Morgunblaðið - 17.07.2018, Page 22

Morgunblaðið - 17.07.2018, Page 22
✝ Otto David Ty-nes fæddist á Siglufirði 13. apríl 1937. Hann and- aðist á Landspít- alanum í Fossvogi 2. júlí 2018. For- eldrar hans voru Sverre A. Tynes, byggingatækni- fræðingur frá Nor- egi, f. 10.4. 1906, d. 8.2. 1962 og Hrefna Samúelsdóttir Tynes, fv. skátahöfðingi, f. 30.3. 1912, d. 10.5. 1994. Systkini Ottos eru Ásta Tynes Busengdal, f. 1932, búsett í Noregi og Jón Arvid Tynes, f. 1945, búsettur í Garði. Eftirlifandi eiginkona Ottos er Bryndís Guðmunds- dóttir, fv. flugfreyja, fædd í Reykjavík 25.12. 1944. For- eldrar hennar voru Guð- mundur Kristinn Kristmunds- son, f. 8.3. 1914, d. 8.2. 1981 og Guðrún Sigurðardóttir, f. 6.2. d. 11.3. 2018, Ágúst Ottó, f. 23.2. 1995 og Birna Lind, f. 18.12. 2000. Otto ólst upp í Noregi til 7 ára aldurs. Á yngri árum stundaði hann íþróttir og var m.a. liðtækur sundmaður í Sunddeild KR. Otto hóf störf sem flugmaður hjá Loftleiðum árið 1965 og starfaði síðan hjá Flugfélagi Íslands, Sterling Airways í Danmörku og Ger- man Cargo í Þýskalandi. Lengst af var hann flugstjóri hjá Flugfélagi Íslands og Flug- leiðum. Otto lét af störfum flugstjóra vegna aldurs árið 2002 og átti þá að baki rúm 45 ár í háloftunum og yfir 20.000 flugstundir. Otto tók virkan þátt í félagsstarfi flugmanna og var einn af stofnendum og fyrsti formaður flugklúbbsins Þyts. Einnig starfaði hann við flugkennslu árum saman og kom að þjálfun fjölmargra ís- lenskra flugmanna á sínum ferli. Útför Ottos fer fram frá Bú- staðakirkju í Reykjavík í dag, 17. júlí 2018, og hefst athöfnin klukkan 15. 1916, d. 26.8. 2010. Fyrri eiginkona Ottos er Gunn- hildur Birna Björnsdóttir, fv. forstöðumaður hjá Landsbankanum, f. 12.7. 1940. Þau skildu. Börn Ottos og Bryndísar eru; 1) Ottó Davíð Tynes heimspekingur, f. 4.3. 1970. Dóttir hans er Tinna Tynes, f. 28.5. 2005. 2) Gunnar Örn Tynes, tónlistarmaður, f. 5.3. 1979. Börn Ottos úr fyrra hjónabandi eru: 1) Sverrir Ty- nes tölvunarfræðingur, f. 7.6. 1960, kvæntur Ásu Kolka verk- efnastjóra, f. 2.2. 1951. Sonur Sverris er Axel Ingi Tynes, f. 19.3. 1996. 2) Salome Tynes flugfreyja, f. 31.5. 1961, gift Pálma Kristinssyni, verkfræð- ingi, f. 12.5. 1957. Börn þeirra eru Bjarni Þór, f. 21.10. 1991, Það er komið að lokaútkalli í síðasta flugið hans pabba. Ekki er vitað hvert ferðinni er heitið í þetta sinn, en eitt er þó víst að þar verður gaman. Þar verður tónlist, djass, hlátur, grín og gleði. Eins og alltaf á sínum langa og farsæla ferli var pabbi vel búinn undir þessa ferð. Hann var tilbúinn í þetta flug- tak, hann kvaddi sáttur. Ég hef alla tíð verið afar stolt af pabba mínum, enda var hann með skemmtilegri mönnum, þekkti nánast alla og var svo margt til lista lagt. Hann var kennari af guðs náð og vinsæll meðal hinna fjölmörgu flugnema sem hann kenndi og þjálfaði í gegnum árin. Það var gott að geta leitað til pabba með verk- efni í veðurfræði og stærðfræði á menntaskólaárum mínum. Pabbi var góður sundmaður á sínum yngri árum. Hann stund- aði Vesturbæjarlaugina og fleiri laugar á meðan heilsan leyfði. Ein af fyrstu æskuminningum mínum var þegar pabbi fékk Ómar Ragnarsson til sín í heim- sókn á Melabrautina til að fara yfir einhverjar flugbækur. Ég hef sennilega verið 5-6 ára og horfði dolfallin á Ómar áður en ég hvíslaði að pabba hvort þetta væri í alvöru