Morgunblaðið - 10.07.2018, Side 26

Morgunblaðið - 10.07.2018, Side 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2018 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 295 Vinnuvettlingar PU-Flex Öflugar Volcan malarskóflur á frábæru verði frá 365 Ruslapokar 120L Ruslapokar 140L Sterkir 10/50stk Greinaklippur frá 595 585 Strákú á tann verði Garðkl a/Garðskófla 595 Öflug stungu- skófla Garðverkfæri í miklu úrvali frá 995 Garðslöngur í miklu úrvali Fötur í miklu úrvali 3.995 Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur, balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar......... Léttar og góðar með 100 kg burðarge frá 995 999Barna- garðverk- færi frá 395 Ruslatínur frá 295 Laufhrífur frá 999 Laufsugur 7.495 Úðabrúsar í mörgum stærðum Sverrir H. Geirmundsson er fimmtugur í dag. Hann er rekstrar-stjóri hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og hefurstarfað þar frá því í ágúst í fyrra. Áður var hann sölu- og mark- aðsstjóri hjá útgáfufélaginu Heimur, sem m.a. gaf út Frjálsa verslun og Iceland Review. Þá var hann um nokkurra ára skeið útibússtjóri í vesturbæjarútibúi Kaupþings banka. Hann útskrifaðist sem hagfræð- ingur frá Háskóla Íslands árið 1992 og stundaði meistaranám við sama skóla á árunum 2011-2012. „Ég nýt þess að vera í sumarfríi á Tenerife með konunni minni og börnum. Maður er alltaf að vonast til að enginn muni eftir svona af- mælisdögum. En það er ekkert hægt að fela lengur eftir að Facebook kom til sögunnar.“ Þá er spurning hvort fagna skuli sérstaklega deg- inum sjálfum? „Við munum örugglega gera okkur glaðan dag í veður- blíðunni. Hvernig er ég ekki alveg viss um. Ég hef reyndar verið að hlera og hef þau sterklega grunuð um að vera að undirbúa einhver herlegheit.“ Sverrir kvíðir ekki aldrinum. „Aldurinn er góður vegna þess að hann kennir manni að njóta dagsins betur og þakka fyrir góða heilsu. Það er kannski helsta breytingin. En að öðru leyti finn ég nú ekki fyr- ir þessu.“ Eiginkona Sverris er Bylgja Gunnlaugsdóttir hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum, f. 1970. Þau eiga þrjú börn. snorrim@mbl.is Fjölskyldufaðir Frá vinstri: Lárus, Sverrir, Brynhildur og Sigþór. Ekkert hægt að fela út af Facebook Sverrir H. Geirmundsson er fimmtugur í dag H elgi Björnsson fædd- ist 10. júlí 1958 á Ísa- firði og ólst þar upp. Hann var í Barna- skóla Ísafjarðar og Gagnfræðaskóla Ísafjarðar, stund- aði nám við Leiklistarskóla Íslands og lauk þaðan prófi í leiklist 1983. Helgi var söngvari í hljómsveit- inni Grafík 1983-86 og í hljómsveit- inni Síðan skein sól (SSSól) frá 1987. Hljómsveitin hélt upp á þrjá- tíu ára afmæli í fyrra með stór- tónleikum í Háskólabíói. Helgi söng inn á fyrstu plötuna sem sólósöngvari 1991 á sólóplötu Rabba, félaga síns úr Grafík. Hann hefur síðan sungið inn á mikinn fjölda af safnplötum og plötur ann- arra tónlistarmanna. Fyrsta sóló- plata Helga, Helgi Björns, kom út 1997 og aðrar sólóplötur Helga eru Yfir Esjuna, 2005, Helgi Björns syngur íslenskar dægurperlur ásamt gestum, 2011; Eru ekki allir