Morgunblaðið - 17.07.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.07.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Fleiri skrá heimagistingu  Tíðni beiðna um skráningu hefur aukist síðan aukið eftirlit var boðað í lok júní Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Tíðni skráninga á heimagistingu hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæð- inu hefur aukist talsvert frá því að samningur um eflingu Heimagist- ingavaktar við atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytið var undirritaður 27. júní sl. Frá því tímamarki hafa 140 óskað skráningar, en 1.448 skrán- ingar verið staðfestar hjá sýslumanni frá því í ársbyrjun. Þetta segir í skrif- legu svari Sýslumanns. Verkefnið er til eins árs og er markmiðið að hvetja einstaklinga til að skrá skammtímaútleigu sína. Starfsfólki verður fjölgað úr þremur í ellefu og mun teymið m.a. gera vett- vangsrannsóknir í kjölfar ábendinga frá almenningi. Frestur til að sækja um störfin rann út í gær. Einstaklingar sem vilja leigja út lögheimili eða eina aðra fasteign í sinni eigu geta að ákveðnum skilyrð- um uppfylltum leigt eignir sínar í allt að 90 daga á ári og haft af því allt að 2.000.000 krónur í tekjur án þess að sækja um sérstakt rekstrarleyfi, en starfsemin er þó skráningarskyld. Á fimmta hundrað ábendingar Á fimmta hundrað ábendinga frá almenningi hafa borist Sýslumannin- um á höfuðborgarsvæðinu frá því að embættið tók við eftirliti og skrán- ingu heimagistingar í ársbyrjun árið 2017. Ábendingarnar snúa bæði að rekstrarleyfisskyldri starfsemi í at- vinnuskyni og óskráðri heimagist- ingu einstaklinga. Fyrrnefndu tilvik- unum er vísað til lögreglustjóra í hverju umdæmi fyrir sig, en árið 2017 sendi sýslumaður upplýsingar og gögn um 54 á ákærusvið lögreglu til meðferðar. Sýslumaður getur lagt stjórnvaldssektir á einstaklinga sem reka heimagistingu án skráningar, frá tíu þúsund krónum að einni milljón. „Enn sem komið er hefur ekki verið gripið til stjórnvaldssekta. Hins vegar er fyrirséð að þeim verði beitt í auknum mæli í náinni framtíð,“ segir í svari Sýslumanns. Upplýsingar um raunverulegt um- fang skammtímaleigu eru á nokkru reiki og byggja á áætlunum. „Þrátt fyrir framangreinda fyrirvara á mati á raunverulegu umfangi skráninga- skyldrar eða leyfisskyldrar skamm- tímaleigu er ljóst að stærstur hluti slíkrar starfsemi fer enn fram án til- skilinna leyfa og skráningar,“ segir í svarinu. Morgunblaðið/Arnaldur Höfuðborgin Á fimmta hundrað ábendinga frá almenningi hafa borist sýslu- manni frá því að embættið tók við eftirliti og skráningu heimagistingar. Tónleikar rokkhljómsveitarinnar Guns N’ Roses, sem fram fara á Laugardalsvelli 24. júlí, verða, að sögn tónleikahaldara, stærstu tón- leikar Íslandssögunnar, hvort sem um er að ræða fólksfjölda á tónleik- unum sjálfum eða umfang verkefn- isins í heild sinni. Gríðarlega mikill búnaður verður fluttur til landsins vegna tónleikanna og er samanlögð þyngd hans um 1.300 tonn. Alls verður 21 fjörutíu feta gámur fluttur til landsins, auk þess sem tengivagnarnir, sem fluttir eru í sjófrakt, eru 16 talsins. Þá verða 100 tonn af búnaði flutt með flug- frakt. Kemur þetta fram í tilkynningu frá TVG-Zimsen, sem sér um að flytja búnað sveitarinnar til landsins. Þá verður sviðið sem byggt verður fyrir tónleikana 65 m á breidd og verður sérstakt gólf lagt yfir grasvöll- inn til að vernda undirlagið. Auk þessa verður ekkert til sparað í ljósa- búnaði og hljóði og mega tónleika- gestir búast við sjónarspili frá eld- vörpum og reyksprengjum. 