Ómar Ragnarsson. Ómar var átrúnaðargoð allra barna á þessum tíma, þá nýbú- inn að gefa út vinsæla barna- plötu. Lengi á eftir hreykti ég mér af því við krakkana í hverf- inu, að pabbi minn hefði kennt Ómari Ragnarssyni að fljúga – hvað sem kann nú að reynast rétt í því. Ég á margar góðar minningar eins og þegar hann bauð mér á alvörudjassklúbb í New York árið 1979. Þar inni sátu fjórir feitir, þeldökkir tónlistarmenn og spiluðu stórkostlegan djass! Þarna smitaðist ég af djass- bakteríunni hans pabba. Og við áttum eftir að fara saman á marga góða tónleika, hvort sem það var djass eða swing með Stórsveit Reykjavíkur. Þetta voru gæðastundir okkar pabba. Á þessum stundum ljómaði pabbi eins og sólin. Ég minnist líka allra ættar- mótanna á Ísafirði og í Hatt- ardal, þar sem pabbi var hrókur alls fagnaðar, söng, hló og sprellaði. Þar var fastur liður að syngja „Alouette“ á frönsku. Pabbi söng hátt og snjallt, oftast bara eftir minni, hann víxlaði textanum viljandi og skellihló með Gunnari félaga sínum, en Alouettan var alltaf sungin í dú- ett. Fyrir um átta árum greindist pabbi með parkinson, sem fór hægt og bítandi versnandi með hverju árinu. Þótt líkamlegri heilsu pabba hafi hrakað hratt síðustu árin, þá ríghélt hann í húmorinn og grínið og kom manni alltaf til að hlæja. „Ó, pabbi minn“ söng Björk Guðmundsdóttir með tríói Guð- mundar Ingólfssonar: Liðin er tíð, er leiddir þú mig lítið barn. Brosandi blítt, þú breyttir sorg í gleði. Ó, pabbi minn, ég dáði þína léttu lund. Leikandi kátt, þú lékst þér á þinn hátt. Ó, pabbi minn, hve undursamleg ást þín var. Æskunnar ómar ylja mér í dag. Elsku hjartans pabbi minn. Takk fyrir gleðina, húmorinn og léttleikann sem einkenndi þig alla tíð. Minning þín er ljós sem lifir. Þín dóttir, Salome. Það kannast eflaust einhverjir við bíómynd sem sýnd var fyrir allmörgum árum og heitir „My father – the hero“. Ég sá hana reyndar aldrei enda þarf ég ekki að horfa á pabba einhvers sem ég þekki ekkert þegar ég get látið hugann reika og rifjað upp sögur af pabba mínum sem svo sannarlega var hetja, þótt ekki hafi verið gerð um hann bíó- mynd. Fyrstu minningar mínar um pabba eru þegar ég var mjög ungur, á Melabraut 34 og pabbi var að koma úr flugi. Það leynd- ist alltaf eitthvað í ferðatöskunni handa litlum strák. Ég man nú reyndar ekki eftir neinum sér- stökum hlut en minningin lifir um spennuna þegar ferðataskan var opnuð. Ég var í sveit í Skagafirði á sumrin á aldrinum 7-10 ára og aldrei gleymi ég bíl- ferðinni þegar pabbi sótti okkur Sally systur á gömlum Rambler. Ferð sem tekur í dag 4 tíma tók þá 10 – 12 tíma. Ég var frekar lítið gefinn fyrir langar bílferðir og var því stöðugt að tuða um hvort við værum ekki að fara að koma. Alltaf sagði pabbi, jú rétt strax! Eflaust hefur hann sagt þetta 95% af ferðinni. Ég minn- ist þess líka að í bílferðum sem þessum var spurning borin upp eins og „Það eru 50 km til Keflavíkur og bíll er á 75 km hraða, hvað tekur langan tíma að keyra til Keflavíkur?