Morgunblaðið - 17.07.2018, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2018
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti og
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
sögðust vera mjög ánægðir með ár-
angurinn af viðræðum þeirra í Hels-
inki í gær. Þeir sögðust vilja vinna
saman að lausn vandamála sem steðja
að heimsbyggðinni, eftir að hafa rætt
málefni á borð við stríðið í Sýrlandi,
átökin í Úkraínu, viðskiptadeilur, af-
vopnunarmál og fjölda kjarnavopna
landanna.
Trump sagði að fundurinn í gær
væri aðeins upphafið að viðræðum
sem miðuðu að því að koma tengslum
ríkjanna í eðlilegt horf, því að það
þjónaði hagsmunum þeirra beggja.
„Ég er viss um að við eigum eftir að
koma oft saman til viðræðna. Og von-
andi leysum við öll þau vandamál sem
við ræddum í dag.“
Pútín kvaðst telja að fundurinn
hefði verið „mjög árangursríkur og
gagnlegur“. Þeir hefðu m.a. rætt deil-
una um kjarnavopn einræðisstjórnar-
innar í Norður-Kóreu og stríðið í Sýr-
landi. Trump hefði einnig spurt um
meint afskipti Rússa af forsetakosn-
ingunum í Bandaríkjunum í nóvem-
ber 2016. „Ég þurfti að endurtaka það
sem ég hef margsagt áður – rúss-
neska ríkið hefur aldrei haft afskipti
og ætlar aldrei að hafa afskipti af
innanríkismálum Bandaríkjanna,“
sagði Pútín. Hann kvaðst þó hafa vilj-
að að Trump sigraði í kosningunum
vegna þess að hann hefði talað um að
bæta tengslin við Rússland.
Trump sagði að rannsóknin í
Bandaríkjunum á meintum afskipt-
um Rússa af kosningunum væri
„stórslys“ fyrir Bandaríkin og Pútín
hefði neitað því „kröftuglega“ að
Rússar hefðu reynt að hafa áhrif á
kosningarnar. Trump lét í ljós efa-
semdir um þá niðurstöðu bandarískra
leyniþjónustustofnana að Rússar
hefðu haft afskipti af kosningunum.
Þegar hann var spurður hvort hann
tryði Pútín eða leyniþjónustustofnun-
um Bandaríkjanna sagðist hann ekki
sjá neina ástæðu til að telja að niður-
staða þeirra væri rétt, að sögn The
Wall Street Journal.
Pútín lagði til að Robert Mueller,
sérstakur saksóknari sem annast
rannsóknina, sendi stjórnvöldum í
Moskvu beiðni um að fá að yfirheyra
tólf Rússa sem hafa verið ákærðir
fyrir að hafa reynt að hafa áhrif á
kosningarnar. Hann bætti þó við að
hann myndi ætlast til þess að rúss-
nesk yfirvöld gætu yfirheyrt banda-
ríska embættismenn.
Skellti sökinni á Bandaríkin
Trump sagði á blaðamannafundin-
um að báðum ríkjunum hefðu orðið á
mistök sem leitt hefðu til spennu í
samskiptum þeirra. Fyrir fundinn
sagði Trump á Twitter að Bandaríkin
ættu sök á því að samskipti landsins
við Rússland versnuðu. „Tengsl okk-
ar við Rússland hafa ALDREI verið
verri vegna margra ára flónsku og
heimsku Bandaríkjanna og núna
vegna hagræddu nornaveiðanna!“
Trump skírskotaði til rannsóknar-
innar á því hvort Rússar hefðu reynt
að hafa áhrif á kosningarnar, hvort
samstarfsmenn Trumps í kosninga-
baráttunni hefðu verið í leynimakki
við Rússa og hvort forsetinn hefði
reynt að hindra rannsóknina. Trump
hefur lýst henni sem „nornaveiðum“.
Bandarískar leyniþjónustustofnan-
ir hafa komist að þeirri niðurstöðu að
rússneskir hakkarar, sem talið er að
tengist leyniþjónustu og her Rúss-
lands, hafi brotist inn í tölvupósta
landsnefndar Demókrataflokksins og
kosningastjóra Hillary Clinton og lek-
ið þeim í því skyni að koma höggi á
hana í kosningabaráttunni. Banda-
rísku leyniþjónustustofnanirnar telja
að Pútín hafi fyrirskipað tölvuinnbrot-
in til að reyna að hafa áhrif á niður-
stöðu forsetakosninganna. Stjórn
Trumps greip til refsiaðgerða í mars
sl. gegn nítján Rússum og fimm stofn-
unum vegna meintra afskipta þeirra
af kosningunum og tölvuárása.
Forveri Trumps, Barack Obama,
reyndi að bæta tengslin við Rússland
eftir að hann tók við forsetaembætt-
inu en samskipti ríkjanna versnuðu
vegna meintrar íhlutunar Rússa í
austurhéruðum Úkraínu og innlimun-
ar Krímskaga í Rússland árið 2014.
