Morgunblaðið - 10.07.2018, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 191. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Veðurfræðingur vekur vonir
2. Átta drengjum verið bjargað
3. Þjálfaranum gekk ekkert illt til
4. Björgunaraðgerðum frestað í bili
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Rúmar 400.000 krónur söfnuðust í
fyrrakvöld á rokktónleikum sænsku
hljómsveitarinnar The Cadillac Band í
Gamla bíói en hún lék þar fyrir fullu
húsi til styrktar Krabbameinsfélagi
Íslands.
Meðal þeirra sem komu fram var
Jerry Scheff bassaleikari sem lék í
hljómsveit Elvis Presley, TCB Band,
til fjölda ára og með mörgum heims-
kunnum tónlistarmönnum og hljóm-
sveitum. Sagði hann tónleikagestum
sögur frá ferlinum á milli þess að
plokka bassann í Gamla bíói. Á tón-
leikunum var einnig haldið uppboð og
m.a. seld tromma í eigu D.J. Fontana
sem lék einnig með Presley í ein 14
ár.
Morgunblaðið/Valli
Rokkarar söfnuðu
yfir 400.000 krónum
Sýningin On Landscapes stendur
nú yfir á tvíæringi málaralistar í
þremur listasöfnum í Vestur-
Flæmingjalandi sem er skammt frá
Brussel í Belgíu og lánaði Listasafn
Reykjavíkur fjögur verk eftir Jóhann-
es S. Kjarval og eitt eftir Júlíönu
Sveinsdóttur á sýninguna.
Sýningin fjallar um landslagshefð-
ina í málaralist og er í þremur lista-
söfnum. Verk Kjarvals
má sjá í Roger
Raveelmuseum
sem og verk Júl-
íönu en á sýning-
unni eru verk yfir
60 alþjóðlegra
myndlistar-
manna.
Verk eftir Kjarval og
Júlíönu á tvíæringi
Á miðvikudag Sunnan 5-10, en 10-15 um landið norðvestanvert.
Dálítil væta sunnan og vestan til, annars víða bjartviðri.
Á fimmtudag Suðvestan 3-10 og stöku skúrir, en skýjað með köfl-
um á Norður- og Austurlandi. Hiti breytist lítið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-15 með vætu, en áfram þurrt
og bjart um landið norðaustanvert. Hiti 10 til 20 stig.
VEÐUR
Íslenska kvennalandsliðið í
handknattleik, skipað leik-
mönnum 20 ára og yngri,
leikur við Noreg í dag í 16-
liða úrslitum heimsmeist-
aramótsins sem stendur yf-
ir í Ungverjalandi. Hvernig
sem leikurinn endar þá virð-
ist ljóst að íslenska liðið
hefur náð sögulegum ár-
angri á mótinu með því að
gera betur en önnur íslensk
kvennalandslið sem hafa
tekið þátt í stórmótum. »1
Árangurinn hefur
aldrei verið betri
Romelu Lukaku og samherjar hans í
belgíska landsliðinu geta í kvöld orð-
ið í fyrsta belgíska landsliðinu í sög-
unni sem kemst í úrslitaleik á heims-
meistaramóti í knattspyrnu. Belgar
og Frakkar mætast í und-
anúrslitum í Pétursborg
í kvöld. Þrátt fyrir að
Belgum hafi vegn-
að vel í gegn-
um tíðina í
viðureignum
sínum við
Frakka eiga
þeir eftir að
leggja þá á stór-
móti. »4
Frakkar hafa reynst
öflugri á stórmótum
Víkingur Reykjavík vann afar mikil-
vægan 3:2-sigur á Fylki í 12. umferð
Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í
Egilshöll í gær. Víkingar eru komnir í
sjötta sæti deildarinnar eftir sigurinn
og eru með 15 stig og eru einungis
fjórum stigum á eftir Breiðabliki sem
er í þriðja sæti deildarinnar. Fylkir er
hins vegar í miklu basli í ellefta sæti
deildarinnar með 11 stig. »3
Víkingar unnu Fylki í
sex stiga leik í Egilshöll
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Á forritunarnámskeiði Skemu í
Háskólanum í Reykjavík er börn-
um á aldrinum 7 til 10 ára kennd
forritun á skemmtilegan hátt. Þar
spila krakkarnir tölvuleikinn
Minecraft, forrita inn í leikinn og
breyta honum jafnóðum.
