Morgunblaðið - 17.07.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.07.2018, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2018 ✝ SigmundurGuðmundsson fæddist 7. maí 1928 í Reykjavík. Hann lést 8. júlí 2018. Foreldrar hans: Viktoría S. Sigur- geirsdóttir, f. 16.1. 1909, d. 1.10. 1989, húsmóðir, og Guð- mundur H. Jónsson framreiðslumaður, f. 10.3. 1910, d. 12.7. 1989. Þau bjuggu í Reykjavík. Systkini: Sigríður, f. 1929, d. 2003, maki Snorri Karlsson, f. 1930, d. 2007, Jón, f. 1932, d. 2007, Egill, f. 1936, d. 1956 og Guðrún, f. 1941, maki Ragnar Gunnarsson, f. 1933. Hinn 17.12. 1949 kvæntist Sig- mundur Unni Scheving Thor- steinsson, f. 18.9. 1930, d. 12.2. 2012. Foreldrar hennar: Berg- þóra Sch. Thorsteinsson, f. 26.2. 1898, d. 22.10. 1970 og Þorsteinn Sch. Thorsteinsson, f. 11.2. 1890, d. 23.4. 1971, lyfsali. Börn Unnar og Sigmundar eru: 1. Bergþóra, f. 22.5. 1950, lögfr. og stjórnmálafr., maki Gunnar Valdimar Johnsen, f. 23.10. 1949, verkfr. Börn þeirra: a) Þorsteinn Rafn, f. 16.4. 1973, í sambúð með Helenu Eydal. Börn hans og f. maka, Ástu H. Garð- arsdóttur: Gunnar Bergþór, f. 2002, og Þorsteinn Valdimar, f. 2004, stjúpsonur, sonur Ástu: Garðar Benedikt, f. 1992, í sam- búð með Söndru D. Pálsdóttur, barn: stúlka, f. 2018, b) Rögn- valdur Birgir, f. 31.5. 1975, í sam- búð með Heiðu Steinsson. Börn hans: Gunnar Valdimar, f. 1997, Daníel Breki, f. 2000, og Gabríel Rómeó, f. 2003. Börn Heiðu: Ósk f. 1998, Hafsteinn, f. 2003, og Linda Björk, f. 2003, c) Unnur, f. 21.3. 1983, maki Sigurður G. Barðason, börn þeirra: Tryggvi, f. 2005, Heiðdís Emma, f. 2005, Bergþóra Emma, f. 2010, og Sig- ríður Emma, f. 2013. 2. Egill Þor- steinn rafm.tæknifr., f. 14.4. 1956, maki Petra Lind Ein- arsdóttir, f. 3.11. 1971, iðnrekst.fr. F. maki Egils var Vig- dís S. Ársælsdóttir, þau skildu. Börn Egils af fyrra hjónab.: a) Sig- mundur Bjarki, f. 2.6. 1978, börn hans: Kolbrún Líf, f. 2005, og Daníel Þór, f. 2007, b) Daníel Karl, f. 7.4. 1983, í sambúð með Önnu K. Guðmunds- dóttur, barn þeirra Viktoría Mist f. 2017, c) Guðrún Sigríður, f. 19.3. 1986, maki Guðmundur Á. Þórðarson, börn þeirra: Vigdís Birta, f. 2009, og Kjartan Magni, f. 2012. Stjúpbörn Egils og börn Petru: Andri, f. 1993, Eva Lind, f. 1999, og Anita Lind, f. 1999. 3. Björg, f. 10.1. 1960, snyrtifr., maki Már Guðmundsson, f. 1.11. 1961, málaram. Börn þeirra: a) Sigmundur Einar, f. 10.11. 1983, maki J. Rut Hendriksdóttur. Börn þeirra: Hendrik Már, f. 2013, og Klara Júlía, f. 2016. Stjúpbarn hans og barn Rutar: Emelía Ásta, f. 2009, b) Jóhanna Björg, f. 19.02. 1986, maki Ásgeir R. Guðjónsson, börn þeirra: Thelma Lind, f. 2007, og Ester Ýr, f. 2011, c) Heiða Hrönn, f. 12.3. 1993, í sambúð með Bjarka Sigurðssyni, f. 1993. F. maki Bjargar var Þórður G. Sig- fridsson, þau skildu. Sigmundur nam flugumferð- arstjórn á Íslandi og í Bandaríkj- unum og vann á Reykjavíkur- flugvelli. Hann var mikill félags- málamaður. Var í stjórn og ýmsum nefndum í FÍF. Hann var félagi í frímúrarareglunni og í sóknarnefnd í Ásprestakalli í nokkur ár. Sigmundur starfaði mikið innan skátahreyfing- arinnar, var m.a. félagsforingi Dalbúa og Skjöldunga til fjölda ára og heiðursforingi í skátafé- laginu Skjöldungum. Útför Sigmundar fer fram frá Háteigskirkju í dag, 17. júlí 2018, kl. 13. Dagurinn