Morgunblaðið - 17.07.2018, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 198. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Óskuðu eftir duglegri … stúlku
2. Forsetinn mætti í afmæli Karólínu
3. Reyndi að vinna ástir …
4. Leyfilegt magn áfengis í blóði …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Anderson/Árnason kvartett leikur
á djasskvöldi Kex hostels í kvöld kl.
20.30. Í honum leikur Bretinn Matt
Anderson á saxófón, Jón Ómar Árna-
son á gítar, Sigmar Þór Matthíasson
á kontrabassa og Skúli Gíslason á
trommur og verða leikin lög eftir
Anderson og Jón Ómar ásamt lögum
eftir gítarleikarann Bill Frisell, í bland
við vel valda húsganga úr Amerísku
söngbókinni. Aðgangur er ókeypis.
Kvartett Anderson
og Jóns djassar á Kex
Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti
Einarsson heldur í fyrsta skipti í tón-
leikaferðalag um Ísland og heldur alls
14 tónleika frá og með deginum í dag
til 1. ágúst. Ásgeir mun m.a. frum-
flytja lög sem verða á næstu hjóm-
plötu hans, sem kemur út í byrjun
næsta árs. Fyrstu tónleikarnir fara
fram í Bæjarbíói í kvöld kl. 21 og segir
á Facebook að tónleikarnir verði lág-
stemmdir og hlýlegir, en Ásgeir kem-
ur fram með vini sínum Júlíusi Ró-
bertssyni.
Ásgeir gaf út aðra plötu sína,
Afterglow, í fyrra og hélt í kjölfarið í
tónleikaferðalag um Evrópu, Asíu og
Norður-Ameríku og lauk því um
páskana á þessu ári í Ástralíu. Í kjöl-
farið langaði hann til að ferðast um
Ísland að sumri til með gítarinn
einan að vopni og prufukeyra
ný lög í bland
við eldri,
eins og það
er orðað á
Facebook. Tón-
leikaferðin ber
yfirskriftina Hringsól.
Hringsólað með
Ásgeiri um landið
Á miðvikudag Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og víða bjart, en
þykknar upp sunnan- og vestanlands með rigningu seint um dag-
inn. Hiti víða 10 til 18 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestlægari 3-8 og víða léttskýjað, en lengst
af skýjað og smá væta austast. Hiti víða 7 til 18 stig, hlýjast
sunnanlands en svalast á Norðurlandi.
VEÐUR
Breiðablik er aðeins þremur
stigum á eftir toppliðum
Pepsi-deildar karla í knatt-
spyrnu eftir 2:1 sigur á
Fjölni í gærkvöld þar sem
Oliver Sigurjónsson skoraði
sigurmarkið á síðustu mín-
útu leiksins, beint úr auka-
spyrnu. KR-ingar fóru á
kostum í Egilshöll þar sem
þeir unnu Fylkismenn 5:2 og
komu sér upp í efri hluta
deildarinnar. »4
Blikar á hælum
tveggja efstu liða
Elín Metta Jensen úr Val er besti leik-
maður fyrri umferðar Pepsi-deildar
kvenna í fótbolta að mati Morgun-
blaðsins. Pétur Pétursson, þjálfari
Vals, segir að Elín sé draumaleik-
maður fyrir hvern einasta þjálfara,
vinni vel fyrir liðið og leggi
sig alltaf 150 prósent
fram. „Hún hefur alla þá
eiginleika sem góður at-
vinnumaður þarf að
hafa,“ segir Pétur. »1
Draumaleikmaður fyrir
hvern einasta þjálfara
Ef Frakkar halda rétt á spilunum
gætu þeir einokað alþjóðlegan fót-
bolta næstu tíu árin. Didier Des-
champs, þjálfari franska heimsmeist-
araliðsins, stillti upp mjög ungu liði á
heimsmeistaramótinu sem lauk í
Rússlandi á sunnudaginn. Meðalaldur
þeirra leikmanna sem fengu mínútur
með Frökkum á mótinu er 25,2 ár og
vörn liðsins er enn yngri. »2-3
Ungir og efnilegir
heimsmeistarar
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Það er yfirleitt meira en nóg að
gera hjá mér. Ég er ekki bókaður
alveg alla daga en þeim sem hafa
samband við mig er alltaf að
fjölga,“ segir Björn Ingi Björnsson,
14 ára gamall starfsmaður og eig-
andi garðyrkjufyrirtækisins Garð-
vinna í Reykjavík. Fyrirtækið er nú
orðið ríflega eins árs gamalt, en
Björn stofnaði það ásamt vini sín-
um í upphafi síðasta sumars.
