Morgunblaðið - 17.07.2018, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 17.07.2018, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2018 Borgarfjörður Tvöfaldur regnbogi blasti við fólki í Munaðarnesi á laugardag. Stundum sést tvöfaldur regnbogi þar sem litaröðin er öfug í efri boganum miðað við þann neðri. Eggert Kirkjan er oss kristnum móðir er upp- haf sálms eftir Helga Hálfdánarson. Fyrir mig hefur kirkjan verið og er eitt af því mikilvægasta í lífi mínu. Fyrst sunnu- dagaskólinn, æskulýðs- starfið í KFUK og svo tók alvara lífsins við. Í mínum mestu sálarlegu erfiðleikum hef ég leitað hjálpar hjá sálfræðingum og geðlækni, en eng- inn reyndist mér meiri hjálp en presturinn minn. Mér svíður stund- um hvernig skrifað er um kirkjuna, að hún sé hálftóm á sunnudögum og svo ekkert meir. Já, kannski um mitt sumar, en sannleikurinn er sá að kirkjan iðar af lífi alla daga. Messan og sunnudagaskólinn á sunnudögum. Barnastarfið, þar sem börnin leika sér, föndra, syngja og setja upp leik- sýningar. Unglingastarfið, þar sem unglingarnir eiga sinn félagsskap. Foreldramorgnar, þar sem foreldrar koma með eða án barna, miðla þekk- ingu sinni, fá fræðara í heimsókn og svo eldri borgararnir sem koma sam- an og eiga góðar stundir við upp- lestur, handavinnu, tónlist og spil. Oft er boðið upp á alls konar nám- skeið. Það er fróðlegt að kíkja á vef kirknanna og sjá hversu fjölbreytt og mikið starf er þar. Sums staðar eru sorgarhópar, skilnaðarhópar, jóga, slökunarstundir, leikfimi, söng- stundir fyrir ungabörn, prjónaklúbb- ar, karlahópar, Alfa-námskeið, 12 spora starf og í mörgum kirkjum hefur AA-fólk aðstöðu til að koma saman. Að kórastarfinu ógleymdu, en þar er mikil starfsemi í gangi og algengt að kirkjukórar æfi og haldi sérstaka tónleika. Messurnar geta líka verið fjölbreyttar. Þar getur t.d. verið venju- leg sálmamessa, gospelmessa, kvik- myndatónlistarmessa, jazzmessa og forn- tónlistarmessa. Stund- um er altarisganga og stundum eru fjöl- skyldumessur og þá með léttara móti og börnin fá að njóta sín og svo er sunnudagaskólinn fyrir þau. Flest af því sem hér er talið upp er fjármagnað af sóknargjöldunum okkar. Í apríl árið 2008 voru sóknar- gjöldin mín kr. 930.46 á mánuði og kirkjan mín fékk kr. 872. Í dag eru sóknargjöldin mín kr. 1.556.34 og kirkjan mín fær kr. 931. Mér finnst óþolandi að teknir séu af mér skattar og þeim ekki skilað nema að hluta til þeirra sem þeir eru ætlaðir. Alveg frá hruni hefur ríkið tekið stóran hluta af sóknargjöldunum til sín og skert þannig starfsemi kirkj- unnar. Því vil ég spyrja, hvað er gert við þennan hluta af sóknargjöld- unum mínum, sem ekki er skilað til kirkjunnar minnar? Eftir Guðrúnu Júlíusdóttur »Mér finnst óþolandi að teknir séu af mér skattar og þeim ekki skilað nema að hluta til þeirra sem þeir eru ætlaðir. Guðrún Júlíusdóttir Höfundur er skrifstofustjóri. Hvað verður um sóknargjöldin mín? Konungsríki Stóra- Bretlands á sér langa og áhugaverða sögu. Á seinni hluta 19. ald- ar náði það yfir um fjórðung þurrlendis jarðar svo að sól var nánast alltaf í hádeg- isstað einhvers staðar innan þess. Bretland hefur getið af sér af- reksfólk á sviðum vís- inda, fræða, lista og stjórnmála og höfuðborgin Lundúnir, eitt merk- asta fjölmenningarsamfélag heims, er meðal helstu menningar-, stjórnmála- og viðskiptakjarna ver- aldar. Bretland gerðist aðili að evr- ópska efnahagssvæðinu á 8. áratug síðustu aldar. Markmiðið var að tryggja frið í álfunni eftir hörm- ungar seinni heimsstyrjaldarinnar, mynda