Morgunblaðið - 10.07.2018, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 10.07.2018, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2018 Valli Hestastúss Á þessum árstíma eru margir á ferð um landið á hrossum en heilmikið stúss fylgir slíkum ferðum. Hestamenn voru með góðan hóp hrossa í rétt við Húnaver í gær. NEW YORK | „Þetta voru bestu tímar og hinir verstu,“ sagði Xi Jinping, forseti Kína, og vísaði þar til hinn- ar frægu línu Charles Dickens í upphafi ræðu sinnar hjá Alþjóðaefnahags- ráðinu árið 2017. Hann hélt áfram: „Við lifum einnig í dag í heimi þverstæðn- anna,“ þar sem „aukið ríkidæmi og framsókn í vísindum og tækni“ annars vegar hefði gert mögulega fordæmalausa framþróun. En á hinn bóginn væru „tíðar svæðis- bundnar deilur, alþjóðlegar áskor- anir á borð við hryðjuverk og flóttamenn, auk fátæktar, atvinnu- leysis og vaxandi tekjubils“ að búa til mikla óvissu. Xi spurði svo öflugrar spurn- ingar: „Hvað hefur farið úrskeiðis í heiminum?“ Kannski felst svarið í þeirri sömu tækniþróun sem Xi lítur á sem lykilinn að sókn Kínverja að því að verða hátekjuríki. Þegar nánar er að gáð kann ástæðan að vera sú að við séum komin að vendipunkti á leiðinni að tæknilegri framþróun – sem við erum að sigla mjög illa framhjá. Tæknin hefur mótað og endur- mótað líf okkar allar götur frá því að fyrstu mennirnir uppgötvuðu hvernig gera mætti tól úr steinum. Það er einungis náttúrlegt að svo langt ferli muni leiða til stunda þegar tæknibreytingar búa til fordæmalausar áskoranir. Iðnbyltingin var ein slík stund. Á miðri átjándu öld í Bret- landi, fæðingarstað byltingarinnar, fólust í framþróuninni miklar hörmungar. Sumir verkamenn strituðu í 12 til 14 tíma á dag, en samt óx ójöfnuður. Og fjöldi barna sem tekin voru til vinnu varð meiri en það sem sést í sumum af fátækustu löndum Afr- íku sunnan Sahara í dag. En Evrópa náði að standa undir væntingum. Frumlegar rannsóknir í hagfræði voru framkvæmdar af mönnum eins og Adam Smith og Antoine Cournet, sem leiddu til ný- stárlegra uppfinninga eins og þrepaskipts tekjuskatts, auk nýrra laga um vinnutíma og verkafólk. Niðurstaðan varð sú að iðnbylt- ingin ýtti margfalt undir efnahags- lega þróun og velferð mannkyns. Þróun mannsins hefur séð fleiri „iðnbyltingar,“ að þeirri meðtalinni sem nú er að hefjast. Hin svokall- aða „fjórða iðnbylting“ miðast við framþróun í stafrænni tækni, þar á meðal „vinnutengjandi tækni“ (sem leyfir fólki að vinna saman heims- álfanna á milli) og upp á síðkastið gervigreind og vélmennafræði. Þessar tækniframfarir hafa leyft alþjóðavæðingu efnahags, sem líkt og iðnbyltingin hefur fært okkur fordæmalausa framþróun, líkt og Xi viðurkenndi, á sama tíma og þær hafa skapað nýjar áskoranir, eins og vaxandi ójöfnuð og óvissu fólks um atvinnu sína. En í staðinn fyrir að stýra þessum áskorunum í betri farveg, líkt og Evrópa gerði á nítjándu öld, hefur mikið af heim- inum fallið í pólítískar skotgrafir, vaxandi þjóðernishyggju og að benda hver á annan um sökina. Það sem vekur mesta athygli er að Bandaríkin undir stjórn Donalds Trump hafa hafið það sem er óðum að stigmagnast í viðskiptastríð – sem mun verða skaðlegt öllum heiminum, en alveg sérstaklega Bandaríkjunum sjálfum. Það sem slík hegðun tekur ekki með í reikninginn er að hnattvæð- ingin er í grunninn náttúrulegt fyr- irbrigði. Hún