Morgunblaðið - 18.07.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2018
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Nýr yfirhundaþjálfari fíkniefnahunda
hér á landi hefur verið ráðinn til
starfa. Þetta staðfestir Sigríður Á.
Anderssen, dómsmálaráðherra, í
samtali við Morgunblaðið.
Eins og fram kom í umfjöllun
Morgunblaðsins í gær hefur aðgerð-
arleysi ríkt í málefnum fíkniefna-
hunda hér á landi. Að sögn Heiðars
Hinrikssonar, lögreglumanns og um-
sjónarmanns hundsins hjá embætti
lögreglunnar í Vestmannaeyjum, hef-
ur engin skýr stefna verið í mála-
flokknum í nokkur ár.
Áður voru fíkniefnahundar á snær-
um ríkislögreglustjóra en því var
breytt fyrir um fjórum árum. Sigríður
segir að breyting muni nú verða á
málaflokknum og tekið verði á málum
af festu. „Ég hef falið lögreglustjór-
anum á Norðurlandi vestra að hafa
umsjón með hundakosti hér á landi.
Öll lögregluembættin verða í sam-
starfi við hann hvað þetta varðar. Að-
stæður eru þannig að hann getur tek-
ið við þessu og þannig verður þessu
háttið. Hjá honum verður lögreglu-
maður sem mun taka þetta verkefni
að sér og verður í raun þessi yfir-
hundaþjálfari sem eitt sinn starfaði
hjá ríkislögreglustjóra,“ segir Sigríð-
ur og bætir við að málið hafi verið í
skoðun í talsverðan tíma. Ákvörðun
um að ráða nýjan hundaþjálfara hafi
hins vegar verið tekin fyrir nokkrum
vikum eftir samtöl við fólk sem vel
þekkir til málefna fíkniefnahunda.
„Við vorum lengi að skoða hvar
þessu væri best fyrir komið. Við tók-
um síðan ákvörðun fyrir nokkrum
vikum í góðu samstarfi við fólk úr
bransanum,“ segir Sigríður.
Nýr þjálfari fíkniefnahunda
Lögreglustjóri Norðurlands vestra mun hafa umsjón með
málefnum fíkniefnahunda Tekið verður á málum af festu
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Þefvís Nýr yfirhundaþjálfari fíkni-
efnahunda hefur verið ráðinn.
Mannréttinda-
dómstóll Evrópu í
Strassborg úr-
skurðaði í gær að
íslenska ríkið hafi
ekki brotið gegn
Agli Einarssyni
með dómi í meið-
yrðamáli sem
Egill höfðaði gegn
konu árið 2012.
Konan, Sunna
Ben Guðrúnardóttir, hafði gagnrýnt
tímaritið Monitor fyrir að vera með
uppslátt á forsíðu um Egil, og sagt að
ekki væri um að ræða „árás á mann
fyrir að segja eitthvað rangt, heldur
fyrir að nauðga unglingsstúlku“.
Egill stefndi Sunnu fyrir meiðyrði
og Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi ummæli Sunnu dauð og
ómerk, en taldi þó ekki sannað að
Sunna hefði sakað Egil um nauðgun
gegn betri vitund og var Agli gert að
greiða eigin málskostnað. Hæstirétt-
ur staðfesti síðar dóm héraðsdóms.
Egill undi ekki niðurstöðunni og
skaut málinu til Mannréttinda-
dómstólsins þar sem hann taldi brot-
ið á rétti sínum til að sækja mál ef
hann þyrfti sjálfur að bera máls-
kostnað. Þessu hafnaði dómstóllinn,
og tekur sérstaklega fram að Egill
hafi ekki unnið fullnaðarsigur fyrir
íslenskum dómstólum þótt orð Sunnu
hafi verið dæmd dauð og ómerk.
agnes@mbl.is
Egill tapaði
máli sínu í
Strassborg
Egill
Einarsson
Þarf að greiða
eigin málskostnað
Íbúar á suðvesturhorni landsins
hafa fengið að njóta sólarinnar í upp-
hafi viku en ekki er þó útlit fyrir jafn
sólríka daga á Suðvesturlandi á
næstunni, að undanskildum
morgundeginum. Þetta segir Hrafn
Guðmundsson, veðurfræðingur hjá
Veðurstofu Íslands, við Morgun-
blaðið.
Í dag þykknar upp suðvestantil
með rigningu undir kvöld. Á morgun
mun svo aftur rofa til, en sú sól varir
hins vegar fremur stutt, að sögn
veðurfræðings. „Mikillar úrkomu er
að vænta á föstudag og svo erum við
í lægðadragi yfir helgina. Væg norð-
læg átt verður svo eftir helgi, þar
sem gæti létt til suðvestanlands,“
segir Hrafn. Ef litið er lengra fram í
tímann suðvestan til verður veðrið
nokkurn veginn í sama gír og það
hefur verið. „Það er ekki að sjá að
það verði einhver kúvending í kort-
unum,“ segir Hrafn. axel@mbl.is
Veðrið verður
kaflaskipt
Skonnortan Ópal er hér á landstími til Húsavík-
ur í kvöldsólinni. Út við fallegan sjóndeildar-
hringinn á Skjálfandaflóa siglir skemmti-
ferðaskipið Norwegian Jade með fjölda farþega
á ferð um norðurslóðir. Ef ekki væri fyrir Jade
gæti myndin hafa verið tekin fyrir 100 árum.
