Morgunblaðið - 17.07.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2018
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Sjálfsgagnrýni er af hinu góða en
getur þó gengið of langt. Vertu í starthol-
unum ef þér býðst óvænt frí.
20. apríl - 20. maí
Naut Bjartsýni og sjálfstraust er eitthvað
sem þú hefur alltaf haft. Sníddu þér stakk
eftir vexti í íbúðakaupum. Þú stefnir í rétta
átt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú færð fyrirspurn sem vekur þér
undrun en munt síðar sjá að hún hafði
duldar meiningar. Njóttu þess að vera til,
allt gengur þér í haginn.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Viðkvæmnin ræður ríkjum milli
ástvina í dag. Leitaðu ráðgjafar ef þörf
krefur. Farðu út á meðal fólks og njóttu
þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það gæti reynst þér gagnlegt að
ræða framtíðaráform þín við vin þinn.
Láttu seinkanir ekki fara í taugarnar á þér
heldur taktu þeim sem hverju öðru hunds-
biti.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ástin er það síðasta sem þú ert að
velta fyrir sér þessa dagana. Leiðin að tak-
markinu er ekki svo löng ef þú horfir ekki
um öxl.
23. sept. - 22. okt.
Vog Sinntu vinum þínum eins vel og þú
getur. Gríptu gæsina meðan hún gefst og
leggðu allt kapp á að klára það sem þú hef-
ur ætlað þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér finnst eins og þú vitir ekki
alveg hvar þú hafir vinnufélaga þína. Það
er í lagi að gera mistök, dæmdu þig ekki
svona hart.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gefðu þér tíma til að taka til í
kringum þig bæði á heimilinu og í vinnunni.
Vertu á varðbergi þegar þú heyrir kjafta-
sögur um vin þinn.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Tekið verður eftir öllu sem þú
gerir í dag. Gefðu þér tíma til að festa hug-
myndir á blað til að aðrir geti notið þeirra
með þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert að eðlisfari forvitin/n
manneskja. Það sígur á ógæfuhliðina í
ástamálunum en örvæntu ekki, það ástand
varir ekki lengi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Beindu athygli þinni að nánustu
samböndum þínum í dag. Þér finnst best
að hafa hæfilega mikið að gera, þéttskipuð
dagskrá er ekki þinn tebolli.
Áfimmtudaginn segir Filli ( Frið-rik Steingrímsson) frá því á
Leir að í fréttum hafi verið sagt frá
dönskum fornleifafræðingi sem fann
tvær tunnur fullar af mannaskít frá
sautjándu öld. Hún tók slatta af
þessu illa þefjandi efni og setti í
plastpoka og í kæliskáp á rannsókn-
arstofunni svo hægt væri að rann-
saka hvað liðið hafði étið á öldum áð-
ur, Danir skitu í tunnur til 1680.
Fræðin eru flestum nýt
á furður oft við glápum,
Danir gramsa‘ í gömlum skít
og geyma í kæliskápum.
Björn Ingólfsson birti á föstudag á
Boðnarmiði fallega mynd af hreiðri
með fjórum eggjum í með þessu fal-
lega ljóði:
Ennþá geta
öll hin bestu
ævintýri
endað vel
og eðlilega
úti í mýri.
Þeir sem fengu
þrek og líf
í þessum eggjum
spranga þar
með spekingssvip
á spóaleggjum.
Nú eru Frakkar orðnir heims-
meistarar og þess vegna ekki úr
vegi að viðra „skoðun antisportist-
ans á HM 2018,“ – Helga R. Ein-
arssonar:
Til gönuhlaupa’ eru gerðir
galvaskir kappar og merðir,
sem fram og til baka
boltanum skaka,
samt markverðir eru markverðir.
Hér lýsir Helgi atviki á Landsmóti
hestamanna 2018:
Jón hafði Kötu kysst
og kjassað af hjartans lyst.
Það var kl. 10:00
til 12:00 inni’ í stíu
um 2000 e. Kr.