Bandaríkjaþing samþykkti með mikl-
um meirihluta atkvæða á síðasta ári
að herða refsiaðgerðirnar gegn Rúss-
um vegna meintra afskipta þeirra af
kosningunum vestanhafs, auk innlim-
unar Krímskaga og stuðnings Rússa
við uppreisnarmenn í Austur-Úkra-
ínu.
Sér ekki ástæðu til að rengja Pútín
Trump forseti lét í ljós efasemdir um niðurstöðu bandarískra leyniþjónustustofnana í deilu við Rússa
Forsetarnir segja að fundur þeirra í Helsinki hafi verið mjög árangursríkur Boða bætt samskipti
AFP
Leiðtogafundur Donald Trump og Vladimír Pútín takast í hendur í Hels-
inki þar sem þeir komu saman í gær til að bæta samskipti landa sinna.
20172007
RÚSSLANDBANDARÍKIN
610
Heimildir: Alþjóðabankinn, SIPRI, SÞ
Útgjöld til varnarmála
Milljarðar $, 2017
Hernaðar- og efnahagsmáttur Bandaríkjanna og Rússlands
Fjöldi kjarnavopna
Kjarnaoddar, 2018
Verg landsframleiðsla
Hagvöxtur
Íbúafjöldi
Hlutfall atvinnulausra
2017
19,4 1,6
325,7 144,5
4,4% 5,3%
20172007
Milljónir, 2017
%
Billjónir $, 2017
6.450 6.850
1,8
-2,8
2,3
8,5
-7,8
1,5
Donald Trump Vladimír Pútín
66,3
Aðeins túlkar viðstaddir
» Trump og Pútín ræddu fyrst
saman í rúmar tvær klukku-
stundir og aðeins túlkar þeirra
voru viðstaddir fundinn. Þeir
héldu síðan viðræðunum áfram
með hátt settum embættis-
mönnum í öryggismálum.
» Hermt er að margir þing-
menn í Washington hafi haft
áhyggjur af þeirri ákvörðun
Trumps að ræða einn við Pútín
og óttast að hann myndi fallast
á einhvers konar tilslökun í deil-
unum við Rússa, að sögn frétta-
veitunnar AFP.
Gróðureldar loga nú víða í Svíþjóð
og óttast er að fleiri eldar kvikni á
næstu dögum þar sem spáð er
áframhaldandi hlýindum og þurrk-
um. Hlýindin í Svíþjóð eru orðin svo
mikil að yfirvöld hafa gefið út við-
vörun um mjög mikinn hita í mið-
hluta landsins næstu daga, meðal
annars Stokkhólmi og Uppsölum.
Töluvert bætti í vind í gær og það
gerði slökkvistarfið erfiðara. Vind-
áttin breyttist einnig skyndilega
með þeim afleiðingum að slökkvi-
liðsmenn urðu frá að hverfa í Ljus-
dal í suðausturhluta landsins. Varað
hefur verið við því að eldurinn geti
ógnað húsum í bænum Ängra. Um
þrjátíu manns þurftu að forða sér af
heimili sínu og ákveðið var að rýma
tjaldsvæði í bænum.
Tilkynnt hefur verið um rúmlega
1.200 elda í landinu það sem af er ári
og langflestir þeirra kviknuðu síð-
ustu daga. Flestir þeirra eru í Döl-
unum, Jämtlandi og Örebro en eldar
hafa kviknað víða annars staðar.
Sænsk yfirvöld hafa hvatt íbúa til
að virða bann við því að nota útigrill
þar sem hætta er á gróðureldum.
Norðmenn hafa komið Svíum til
hjálpar með því að senda sex þyrlur
sem taka þátt í slökkvistarfinu.
Sænsk yfirvöld hafa einnig óskað
eftir aðstoð frá Evrópusambandinu
ef ástandið heldur áfram að versna.
Drukknunum fjölgar
Sænsk yfirvöld gáfu í fyrradag út
viðvörun um mjög mikinn hita í
Örebro, Vestmanland, Söderman-
land, Uppsölum og Stokkhólmi í
miðhluta landsins. Spáð er að
minnsta kosti 30 stiga hita á svæð-
unum í fimm daga í röð.
Fréttastofan TT hefur eftir
sænska veðurfræðingnum Linus
Dock að sjaldgæft sé að svo mikill
hiti vari í fimm daga í röð í Svíþjóð
og þetta sé í fyrsta skipti frá árinu
2014 sem slík viðvörun sé gefin út.
Hlýindin sem hafa verið í Svíþjóð
síðustu vikur hafa meðal annars orð-
ið til þess að dauðsföllum af völdum
drukknunar við strendur landsins
eða í vötnum hefur fjölgað. Alls
drukknuðu 39 manns í Svíþjóð í maí
og júní og fimm þeirra sem dóu voru
börn. Að sögn sænskra fjölmiðla
drukknuðu jafnmörg börn þessa tvo
mánuði og allt síðasta ár. Alls
drukknuðu 92 í Svíþjóð á síðasta ári
og 62 á fyrri helmingi þessa árs.
Gróðureldar loga
víða í Svíþjóð
Varað við hitabylgju næstu daga
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3