var 7. maí 2018 og minn góði vinur og skátabróðir, Sigmundur Guðmundsson, fagn- aði 90 ára afmælisdegi sínum í stórum hópi ættingja og vina á heimili Bjargar, dóttur sinnar. Ég var svo lánsamir að fá að taka þátt í þeirri gleðistund, en engan óraði þá, að kveðjustundin mikla væri svo skammt fram undan. Við Simbi hittumst fyrst í Skátaheimilinu við Hringbraut, nú Snorrabraut, þegar verið var að hefja undirbúning hópferðar um eitt hundrað íslenskra skáta á Alþjóða-Friðarskátamótið, á frönsku: Jamboree de la Paix, sem haldið var í Moisson skammt frá Parísarborg, í ágústmánuði 1947. Það var ekki hægt annað en að heillast af þessum myndarlega manni, broshýrum og geislandi af ljúfmennsku og gleði. Við urðum vinir, ég man ekki hvers vegna eða hvernig, það bara gerðist og sú vinátta hefur nú staðið í rúm 70 ár. Ég minnist þess ekki að Simbi vinur, en undir því nafni gekk hann í fjölskyldu minni, hafi nokkru sinni mælt styggðaryrði til mín eða ég til hans. Eiginkona Sigmundar var Unnur Scheving Thorsteinsson, sem látin er fyrir nokkrum árum. Faðir hennar, Þorsteinn Sch. Thorsteinsson, apótekari í Reykjavíkurapóteki, var lærifaðir minn og velgjörðarmaður. Ungu hjónin hófu búskap í húsi foreldra Unnar að Sóleyjargötu 1. Ég man að mér þótti það mikil upphefð að vera boðinn til þeirra í hús apó- tekarans, en það skal tekið fram að hann var mér ávallt mjög vin- samlegur. Og nú er samferðinni lokið og Simbi er „farinn heim“ eins og við skátar orðum það. Fæstir sleppa áfallalaust í gegnum lífið og Simbi fékk sinn skammt af erfiðleikum á lífsleiðinni. Hann tók við þeim við- fangsefnum, sem honum voru fal- in og leysti þau. Sjötíu ár virðast langur tími, þegar litið er fram á veginn, en sem örskot eitt þá litið er til baka og maður trúir því tæplega að lið- in séu 70 ár síðan ævintýraferðin mikla var farin til Parísar með Heklu, Skymaster, sem komið hafði til landsins tveimur mánuð- um áður. Flugmennirnir voru ungir og reynslulitlir en farþeg- arnir, þar á meðal við Simbi, voru enn þá grænni. Fáir eða engir far- þeganna höfðu stigið upp í flugvél og hvað þá flogið á milli landa. Um miðbik ævinnar voru menn önnum kafnir við að byggja upp heimili og fjölskyldu, nýjar skyld- ur og ný áhugamál rak á fjörurn- ar, eins og gerist og gengur. Á því tímabili ævinnar fækkaði sam- fundum okkar Simba um stund- arsakir, en úr því rættist og þráð- urinn tekinn upp að nýju. Þegar ég nú sit og rita þessar línur, sé ég fyrir mér ungan mann, klæddan skátabúningnum, brún- leitri blússu og samlitum stutt- buxum, með grænan hálsklút, brosandi út að eyrum og geislandi af lífsfjöri. Það er mikið lán að hafa fengið að eiga slíkan dreng sem ævivin. Það er liðlega mánuður síðan ég leit síðast inn hjá Simba á Eir. Við kvöddumst, en handtakið hans var þróttlítið, en því fylgdi ljúft bros að vanda og eins og ávallt orðin „þakka þér fyrir kom- una.