Morgunblaðið - 17.07.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.07.2018, Blaðsíða 16
Afli eftir fisktegundum Heimild: Hagstofa Íslands 2018 hálft ár 2017 2016 2015 2014 2013 2012 2011 2010 2009 Þorskur 124,1 221,5 232,8 213,3 203,8 204,3 177,3 158,5 156,0 161,2 Ýsa 16,6 28,0 31,3 33,3 28,6 37,4 37,7 40,8 48,7 55,6 Ufsi 27,0 42,3 40,5 40,8 37,3 47,4 41,7 40,8 43,8 47,6 Karfi 26,4 50,0 53,9 50,9 50,4 53,3 48,9 49,9 48,7 48,6 Úthafskarfi 1,1 2,0 2,8 2,1 2,4 8,6 5,9 11,2 14,4 15,1 Steinbítur 5,7 5,5 6,7 6,1 5,8 7,2 8,5 8,7 9,8 11,0 Gulllax 2,6 4,3 5,7 6,0 7,0 6,8 9,0 10,3 16,5 11,4 Síld 1,2 74,1 68,0 66,3 95,8 89,6 109,0 119,0 136,2 192,9 Loðna 103,8 114,7 53,8 206,0 65,1 254,5 338,7 188,0 69,4 6,9 Kolmunni 154,9 150,4 118,3 152,0 127,1 69,6 33,9 4,0 61,3 77,1 Makríll 0,08 96,3 95,0 98,8 107,6 96,0 87,1 94,6 68,2 62,8 Rækja 2,2 4,1 6,3 5,6 6,5 10,5 10,0 7,3 7,6 5,5 – í þúsundum tonna BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Fiskafli íslenskra skipa í júnímánuði reyndist 47,2 þúsund tonn. Er það um 11% minni afli en í sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Mestu mun- ar þar um samdrátt í uppsjávarteg- undum, en þar nemur samdrátturinn 33%. Hins vegar er samdrátturinn aðeins 2% í botnfiskafla. Á þessum tíma árs er mun meiri veiði í botnfiski en uppsjávarfiski og skýrir það þá staðreynd að heildarsamdrátturinn er aðeins 11% þrátt fyrir hinn mikla samdrátt í uppsjávartegundum. Albert Sigurðsson, sem starfar á sviði fyrirtækjatölfræði hjá Hagstof- unni, segir að ýmislegt forvitnilegt megi lesa út úr aflatölum, jafnvel þótt erfitt sé að draga miklar ályktanir af einstaka mánuðum. Þar nefnir hann sérstaklega þann samdrátt sem orðið hefur í veiði síldar á síðustu árum. „Löndun á síld hefur minnkað verulega frá 2010 en á sama tíma hef- ur veiði á kolmunna aukist mikið. Horft yfir lengra tímabil er einnig forvitnilegt að sjá að á árunum 2012 til 2013 var heildaraflamagn nokkuð meira en hin síðari ár.“ Spurður út í þessa þróun segir Albert að aðrir þurfi að lesa úr því hvað þarna liggi að baki, það sé einfaldlega hlutverk starfsfólks Hagstofunnar að útbúa tölfræði á grundvelli þeirra gagna sem skilað er til stofnunarinnar. Lítil tíðindi í botnfiski Guðmundur Þórðarson, sviðsstjóri botnsjávarlífríkis við Hafrannsókna- stofnun, segir að lítil tíðindi felist í tölunum fyrir júnímánuð. Hins vegar sé forvitnilegt að sjá að ufsinn skuli gefa jafn mikið eftir og raun ber vitni, eða um 11% frá fyrra ári. Þannig veiddust tæp 4.100 tonn af honum í júní, en í sama mánuði í fyrra nam veiðin tæplega 4.600 tonn- um. „Samkvæmt upplýsingum sem við höfum fengið hefur gengið treglega að veiða ufsann að undanförnu. En þarna kann einnig að spila inn í að forsvarsmenn sjávarútvegsins hafa sagt að það borgi sig ekki að veiða ufsann um þessar mundir, m.a. vegna veiðigjalda og markaðsverðs.“ Hins vegar varð talsverður vöxtur í veiði ýsu í nýliðnum mánuði og veiddust þá 2.368 tonn, samanborið við 1.778 tonn í sama mánuði í fyrra. Því jókst veiðin í þeirri tegund um 33% á fyrrgreindum tíma. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri uppsjávarlífríkis segir líkt og Guð- mundur að engin stórtíðindi felist í nýjustu tölum Hagstofunnar. Sá samdráttur sem virðist birtast í makrílveiðum eigi sér þær eðlilegu skýringar að nú sé aflinn sóttur seinna, m.a. vegna viðvarandi sam- dráttar í síld sem orðið hafi á síðustu árum. „Nú er svo lítið sem má veiða af síldinni að það þvælist ekki fyrir.