Morgunblaðið - 10.07.2018, Síða 29

Morgunblaðið - 10.07.2018, Síða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú getur ekki lengur vikist undan því að hafa frumkvæði að lausn mála. Atorka þín mun skila sér í betri starfs- kjörum eða nýjum atvinnumöguleikum. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ættir að reyna að hagræða vinnu- umhverfi þínu þannig að þú getir verið sem mest út af fyrir þig í dag. Sinntu sjálfum þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Á jafn góðum degi og þessum er glæpur að láta draum liggja í reiðuleysi. Varastu flókinn málatilbúnað því einfald- leikinn er oft áhrifamestur. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að gæta þess að ganga ekki fram af sjálfum þér með vinnu í dag. Eyddu meiri tíma í að hugsa um sjálfan þig. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Eitthvað reynist erfiðara en þú áttir von á. Búðu þig undir mikið fjör. Ef þú ert sjálfum þér trúr mun allt fara á besta veg. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er til mikils ætlast af þér í vinnunni og þú þarft að leggja þig allan fram. Ekki taka fleira að þér fyrr en borðið er tómt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert einstaklega gagnrýninn í dag. Vertu maður til að viðurkenna það sem þú hefur gert á hlut annarra og rétta málin við. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Leggðu áherslu á að hitta fólk og taka þátt í umræðum um þau mál sem eru í brennidepli. Þú veist alltaf strax hvernig leysa skal vandamál annarra. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert í góðri aðstöðu til að taka ákvarðanir og fá fólk til fylgis við þig. Með hrósi verðurðu ekki álitinn veikgeðja eins og þú óttast. 22. des. - 19. janúar Steingeit Hláturinn lengir lífið svo það er nauðsynlegt að hlæja öðru hvoru. Lyftu þér upp og reyndu af fremsta megni að skemmta þér. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur haldið of lengi aftur af þér svo nú er kominn tími til að fá útrás og njóta sín. Hugsaðu um það sem þú getur gert til þess að bæta heilsu þína. 19. feb. - 20. mars Fiskar Líf þitt tekur jákvæðari stefnu. Þú munt koma öðrum á óvart í dag og sýna ákveðni og festu eins og þér er einum lagið. Davíð Hjálmar Haraldsson segirfrá því á Leir að hann hafi verið við grisjun í Soffíureit á Hofi. Þar var gróðursett fyrir tæplega hálfri öld: Hér fannst varla áður einikló og ekkert sem líktist hríslum en Soffía grædd’ upp magran mó með mörg þúsund lerkipíslum. Í skógi nú læðast skjóttur gnýr og skoffín á berum tánum og 700 önnur sjaldgæf dýr er sjást ekki fyrir trjánum. Guðmundur Arnfinnsson yrkir: Að sífelldu kitli og káfi kunnur var séra Láfi, og annar perri fannst enginn verri nema Patrekur páfi. Helgi R. Einarsson segir „Væn- legt til árangurs“: Þegar að Þórður datt í ’ða þurfti hann stundum að skríða, en svona’ eins og gengur gekk það ei lengur er giftist honum ’ún Fríða. Frúin hans bljúga og blíða bannaði honum að skríða. Þá sullinu hætti’ ann og hátternið bætti’ ann, því best er að brosa og hlýða. Englendingar unnu Svía 2-0. Jós- efínu Meulengracht Dietrich líkar það ekki: England það er yfirfullt af illum hundum sem ættu að gjamma aðeins minna. Ömurlegt þeir skyldu vinna. Dagbjartur Dagbjartsson spyr á Boðnarmiði hvort nokkur kannist við þessar vísur og geti staðfest hvort fyrri vísan sé rétt með farin svona. Höfundur sé Björn S. Blön- dal. Vertu það sem varstu fyrst vildisklárinn skarpi. Við höfum báðir vaskleik misst veslingurinn jarpi. Þín er orðin lúruð lund, linaður æskukraftur en ég get keypt hann stund og stund styrkinn forna aftur. Skarða-Gísla líkaði illa við tíma- ritið Fjölni og orti þegar Tómas Sæmundsson dó: Landið hló með dýja dans döfnuðu frjóvar náðir. Fjölnir dó og faðir hans - fari þeir óvel báðir. Sigurður Breiðfjörð kvað: Með engla kvaki eg skal þar undir taka glaður, á nýjum akri eilífðar, endurvakinn maður. