Morgunblaðið - 18.07.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.07.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2018 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is HM í fótbolta er afstaðið ogveðurspáin er góð svo aðvið búumst við að nú farigestum hér á tjaldsvæð- unum að fjölga. Hér hefur verið nokkuð rólegt það sem af er sumri en Ásbyrgi stendur þó alltaf fyrir sínu,“ segir Árdís H. Jónsdóttir, yfirlandvörður í Jökulsárgljúfrum. Gljúfrin eru eitt svæðanna sem eru innan hins víðfeðma Vatnajök- ulsþjóðgarðs. Hundruð þúsunda gesta koma á svæðið árlega og hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Ræður þar á meðal annars að lögð hefur verið góð og greið leið frá hringveg- inum af Mývatnsöræfum að Detti- fossi vestanverðum sem mun innan fárra ára ná alla leiðina í Keldu- hverfi. Með því má segja að Ásbyrgi verði við þjóðbraut þvera. Níu hundruð næturgestir Tjaldsvæðið í Ásbyrgi nær yfir allstórt svæði og tekur upp undir 900 næturgesti. „Auðvitað eru út- lendingar áberandi meðal þeirra sem hingað koma en Íslendingarnir eru samt stór hópur. Yfir sumarið er vinsælt meðal fólks til dæmis frá Húsavík og Akureyri að koma hing- að með tjaldið sitt eða fellihýsið og vera yfir helgi,“ segir Árdís. Nú á dögunum var sú bragar- bót gerð í Ásbyrgi að sett var upp þjónustuhús og afgreiðsla við að- komuna að tjaldsvæðinu. Þar getur fólk nú greitt fyrir gistinguna um leið og komið er á svæðið. Er þetta hugsað til þæginda fyrir alla, bæði tjaldgesti og eins tjaldverðina sem fara annars að kvöldi eða í bítið næsta dag að þeim tjöldum þar sem fólk á enn eftir að borga. Landið, flóran og fuglarnir „Þjóðgarðurinn hér í Jökulsár- gljúfrum er svæði sem mér er afar kært; bæði landslagið hér, flóran, fuglarnir og svo þetta skemmtilega samfélag sem hér er,“ segir Árdís sem nú er að vinna þarna sitt 14. sumar. Byrjaði sem verkamaður, var seinna almennur landvörður en er nú yfirlandvörður í þjóðgarð- inum; það er verkstjóri verkamanna og landvarða – sem hafa með hönd- um ýmis landbótastörf og þjónustu við gesti. „Stundum er sagt að í þjóð- görðum og á friðlýstum svæðum sé alltaf númer eitt að klósettin virki og vatn komi úr krönunum. Að tryggja að þetta virki sé forgangs- mál og sennilega er eitthvað til í því,“ segir Árdís. „Ég var mörg sumur landvörður í Vesturdal og Hljóðaklettum, sem er stórkostlegt svæði. Þangað koma margir og mega ekki vera fleiri, því land og gróður þar bera ekki meira álag. Með nýjum Dettifossvegi munu fleiri koma í Hljóðakletta og því er mjög brýnt að bæta aðstöðuna þar, eins og nú stendur til að gera. Að- komunni í Vesturdal verður því væntanlega breytt, ný bílastæði útbúin á Langavatnshöfða og göngustígar lagðir. Vonandi verður þetta til bóta – og raunar er alltaf verið að bæta aðstöðuna hér í Gljúfrunum.“ Spáin er góð fyrir Gljúfrin Greið leið í Ásbyrgi. Ár- dís H. Jónsdóttir yfirland- vörður stendur þar vakt- ina sitt 14. sumar. Margvísleg uppbygging er framundan í þjóðgarð- inum. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Landvörður „Þjóðgarðurinn hér í Jökulsárgljúfrum er svæði sem mér er afar kært,“ segir Árdís H. Jónsdóttir hér á tjaldsvæðunum í Ásbyrgi. Íslendingar eru stór hluti gesta þar, til dæmis fólk af Norðurlandi í helgarferðum. Ásbyrgi Tjaldsvæðin eru oft þétt setin á fallegum sumardögum. Hljóðaklettar Kynjamyndir náttúrunnar hér eru engu lagi líkar. Í dag, miðvikudaginn 18. júlí, verður haldið upp á dag íslenska fjárhunds- ins á Árbæjarsafni. Það verða nokkrir hundar og eigendur þeirra á staðnum sem munu glaðir svara öllum spurn- ingum um íslenska fjárhundinn. Hundarnir eru ljúfir og spakir og er óhætt að klappa þeim með leyfi eig- enda. Einnig verður á safninu sýnd stuttmynd um hundinn, sögu hans og hlutverk. Í haga er jafnframt að finna hesta, kindur og lömb og í Dillons- húsi verður heitt á könnunni og heim- ilislegar veitingar. Safnið er opið frá kl. 10-17 en dagskráin hefst kl. 14. Árbæjarsafnið í dag Fjárhundadagur Gróska á Grandanum að fornu og nýju er yfirskrift kvöldgöngu sem Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur fer fyrir um Grandann í Reykjavík á morgun, 19. júlí. Lagt verður af stað frá Sjóminja- safninu kl. 20. Leiðsögnin verður á ís- lensku. Þátttakendur eiga í vændum upplifun þar sem lykt og bragð verður í öndvegi. Ferðast verður um síðustu öld með viðkomu í almenningsböðum sem japönskum kaffihúsum, mathöll- um og netageymslum. Þá verður rætt um frumgerð skyrsins og rýnt í fyrstu frönsku kartöflurnar á Íslandi. Gengið um Grandann Morgunblaðið/Eggert Grandi Ekkert er betra en ís í sólinni. Lykt, bragð og franskar kartöflur Undir merkjum Menningarveislu Sólheima í Gríms- nesi verða þar haldnir tónleikar nk. laugardag kl. 14 þar sem Elmar Gilbertsson ten- órsöngvari kemur fram. Tónleikarnir verða í Sólheima- kirkju og þar mun Elmar flytja nokkur vel valin lög. Eins og áður er ókeypis aðgangur að öll- um viðburðum menningarveislunnar, en dagskrána alla má finna á sol- heimar.is. Elmar í Menningarveislu Sungið á Sólheimum Elmar Gilbertsson Í Jökulsárgljúfrum eru nokkrar helstu perlur íslenskrar nátt- úru. Dettifoss er álitinn afl- mesti foss Evrópu og má í hon- um skynja þá krafta sem myndað hafa Ásbyrgi og Hljóða- kletta. Andstæður krafts og friðar eru svo óvíða skýrari en í Hólmatungum þar sem tærir lækir og lindir renna út í belj- andi jökulá, segir á vef Vatna- jökulsþóðgarðs. Kraftar og andstæður JÖKULSÁRGLJÚFUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.