sameiginlegan markað fyrir viðskipti, atvinnu og önnur sam- skipti. En fljótlega varð ljóst að böggull fylgdi skammrifi. Af hálfu Evrópuþingsins í Brussel gætti vaxandi alríkishneigðar með reglu- verki og stöðlum sem fólu það í sér að aðildarríkin myndu óhjákvæmi- lega missa stjórn á eigin málum. Að auki fylgdu kvaðir svo sem um frjálst flæði fólks yfir landamæri aðildarríkjanna án þess að þau hefðu um það að segja. Ár hvert greiðir Bretland nú milljarða punda til Evrópusambandsins en að margra mati er óljóst hvað hef- ur fengist á móti. Engan skyldi því undra að þetta forna menningarveldi teldi ástæðu til að staldra við og endurskoða að- ild sína. Niðurstaða þjóðar- atkvæðagreiðslunnar í júní 2016 var söguleg vegna þess að hún þýddi að Bretland yrði fyrsta sjálfstæða ríkið í sögu Evrópusambandsins til að segja sig úr því. En kálið var ekki sopið þó í ausuna væri komið. Aðild Bret- lands að ESB er enn óbreytt og áætlunin um útgönguferlið sem Theresa May kynnti nýverið leiddi til þess að bæði Brexit-ráð- herrann David Davis og Boris Johnson utanríkisráðherra sögðu sig úr ríkisstjórninni. Johnson lét í ljós þá skoðun að Bretland hlyti hlutskipti nýlendu ef tillögur Ther- esu May gengju eftir, lögsaga helstu mála yrði áfram í höndum ESB. Fjórða valdið hérlendis reifaði þessi tíðindi á athyglisverðan hátt. Í kvöldfréttum 9. júlí bauð ríkis- fjölmiðillinn okkur upp á eftirfar- andi túlkun eins og undir merkjum pólitískrar rétthugsunar. Fullyrt var að ólga og upplausn hefðu ein- kennt bresk stjórnmál frá því Brexit var samþykkt, Brexit-sinnar teldu að með því að ganga úr Evr- ópusambandinu gætu Bretar feng- ið allt fyrir ekkert og að þeir teldu sér og öðrum trú um, eins og íhaldsflokkar gjarnan gerðu, að þeir væru tákn stöðugleikans. Klykkt var út með þeim orðum að Boris Johnson minnti um margt á Trump, bæði vegna skoðana og líka sökum þess hve mikill orðhák- ur hann væri og þar að auki væri hann ófyrirsjáanlegur, segði eitt í dag og annað á morgun. Þótti með öðrum orðum nóg að fullvissa okkur um að Johnson væri vitleysingur og Brexit-sinnar höguðu sér eins og talibanar, málið dautt? Öll erum við föst í skyldu- áskrift að RÚV. Áttum við ekki heimtingu á hlutlægari fréttaflutn- ingi úr þeirri átt? Við vorum engu nær um raunverulegar skýringar á vanda bresku þjóðarinnar í þessu máli, t.d. vanda er snerti rekstur stórra fyrirtækja, sjávarútveg eða viðskipti við ríki utan evrópska efnahagssvæðisins – ESB er vel að merkja ekki bandalag frjálsra við- skipta heldur tollabandalag með eigin innri markað, þar sem Bret- land hefur þá sérstöðu meðal 28 aðildarríkja að það á meiri við- skipti við lönd utan ESB en innan þess. Hvers vegna var ekki rætt um hugsanleg áhrif þessarar óvæntu þróunar Brexit á stöðu Íslands? Bretlandsmarkaður gegnir lykil- hlutverki fyrir íslenskt viðskiptalíf og Brexit skapar án efa tækifæri til að móta nýjar leiðir í þeim efn- um. En þegar Brexit verður að veruleika munu samskipti Íslands og Bretlands ekki lengur byggjast á EES-samningnum eða öðrum samningum Íslands við ESB. Gagnkvæm réttindi sem ríkisborg- arar og fyrirtæki beggja landa njóta á grundvelli EES-samnings- ins verða úr sögunni þegar Brexit tekur gildi föstudaginn 29. mars 2019. Eftir Meyvant Þórólfsson »… hún þýddi að Bretland yrði fyrsta sjálfstæða ríkið í sögu Evrópusambandsins til að segja sig úr því Meyvant Þórólfsson Höfundur er dósent við Háskóla Íslands. Brexit og fjórða valdið á Íslandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.