Sigurlín Hermannsdóttir orti á
Boðnarmiði á laugardag:
Vætusamt er veðurlag
veslast menn og jarðargróður.
Enginn þráður þurr í dag.
Þvílík útreið, Drottinn góður.
Gunnar J. Straumland bætti við:
Sumarið hlýja sem í gær
sáldraðist upp um heiðar
er svikult, líkt og sunnanblær
með súldarfák til reiðar.
Hallmundur Kristinsson
Þegar sumarblíðan brást
var boðið upp á næðinga.
Raunalegt. En skyldi ei skást
að skipta um veðurfræðinga?
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Gamall skítur og spóaleggir
„HVAÐ VILTU HEYRA FYRST – GÓÐU
FRÉTTIRNAR, SLÆMU FRÉTTIRNAR EÐA
FALSFRÉTTIRNAR?“
„ÉG MAN EKKI HVORT VIÐ LÆSTUM
ÚTIDYRAHURÐINNI.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að líða stundum eins
og engum í alheiminum
þyki vænt um þig.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
MENN, ÓVINURINN ER STÆRRI OG
STERKARI! VIÐ ÞURFUM AÐ TREYSTA Á HRAÐANN!
ÉG Á
ÚRKLIPPUBÓK
HÚN ER FULL AF HLUTUM
SEM ÉG HEF KLÓRAÐ
JÆJA, EÐA
VAR ÞAÐ Víkverji var að fletta gömlumMogga frá árinu 1982 á dög-
unum og rakst þar á auglýsingu sem
sennilega fengist ekki birt í dag. Fór
þar mest fyrir nakinni konu með
einskonar gæru fyrir því allra helg-
asta. Og hvað var verið að auglýsa
þarna? gætir þú spurt, lesandi góð-
ur. Jú, sætaáklæði af gerðinni Daisy
fyrir bíla. Fram kom að þau væru í
senn falleg og þægileg. Augljóslega
svo þægileg að fólk fletti sig klæðum
um leið og það kom út í bíla sem
fóðraðir voru að innan með slíku
höfðingjaefni.
Víkverji veit ekki hver birgða-
staðan er í dag en vilji einhver
grennslast fyrir um það var síminn
hjá auglýsandanum, Bílanaust hf., 8-
17-22. Þið athugið að það gæti verið
á tali.
x x x
Í sama blaði var fréttaskýring umþað hver yrði næsti forseta-
frambjóðandi demókrata í Banda-
ríkjunum enda þótt fyrsta kjör-
tímabil Ronalds Reagans væri ekki
hálfnað. Líklegastir á þeim tíma-
punkti þóttu Edward Kennedy öld-
ungadeildarþingmaður, John Glenn,
öldungadeildarþingmaður og geim-
fari, og Walter Mondale, fyrrverandi
varaforseti. Það var á endanum sá
síðastnefndi sem skoraði sitjandi
forseta á hólm – og steinlá.
Með téðri fréttaskýringu var birt
ljósmynd úr Íslandsheimsókn
Mondales árið 1979 sem tekin var í
Þingvallakirkju. Með honum á
myndinni var Eiríkur J. Eiríksson,
fyrrverandi þjóðgarðsvörður. Einn-
ig kom fram að Mondale væri af
norsku bergi brotinn.
x x x
Þá var í þessum ágæta Mogga,sumarið 1982, umfjöllun um það
að velski leikarinn Richard Burton
væri loksins kominn í feitt, eftir
mörg mögur ár á sviði og tjaldi, en
hann var þá að leika nafna sinn,
Wagner, í mynd um líf tónskáldsins
og störf. „Ég held ég sé að komast
upp úr drullupollinum,“ er haft eftir
Burton í greininni. „Maður kemst
upp á hauginn, en hann er kringl-
óttur og maður rennur niður hinum
megin.“
vikverji@mbl.is
Víkverji
Lofsöngur Maríu Og María sagði:
Önd mín miklar Drottin og andi
minn gleðst í Guði, frelsara mínum.
(Lúk: 1.46-47)