“ Ég þarf nú ekki að hugsa mig lengi um í dag, en fyrir ungan dreng var þetta mikil hugarleikfimi og um leið aðferð til að þjálfa hug- ann. Það var kennarinn í pabba sem ég naut á þessum árum og margir nutu hæfileika hans sem flugkennara. Flugið var svo sannarlega stór þáttur í lífi pabba. Þegar ég var lítill kynnt- ist ég því þegar hann fór með mig og vini mína í flugtúra á litlum flugvélum og leyfði okkur að stýra, þvílíkt kikk. Þó svo að flugdellan næði mér ekki þá náði hún mörgum vinum mínum eftir þessa upplifun. Hetjan mín hann pabbi hefur átt mörg góð svör og margar góðar lausnir í gegnum tíðina. Ég minnist sögu sem hann sagði mér frá því hann var táningur og kom heim alltof seint, eða rétt fyrir kl. 7 á laugar- dagsmorgni. Ég kynntist Sverri afa því miður aldrei, en hann var víst mjög strangur í þessum málum. Pabbi vissi hver staða hans væri ef afi kæmist að því hvað hann kom seint heim þenn- an morgun, rétt áður en afi fór í vinnuna. Það var nýfallinn snjór og engin fótspor á Grenimeln- um. Pabbi bakkaði heim frá horninu og fékk þá setningu frá afa í lok dags. Þú fórst snemma í vinnu í morgun Ottó minn. Ef John Lennon hefði vitað af þessu þá gæti þetta verið sagan á bak við setningu hans „There are no problems – only sol- utions.“ Á tímamótum sem þess- um reikar hugur minn aftur og ég upplifi allar þessar góðu minningar. Ég sé einn samnefn- ara í þeim öllum sem hægt er að lýsa með eftirfarandi orðum: glaðlyndi, jákvæðni, skynsemi og hjálpsemi. Elsku pabbi minn, hetja mín og fyrirmynd. Ég er stoltur af því að vera sonur þinn, takk fyr- ir allt og hvíl í friði. Sverrir. Elskulegur tengdafaðir minn Otto Tynes, fv. flugstjóri, er lát- inn eftir erfiða sjúkdómslegu síðustu vikurnar á Landspítalan- um í Fossvogi. Okkar kynni hófust fyrir um 30 árum þegar ég kom inn í fjöl- skylduna. Það var mikil upplifun fyrir mig ungan manninn að fá að kynnast þessum lífsglaða og góða manni. Otto var einstak- lega hlýr og barngóður maður. Þegar afabörnin áttu afmæli mætti hann ávallt hress og kát- ur og naut þess í hvívetna að skemmta þeim með alls konar sjónarspilum og göldrum. Hríf- andi rödd hans greip athygli allra sem nálægt voru. Otto eignaðist sitt fyrsta afabarn fyr- ir tæpum 27 árum þegar sonur okkar, Bjarni Þór, fæddist. Hann var mikill aðdáandi afa síns og hafði gaman af að bralla ýmislegt með honum. Bjarni Þór lést, langt fyrir aldur fram, hinn 11. mars síðastliðinn. Andlát Bjarna var okkur öllum mikil harmur og lífsraun. Ég hef stundum haft á orði að Otto hafi verið einn af frumkvöðlum raf- bílavæðingar hér landi þegar hann og Bryndís amma gáfu Bjarna Þór, sem þá var ársgam- all, forláta Willys „plug in mini“- rafjeppa í jólagjöf. Þetta var mikill gleðigjafi í lífi Bjarna sem ók um Fossvoginn eins og hers- höfðingi og leyfði vinum sínum að prófa. Jeppi þessi er enn í notkun og nú hjá barnabörnum mínum þar sem hann skilur eftir ljúfar minningar um Bjarna Þór og Otto Tynes, minningar sem þeir afafeðgarnir eiga vonandi eftir að rifja upp þar sem þeir eru nú saman komnir. Á ferli sínum sem flugmaður var Otto víðförull og heimsótti 70-80 lönd. Hann var reynslumikill og afar farsæll í starfi og flaug mörgum tegundum flugvéla. Hvort sem það voru stórar þotur af gerð- inni DC 8 eða Boeing 727, 737, 757 eða 747 jumbo þá fannst honum þó alltaf mest spennandi að fljúga minnstu flugvélunum eins og Piper Cub og Cessna og Fokker 50 í innanlandsfluginu. Þar var hann á sínum heima- velli. Það var því vel við hæfi þegar félagar hans ákváðu að gula Piper Cub vélin TF-KAK skyldi bera nafn hans, honum til heiðurs. Otto var svo lánsamur að geta sameinað störf sín og áhugamál í fluginu. Hann var einn af stofnendum flugklúbbsins