Jón Jökull Úlfarsson, nemandi á
námskeiðinu, var upptekinn við
húsasmíð í Minecraft þegar Morg-
unblaðið náði tali af honum. Hann
hefur gaman af forritun þótt hún
sé flókin. „Ég er að safna viði fyr-
ir hús sem ég er að byggja. Maður
getur byggt alls konar og það er
pínu flókið í byrjun. Þegar ég er
búinn að vera lengi verð ég betri.“
Jón þekkir leikinn og hefur spilað
hann áður heima. Aðspurður hvort
það sé ekki notalegra að vera á
sumarnámskeiði inni heldur en úti
í rigningunni segir Jón: „Já, já, en
stundum er líka mjög skemmtilegt
að vera úti.“
Jón segist ekki vita hvort hann
vilji læra forritun í framtíðinni en
hann hefur vissulega gaman af
henni.
„Þetta snýst um að læra að
skilja undirstöðuatriðin í forritun
með hjálp Minecraft,“ segir Eva
Sif Einarsdóttir, aðalþjálfari á
námskeiðinu. Þá feta börnin sig
áfram í leiknum og stjórna honum
með forritun. Kubbaforritunin er
svo tengd við Minecraft þar sem
hægt er að gera ýmislegt. „Í dag
eru þau til dæmis að gera verkefni
sem snýst um að hoppa lengst út í
geim,“ segir Eva.
Bætt rökhugsun
Verkefnin eru margslungin en
eiga þó öll sameiginlegt að í þeim
er forritun sem stuðlar að bættri
rökhugsun, að mati Evu. Hægt sé
að kenna hvað sem er með for-
ritun og tengja hana við margt.
Mikil aðsókn hefur verið á nám-
skeiðin, sem voru líka haldin í vet-
ur. Meirihluti námskeiðanna fyllt-
ist í vetur, en í mesta lagi komast
16 krakkar inn á eitt námskeið. Þá
er forritun ekki enn kennd í öllum
grunnskólum landsins.
„Mér finnst klárlega að þetta
eigi að vera kennt í öllum grunn-
skólum en Skema er búið að vera
að kenna í nokkrum skólum. For-
ritun snýst bara um að leysa verk-
efni.“ Skipanirnar í forrituninni
eru á ensku en það virðist ekki
vera vandamál fyrir krakkana.
„Flest þeirra eru góð í ensku þótt
þau séu 7 til 10 ára. Þau eru
meira að segja oft með betri ís-
lensk hugtök í forritun heldur en
aðrir,“ segir Eva.
Læra forritun með léttum leik
Skema heldur
forritunarnám-
skeið fyrir börn
Morgunblaðið/Hari
Húsasmíð Jón Jökull hefur gaman af forritun og Minecraft. Í leiknum er hægt að hanna og smíða allt mögulegt.
Skema hefur vaxið ört frá árinu
2011, en þá sendi Rakel Sölvadótt-
ir, stofnandi fyrirtækisins, hug-
mynd í frumkvöðlakeppnina Fræ
ársins. Hugmyndin hennar um for-
ritunarnám barna hlaut fyrstu
verðlaun í keppninni og í kjölfarið
var Skema stofnuð.
Fyrirtækið vakti verðskuldaða
athygli innanlands sem utan og
hóf samstarf við Háskólann í
Reykjavík árið 2012 og eignaðist
HR hlut í Skemu. Þá var sam-
starfsverkefni með Samtökum at-
vinnulífsins, Uppfærum Ísland,
hrint í framkvæmd sama ár. Nú eru
forritunarnámskeið kennd á veg-
um Skemu í húsakynnum HR fyrir
börn á aldrinum 4 til 16 ára.
Skema tekur beinan þátt í innleið-
ingu á forritun og tækni í skóla-
starf nokkurra grunnskóla.
Hugmynd sem vakti athygli
KENNSLA Í FORRITUN