Morgunblaðið - 17.07.2018, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2018
Opið
virka
daga
frá 9
-18
lau f
rá 10
-16
Orf úr áli 25.980
Orf úr tré 17.400
Ljár 7.950
Heyhrífa 4.850
Orf og ljár
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Ný
vefverslun
brynja.is
Bryndís Björk Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri er fimmtugí dag. Hún er lögfræðingur frá HÍ 1993 og MBA frá Edin-borgarháskóla 1999. Þá hefur hún héraðsdómslögmannsrétt-
indi og próf í verðbréfaviðskiptum. Hún hefur komið við á lögmanns-
stofum og fjármálafyrirtækjum en ævinlega þá í skattamálunum.
Síðan 2007 hefur hún verið skattrannsóknarstjóri ríkisins hjá
samnefndri stofnun.
Það lá vel á Bryndísi er blaðamaður sló á þráðinn. Hún var nýfarin í
sumarfrí og þegar mætt í bústaðinn með fjölskyldunni. Þar stendur til
að fagna tímamótunum í dag. „Þetta verður bara hér í sveitasælunni.
Sumarfríið byrjar með sólinni, sem er að gægjast út,“ sagði Bryndís.
Fimmtugsafmælið reynist mjúk lending hjá Bryndísi. „Ég held að
þetta sé happ. Ég finn ekki fyrir neinu stressi með þetta, maður var
eiginlega stressaðri fyrir aldrinum hér áður fyrr.“
Hún er enn á fullu í barnauppeldi, sá yngsti átta ára og elsti fimm-
tán ára, en að verða sextán. „Mér líður ekkert eins og ég sé komin í
seinni hálfleik. Börnin eru enn ung. Við erum bara rétt komin út af
leikskólunum.“ Foreldrahlutverkið á vel við þau þó að þau hafi byrjað
ögn seinna en aðrir. „Kannski er það þess vegna sem maður hefur
ekki áhyggjur af aldrinum. Þau halda okkur ungum. Vinirnir eru svo-
lítið komnir í golfið og mikil ferðalög en við erum enn bara á hlið-
arlínunni á fótboltaleikjum.“
Bryndís er gift Júlíusi Smára, skrifstofustjóra hjá Yfirskattanefnd.
Þau eiga greinilega sameiginlega ástríðu fyrir skattamálum. Börnin
þeirra eru Steinar Þór, fimmtán ára, Kristín Anna, fjórtán ára, og
Styrmir Jón, átta ára. snorrim@mbl.is
Blíða í Bláskógabyggð Fjölskyldan í sveitinni, fyrir miðju er Vaskur.
Hjónin deila ástríðu
fyrir skattamálum
Bryndís Kristjánsdóttir er fimmtug í dag
Ö
gmundur Jónasson
fæddist 17. júlí 1948 í
Reykjavík og ólst þar
upp.
Hann var við nám í
London 1966-67, lauk stúdentsprófi
frá MR 1969, MA-prófi í sagnfræði
og stjórnmálafræði frá Edinborgar-
háskóla 1974 og var við sagnfræði-
rannsóknir þar 1974-1978.
Ögmundur var kennari við
Grunnskóla Reykjavíkur 1971-72,
stundakennari í sagnfræði við HÍ í
rúmlega þrjá áratugi frá 1979,
fréttamaður RÚV, útvarps frá vori
1978 og sjónvarps frá hausti sama
ár, var fréttamaður RÚV á Norður-
löndum 1986-88, formaður BSRB
frá 1988 til 2009, var alþingismaður
Reykvíkinga fyrir Alþýðubanda-
lagið og óháða frá 1995 og fyrir
Vinstri græn frá 1999 til 2016.
Hann varð heilbrigðisráðherra í rík-
isstjórn Samfylkingar og Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs í
febrúar 2009 en sagði af sér um
haustið vegna ágreinings um Ice-
save-samning ríkisstjórnarinnar.
Hann kom inn í ríkisstjórn að nýju í
október 2010 og gegndi tveimur
ráðuneytum; samgönguráðuneyti og
dómsmálaráðuneyti sem sameinuð
voru í nýju innanríkisráðuneyti í
ársbyrjun 2011.
Ögmundur var formaður Starfs-
mannafélags sjónvarpsins með
hléum 1980-88, var einn af stofn-
endum Stefnu, félags vinstri manna,
hefur setið í fjölda nefnda og ráða á
vegum verkalýðshreyfingarinnar
innan lands og utan og tekið þátt í
margvíslegu öðru félagsstarfi. Hann
hefur látið til sín taka í alþjóðastarfi
verkalýðshreyfingarinnar, var for-
maður þingflokks óháðra 1998-1999,
formaður þingflokks Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs 1999-
2009, hefur átt sæti í flestum starfs-
Ögmundur Jónasson, fyrrv. ráðherra og form. BSRB – 70 ára
Sumar Ögmundur og Valgerður ásamt barnabörnunum við Þjóðarbókhlöðuna núna í júlí.
Opið hús á tíu ára fresti
Afmælisbarnið Ögmundur.
Akureyri Stefán Alejandro
Einarsson fæddist 27. maí
2017 kl. 17.39. Hann vó 2.588
g og var 49 cm langur. For-
eldrar hans eru Alejandra
Quinonez Esquer og Einar
Garibaldi Stefánsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is