Þyts árið 1987 og fyrsti formaður fé- lagsins. Hann var mjög stoltur af þessum klúbbi sínum. Ég naut þess að fá að koma með honum í flugskýli Þyts á Reykjavíkurflugvelli og í flug- skýlið á Tungubökkum í Mos- fellsbæ. Ég átti einnig því láni að fagna að fara með honum í marga ógleymanlega flugtúra um landið á þessum litlu vélum. Oft var lent á sveitatúnum og heilsað upp á bændur og búalið. Otto var einstaklega glað- lyndur og gefandi maður og kunni vel við sig í góðum fé- lagsskap. Hann var vel liðinn af samstarfsmönnum sínum og eignaðist fjölmarga góða félaga og vini um ævina. Otto var mik- ill djassunnandi og naut þess fram undir það síðasta að fara á góða tónleika. Hann hafði oft á orði að útförin hans yrði með góðu djassívafi til að viðstaddir gætu skemmt sér með honum. Elsku Otto, minningin um þig mun lifa í hjörtum okkar. Takk fyrir að fá að eiga þig sem tengdapabba og fyrir börnin okkar að fá að eiga þig sem afa. Hvíl þú í friði. Þinn tengdason- ur, Pálmi Kristinsson. Kær vinur minn og svili, Otto Tynes, flugstjóri er lagður af stað í sitt hinnsta flug. Flug sem ekki er æft í flughermum, þar sem brottför, flug og lending er í öruggri umsjón þess er öllu ræður og að þessu sinni þegar okkar maður flugstjórinn var tilbúinn leggja í hann. Otto, sem var mjög víðförull og hafði heim- sótt ótal staði um alla jarðar- kringluna sagði mér oft að af öllum stöðum sem hann vissi um, hlakkaðihann mest til að koma til þess staðar sem ferð- inni er heitið nú, þegar hans tími kæmi. Margs er að minnast frá sam- verustundum fjölskyldna okkar sem voru miklar og nánar í gegnum tíðina, alltaf saman á aðfangadagskvöld, jóladag og gamlárskvöld að ógleymdum öll- um barnaafmælum þar sem Otto brá sér í gervi töframannsins og galdraði fyrir krakkana og frá öðrum gleðiveislum, samverum heima og erlendis og að ógleymdum stundum í sumar- húsum okkar. Minn maður sagði alltaf þegar komið var að kveðjustund eftir gleðskap,: „Eigum við ekki að skella okkur á Kringlukránna?“ það voru rýr- ar undirtektir á þeim tímapunkti enda allir búnir að fá nóg, en hefðum við vinirnir skellt okkur saman á Kringlukránna, þar sem hann hefði farið uppá svið og tekið hið fræga: Alouette, gentille Alouette, með sínum einstaka franska framburði og látbragði eins honum var einum lagið og sem hann tók svo oft á góðum stundum. Ég myndi síð- an koma til hans á sviðið og taka með honum uppáhaldið hans „Fly me to the moon“ að sjálf- sögðu við mikinn fögnuð við- staddra. Kannski eigum við þetta eftir á öðrum vettfangi, hver veit. Otto vinur minn var með af- brigðum félagslyndur og bón- góður maður, enda fremstur í flokki við að koma hlutum í verk. Það var alveg sama hvað hann var beðin um, alltaf var svarið „Ekkert mál“ enda vinir hans fjölmargir og góðir sem héldu tryggð við hann í vináttu í tugi ára. Honum fannst hann vera sérlega heppinn, að geta státað af því sem ekki er sjálf- sagt að hafa atvinnu af áhuga- máli sínu og ástríðu sem hann helgaði mesta hluta ævi sinnar, hvort sem var í vinnu, kennslu eða í frístundum. Flugkennsla var hans ær og kýr og leiðsögn hans varð til þess að fjöldi aðila um land allt öðluðust vængi ef hægt er að komast þannig að orði enda hæfni hans til að miðla af þekk- ingu sinni í þessum fræðum, ein- stök. Það er næsta víst að farið verður þess á leit við okkar mann, að hann taki að