Skonnorta og skemmtiferðaskip á Skjálfanda
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Ég nota tölvuna mest til að skoða
ljósmyndir, en eftir mig liggur stórt
safn ljósmynda. Þar á meðal er mynd
af mér frá því ég fermdist, en ég fékk
kassamyndavél frá Kodak í fermingar-
gjöf,“ segir Sigfús B. Sigurðsson, bif-
vélavirki og kennari, en hann fagnar
aldarafmæli sínu í dag. Morgunblaðið
hitti hann fyrir á Eiri í Grafarvogi, þar
sem hann situr við skrifborð með
tölvu, nýrri fartölvu, prentara og
snjallsíma og er augljóst að þarna býr
maður með mikinn áhuga og þekkingu
á nýjustu hönnun og framförum í
tækni.
Sigfús fæddist 18. júlí 1918, sonur
hjónanna Elísabetar Böðvarsdóttur og
Sigurðar Sigurðssonar.
„Við vorum fimm alsystkin. For-
eldrar mínir skildu þegar ég var
tveggja, þriggja ára, því faðir minn
barnaði aðra konu. Móðir mín fór þá
með mig, einan úr systkinahópnum, og
skildi mig eftir í fóstri. Ég man hvað
ég grét mikið,“ segir Sigfús, sem
minnist æskuáranna með trega, en
hann var sendur víða í fóstur og í sveit
í æsku og hlaut litla skólagöngu fram-
an af.
„Þegar ég byrjaði seinna í skóla í
Firðinum kom til mín drengur úr
bekknum sem kvaðst vera hálfbróðir
minn. Við tókumst í hendur og með
okkur tókst gott bróðerni.“
Eftir fermingu var Sigfús sendur
aftur í sveit til prests í Fljótshlíðinni,
sem átti að kenna honum ensku, því nú
vildi faðir hans senda hann til Am-
eríku. „Úr því varð ekki en í staðinn
réð hann mig í sendilsvinnu hjá strætó,
þar sem mér líkaði vel og að ráðum
góðra manna sótti ég um að komast á
samning hjá iðnmeistara.“ Sigfús lauk
sveinsprófi frá Iðnskólanum í Reykja-
vík árið 1938 og starfaði lengi á verk-
stæði strætó sem verkstjóri og síðar á
Skoda-verkstæðinu, þegar ekki mátti
flytja inn bíla nema frá Tékkóslóvakíu.
Hann varð fljótt þekktur fyrir mikla
kunnáttu í fagi sínu.
Sigfús kvæntist á 24 ára afmælis-
daginn Jóhönnu Sumarliðadóttur, frá
Mosdal í Önundarfirði, f. 26. desember
1923. Hún lést 19. október árið 2006,
eftir tæplega 65 ára hjónaband. Þau
hófu búskap sinn í litlu herbergi á
Laugarnesvegi 52, byggðu svo hús að
Hrísateigi 18 og að Goðalandi 6 í
Reykjavík, eignuðust þrjár dætur og
afkomendurnir eru orðnir 50 talsins.
„Þegar Þór Sandholt var skólastjóri
í Iðnskólanum auglýsti hann eftir
kennurum og ég sótti um. Það var boð-
ið upp á nám í útlöndum til undirbún-
ings og ég var sendur ásamt þremur
öðrum í sex mánuði til Napólí á Ítalíu.
Þá kom sér vel að hafa lært ensku hjá
prestinum, en enskur túlkur túlkaði
fyrir okkur. Þetta var árið 1955, við
heimsóttum Capri, Pompei og fleiri
staði þegar við áttum frí. En fólkið var
ægilega fátækt í Napólí á þessum
tíma.“
Sigfús tók kennsluréttindi og bætti
síðar við sig menntun hjá Volvo í Sví-
þjóð, heimsótti sýningar í Frankfurt í
Þýskalandi og hjá General Motors í
Indiana í Bandaríkjunum til að afla
stöðugt þekkingar.
Sigfús var stofnandi verkstæðis bif-
reiðadeildar Iðnskólans og kenndi þar
uns hann lét af störfum fyrir þrjátíu
árum. Eftir hann liggur m.a. ensk-
íslenskt Tækni- og bílorðasafn frá
1996, sem er löngu orðið uppselt.
Lærði bifvélavirkjun í Napólí
Morgunblaðið/Valli
Aldarafmæli Sigfús B. Sigurðsson er jafngamall fullveldissamningnum.
Fæddist daginn sem fullveldissamningur Íslands var undirritaður Lagði
grunn að iðn- og tækniþekkingu á Íslandi Gaf út tækniorðasafn í ellinni