„Upphaflega vorum við tveir í
þessu en svo vildi ég bara vera einn
með þetta til að gera þetta mjög
vel. Til að koma þessu af stað gekk
ég í hús í byrjun síðasta sumars og
lagði kynningarbréf inn um lúguna.
Í kjölfarið stofnaði ég Facebook-
síðuna Garðvinna í Reykjavík, þar
sem fólk hefur getað sent mér
skilaboð til að óska eftir þjónust-
unni,“ segir Björn, sem kveðst hafa
fengið innblástur frá eldri bræðrum
sínum þegar hann tók ákvörðun um
að stofna fyrirtækið. Þá hafi garð-
sláttur og hreinsun beða í görðum
átt betur við hann en þau sumar-
störf sem jafnaldrar hans sinna að
jafnaði á þessum aldri.
Er með nokkra fastakúnna
„Bræður mínir voru í þessu fyrir
nokkrum árum og þannig fékk ég
áhuga á þessu. Mig langaði ekki að
vinna á kassa í Bónus eða við önn-
ur sambærileg störf sem krakkar á
mínum aldri eru í. Þess í stað vildi
ég fara út og hreyfa mig, slá garða,
reyta arfa og fara og sjá mismun-
andi lóðir á höfuðborgarsvæðinu,“
segir Björn og bætir við að garð-
vinnan skili honum yfirleitt meiri
tekjum en hann myndi fá í öðru
starfi. Tekjur af garðvinnunni geti
þó verið mismiklar enda skiptist á
skin og skúrir á sumrin hér á landi.
Spurður hvort margir viðskipta-
vina Garðvinnu í Reykjavík séu
fastakúnnar kveður Björn já við.
„Flestir sem leita til mín eru í eldri
kantinum og eiga garða þar sem
gróðurinn er farinn út í vitleysu.
Þar þarf maður að taka vel til. Svo
er hluti þeirra fastakúnnar sem
vilja halda garðinum sínum við.
Þeir óska eftir því að maður komi
aftur og aftur til að passa að garð-
urinn haldist í lagi,“ segir Björn,
sem mætir með eigin verkfæri og
sláttuvél í öll verkefni. „Ég mæti
sjálfur með tól og hirði allt drasl
sjálfur. Garðurinn er því alveg
tilbúinn þegar ég hef lokið mér af,“
segir Björn, sem er enn sem komið
er eini starfsmaður fyrirtækisins.
Fólk hafi samband á Facebook
Hann segir vel koma til greina
að bæta við starfsmanni fyrir
næsta sumar, haldi fyrirtækið
áfram að vaxa og viðskiptavinum að
fjölga. „Það kemur alveg til greina
að bæta við manni en ég mun
skoða hvort þess er þörf þegar nær
dregur,“ segir Björn og biður
áhugasama garðaeigendur á höfuð-
borgarsvæðinu að hafa samband
við sig í gegnum Facebook-síðu
fyrirtækisins, Garðvinna í Reykja-
vík.
„Þar get ég látið fólk vita hve-
nær ég kemst í verkefnin og
hvernig dagskráin hjá mér lít-
ur út,“ segir Björn.
14 ára gamall frumkvöðull
Fer á milli
garða Margir
fastakúnnar
Morgunblaðið/Hari
Á vinnustað Björn hefur starfað við garðvinnu síðastliðin tvö sumur og er eini starfsmaður og eigandi fyrir-
tækisins Garðvinna í Reykjavík. Mikið hefur verið að gera hjá fyrirtækinu og fer verkefnunum fjölgandi.