Morgunblaðið - 17.07.2018, Síða 33

Morgunblaðið - 17.07.2018, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2018 Sjötta tónlistarhátíð „HarpaInternational Music Aca-demy“ hófst í ár 27.6. oglauk með tónleikum í Eld- borg sl. 14.7. Hátíðina stofnaði SÍ- fiðlarinn Lin Wei 2013 og miðast við lengra komna tónlistarnema með ýmist meistaranámskeiðum, kamm- ervinnubúðum eða tónleikum, að þessu sinni alls átján talsins. Eðli málsins samkvæmt var ekki saman að jafna við hefðbundna sin- fóníutónleika enda aðsókn hlustenda til samræmis takmörkuð við gólf- hæð salarins, er var þó vel setin. En jafnvel þótt ekki nyti viðburðurinn sambærilegs aðdráttarafls og þegar alkunnir atvinnuflytjendur eru í boði, vó hins vegar á móti kitlandi forvitni um það sem kann að vera í vændum úr blómabeði nýbrumans, og þar með viðmiðun sem lang- reyndir klassíkunnendur vita (eða ættu að vita) að er ómissandi, vilji menn á annað borð forðast þá al- gengu gryfju að halda að tónlist- arsnilld sé sjálfgefin og komi af sjálfri sér. Það er nefnilega ekki allt sem sýnist, eins og skáldið kvað. Þegar á 18. öld lýsti W.A. Mozart í bréfi til pabba Leopolds hvernig hann hafði búið nýjum píanókonsertum sínum fislétt ytra byrði er bæri með sér að verkin væru nánast hrist fram úr erminni – hvað aðrir hafa síðan kall- að hina „listrænu blekkingu“. Eins er með túlkun. Til að ná há- marksáhrifum þarf hún að hylja allt undangengið strit við að ná full- komnun. Skilur þar að vísu verulega á milli hópeflis hljómsveitar undir forystu hljómsveitarstjóra og ein- staklingsframlags einleikara, þar sem samleikurinn er háður nægum æfingartíma rétt fyrir tónleika með- an sólistinn getur byggt á langvar- andi persónulegum undirbúningi að heiman í ró og næði. Að fyrrtöldu leyti gefst því miður sjaldan nægur samæfingartími, hvað þá þegar ungir hljóðfæranem- endur á tímanjörvuðum tónlistar- hátíðum eiga í hlut. Bar hljómsveit- arleikurinn óhjákvæmilega nokkurn keim af því. Engu að síður neistaði merkilega oft af innlifaðri snerpu og hljómfegurð hjá hljómsveitinni og jafnvel svo að „fílingin“ varð oft samstillingarskorti yfirsterkari. Ugglaust mikið til að þakka naskri stjórn Bjarna Frímanns, er hafði reyndar löngu áður framkallað ein- hvern hnithvassasta strengja- samleik sem undirritaður man eftir – þ.e.a.s. úr stroksveitinni Skarki í Salnum 2009. Ungu einleikarar dagsins stóðu vel að sínu. Fyrsti þáttur 1. Píanó- konserts Mendelssohns bauð að vísu ekki alveg upp á jafnrúma túlkunar- möguleika og næsti dagskrárliður á eftir, og þótti mér það óneitanlega svolítið ergilegt fyrir að virtist formlega frumframkomu, þar eð hin aðeins 11 ára gamla Ásta Dóra hafði þegar í fyrravor sýnt glæsta tilburði – þó ekki væri nema fyrir „ad hoc“ YouTube leik sinn í Rondo alla Turca Mozarts á slaghörpu jarðlest- arstöðvar í London (!). Samt var engu að síður auðheyrt að allar tækniforsendur voru á öruggum stað í leifturliprum leik hennar, og bíður maður því í ofvæni eftir næsta og vonandi aðeins viðameira við- fangsefni þessarar vænlegu vonar- stjörnu okkar á hvítum nótum og