1.300 tonn af tónleikabúnaði Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Yfirvinnubannið sem hefst á mið- nætti er ótímabundið, en samninga- nefnd ríkisins getur komið í veg fyr- ir að það skelli á með því að ganga til samninga við okkur. Fjármála- ráðherra hefur sagt að samninga- nefnd ríkisins hafi fullt umboð til að semja við okkur,“ sagði Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður Ljós- mæðrafélags Ís- lands, við Morg- unblaðið að lokn- um fjölmennum og kröftugum fé- lagsfundi Ljós- mæðrafélags Ís- lands sem hald- inn var í Borgar- túni 6 í gær- kvöldi. Yfirvinnubann ljósmæðra skell- ur á um allt land á miðnætti. Áhrif- anna mun gæta víða en þó mest á Landsspítalanum. Bryndís Hlöðversdóttir ríkis- sáttasemjari segir að samningsað- ilar geti kallað eftir fundi ef þeir telji að einhver breyting sé frá síð- asta fundi þar sem allt var stál í stál. „Ég heyrði í báðum deiluaðilum í dag og eftir því sem ég best veit hefur ekkert breyst og því höldum við okkur við boðaðan fund á mánu- dag,“ segir Bryndís Notaðar sem fórnarkostnaður „Samningaviðræðurnar virðast ekki snúast um peninga því við vit- um að peningarnir eru til. Það er eins og ljósmæður séu notaðar sem fórnarkostnaður til að viðhalda ein- hverjum ímynduðum stöðugleika á vinnumarkaði og ég held að okkur sé fórnað vegna þess að við erum kvennastétt. Það eru lausir samn- ingar á almenna markaðnum eftir áramót, það virðist vera mikill hiti í almenna markaðinum og ýmsir verkalýðsleiðtogar hafa gefið það út að það verði farið fram á launa- hækkanir þar sem horft verði til úr- skurða kjararáðs. Það er okkur óviðkomandi og einhverra hluta vegna lendum við sem fórnarkostn- aður fyrir ímyndaðan stöðugleika. Ég er þess fullviss að ljósmæður hafi ekkert úrslitavald í því að það fari eitthvert höfrungahlaup af stað. Við eigum inni fyrir þessari leiðrétt- ingu og erum ekki að fara fram á launahækkanir umfram aðra, heldur leiðréttingu á launasetningu,“ segir Katrín, sem telur það merkilegt að ekki sé litið til þess að úrskurðir kjararáðs séu fordæmisgefandi fyrir vinnumarkaðinn í heild en litið sé svo á að leiðrétting á launakjörum ljósmæðra sé fyrir opinbera mark- aðinn og hinn almenna. „Það er dálítið sérstakt og sýnir svolítið brenglað verðmætamat sem hefur verið lengi. Við getum horft til hækkana bankastjóra ríkisbank- anna þar sem launahækkanir eiga að vera árangurstengdar og skýra sérstaklega ofurhækkanirnar. Ef verðmatið væri rétt ættu launin okkar að vera margfalt betri en þau eru í dag. Þá ætti verðmætasköp- unin að sjást í launaumslaginu,“ segir Katrín, sem segir að mikil reiði sé meðal ljósmæðra. „Það er vont að finna það að framlag okkar sé í raun og veru ekki meira metið til launa en raun ber vitni,“ segir Katrín, sem er þakklát fyrir þann stuðning sem ljósmæðrum er sýndur. „Jæja hópurinn, sem á rætur sín- ar að rekja til Búsáhaldabyltingar- innar, og hópurinn Mæður og feður sem styðja ljósmæður hafa boðað til mótmælafundar á Austurvelli [í dag] kl. 15.00 á sama tíma og þar fer fram þingfundur,“ segir Katrín. Að sögn hennar er hægt í brýnni neyð að sækja um undanþágu frá yfirvinnubanni og er það sérstök undanþágunefnd sem sér um að veita undanþágur. Ekki er þó víst að hægt sé að manna vaktir þó að undanþága sé veitt. Hægt að afstýra yfirvinnubanni Morgunblaðið/Arnþór Birkisson  Ljósmæður fjölmenntu á félagsfund í gærkvöldi  Mikill hugur er í félagsmönnum  Verðmætamat launa brenglað  Formaður Ljósmæðrafélags segir þær fórnarkostnað fyrir ímyndaðan stöðugleika Samstaða Forystumenn ljósmæðra tóku m.a. á móti fyrispurnum félagsmanna úr sal og í gegnum netið á fjölsóttum fundi sem fram fór í gærkvöldi. Katrín Sif Sigurgeirsdóttir Alma D. Möller landlæknir segir í tilkynningu á vef Emb- ættis landlæknis að staðan í kjaradeilu ríkisins og ljós- mæðra sé alvarleg og mikið áhyggjuefni. Embætti Land- læknis hefur fylgst með starfsemi Landspítalans og verið í beinu sambandi við stjórnendur og starfsfólk með setu á stöðufundum á kvennadeild spítalans. Landlæknir segir að erfitt sé að skipuleggja starfsemi þannig að öryggi skjólstæðinga sé gætt eins og frekast sé unnt og að þjónusta skerðist sem minnst. Alma segir að vegna vandaðrar og ítarlegrar aðgerðaráætlunar Landspítalans og góðrar samvinnu á milli deilda, annarra þjónustuaðila og stofnanir utan Landspít- alans hafi starfsemin gegnið vonum framar. Landlæknir lýsir áhyggjum sín- um af yfirvofandi yfirvinnubanni ljósmæðra og segir allar líkur á að staðan eigi eftir að versna frá því sem nú er og að slíkt sé ekki boðlegt. Lýsir yfir áhyggjum af deilunni EMBÆTTI LANDLÆKNIS Alma D. Möller Morgunblaði/Arnþór Birkisson Ljósmæður Mikil samstaða var meðal félagsmanna á fundinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.