sexý? (safnplata) 2014, og Veröldin er ný, 2015. Plötur Helga Björns og Reiðmanna vindanna eru 2008: Ríð- um sem fjandinn, 2008, Þú komst í hlaðið, 2010, Ég vil fara upp í sveit, 2011. Plötur hljómsveitarinnar Grafík sem Helgi kom að eru Get ég fengið séns? 1984, og Stanzað, danzað, öskrað, 1985. Plötur Síðan skein sól (SSSól) eru Síðan skein sól, 1988; Ég stend á skýi, 1989; Halló! Ég elska þig, 1990; Klikkað, 1991; blað með diski, 1992; Sssól (Ávaxtaplatan), 1993, Blóð, 1994, og 88-99 (safnplata), 1999. Helgi lék hjá Leikfélagi Reykja- víkur frá 1984, m.a. aðalhlutverk í Hremming, 1987; aðalhlutverk í Land míns föður, 1985; eitt af aðal- hlutverkum í Þar sem Djöflaeyjan rís, 1987; lék Ljósvíkinginn í Ljós heimsins (opnunarverki Borgarleik- hússins) 1989, og aðalhlutverk í Ljón á síðbuxum, 1991. Þá lék hann aðalhlutverk í söngleiknum Kysstu mig Kata, hjá LA 1991 og lék í Of- viðrinu í Þjóðleikhúsinu. Helgi lék og söng í rokksöngleiknum Rocky Horror 1995, í Meiri gauragangur, 1998 og söngleiknum Carmen Negra sem sýndur var í Íslensku óperunni 1998, söngleiknum Rent 1999. Helgi stóð síðast á leiksviðinu á söngleiknum Mamma Mia. „Hann gekk fyrir fullu húsi í eitt og hálft ár 2016 og 2017 og þá komst ekkert annað að á meðan.“ Helgi hefur leikið í eftirfarandi kvikmyndum, sjónvarpsmyndum og sjónvarpsþáttum: Atómstöðinni, 1984; Nonni og Manni, og Í skugga hrafnsins, 1986; Skyttunum, 1987; Foxtrot, 1988; Sódóma Reykjavík, 1992; Í ljósaskiptunum, 1993; Úngfrúin góða og húsið, 1999; Óskabörn þjóðarinnar, 2000; Villi- ljós og No Such Thing, 2001; Njáls- saga, 2004; Strákarnir okkar, og Bjólfskviða, 2005; Köld slóð, 2006; Svartir englar, 2008; Reykjavik Whale Watching Massacre, 2009; Hitler’s Grave og Makalaus, 2011; Frost, 2012; Hross í oss, 2013; Par- ís norðursins, 2014; Grimmd 2016; Ligeglad og Der Island-Krimi, 2016. Helgi stofnaði veitingastaðinn Astró í Austurstræti, 1995, ásamt Halli Helgasyni og fleirum, og starfrækti hann um skeið. Hann var markaðsstjóri hjá SkjáEinum 1999-2003, stofnaði, ásamt Jóni Tryggvasyni og fleirum, Mógúlinn, framleiðslufyrirtæki á leiksýn- ingum, 2003, og var framkvæmda- stjóri hjá Admiral Palast Product- ions í Berlín sem Mógúllinn átti og starfrækti, en Helgi hætti þar 2011. Helgi var einn þjálfaranna í sjón- varpsþáttunum The Voice veturna 2015/16 og 2016/17. Helgi situr í stjórn Félags tónskálda og texta- smiða. Helgi hefur staðið fyrir fjöldan- um öllum af tónleikum gegnum tíð- ina. Hann stóð fyrir uppákomum Helgi Björnsson, tónlistarmaður og leikari – 60 ára Fjölskyldan Efri röð f.v.: Björn Halldór, Kristína, Orri, Kristín Maríella með Ylfu, Vilborg, Ivan og Hanna Alexandra. Fremri röð: Helgi og Kátur Kali. Myndin er tekin í des. 2015, þá voru tvö barnabörn ófædd, Breki og Lilja. Enn í fremstu röð meðal söngvara og leikara Reykjavík Hjálmtýr Benja- minsson fæddist 4. september 2017 kl. 0.18. Hann vó 3.500 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Valdís Þorkelsdóttir og Benjamin Boorman. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.