svörtum. Á slíkum hæfileikametum munar vitaskuld hafsjó á sjö ára viðbótar- reynslu. Zijyu He (18) frá Kína stát- aði þannig fyrir af gullverðlaunum í a.m.k. þrem alþjóðlegum fiðlu- keppnum og skilaði að vonum dill- andi persónulegum einleik í Hava- naise Saint-Saëns sem hlaut að rífa áheyrendur rækilega upp úr skón- um. Blómabeð nýbrumans Hæfileikarík Ungu einleikararnir, Zijyu He og Ásta Dóra Finnsdóttir, stóðu vel að sínu, að mati gagnrýnanda. Eldborg í Hörpu Sinfóníutónleikarbbbnn Jórunn Viðar: Eldur. Mendelssohn: Píanókonsert nr. 1 Op. 25 (I. þáttur).* Saint-Saëns: Havanaise Op. 83.** Beethoven: Sinfónía nr. 3, „Eroica“. Einleikur: Ásta Dóra Finnsdóttir* píanó og Zijyu He fiðla.** Hljómsveit Alþjóða- tónlistarakademíu Hörpu. Stjórnandi: Bjarni Frímann Bjarnason. Laugardag- inn 14.7. kl. 17. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Nancy Barbato Si- natra, fyrsta eig- inkona söngv- arans Franks Sinatra, er látin, 101 árs að aldri. Þau gengu í hjónaband í Jer- sey City í New Jersey-ríki árið 1939, þegar þau voru ung og bláfá- tæk, en þegar þau skildu, tólf árum síðar, höfðu þau eignast þrjú börn og hann var orðinn ein skærasta stjarna heimalandsins; dáður söngvari og leikari. Frank Sinatra átti eftir að kvænast þrisvar eftir það – en hún giftist ekki aftur. En þrátt fyrir skilnaðinn, í kjöl- far framhjáhalda sem fjölmiðlar fjöll- uðu ítarlega um, voru þau alla tíð nánir trúnaðarvinir, allt þar til Frank lést árið 1998, 82 ára gamall. Fyrsta eiginkona Sinatra látin Nancy Barbato Sinatra Leikkonan Scar- lett Johansson hefur hætt við að taka að sér hlut- verk í kvikmynd- inni Rub & Tug, eftir að ráðning- unni hafði verið harðlega mót- mælt, einkum af transkörlum og transkonum í leikarastétt. Johansson hafði sam- þykkt að leika transkarl í myndinni sem á að fjalla um líf Dante Gill, sem kallaði sig Tex, og rak á áttunda og níunda áratugnum nuddstofur sem voru vændishús. Johansson, átti samkvæmt The New York Times, að leika Gill. Johansson segir þetta siðferðilegt álitamál og hún skilji að mörgum finnist rétt að transpersóna hreppi hlutverkið. Johansson leikur ekki Dante Gill Scarlett Johansson Skyscraper, eða Skýjakljúfur, er sú kvikmynd bíóhúsa landsins sem mestum miðasölutekjum skilaði um helgina, eða rúmlega 3,1 milljón króna og seldir miðar voru um 2.300. Um 500 fleiri miðar voru seldir á teiknimyndina Hótel Tran- sylvanía 3 en þar sem miðaverð fyr- ir börn er lægra skilaði hún minni tekjum og er í öðru sæti listans. Ant-Man and the Wasp fellur úr fyrsta sæti í það þriðja en um 2.200 manns sáu hana yfir helgina. Álíka margir sáu teiknimyndina The In- credibles 2, Hin ótrúlegu 2, en hún er fjórða tekjuhæsta myndin. Bíóaðsókn Skýjakljúfshasar Spenna Úr hasarmyndinni Sky- scraper sem margir sáu um helgina. Skyscraper Ný Ný Hotel Transylvania 3 Ný Ný Ant-Man and the Wasp 1 2 The Incredibles 2 2 4 TAG 3 3 Book Club 5 4 Sicario: Day of the Soldado 4 3 Kona fer í stríð 8 8 Ocean's 8 6 5 Jurassic World: Fallen Kingdom 7 6 Bíólistinn 13.–15. júlí 2018 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.