þess sem í hlut á sé fullnægjandi að mati Fiskistofu og að til staðar sé virkt rafrænt vöktunarkerfi sem gerir kleift að fylgjast með allri framkvæmd vigtunar með mynda- vélum og miðlar upplýsingum um niðurstöður hennar til eftirlitsaðila. Sömuleiðis skulu eftirlitsmenn Fiskistofu hafa rafrænan aðgang að upplýsingum úr myndavélakerf- um fiskiskipa. Auk myndavélaeftirlits nær frumvarpið einnig til nokkurra ann- arra atriða. Þar er helst að nefna að lögð er til föst ísprósenta fyrir afla allra dagróðrabáta. Samkvæmt bráðabirgðaákvæði í frumvarpinu eiga lögin í heild að taka gildi 1. janúar 2020 en 1. grein þeirra tekur gildi um leið og frum- varpið verður að lögum. Alsjáandi augu fylg- ist með sjávarútvegi Morgunblaðið/Árni Sæberg Eftirlit Verði frumvarpið að lögum mun Fiskistofa geta fylgst með veið- um á íslenskum skipum í gegnum myndavélar. Myndin er úr myndasafni. „Það er grundvallarregla ís- lenskrar fiskveiðilöggjafar, að landa beri og vigta allan afla. Brottkast, röng aflaskráning og framhjálöndun eru meðal alvar- legustu brota gegn fiskveiðilög- gjöfinni,“ segir í athugasemdum með frumvarpi um um rafræna vöktun og eftirlit í sjávarútvegi. „Slík lögbrot eru í senn efna- hags- og umhverfisbrot, sem brjóta gegn ábyrgri nýtingu sjávarauðlindarinnar. Ef upplýs- ingar um veiddan og landaðan afla eru ekki skráðar réttilega, er um refsiverð brot að ræða.“ Þá er bent á að þessar upp- lýsingar séu not- aðar til að ákveða hve nýta má auðlindina mikið hverju sinni og því mikilvægt að upp- lýsingarnar séu réttar. Vigta ber all- an sjávarafla AFLATÖLUR MIKILVÆGAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.