sér flug- kennslu fyrir verðandi engla á nýja staðnum. „Ekkert mál“. Minn maður hafði þann ein- staka sið að lesa meistaraverk Laxness, Sjálfstætt fólk einu sinni á hverju ári, það var eitt- hvað við basl og sjálfstæðisbar- áttu Bjart í Sumarhúsum sem heillaði hann, einnig hafði hann miklar mættur á ljóðum Davíðs Stefánssonar fá Fagraskógi. Jazztónlist var honum að skapi og áttum við það sameiginlegt, við ræddum oft saman um alla heima og geyma nema um flug því aðeins annar okkar hafði brennadi áhuga á því málefni. Á mínu heimili gekk Otto undir öðru nafni sem dóttir mín Lísa Dögg kallaði hann alltaf frá unga aldri, það var „Gunni pabbi“, mjög skiljanleg nafngift hjá henni, hann var pabbi Gunna og til að aðgreina hann frá hin- um syninumá heimilinu, Ottó Davíð. Gunni pabbi, nú þegar þú hefur horfið á braut kæri vinur svo stuttu eftir að fallegi afa- drengurinn þinn, Bjarni Þór kvaddi þennan heim, svo ótíma- bært og sviplega í blóma lífsisns, hef ég þá trú að þið munuð hitt- ast og hlúa að hvorum öðrum og vera saman á leiðinni og í tilver- unni á nýja staðnum. Elsku Bryndís, nú þegar stórt skarð hefur myndast í þínu lífi og lífi þeirra sem þekktu og elskuðu þinn góðan dreng. Þá fer nú í hönd tími sorgar og söknuðar, sagt er að tímin lækni öll sár, ekki þekki ég það, enn það er örugglega mikil sárabót og huggun í að þú yljir þér við minnigar liðnar stundir með þín- um manni, þær verða aldrei frá þér teknar. Bryndís mín, Sverrir, Ása, Axel Ingi, Salome, Pálmi, Ágúst Ottó, Birna Lind. Ottó Davíð, Tinna og Gunnar Örn. Við Hrefna og Lísa Dögg vottum ykkur innilega samúð okkkar, megi sá sem öllu ræður, hug- hreysta ykkur og styrkja. Gunni pabbi nú ertu farinn, ég er heppinn að hafa átt vin- áttu þína og verið samferða þér í allan þennan tíma. Fljúgðu í friði vinur. Helgi Agnars. Við Otto Tynes kynntumst ungir sem ferðafélagar í 10 manna hópi sem kallar sig „Haustferðir“. Eins og nafnið bendir til ferðuðumst við saman á haustin og þá var stefnan allt- af tekin inn á öræfi landsins og ýmsar leiðir kannaðar við mis- jafnar aðstæður. Leið okkar lá svo líka saman þegar við Otto David Tynes HINSTA KVEÐJA Elsku Otto minn. Ég vil þakka þér árin okkar, vin- urinn minn, með ljóði mömmu þinnar: Þó útþráin lokki mig landinu frá. Æ lengra og lengra út í geim og margt þurfi að kanna og mikið að sjá, mig langar að síðustu heim. Já landið mitt fagra með dali og fjöll og fjölskrúðugt litaval með heiðbláan himin og fannhvíta mjöll og fossinn í hamranna sal. með heiðbláan himin og fannhvíta mjöll og fossinn í hamrasal. Hér á ég mín óðul og hér er ég frjáls og enginn mín heftir spor. Hér varnar mér enginn að taka til máls hér eflist mín hreysti og þor. (Hrefna Tynes) Takk fyrir allt. Þín Bryndís. 22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2018 Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, FINNBJÖRN ÞORVALDSSON, sem lést mánudaginn 9. júlí, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju föstudaginn 20. júlí klukkan 15. Theodóra Steffensen Björn Finnbjörnsson Sigríður Aradóttir Finnbjörn Finnbjörnsson Kathia Rovelli Þorvaldur Finnbjörnsson Anna Árnadóttir Sigríður Finnbjörnsdóttir Halldór Hilmarsson Gunnar Þór Finnbjörnsson Eyrún Magnúsdóttir Halldóra Svala Finnbjörnsdóttir Úlfar Finnbjörnsson Sigrún Hafsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.