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Í Soffíureit og Patrekur páfi „HANN ER EINN AF OKKAR HELSTU BAKHJÖRLUM.“ „ÉG MYNDI EINNIG VILJA ÞAKKA GULLFISKUNUM MÍNUM FYRIR AÐ VERA TIL STAÐAR ÞEGAR ÉG ÞARFNAÐIST ÞEIRRA.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... ófyrirsjáanleg. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann OKKUR VANTAR GULRÓTARKÖKU LENGI LIFI KONUNGURINN! STJÖRNUSPÁIN MÍN ER ÁHUGAVERÐ ÉG HÉLT AÐ ÞÚ HATAÐIR KONUNGINN! HÚN SEGIR AÐ ÉG MUNI HITTA EINHVERN SKRÝTINN Í DAG ÉG GERI ÞAÐ! EN ÉG ELSKA AUÐVELD SKOTMÖRK! ÞÚ ERT ÖRUGGLEGA SKRÝTINN Víkverji vaknaði í glampandi sóleinn daginn í síðustu viku sem sætir svo sannarlega tíðindum eins og tíðin hefur verið hér á suðvestur- horninu í „sumar“. Eins og aðra morgna var það eitt af hans fyrstu verkum að hleypa kettinum út og það skipti engum togum að sá fer- fætti nauðhemlaði í gættinni. Hefur líklega fengið ofbirtu í augun. Hann stóð kyrr dágóða stund áður en hann ákvað að láta sig vaða út í þessar framandi aðstæður. x x x Sjálfur setti Víkverji upp sólgler-augun þegar hann var kominn út í bíl – í fyrsta skipti síðan 28. maí, að hann kom heim frá sól- arlöndum. Þurfti hreinlega að dusta af þeim rykið. Ekki var Adam þó lengi í Paradís en Víkverji hafði ekki keyrt í fimm mínútur þegar dró fyrir sólu. Og sú gula lét ekki sjá sig meira þann daginn. Og ekki síðan, ef frá eru taldar fimm mín- útur í gærmorgun þegar glufa myndaðist í hnausþykka skýjahul- una sem legið hefur yfir borginni undanfarnar vikur og mánuði. x x x Í lok maí lofaði Víkverji að bjóðaforeldrum sínum í grill við fyrsta tækifæri og átti þá við fyrsta góð- viðrisdaginn. Enn er beðið eftir honum og foreldrarnir löngu hættir að spyrja. Auðvitað er hægt að grilla í dumbungi en það er bara ekki sama stemningin og stuðið. Kannski kemur einn sólardagur í ágúst og fíra má upp í grillinu. Kannski ekki. x x x Annars hefur engan tilgang aðsvekkja sig á þessu. Við búum á Íslandi – enda þótt Tenerife hafi villst vestur á firði undanfarnar vik- ur. Það er auðvitað ekkert svekkj- andi fyrir okkur á höfuðborgar- svæðinu að horfa á veðurfréttirnar í sjónvarpinu og sjá sól, blíðu og 24 stiga hita fyrir austan, dag eftir dag eftir dag. Eftir dag. Víkverji beinir orðum sínum að endingu til stjórnar Árvakurs: Er ekki hægt að flytja starfsemi þessa fyrirtækis til Egilsstaða? vikverji@mbl.is Víkverji Náðugur og miskunnsamur er Drott- inn, þolinmóður og mjög gæskuríkur. (Sálmarnir 103.8) Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is Allir vilja koma að sumarbústaðnum sínum eins og þeir skildu við hann og tryggja öryggi sitt og sinna sem best. Öryggisbúnaður, eins og lásar, þjófavarnarkerfi, reykskynjarar og slökkvitæki, fæst í miklu úrvali í Vélum og verkfærum. Öryggi í sumarbústaðnum Blaupunkt SA2700 Þráðlaust þjófavarnarkerfi • Fullkominn GSM hringibúnaður • Hægt að stjórna með Connect2Home-appi • Boð send með sms eða tali • Viðbótarskynjarar og fjöldi aukahluta fáanlegir Verð: 39.990 kr. OLYMPIA 9030 Þráðlaust þjófavarnarkerfi • Mjög einfalt í uppsetningu/notkun • Fyrir farsímakort (GSM) • Hringir í allt að 10 símanúmer • Allt að 32 stk. skynjarar • 2 stk. hurða/gluggaskynjarar og fjarstýring fylgir • Fáanlegir aukahlutir: viðbótarfjarstýringar, glugga/hurðaskynjarar, svæðisskynjarar PIR, reyk- og vatnsskynjarar. Verð: 13.330 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.