“ Þannig eru fyrstu skip tiltölulega ný- farin á makríl og því veiddist ekkert af honum í júnímánuði. Veldur það því að þrátt fyrir takmarkaða veiði í júní í fyrra mælist samdrátturinn 100% milli samanburðartímabilanna.  47 þúsund tonn veiddust í júní  2% samdráttur í botnfiskafla miðað við sama mánuð í fyrra  Samdrátturinn 33% í uppsjávarafla  Sérfræðingur segir eðlilegar skýringar á samdrættinum Talsvert minni fiskafli í júnímánuði Algjört súkkulæði! 16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2018 ● Hagnaður Miklatorgs hf., sem á og rek- ur IKEA-verslunina á Íslandi, nam 982,5 milljónum króna á síðasta rekstrarári, sem miðast við september til ágúst ár hvert. Hagnaður félagsins rekstrarárið á undan var 758,9 milljónir króna og jókst hann því um tæplega 224 milljónir á milli ára. Sölutekjur félagsins námu 10,3 millj- örðum króna og jukust um tæplega 1,4 milljarða milli rekstrarára. Rekstrargjöldin jukust á sama tíma um liðlega milljarð króna. Hagnaður fyrir afskriftir og fjár- magnsliði, EBITDA, var 1,3 milljarðar króna og jókst um 322 milljónir króna á milli ára. Eignir félagsins námu 2,2 milljörðum króna í lok rekstrarársins og var eigið fé 535 milljónir króna. Fram kemur í ársreikningi að stjórn leggi til að hluthöfum verði greiddar 500 milljónir króna í arð. Í stjórninni sitja eig- endur félagsins, bræðurnir Jón og Sig- urður Gísli Pálmasynir, auk Sigfúsar B. Ingimundarsonar. Eigendur IKEA fá hálfan milljarð í arðgreiðslu STUTT Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á 17. júlí 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 106.69 107.19 106.94 Sterlingspund 141.45 142.13 141.79 Kanadadalur 81.06 81.54 81.3 Dönsk króna 16.745 16.843 16.794 Norsk króna 13.165 13.243 13.204 Sænsk króna 12.07 12.14 12.105 Svissn. franki 106.76 107.36 107.06 Japanskt jen 0.9485 0.9541 0.9513 SDR 150.06 150.96 150.51 Evra 124.85 125.55 125.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 152.2622 Hrávöruverð Gull 1240.5 ($/únsa) Ál 2100.0 ($/tonn) LME Hráolía 74.34 ($/fatið) Brent ● Ísaga ehf., dótturfélag þýsku sam- steypunnar Linde Group, hagnaðist um 550 milljónir króna í fyrra, samanborið við 535 milljónir króna árið áður. Félagið seldi fyrir rúmlega 2,3 millj- arða króna í fyrra sem er um 300 millj- ónum króna meira en árið 2016. Eignir Ísaga námu rúmum 3,6 millj- örðum króna um áramótin, en voru um 3,0 milljarðar króna ári áður. Breytingin skýrist helst af hækkun á liðnum „fast- eign í byggingu“ úr 1,2 milljörðum króna í 2,0 milljarða milli ára, sem má áætla að sé ný verksmiðja félagsins í Vogum á Vatnsleysuströnd. Eigið fé félagsins eykst milli ára úr 2,4 milljörðum króna í rétt tæpa 3,0 milljarða. Skuldir stóðu í 650 milljónum króna um áramótin, en þær voru 624 milljónir króna í árslok 2016. Ísaga ehf. á og rekur verksmiðju sem framleiðir iðnaðargastegundir. Félagið flytur einnig inn og selur aðrar tegundir af iðnaðargasi og lyfjagasi. Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu tók til starfa í apríl á þessu ári ný gasverksmiðja félagsins í Vogum á Vatnsleysuströnd. Afkastageta nýju verkmiðjunnar á að vera um þriðjungi meiri en gömu verksmiðju félagsins við Breiðhöfða í Reykjavík. Allt hlutafé Ísaga ehf. er í eigu OY AGA AB í Finnlandi sem er hluti af þýska stórfyrirtækinu Linde Group. Fram kemur í ársreikningi að stjórn félagsins lagði til að ekki yrði greiddur út arður til hluthafa vegna ársins 2017. steingrimur@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Iðnaður Ný gasverksmiðja Ísaga í Vogum var vígð af iðnaðarráðherra fyrr á árinu. Ísaga hagnaðist um 550 milljónir á síðasta ári

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.