“ Börnum Sigmundar og fjöl- skyldum þeirra votta ég innilega samúð. Werner Rasmusson. Sigmundur Guðmundsson Á árum áður voru styrkir til bókaútgáfu að stórum hluta háðir geðþótta þing- manna og ráðherra. Svo var komið að meiri fjármunum var úthlutað tilviljanakennt með þeim hætti en í gegnum hinn dvergvaxna Bók- menntasjóð sem allir útgef- endur gátu sótt í á jafn- ræðisgrundvelli. Eftir ótal ábendingar í ár- anna rás var meira að segja stjórnvöldum farið að blöskra ástandið og þá var ákveðið að safna smáum sjóðum saman undir hatti Miðstöðvar íslenskra bók- mennta, þar sem allar um- sóknir yrðu háðar faglegu mati. Jafnframt skyldi efla sjóðina með því að leggja af þá styrki sem læddust inn á fjárlög eða áttu sér uppruna í skúffum ráðherra og færa sambærilega upphæð til Míb. Enn fremur var sú skylda lögð á herðar styrk- þegum að þeim bæri að endurgreiða styrkina ef við- komandi verk voru ekki komin út að ákveðnum tíma liðnum. Allir voru sammála um að með þessu væri ráð- ist í siðbót í meðferð á op- inberu fé til bókaútgáfu. Nú ber svo við að fyrir helgina var tilkynnt að hið háa Alþingi hefði ákveðið, með óljósri tengingu við fullveldisafmæli, að veita einu útgáfufyrirtæki 25-30 milljóna króna styrk til að gefa út bók um Þingvelli í íslenskri myndlist og semja að auki nýja bókmenntasögu í tveimur bindum. Að baki þessari styrkveitingu hvílir ekkert mat og ekki hafði verið óskað eftir hug- myndum annarra forlaga um útgáfu slíkra verka, enda þótt ýmsir hafi reynslu af útgáfu bóka um Þingvelli og ekki sé nema liðlega ára- tugur síðan lokið var við það þrekvirki að gefa út Ís- lenska bókmenntasögu í fimm bindum, með ærnum tilkostnaði. Geðþóttinn einn ræður för þingsins Við sem þetta ritum höf- um ekkert á móti því að þingið hvetji til metnaðar- fullra útgáfuverkefna, en þá verður líka að tryggja ákveðið jafnræði varðandi aðkomu útgefenda og leggja síðan faglegt mat á þær til- lögur sem berast. Það er meira að segja til opinbert apparat sem annast slíkar styrkveitingar, Miðstöð ís- lenskra bókmennta. Sumum kann að finnast óþarft að stökkva upp á nef sér vegna ekki meiri fjár- muna, en þá er rétt að geta þess að upphæðin er nánast sú sama og allir útgáfu- styrkir Miðstöðvar íslenskra bókmennta á síðasta ári, nema hvað hún sáldraðist þá yfir á sjötta tug verka. Í því samhengi er um mikla fjár- hæð að ræða. Við efumst ekki um að út- gáfufyrirtækið sem nýtur þessarar óvæntu rausnar Alþingis muni nýta fjár- munina til góðra verka. Vinnubrögðin við þessa styrkveitingu eiga hins veg- ar að heyra fortíðinni tryggilega til og okkur finnst með ólíkindum að þingheimur skuli hafa sam- þykkt þetta einum rómi, enda eiga menn á þeim bæ að vita betur. Það er leitt að þurfa að spilla veisluhöldum þingsins með aðfinnslum, en vinur er sá er til vamms segir. Geð- þótti stjórnmálamanna á ekki að ráða því hvaða verk koma út hér á landi, né hvaða fyrirtækjum skuli hyglað á sviði bókaútgáfu, frekar en í öðrum geirum menningar- og atvinnulífs. Eftir Sigurð Svavarsson, Heiðar Inga Svansson, Birgittu Elínu Hassel, Egil Örn Jóhannsson, Pétur Má Ólafsson, Dögg Hjaltalín, Önnu Leu Friðriksdóttur og Maríu Rán Guðjónsdóttur » Vinnubrögðin við þessa styrk- veitingu eiga hins vegar að heyra for- tíðinni tryggilega til og okkur finnst með ólíkindum að þing- heimur skuli hafa samþykkt þetta. Birgitta Elín Hassel Höfundar starfa allir við bókaútgáfu. Dögg Hjaltalín Sigurður Svavarsson María Rán Guðjónsdóttir Egill Örn Jóhannsson Pétur Már Ólafsson Heiðar Ingi Svansson Anna Lea Friðriksdóttir Alþingi fortíðar Talið er að jörðin sé 4.600 milljón ára gömul. Frá upphafi hafa steinefnin lítið breyst en loft- tegundir í and- rúmsloftinu hafa breyst mikið. Fyrstu 1.500 milljón