er afleiðing þess að milljarðar manna sinna sínum dag- legu störfum og taka ákvarðanir út frá þeim möguleikum sem þeir hafa. Að streitast gegn hnattvæð- ingunni er jafn uppbyggilegt og að kenna þyngdaraflinu um þegar bygging hrynur. Líkt og Xi benti á í ræðu sinni, þá er hún „náttúruleg niðurstaða vísindalegrar og tækni- legrar framþróunar, og ekki sköp- uð af neinum einstaklingi eða ríkj- um“. Þegar kemur að viðskiptastríði Trumps endurspeglar stefna Bandaríkjanna einnig misskilning – sem hagfræðingar hafa ítrekað bent á – um tvíhliða halla á við- skiptajöfnuði. Að mati Trumps er slíkur halli í raun tap, og ríki sem eru með afgang af viðskiptum sín- um við Bandaríkin, eins og Mexíkó eða Kína, eru þá að hegða sér á ósanngjarnan og arðrænandi hátt. Þess vegna ættu þau að þurfa að borga fyrir það. Til þess að skilja þessa villu, hugsaðu um það hvernig þú hegðar þér gagnvart matvöruversluninni í hverfinu þínu. Á hverju ári býrð þú til stóran „viðskiptahalla“ gagnvart búðinni, þar sem hún selur þér vörur en þú selur henni engar á móti. Að halda því fram að Kín- verjar „skuldi“ Bandaríkjunum fyr- ir muninn á vöruskiptajöfnuði ríkjanna er eins og að segja að hverfisverslunin þín skuldi þér fyr- ir peninginn sem þú hefur eytt þar á síðasta ári. Í raun var ekki svindlað á þér, ekki frekar en að vinnuveitandi þinn hafi verið svik- inn af því að greiða þér laun. Þið hafið frekar gert með ykkur gern- inga sem hentuðu báðum aðilum samkvæmt þörfum ykkar. Nútímahagkerfið byggist á slík- um skuldum í tvíhliða viðskiptum; það myndi hrynja án þeirra. Á tím- um háþróaðrar tækni og aukinnar sérhæfingar myndi það að reyna að framleiða allt saman innanlands eða í tvíhliða viðskiptum verða allt of kostnaðarsamt. Bandaríkin virðast, alltént um stund, standa föst á kröfum sínum um að bandamenn þeirra og við- skiptaríki borgi. Hins vegar er það líklegri niðurstaða að hagkerfi eins og Kanada, Evrópa og Mexíkó muni reyna að grafa undan áhrif- unum af tollum Trumps með því að auka tengsl sín við Kína – sem yrði augljós sigur fyrir helsta keppinaut Bandaríkjanna á alþjóðamarkaði. Á sama tíma munu bandarísk fyrir- tæki líklega færa meira af um- svifum sínum út fyrir Bandaríkin til þess að forðast hefndartolla, líkt og sumir – eins og Harley David- son – hafa þegar hótað að gera. Það er ekki hægt að afneita þeirri staðreynd að sá vendipunkt- ur tækniframfara sem við erum nú stödd á hefur valdið öllum ríkjum erfiðleikum. En í staðinn fyrir að kenna hver öðrum um þær áskor- anir sem framþróun tækninnar hefur valdið – en sú leið mun ein- ungis valda hinum verstu tímum – ættum við að vinna saman til þess að sigrast á þeim. Þau ríki sem neita að gera það munu einungis valda öllum vandræðum – og enda á því að dæma sig sjálf til að vera skilin eftir. Eftir Kaushik Basu » Það er ekki hægt að afneita þeirri stað- reynd að sá vendipunkt- ur tækniframfara sem við erum nú stödd á hefur valdið öllum ríkjum erfiðleikum. Kaushik Basu Kaushik Basu er fyrrverandi aðal- hagfræðingur Alþjóðabankans og aðalráðgjafi indversku ríkisstjórn- arinnar í hagfræði og prófessor í hagfræði við Cornell-háskóla og félagi í Brookings-stofnuninni. ©Project Syndicate, 2018. www.project-syndicate.org Viðskipti, tækni og spurning Xi Jinpings

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.