ár- in var ekkert líf og andrúms- loftið var blanda metans og ammoníaks auk 0,02% súr- efnis þess sem er í dag og fyrstu setlög fara að mynd- ast á botni vatna. Síðan myndast fyrsta andrúms- loftið fyrir líf með blöndu niturs (köfnunarefnis) og koltvíoxíðs en súrefni er enn óbreytt þúsundasti styrks þess í dag. Fyrir 3.000 milljónum ára hefst ljóstillífun en það liðu 300 milljónir ára áður en bláþörungarnir koma fram og myndun súrefnis og upp- söfnun þess hefst fyrir al- vöru með klofningi vatns með ljósorku (ljóstillífun). Oxun frumefna á yfirborði fastalandsins hafði hafist litlu fyrr og svo járnkísilfell- ingar setlaga, þá rauðleirfell- ingar (mýrar- rauði) setlaga og kalksteins- fellingar en set- lög þess hófu að myndast fyrst fyrir um 1.300 milljónum ára. Fyrir um 1.400 milljónum ára koma prótósó- urnar fram (líf- verur í vatni skyldar þörungum og unnu orku úr næringu sinni) og 800 milljónum ára síðar koma fram fyrstu metasó- urnar, nú útdauðar, þær þró- uðust í fjölfrumunga eða dýr. Nú vex súrefni í andrúms- lofti hratt og er fyrir 700 milljónum ára orðið 0,2% þess í dag og veldisvöxtur þess hefst. Gerjun til orku- vinnslu hjá lífverum breytist nú hægt yfir í súrefnisöndun fyrir 700 milljónum ára. Fyrsti landgróðurinn byrjar fyrir tæpum 450 milljónum ára er ósonlag myndast af súrefninu í háloftunum og heftir eitraða útfjólubláa geislun sem er banvæn lif- andi frumum. Nú er súrefnið orðið tíundi hluti þess í dag og það tók þó hátt í 200 milljónir ára að ná núverandi súrefnisstyrk sem er 21% neðst í andrúmsloftinu og hefur haldist svo síðustu 300 milljón árin. Lífið sem við þekkjum hefur verið lengi að þróast og er því háð óbreyttum styrk súrefnis í lofti, 21%. En uppleysanleiki súrefnis í öllum höfum og vötnum hef- ur minnkað verulega síðustu 50 árin við það að t.d. yfir- borðsvatn vegna hlýnunar hindrar upptöku þess og svo blöndun. Er talað um 30- 50% minnkun á súrefni á 50 árum. Er þetta um öll höf og er talið að hér geti það verið hlýnunin og gæti haft mikil áhrif á líf sjávar- og vatna- dýra. Þetta jarðsöguyfirlit er byggt á hvernig Schidlowski 1971 og Haensel 1975 skýrðu þróun lífs og andrúmslofts myndrænt og er að finna í bók I.A. Rezanovs: Katast- rophen der Erdgeschichte sem kom út í Moskvu fyrst 1972 en í þýskri þýðingu 1982 og svo nýlegu áliti haf- fræðingsins Gregorys John- sons í Seattle um súrefni í höfunum. Núverandi jörð var því lengi að þróast og mynda forsendur fyrir lífi sem er viðkvæmt og hefur oft átt undir högg að sækja frá hendi náttúruaflanna. Maðurinn kemur fyrst fram fyrir fimm milljónum ára og hefur í dag yfirburði yfir allar lífverur, m.a. vegna hælsins til geta gengið upp- réttur, augnanna sem greina liti o.fl. og svo heilans sem tekist hefur að þroska á ótrúlega fjölbreyttan hátt, m.a. talmálið og sköp- unargáfan og að læra af reynslunni. Vandamál mannsins er offjölgun og að hann virðist ekki aðlaga sig að náttúrunni. Mannkynið virðist stefna í að valda næstu katastrófu lífríkisins. Um upphaf og þróun súrefnis og lífsins Eftir Pálma Stefánsson »Nú er súrefnið orðið tíundi hluti þess í dag og það tók þó hátt í 200 milljónir ára að ná núverandi súrefn- isstyrk sem er 21% neðst í andrúms- loftinu. Pálmi Stefánsson Höfundur er efnaverkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.